Morgunblaðið - 24.04.1990, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Þú lætur til þín taka á bak við
tjöldin í dag. Áætlanir þínar
tryggja þér fjárhagslegan ábata.
Þú getur orðið fyrir töfum fyrri
hluta dagsins, en sjálfstraust þitt
er í góðu lagi núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú eignast nýja vini i dag. Ljúktu
undirbúningi fyrir boðið sem þú
ætlar að halda. Þú sýnir að leið-
togahæfileikar þínir eru óumdeil-
anlegir og leggur metnað þinn í
að ljúka ákveðnu verkefni á til-
skildum tíma.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú vinnur tima á því að starfa
einn i dag. Þú kannt að verða
fyrir vonbrigðum með vin þinn.
Farðu að öllu með gát ef þú þarft
að reka einhver viðskipti.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) H8í
Þú ert að undirbúa ferðalag og
heimsókn til vina þinna. Maki
þinn er önnum kafinn fyrir há-
degi. Taktu þátt í hópstarfi.
Ljón
(23. júli - 22. ágúst)
Þú sérð hlutina í samhengi og
tekur mikilvæga ákvörðun sem á
eftir að bæta stöðu þína umtals-
vert. Láttu dagbundin verkefni
ekki reka á reiðanum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú verður fyrir einhvers konar
vonbrigðum í einkalífinu i dag.
Skrifaðu undir samninga, en ráð-
færðu þig við þá sem þú treystir
fyrst.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Einbeittu þér að verkefninu sem
þú ert með í takinu og ýttu heim-
ilisáhyggjunum til hliðar. Mynd-
arlegt átak fleytir þér þangað
sem þú vilt komast. Taktu
ákvarðanir í sambandi við fjár-
málin.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Hversdagsleikinn dregur þig svo-
litið niður í dag, en þú tekur gleði
þína aftur við að njóta útivistar
með fjölskyldunni. Skemmtu þér
nú rækilega.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. dekember) &
Þú hefur fjárhagsáhyggjur í dag.
Samt kemur þú miklu. í verk
heima hjá þér og þér miðar einn-
ig vel áfram í starfinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Taktu tillit til allra í Qölskyldunni
og skildn engan út undan. Skap-
andi verkefni sem þú vinnur að
skilar vel áfram. Rómantíkin set-
ur svip sinn á ferðalag sem er
fram undan. Kvöldið verður mjög
skemmtilegt.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú tekur mikilvægar ákvarðanir
sem varða heimilið. Áhyggjur
sem hafa verið að angra þig
hverfa eins og dögg fyrir sólu
þegar þú færð yfirsýn yfir það
sem er að gerast.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’Sí
Taktu á þig rögg og sinntu mikil-
vægu símtali sem þú hefur ýtt á
undan þér. Það kemur þér best
að taka frumkvæðið í þessu efni.
AFMÆLISBARNIÐ er ham-
ingjusamast þegar það er að
vinna að framgangi hugsjóna
sinna. Það er klókt, en jafnframt
ábyrgt. Því hentar best að vinna
að skapandi verkefnum og fara
sínar eigin leiðir. Það er stórhuga
og oft farsælt í viðskiptum. Því
líkar best að hafa stöðugt eitt-
hvað fyrir stafni og glíma við
margt í senn. Oft hefur það hæfi-
leika á sviði tónlistar, myndlista
eða skrifta.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dægradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
I MAVE TO WRITE A REPORT
ON ONE OF TKE 6REAT
MV5TERIE5 OF LIFE...
Ég á að skrifa ritgerð um einn af
hinum miklu leyndardómum lífsins.
1
©
8
|
W
IF A PER50N POESN'T
OU)N A CAR, HOU) CAN A
LOVER LEAVE A NOTE
ON TME WINPSHIELP ?
Ef maður á ekki bíl, hvernig á elsk-
an hans þá að geta skilið eftir skila-
boð á framrúðunni?
MAYBE l*LL WRITE 50METMIN6
ABOUT TME MOON..
Kannski ég skrifl eitthvað um tungl-
ið ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Venjulega hafa menn ekkert
á móti því að eiga út gegn þrem-
ur gröndum með ÁKG10 átt-
unda í ómelduðum lit.
Austur gefur; AV á hættu.
Vestur
♦ Á86
¥ KD82
♦ D94
♦ ÁK7
Norður
♦ 10
¥7
♦ ÁKG108753
♦ 964
Austur
♦ KD943
¥53
♦ 2
♦ G10853
Suður
♦ G752
¥ ÁG10964
♦ 6
♦ D2
Vestur Norður Austur Suður
— — 2 lauf 2 hjörtu
3 grönd Pass Pass Pass
Guðmundur Hermannsson í
sveit Samvinnuferða hélt á spil-
um norðurs í leik gegn Flugleið-
um á íslandsmótinu. Hann
ákvað að styggja andstæðing-
ana ekki með dobli, enda yrði
það ágæt uppskera að taka 8
fyrstu slagina. Opnun Aðalsteins
Jörgensens í austur á tveimur
laufum var af Fjöldjöflaætt, gat
innihaldið veik skiptingarspil af
ýmsu tagi. Eftir strögl Sverris
Ármannssonar á tveimur hjört-
um ákvað Jón Baldursson og
ljúka sögnum með þremur
gröndum, frekar en spyija Aðal-
stein um skiptinguna.
Guðmundur taldi sig hafa
góða afsökun fyrir því að koma
ekki út með lit makkers. Hann
lagði niður tígulás og Jón fékk
því óhjákvæmilega 10 slagi. Með
hjarta út og tígli til baka fær
vömin fyrstu 9 slagina.
Þetta var eina geimið sem
vannst í AV. Flestir spiluðu fjóra
spaða, sem tapast vegna stungu
í hjarta. Fóm í tígli var líka al-
geng, sem gaf AV 300-500.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Fischen-Langenwang
í Alpafjöllum í vor kom þessi staða
upp í skák V-Þjóðveijanna Lud-
wigs Maugg, sem hafði hvítt og
átti leik, og Wolfgangs Schulz.
Svartur lék síðast 34. - Hf8-f7
og bauð jafntefli.
35. Hxb6! - axb6, 36. Rc4+ -
Ka4, 37. Bdl+ - Kb5, 38. Rd6+
og svartur gafst upp, því hann
verður heilum manni undir.