Morgunblaðið - 24.04.1990, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIFTI/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
JOTUNN — Jötni er skipt upp í fímm megindeildir sem annast innflutning, sölu, dreifíngu og þjónustu.
Á myndinni eru f.v. Guðbjartur E. Jónsson, deildarstjóri þjónustu- og varahlutadeildar, Arnór Valgeirsson,
deildarstjóri fóðurdeildar, Þorgeir Örn Elíasson, deildarsy'óri véladeildar, Sigurður Árni Sigurðsson, fram-
kvaemdastjóri, Steinar Magnússon, skrifstofustjóri, Bjarni Olafsson, deildarstjóri bíladeildar og Grétar Strange,
deildarstjóri raftæknideildar.
Fyrirtæki
Jötunn tekur form-
legu til starfa
NÝ deild innan Sambands íslenskra samvinnufélaga, Jötunn, var
formlega opnuð síðastliðinn föstudag að Höfðabakka 9. Deildin ylír-
tekur innflutning og sölu á bílum, vélum, rafbúnaði og fóðri, sem
Bílvangur sf., Búnaðardeild Sambandsins og Jötunn hf. hafa annast.
Tilgangurinn með stofhun Jötuns er að ná fram aukinni hagræðingu
i rekstri með því meðal annars að sameina skrifstofúhald þessarra
þriggja fyrirtækja. Jafnframt er gert ráð fyrir að unnt verði að
veita viðskiptavinum betri þjónustu og efla markaðsstarfsemi.
Starfsemi Jötuns er skipt í fimm
megindeildir þ.e. bíladeild, véla-
deild, raftæknideild, fóðurdeild og
þjónustudeild. Jötunn mun áfram
reka fóðurblöndunarstöð Samband-
ins við Sundahöfn og annast dreif-
ingu fóðursins.
í frétt frá Jötni kemur fram að
sú nýlunda er í starfseminni að nú
er stofnuð sérstök þjónustudeild
sem sér um allt viðhald þeirra bíla
sem Jötunn flytur inn. Kappkostað
verður að hafa úrval af varahlutum
á boðstólum, auk þess sem leitað
verður nýrra leiða til þess að tryggja
það að allir viðskiptavinir fyrirtæk-
isins fái eins góða og hraða þjón-
ustu og framast er unnt. Meðal
annars mun fyrirtækið nýta sér
hraðþjónustu, sem rutt hefur sér
til rúms upp á síðkastið.
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
VASKHUGI
Stutt en hnitmiðað námskeið í notkun þessa einstak-
lega hentuga forrits, sem sniðið er fyrir lítil fyrirtæki.
O Útskrift sölureikninga O Uppgjör útskatts
O Uppgjör innskatts O Skýrslugerð
Tfmi: Laugardag 28.4 kl. 10-15.
Innritun í síma 687590.
Tölvuskóli Reykjavíkur
Qí tölvufræösla Borgartúni 28, s. 687590
Markaðsmál
Hvet til nýrri og stærri verk-
efha á vettvangi markaðsmála
*
— segir Emil Emilsson nýkjörinn formaður IMARK
STJÓRNARSKIPTI fóru fram nýlega hjá íslenska markaðsklúbbnum
— ÍMARK. Formaður nýrrar stjórnar var kjörinn Emil Emilsson,
markaðsstjóri Sambands íslenskra sparisjóða, en meðstjórnendur eru
Birna Einarsdóttir, _ markaðssljóri Stöðvar 2 og Sigurður Pálsson
framkvæmdastjóri Örtölvutækni hf. I varastjórn voru kjörnir Magn-
ús Kristjánsson, íslensku auglýsingastofunni og Sigurður Kolbeins-
son framkvæmdastjóri Nico hf.
íslenski markaðsklúbburinn var
stofnaður síðla árs 1986. Tildrögin
voru þau að nokkrir einstaklingar,
sem störfuðu að markaðsmálum
komú saman og ræddu nauðsyn
þess að efla faglega umræðu um
markaðsmál og sameina þá ein-
staklinga sem við þau starfa.
„Markmið starfseminnar hafa verið
frá stofnun að opna augu almenn-
ings og ráðamanna á mikilvægi
markaðsmála og efla fræðslu þeirra
sem starfa að markaðsmálum og
annarra sem hafa áhuga á að afla
sér menntunar á því sviði,“ segir
Emil Emilsson. „í mínum huga er
eitt meginhlutverk ÍMARK að
hvetja konur og karla til nýrri og
stærri afreka á vettvangi markaðs-
mála. Nú á tímum breytinga, fijáls-
ari viðskipta og um leið aukinnar
erlendrar samkeppni er nauðsynlegt
fyrir íslendinga að efla markaðs-
starf og markaðshugsun innan
íslenskra fyrirtækja, ef þau eiga
að standa styrk í þeim miklu hrær-
ingum sem framundan eru.“
Emil segir að ímark sé í öflugu
samstarfi við sambærilega kúbba
erlendis og klúbburinn leiti stöðugt
að nýjum leiðum til að vinna að
settu markmiðum. Megi í því sam-
bandi nefna samkeppnina um at-
hyglisverðustu auglýsingu ársins,
þar sem tilgangurinn sé að vekja
almenna athygli á vel gerðum aug-
lýsingum og auglýsingaefni og veita
aðstandendum þeirra verðskuldaða
viðurkenningu. Einnig séu reglu-
lega haldnir morgunverðarfundir
og fræðslufundir á vegum klúbbs-
ins.
Aðspurður um breytingar fram-
undan segir Emil að of fljótt sé að
segja nokkuð til um það. „En við
hjá ÍMARK treystum á að þeir sem
áhuga hafa á markaðsmálum gangi
til liðs við okkur og að við fáum
að njóta krafta þeirra, því starfsem-
in stendur og fellur með framlagi
félaganna sjálfra,“ segir Emil Em-
ilsson.
Komdu ,Jax“mönnum þínum
erlendis á bragðið
af íslenska sœlkeraborðinu.
Gríptu með þér ljúffenga landkynningu næst.
k Reyktur og grafinn lax, reykt og /£*
Bk nýtt lambakjöt, ostar, pylsur, /W
*ii 'lMh kavíaro.fl. . Ji j
Hringdu í
síma 92-5 04 50
og fáðu upplýsingar -
við höfum pakkann tilbúinn
þegar þú kemur.
ÍSLENSKUR
MARKAÐUR
Leifsstöð Keflavíkurflugvelli