Morgunblaðið - 24.04.1990, Side 38

Morgunblaðið - 24.04.1990, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990 Þórarinn Andrewsson kennari — Minning Fæddur 27. raars 1937 Dáinn 15. apríl 1990 Kallið kom fyrirvaralaust. Hraustur maður á miðjum aldri, starfsamur, dugmikill og hress. Dauðann flýr enginn, en það er allt- af erfiðara að sætta sig við hann, þegar bestu menn eru kallaðir á brott langt um aldur fram. Fyrir 32 árum kvöddum við menntaskólann okkar á Akureyri. Þá skiljast leiðir, menn fara í ýmsar áttir, stofna heimili, leggja grund- völl að lífsstarfi og vinna stóra eða smáa.sigra í lífsbaráttunni. Á menntaskólaárunum bundust vináttubönd, sem sköpuðust við náið sambýli. Skólinn var ekki stór og í heimavistinni lifðum við saman súrt og sætt. Þá var ég svo heppinn að eignast vináttu Þórarins Andrewssonar og að kynnast því hvílíkur mannkostamaður hann var. Traustur eins og bjarg, vel greind- ur, heiðarlegur og góður í öllum samskiptum, en fastur fyrir og þoldi ekki órétt. Það var mannbætandi að kynnast honum, enda var hann mjög vinsæll í hópi skólafélaganna, þó það væri honum fjarri að not- færa sér það eða trana sér fram á nokkurn hátt. Ég ætla ekki að rekja ævi Þórar- ins, það munu menn mér færari gera. Þessi fátæklegu orð eru hér rituð til að minnast góðs drengs, sem við áttum með ógleymanleg ár, þar sem enginn komst upp með fals eða flærð og dýrmæt vinátta skapaðist. Vinátta sem var ávallt fyrir hendi, þó að samverustundir yrðu stopular eftir glöðu mennta- skójaárin. Ég sendi Huldu og ástvinum öll- um hugheilar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Þórarins Andrews- sonar. . Bergur Felixson í blóma lífsins er nú fallinn frá góður og gegn drengur, Þórarinn Andrewsson, kennari, aðeins 53 ára að aldri. Harmur er kveðinn hjá ástvinum, frændgarði, vinum, kunningjum, samstarfsmönnum og nemendum, en hreinar og tærar minningar um öðling sitja eftir og munu breiða yfir þungan trega. Þórarinn fæddist 27. mars 1937 á Flateyri við Önundarfjörð og and- aðist á Borgrspítalanum í Reykjavík að morgni páskadags, 15. apríl sl., eftir að þar hafði verið barist við ljá dauðans í einn og hálfan sólar- hring, en á föstudaginn langa hafði Þórarinn veikst og alls óvænt reyndist það vera mjög alvarlegt hjartaáfall sem mannlegur máttur réð ekki við. Enginn má sköpum renna. Foreldrar Þórarins, hjónin Dag- björt Þórarinsdóttir ættuð úr sveit- inni við ísafjarðardjúp og Andrew Þorvaldsson ættaður úr Önundar- firðinum, bjuggu á Flateyri við Önundarfjörð, þar til þau fluttu til Reykjavíkur árið 1963 og þar búa þau enn í Hátúninu. Þórarinn var næstelstur ijögurra barna Dag- bjartar og Andrews. Elsta barnið dó mánaðargamalt úr kíghósta, drengur sem hlotið hafði nafnið Þórarinn. Yngri systkini Þórarins eru systurnar Sigrún og Kristín sem báðar eru búsettar í Reykjavík. Þórarinn var í barnaskólanum á Flateyri undir handleiðslu hinna virtu skólamanna Sveins Gunn- + Ástkær sonur okkar og bróðir, ALEXANDER ÞÓR ÞORSTEINSSON sem lést þann 19. apríl, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju mið- vikudaginn 25. apríl kl. 13.30. Þóra Jónsdóttir, Þorsteinn Magnússon, Bryndís Jóna Sveinbjarnardóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför FINNEYJAR H. KJARTANSDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Jón Guðjónsson, Sigurborg Friðgeirsdóttir, Edda F. Kinchin, Eggert Jósefsson, Eric A. Kinchin, Sara Finney Eggertsdóttir, Karen Linda Kinchin, Rúnar Eggertsson, Geir Walter Kinchin. + Útför föðursystur minnar, RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR, fyrrverandi sölustjóra, Fálkagötu 24, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 26. apríl kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja, RagnheiðurS. Isaksdóttir. + Elskulegur eiginmaður minn, sonur okkar, faðir, tengdafaðir og afi, ÞÓRARINN ANDREWSSON kennari, Miðvangi 37, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, þriðjudag- inn 24. apríl, kl. ^5.00. Hulda Hjálmarsdóttir, Dagbjört Þórarinsdóttir, Andrew Þorvaldsson, Helga S. Þórarinsdóttir, Snorri Páll Snorrason, Andrés Þórarinsson, Margrét E. Harðardóttir, Kristín Þórarinsdóttir og barnabörn. laugssonar og Hjartar Hjálmars- sonar, tengdasonar hans. Þórarinn var námfús og sérstaklega góður nemandi og árangurinn í samræmi við það. Hann var því dyggilega studdur af foreldrum til áframhald- andi náms. Eftir landspróf frá Núpi í Dýrafirði, stundaði hann nám við Menntaskólann á Akureyri og varð stúdent þaðan vorið 1958 með mjög góðum vitnisburði. Hann lauk BA- prófi frá Háskóla íslands í stærð- fræði og eðlisfræði, enda var hann stærðfræðingur góður. Með náminu í Háskólanum sinnti hann nokkuð stundakennslu en var ráðinn haust- ið 1962 sem raungreinakennari við framhaldsskólann í Flensborg í Hafnarfirði. Þar hefur verið hans aðalstarfsvettvangur frá þeim tíma til dauðadags. Hann naut þar trausts og virðingar sakir mann- kosta sinna og góðs árangurs í starfi með nemendum sínum. Skarð er nú fyrir skildi í kennaraliði skólans. Faðir Þórarins gerði út sinn eigin fiskibát frá Fiateyri. Hjá honum kynntist hann sjómennskunni innan við fenningu og á sumrin öll sín skólaár var Þórarinn á fiskveiðum með föður sínum. Nokkrum árum eftir að hann stofnaði heimili og fluttist til Reykjavíkur hóf hann störf við húsbyggingar hjá mági sínum Ragnari Hjálmarssyni, húsa- smíðameistara, og fleiri bygginga- meisturum. Brátt skipuðust mál svo að hann fór að vinna við smíðar á sumrin og í framhaldi af því tók hann nauðsynleg próf til að öðlast sveinsréttindi í húsasmíði. Þetta gerði hann samhliða sínu fasta og fulla starfí við kennsiu, en þó eink- um á sumrin. Um 1970 tóku nokkr- ir félagar sig saman á þessum vett- vangi og tóku að sér byggingar- verkefni og í framhaldi af því stofn- aði Þórarinn með húsasmíðameist- urunum Helga Guðmundssyni og Guðmundi Sigurðssyni byggingafé- lagið Röst. Mun það hafa verið árið 1973 og hefur það starfað alla tíð síðan og umsvif þess aukist. Það hefur unnið að fjölmörgum verkefn- um á sviði bygginga fyrir einstakl- inga, félög og fyrirtæki, sveitarfé- lög og ríki. Tilboð þeirra í verk hafa reynst að jafnaði hagstæð og verkefnin því orðið mjög og þeir félagarnir notið óskoraðs trausts viðskiptavina sinna fyrir góða sam- vinnu, vandvirk vinnubrögð og áreiðanleika í hvívetna. Enda hefur samvinna þeirra félaga verið ein- staklega góð alla tíð og þeir sýnt samviskusemi og samheldni ásamt einvalaliði starfsmanna. Þórarinn vann oft við smíðar og verkstjórn en einnig sá hann um bókhaldið og vann við tilboðsgerðina í verkefni. Þetta bitnaði þó á engan hátt á hans aðalstarfi við kennslu. Henni sinnti hann af alúð, en vinnudagur- inn var oft langur. Þórarinn Andrewsson hefur verið mikill gæfumaður alla tíð, enda hefur hann ekki storkað máttar- völdunum. Hann hefur verið hinn hægláti, prúði, hlédrægi og góði drengur frá fyrstu tíð, engan viljað særa, öllum gott gera og snúa öllu til betri vegar. Hans lífsstíll hefur verið hreinn og skýr, lífsstíll jafn- réttis og bræðralags og góð- mennsku og hjartahlýju 4n alls skrums eða málæðis. Það hefur mátt treysta orðurn hans og dóm- greind, yfirveguðu mati hans á mönnum og málefnum. Hann hefur ávallt viljað hafa það sem sannara reynist. Það var því eðlilegt að mæt og góð kona bindi bagga sína með honum. Hulda Hjálmarsdóttir og Þórarinn stofnuðu heimili í Reykjavík árið 1959 og eignuðust dótturina Helgu Steinunni hinn 16. nóvember 1959 og