Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990
25
Morgunblaðið/Ransy Morr
Skrautvagn íslands í skrúðgöngunni í Norfolk; hann hlaut nú verðlaun í annað sinn. í hásæti er
alparósadrottningin og hirðmey hennar Sara Weatherall ásamt tveimur skutulssveinum.
Norfolk:
Nafiii íslands haldið á
loft á alparósahátíð
Norfolk. Frá ívari Guðmundssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ALPARÓSIN er tákn Virgin-
íuríkis í Bandaríkjunum. Und-
anfarin 36 ár heíúr verið efnt
til sérstakrar hátíðar í nafni
hennar á vegum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) í hafnar-
borginni Norfolk í Virginíu, en
þar eru höfuðstöðvar Atlants-
hafsherstjórnar bandalagsins.
Á 37. hátíðinni í síðustu viku
bar naln íslands hæst af
NATO-ríkjunum sextán. Var
íslensk stúlka, Katrín Sverris-
dóttir, sem er við nám í Banda-
ríkjunum krýnd alparósa-
drottning.
Krýning drottningarinnar fór
fram á laugardag og við þá at-
höfn sagði Katrín Sverrisdóttir
meðal annars: „Það er ein ósk,
sem mér liggur á hjarta, en hún
er sú, að okkur megi takast að
varðveita og vernda umhverfi
mannsins í framtíðinni eins vel
og okkur hefur tekist að varðveita
frið og frelsi í heiminum." Það
var Ingvi S. Ingvarsson, sendi-
herra Islands í Washington, sem
krýndi drottninguna.
Það atriði hátíðarinnar sem
vekur hvað mesta almenna at-
Varðskipið Týr fór til Norfolk í tilefhi hátíðarinnar. Á hafnarbakk-
anum eru frá vinstri: Sesselja Siggeirsdóttir Seifert, formaður
ísleningafélagsins, Katrín Sverrisdóttir, Ingvi S. Ingvarsson sendi-
herra, Helgi Hallvarðsson skipherra og Hólmfríður Jónsdóttir
sendiherrafrú.
hygli er skrúðganga um götur
Norfolk. Drottningunni fylgja þá
15 hirðmeyjar og liðsforingjaefni
frá herskóla Virginíuríkis. Skraut-
vagnar setja mikinn svip á þessa
göngu og fær hinn glæsilegasti
þeirra verðlaun. íslendingar í
Norfolk leggja mikla alúð við gerð
vagns íslands og hlaut hann verð-
laun í ár og einnig í fyrra; Ses-
selja Siggeirsdóttir Seifert er for-
maður Islendingafélagsins.
Morgunblaðið/Ransy Morr
Ingvi S. Ingvarsson sendiherra krýnir Katrínu Sverrisdóttur alpa-
rósadrottningu.
Morgunblaðið/Ransy Morr
Félagar úr kór Oldutúnsskóla fá sér matarbita á milli atriða.
Barnakór Öldutúnsskóla undir
stjórn Egils Friðleifssonar kom
víða fram í Norfolk og hreif áheyr-
endur. Sigrún Edvaldsdóttir fiðlu-
leikari vakti aðdáun fyrir einleik
með sinfóníuhljómsveit Virginíu.
Varðskipið Týr lá við festar í höfn-
inni og tóku skipverjar af því
undir forystu Helga Hallvarðsson-
ar skipherra þátt í hátíðahöldun-
um. Þá var efnt til vörusýninga
á vegum íslenskra fyrirtækja.
Þættir framleiddir af Prop-
aganda Films fá mjög góðar
viðtökur í Bandaríkjunum
BANDARÍSKA sjónvarpsst.öðin ABC sýndi á skírdag annan hlut-
ann af átta í nýrri þáttaröð sem framleidd er af fyrirtæki Sigur-
jóns Sighvatssonar, Propaganda Films, í samvinnu við hinn þekkta
leikstjóra David Lynch (Blue Velvet, Dune). Þættirnir eru sýndir
á sama tima og Staupasteinn eða Cheers, um miðnætti á fimmtu-
dagskvöldum. Eftirvænting hefúr ríkt um hvernig nýju þáttaröð-
inni vegni í þessari samkeppni. Sjónvarpsáhorfendur á 28 milljón-
um bandarískra heimila fylgdust með þættinum aðfaranótt Föstu-
dagsins langa, en stillt var á Staupastein á 33 milljónum heimila.
Fyrri keppinautar þess þáttar höfðu hins vegar „aðeins“ 16 milljón-
ir áhorfenda. Morgunblaðið ræddi við Sigurjón Sighvatsson í Los
Angeles.
Um 35 milljónir sjónvarpstækja
voru stillt á tveggja tíma upphafs-
þátt Twin Peaks, Tvídranga, sem
sýndur var fyrir tíu dögum, en
forsvarsmenn ABC höfðu búist við
8 milljónum. Bandarískir fjöl-
miðlar sögðu þetta metfjölda
áhorfenda á upphafsþátt, „pilot“,
undanfarna mánuði. Þessi fyrsti
þáttur er þegar fáanlegur á sum-
um myndbandaleigum hérlendis.
Siguijón Sighvatsson segir að
þættirnir gerist í friðsælu þorpi
einhversstaðar í miðríkjum Banda-
ríkjanna. „Allt virðist slétt og fellt
þar til ung stúlka finnst myrt. Þá
koma skuggahliðar bæjarlífsins í
ljós, valdabaráttá og spilling. Þetta
er dæmigert fyrir David Lynch,
hann skoðar gjarnan það sem leyn-
ist undir fáguðu yfirborði," segir
Siguijón.
Hann segir Lynch hafa skrifað
handrit ásamt Mark Frost (Hill
Street Blues, True Believer). „Þeir
komu til Propaganda Films, við
snerum okkur til dreifingarfyrir-
Siguijón Sighvatsson.
tækisins World Vision, sem fjár-
magnar gerð þáttanna auk ABC.
Við sjáum síðan um framkvæmd-
ina.“
Dagblaðið USA Today fjallaði
nýlega um þáttaröðina i forsíðu-
grein og segir ABC taka áhættu
með því að tefla fram óhefðbundnu
efni gegn jafn vinsælum þáttum
og Staupasteini. Auglýsingar með-
an á sýningu þáttanna stendur eru
sagðar 20% færri en í dæmigerð-
um sápuóperum og fram kemur
að sumir telji miðnætursýningar
nokkurt hættuspil.
Siguijón segist ekki hafa verið
ánægður með sýningartímann.
ABC fari inn á nýjar brautir í sjón-
varpsefni með þáttunum og taki
vissulega áhættu. „En þeir hafa
aljt að vinna og engu að tapa,“
segir hann. „Með tilkomu kapal-
sjónvarps síðustu árin hafa þrjár
stærstu sjónvarpsstöðvarnar misst
þriðjung áhorfenda sinna. Þessar
stöðvar hafa verið að sýna hefð-
bundnar sápuóperur sem margir
nenna ekki lengur að eyða tíma í
að sjá. Það er helst fólk með meiri
menntun og í betri efnum sem
gerir frekari kröfur til sjónvarps-
efnis. Og nú reynir ABC að ná til
þessa hóps með nýstárlegu efni.“