Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990 HLJÓÐKÚTAR FRÁ USA NÝ SENDING I FLESTAR GERÐIR AMERlSKRA BÍLA Einnig TURBO-KÚTAR með 2"- 2'A"- 2'A" stútum Gæðavara - gott verð Opið laugardaga kl. 10-13. Póstsendum Bílavörubúóin FJÖDRIN Skeifan 2 simi 82944 MÖTUNEYTI HÓTEL VEITINGA- STAÐIR PHILCOH Eigum fyrirliggjandi stóra Ameríska kæliskápa allt að 830 lítra á mjög hagstæðu verði. Hafið samband við sölu- menn okkar í síma 91-691500 S Heimilistæki hf s UH SÆ TUNi BSÍMI69 15 I5BKHINGLUNNISIMI69 1520 íscmouMpm* BB fclk í fréttum KVIKMYNDIR Ástríða fyrir efiiinu verður að vera fyrir hendi Astargamanleikur (Comedie d’amour) var meðal þeirra mynda sem sýnd var á frönsku kvikmyndahátíðinni í Regnbogan- um á dögunum. Myndin fjallar um brot úr 76 ára ævi rithöfundarins og leiklistargagnrýnandans Paui Léautaud, er aðeins einn og hálfur tími að lengd, en hefur samt meira að segja en margar lengri myndir síðari ára. Ástargamanleikur hefur enda hlotið margar viðurkenningar, meðal annars sem besta frönsku- mælandi myndin, fyrir besta hand- ritið og einnig hafa leikararnir Mic- heí Serrault (Paul Léautaud) og Aurore Clément (Marie Dormoy) verið verðlaunuð. Leikstjóri Ástargamanleiks, Je- an-Pierre Rawson, var gestur kvik- myndahátíðarinnar. Þetta er önnur kvikmyndin sem hann leikstýrir. Fyrsta mynd hans var Gros calin .1977. Jean-Pierre Rawson er ekki að- eins leikstjóri, hann er einnig fram- leiðandi og framleiðir bæði kvik- myndir og efni fyrir sjónvarp og myndbönd. Hann hefur starfað við það eingöngu síðustu fimmtán árin, en á árunum 1960-1975 vann hann við að skipuleggja tónleikaferðir fyrir hljómsveitir. Þar af í tíu ár fyrir allar skærustu stjörnur rokks- ins á blómatímanum. „Það byrjaði allt árið 1964,“ seg- ir hann. „Þá fór ég til London, var þar í einn mánuð, þræddi á meðan skrifstofur umboðsmanna allra þekktustu hljómsveita þess tíma og fékk einkaréttinn á því að skipu- leggja tónleikaferðir þessara hljóm- sveita í Frakklandi og annarsstaðar á meginlandinu. Þegar ég kom aft- ur til Parísar, opnaði ég skrifstofu sem sérhæfði sig í að skipuleggja tónleikaferðir breskra hljómsveita.“ í starfi sínu kynntist Jean-Pierre ijómanum af rokkstjörnum þessara ára, en eins og hann segir sjálfur: „Ég hef alltaf unnið með þeim fremstu í sínu fagi á hveijum tíma.“ Meðal viðskiptavina hans voru Rolling Stones, Jimi Hendrix, Janis Joplin, The Kinks og fleiri og fleiri. „Ég hef kynnst mörgu frábæru fólki og upplifað margt skemmti- legt,“ segir hann og samþykkir það að þetta tímabil, frá 1964-75, hafi verið „snargeggjað". Fórstu í hljómleikaferðirnar með hljómsveitunum? „Já, alltaf. Og það sem gat gerst í þessum ferðum var alveg ótrú- legt. Ég gæti sagt margar sögur af því.“ Geturðu sagt eins og eina? „Já, ég get sagt eina sögu af tónleikaferð með Rolling Stones. Þeir höfðu verið að spila í Lyon í Frakklandi og þurftu að komast þaðan til Sviss þar sem þeir áttu að spila í Genf næsta kvöld. Auð- veldast var auðvitað að fljúga eða taka lest, en það var ekki hægt vegna verkfalls sem bitnaði á bæði flugfélögunum og járnbrautunum. Við urðum því að fara akandi svo ég fór og leigði rútu. Ég var bílstjór- inn. Við lögðum af stað frá Lyon í hellirigningu og á leiðinni til landa- mæranna hélt áfram að rigna. Á þessum árum reyktu allir hass og auðvitað reyktu Rolling Stones á leiðinni. En vegna rigningarinnar var ekki hægt að opna neinar rúð- ur, svo þegar við komum til landa- mæranna var reykjarkófið inni í bílnum orðið ansi þétt. Þar þurfti ég auðvitað að sýna landamæra- verðinum vegabréfm okkar og til þess að geta rétt honum þau þurfti ég að opna rúðuna. Þegar ég gerði það fékk vörðurinn auðvitað allan reykinn og hasslyktina beint fram- an í sig. Hann sagði: „Ah, hass- lykt!“ En þegar hann sá að þetta voru Rolling Stones gerði hann ekk- ert í málunum og hleypti okkur yfír athugasemdalaust. Það fylgdi þessum bransa mikil eiturlyíjanotkun og það var ein af ástæðunum fyrir því að ég hætti. Eiturlyfin fóru illa með marga vini mína. Sjálfur er ég orðinn miklu rólegri í dag, en ég var þá.