Morgunblaðið - 24.04.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990
37
Einar Atli Jóns-
son - Minning'
Fæddur 21. júní 1959
Dáinn 10. apríl 1990
Sumardagurinn fyrsti heilsaði
mér bjartur og fagur, en samt
fannst mér einhver drungi yfir, sem
ég skildi ekki strax.
Ég fletti í gegnum Moggann
minn og skyndilega fann ég kulda
og tómleika streyma um mig. Ó jú,
þarna fann ég skýringuna á drung-
anum, sem ég hafði fundið fyrir er
ég heilsaði nýjum degi. Félagi og
vinur frá unglingsárunum, hann
Einar Atli, var dáinn. Horfinn sjón-
um okkar yfir móðuna miklu.
Síðan streymdu myndir og minn-
ingarbrot í gegnum huga minn.
Langar mig til að minnast hans
í örfáum orðum, um leið og ég vil
Ray Charles, og þær stundir voru
mér mjög ljúfar.
Eftir að Ella flutti úr Hólminum
með drengina sína, hugsaði ég oft
til þeirra. Af og til fékk ég þó frétt-
ir af þeim. Tvisvar hitti ég Einar
Atla á förnum vegi, og í bæði skipt-
in var jafnánægjulegt að hitta hann
og áður. Gamli, góði félaginn kom
þá upp í honum og voru ýmis prakk-
arastrik rifjuð upp og síðan hlegið
að öllu saman.
Núna í dag, 24. apríl, á 9 ára
afmælisdegi dóttur minnar, fylgi
ég honum síðasta spölinn og ég
veit að hann hefur fundið frið á
betri stað.
Elsku Ella mín, harmur þinn er
mikill og þungur, og megi góður
guð létta þér sorgina og sefa hana.
Elsku Palla, Jóni og öðrum að-
standendum sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Jóhanna Osk
þakka honum fyrir allt.
Ég kynntist Einari Atla þegar
við vorum 12-13 ára, þegar hann
fluttist til Stykkishólms, ásamt
móður sinni, Elínu Markan, og
Páli, yngri bróður sínum.
Það var spennandi hjá okkur
bekkjarsystkinunum að fá nýjan
bekkjarfélaga, því það gerðist nú
ekki á hveiju ári. Nú og ekki var
það verra, að þessi litli ljóshærði
hnokki var hulinn einhveijum ævin-
týraljóma og ævintýraþráin beinlín-
is geislaði af honum. Það var alltaf
líf og fjör þar sem hann var.
Á Skúlagötu 15, heima hjá þeim
mæðginum, varð til nokkurs konar
bækistöð hjá okkur krökkunum.
Þar var nú margt brallað.
Man ég t.d. vel eftir því þegar
við Einar Atli lentum í því að svíða
alveg heilan helling af sviðum, og
Ella sauð niður í sultu jafnóðum
og við kláruðum, fjöruferðum, úti-
legum, siglingum á Maðkavíkinni í
gul-bláu gúmmítuðrunni sem Einar
Atli átti, efnafræðitilraununum
uppi á lofti þegar við kláruðum allt
lyftiduftið á bænum, og í smá-
sjánni, sem hann átti, var margt
skoðað.
Þegar var rigning eða vont veður
úti, var safnast saman í stofunni
við plötuspilarann, og Ella kom með
plötur úr safninu sínu, og svo var
spilað, sungið, leikið og hlegið dátt.
Þá lærði ég að meta tónlist
þeirra meistara Elvis Presley og
Dagbjört Ivars-
dóttir - Minning
Fædd 26. október 1906
Dáin 14. apríl 1990
Nú er hún farin hún amma.
Kvöldið á enda og nýr dagur runn-
inn. Hún hefur lokið veru sinni hér
og hver veit nema hún sé farin að
takast á við annað hlutverk á nýj-
um stað í öðrum tíma. Amma sem
alltaf var eitthvað að sýsla meðan
hún hafði heilsu til.
Nú hefur hún lokið löngu lífs-
verki og fengið langþráða hvíld.
Síðustu árin var hún heilsulaus og
þurfti að kveðja tvær dætur sínar
með stuttu millibili. Það var erfitt
fyrir gamla konu sem fannst rétt-
ara að hún fengi að fara. Hún var
því eflaust glöð þegar kallið kom.
Þó að leiðir hafi nú skilið um
einhvem afstæðan tíma þá trúum
við því að þær muni liggja saman
á ný, þar sem dauðinn er ekki
endanlegur, heldur aðeins þátta-
skil í eilífu lífi okkar. Við hugsum
til elsku ömmu okkar með söknuði
og í huganum er hún alltaf hjá
okkur þó ekki getum við lengur
heimsótt hana. Við spyijum eins
og spámaðurinn „skyldi skilnaðar-
stundin verða dagur samfundanna?
Og mun það með sanni sagt verða,
að kvöld mitt sé morgunn nýs
dags?“
Blessuð sé minning hennar.
Linda, Kristín og Gugga
Honda 90
Accord
Sedan
2,0 EX
Verö fró 1.290 þúsund
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALIA
W HONDA
VATNAGÖROUM 24 RVÍK., SÍMI 689900
Vinningstölur laugardaginn
21. apríl '90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 2.875.468
4af5^"# 10 58.263
3. 4 af5 276 3.641
4. 3af 5 6.622 354
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
9.682.670 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
2.
MAÍ
er síðasta tækifærið ykkar til að
læra ensku eða rijja upp ensku-
kunnáttuna fyrir sumarleyfið.
Við bjóðum upp á fjölbreytilegt
árval afenskunámskeiðum.
★ Almenn enska.
★ Skrifuð enska.
★ Samræðuhópar.
★ Bretland, saga,
menning, ferðalög.
★ T.O.E.F.L.
Einnig er boðið upp á sumarnámskeið
fyrir börn 7-13 ára í jání.
Ensku Skólinn,
Túngötu 5.
Símar: 25330/25900