soninn Andrés hinn 29. desember 1960 og loks aðra dóttur, Kristínu, hinn 7. apríl 1969. Hulda er ættuð úr Skagafirð- inum, dóttir Hjálmars Pálssonar og konu hans Steinunnar Hjálmars- dóttur, er bjuggu á Kambi í Deild- ardal. Þau eru bæði látin. Tvö eldri börnin hafa stofnað sitt eigið heim- ili. Helga með Snorra P. Snorrasyni og eiga þau tvo syni, Þórarin og Snorra. Ándrés með Margréti E. Harðardóttur og eiga þau ársgaml- an son. Kristín hefur verið í námi og býr í foreldrahúsum. Barnabörn- in hafa verið þeim Huldu og Þór- arni afar kær og þau notið hjá þeim kærleika og umhyggju og Þórarinn litli oft dvalið langdvölum hjá afa sínum og ömmu. Fyrsta jólaboðið okkar Sigrúnar systur Þórarins hjá þeim Huldu í litla, gamla húsinu vestast við Nes- veginn í vesturbænum í Reykjavík fyrir 25 árum verður mér ávallt í minni sökum hins hægláta og hlýja andrúmslofts á • heimili þeirra og einstakrar gestrisni er við nutum hjá þeim hjónum og börnum þeirra tveimur ungum. Þar greindi maður strax samvinnu þeirra og samheldni og fyrirmyndar húshald og góð- gerðir. Þau voru ekki lengi á þess- um stað. Árið 1964 hófu þau bygg- ingu raðhúss við Smyriahraun í Hafnarfirði og sköpuðu sér og fjöl- skyldunni þar fallegt heimili. Árið 1982 keyptu þau einbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði og þár hafa þau búið síðan og endurbætt fallegt hús og þar má sjá hið góða hand- bragð hjónanna beggja utan dyra sem innan. Þórarinn og Hulda hafa tekist á við viðfangsefni lífsins í einingu og glímt við mörg verkefnin og oftast haft sigur saman. Þeirra tryggða- bönd hafa verið sterk og heimilið og sameiginleg velferð þess og barnanna og foreldranna hafa ávallt verið í fyrirrúmi í þeirra störf- um og leik. Þau voru sem einn maður. Þau eignuðust fallegt og hlýlegt heimili sem opið var ástvin- unum. Þau nutu ferðalaga saman bæði erlendis og þá eigi síður heima með hjólhýsið sitt, þar sem áð var á kyrrlátum stöðum úti í íslenskri náttúru og þess notið sem landið okkar fagra hefur upp á að bjóða. Oft var haldið í Skagafjörðinn til skyldfólks Huldu eða á Vestfirðina á heimaslóðir Þórarins og þá nutu foreldrar hans þess eigi sjaldan að slást í hópinn með þeim í lengri eða styttri ferðir og þess naut Dagbjört móðir Þórarins alveg sérstaklega, Blómasíoja Friðfinm Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öli kvöld tif kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. + Útför, JÓNSG. JÓNSSONAR frá Fellsenda, fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 26. apríl kl. 15.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans láti Krabbameinsfélagið njóta þess. Aðstandendur. + Móðir mín, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG G. ÞÓRÐARDÓTTIR, Hrafnistu Reykjavík, áðurtil heimilisá Haðarstíg 15, verður jarðsungin frá Áskirkju, Reykjavík, miðvikudaginn 25. apríl kl. 13.30. Magnús S. Magnússon, Guðbjörg M. Gunnarsdóttir og synir, Ingibjörg Ósk Birgisdóttir. + Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér hjálp og samúð í veikindum og við jarðarför dóttur minnar, SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR, organista í Vík. Ólafur Jónsson. + Konan mín, móðir og tengdamóðir, SIGRÍÐUR BÖÐVARSDÓTTIR Ijósmóðir, Álftamýri 58, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 27. apríl kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim, sem vildu minnast hinn- ar látnu, er bent á kirkjubyggingasjóð Laugarvatnshjónanna Ing- unnar og Böðvars sími 98-61100 eða góðgerðarfélög. Valtýr Guðmundsson, Ingunn Valtýsdóttir, Þórir Ólafsson, Guðmundur R. Valtýsson, Ásdis Einarsdóttir, Böðvar Valtýsson, Hólmfríður Guðjónsdóttir, Gunnar Valtýsson, Sólveig Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.