“ Jean-Pierre er mikill áhugamað- ur um franska menningu og vill leggja sitt af mörkum til að út- breiða hana. Hann er einnig mikill bókamaður og segist_ nota hvert tækifæri til að lesa. Ástargaman- leikur er gerð eftir dagbók Paul Léautaud, en Jean-Pierre segist ekki hafa áhuga á að leikstýra myndum nema þær fjalli um efni sem sé honum ástríða. Ástargamanleikur fjallar um samband Paul Léautaud við Marie Dormoy, fyrstu konuna sem hann varð ástfanginn af, og ástkonu hans Anne Cayssac, sem hann kallaði „Pláguna", en hún var eiginkona vinar hans. „Paul Léautaud (1972-1956) var þekktur og umdeildur gagnrýnandi í upphafi þessarar aldar og þar til hann lést,“ segir Rawson. „Hann Morgunblaðið/Bjarni Jean-Pierre Rawson. þótti sérkennilegur, enda á undan sinni samtíð, bæði í skrifum sínum og lífsháttum. Auk þess að skrifa umdeilda gagnrýni hélt hann dag- bók á hveijum degi í fimmtíu ár. Hann þoldi ekki mannfólkið og bjó einn með um fjörutíu köttum í húsi sínu í úthverfi Parísar. Hann hataði líka allt kvenfólk, þar til hann varð ástfanginn í fyrsta skipti. Af Marie Dormoy. Hann var þá um sextugt en hún tuttugu árum yngri. Sam- band þeirra hélst þar til hann lést.“ Rawson studdist við kafla úr dagbók Léautauds frá 1933 þegar hann gerði myndina. „Talsmáti Lé- autaud var oft grófur, næstum klæminn, og þó ekki. Hann þorði að segja upphátt það sem aðrir hugsuðu í hljóði. Orðbragðið sem hann notaði var almennt ekki notað fyrir sextíu árum, en er notað í dag. Hjá Léautaud varð kynlífsbylt- ingin líka löngu fyrir 1968.“ Hvenær megum við eiga von á næstu mynd frá þér? „Mér var boðið að gera kvikmynd um Baudelaire og er núna að und- irbúa tökur sem eiga að heljast í Portúgai um miðjan júní. Myndin á að íjalla um útkomu bókar Baudelaires, La fleuve de mal, og réttarhöldum yfir honum í kjölfar þess árið 1857. Bókin var bönnuð, eða öllu heldur ákveðin ljóð í henni sem þóttu of erótísk. — Þetta minnir kannski dálítið á Sala- man Rushdie. — Vegna þessarar bókar lifði Baudelaire í vansæmd það sem eftir var ævinnar. Hann fékk ekki uppreisn æru fyrr en upprunaleg útgáfa bókarinnar var gefin út 100 árum síðar.“ MEO Honda 30 Civic Shuttle 4WD 116 hestöfl Verð fró 1180 þúsund. GREIÐSLUSKILMÁLAR FYRIRALLA. UHONDA VATNACÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900 Nemendur Grunnskól- ans í Stykk- ishólmi í sjóróðri SKÓLASKIPIÐ Mímir, sem fer kringum landið til að æfa skólanemendur í sjósókn og fisk- veiðum var nýlega hér í Hólmin- um, en undanfarin ár hefir það komið hér við og nemendur feng- ið að fara á skak og nú var það 7. bekkur Grunnskólans sem kennsluna fékk. Það var aldrei þessu vant ágætt veður, sól en frost þegar lagt var út á grunn- mið. Skipstjóri Mímis er Þórður Örn Karlsson og með honum er Ás- geir Torfason, samvaldir menn í þetta starf, kunnáttumenn og lipurmenni, það kom nemendun- um saman um. „Þetta var æðis- lega gaman,“ sögðu krakkarnir og veifuðu öll fiski framan í ljós- myndara. Skipvetjar voru á einu máli um að þetta hefðu verið góðir hásetar sem ættu eftir að draga björg i bú þegar þar að kæmi. Skólastjóri, Lúðvíg Halldórs- Morgunblaðið/Arni Helgason „Þetta er æðislega gaman,“ sögðu krakkarnir og veifuðu fiski framan í ljósmyndara. Skólaskipið Mímir fór með krakka úr 7. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi í veiðiferð. son, var mættur á bryggjunni ásamt fréttaritara og hann var ekki í vafa um að þessi túr hefði verið ein allra besta kennslu- stund. Enda ekki árangurslaus ferðin. Það eru tíu saman í hverri veiðiferð og eru á miðum 2—3 tíma og þegar fyrsti hópur- inn kom að landi var hann með rúmt tonn af góðum fiski, eða með því allra besta frá því snemma í mars ef miðað er við stærð og sóknariengd. Það veið- ist lítið í netin og er þá ekki at- hugandi að fara bara með færi í næstu veiðiferð. í það minnsta veltu sumir því fyrir sér. Bæði drengir og stúlkur tóku þátt í þessu fiskiríi og áhöld um hvor hópurinn stóð sig betur. - Árni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.