Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990 Ipsf ■I BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. Múlalundur SÍMI: 62 84 50 VERNDUM VINNU - VEUUM [SLENSKT Lionsklúbburínn Eir stendur fyrir l'orsýningu kvikmyndarinnar „Shirley Valentine“ í Háskólabíói á laugardag. SIEMENS SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 ■ LIONSKL ÚBB URINN Eir í Reykjavík stendur fyrir forsýningu á kvikmyndinni „Shirley Valentine11 í Háskólabíói, laugardaginn 28. apríl kl. 17. Þetta er fimmta árið í röð sem Lionsklúbburinn Eir stend- ur fyrir kvikmyndasýningu í Há- skólabíói. Öllum ágóða af sýning- unni er varið til baráttu gegn fíkni- efnum. Fíkniefnalögreglan í Reykjavík hefur notið góðs af ágóða sýninganna sl. ár. Einnig hefur Li- onsklúbburin Eir tekið stóran þátt í þýðingu á námsefninu „Að ná tökum á tilverunni". Kvikmyndin sem nú verður valin „Shirley Valen- tine“ er að sögn forráðamanna Háskólabíós afbragðs góð gaman- mynd fyrir alla fjölskylduna. Með aðalhlutverk fara Pauline Collins sem þekkt er fyrir leik sinn í sjón- varpsþáttunum „Upstairs Down- stairs" og hefur hún hlotið ijölda verðlauna fyrir leik sinn á undanf- örnum árum. Tom Conti fer með annað aðalhlutverkið í myndinni, einnig vel þekktur og margverð- launaður leikari. Lewis Gilbert og Willy Russell standa bak við fram- leiðslu og leikstjórn myndarinnar. Ein þeirra þekktasta kvikmynd er „Educating Rita“. Á undan sýning- unni mun kór Kársnesskóla syngja nokkur iög. Það er ósk okkar í Li- onsklúbbnum Eir að vel verði tekið á móti félagskonum, en þær sjá sjálfar um sölu aðgöngumiða. Miða- verð er kr. 600,- Stykkishólmur: Páskahrotan kom ekki Stykkishólmi. ÞESSI vertíð sem nú er að baki mun vera með þeim aumustu hér um slóðir um langt árabil. Fyrri hluta ársins var nokkur veiði á línu, en þegar net voru tekin, brá við, því þau veiddu ekki nándar nærri að hægt væri að miða við veturna áður. Þá var hér alltaf talað um páskahrotu og mun svo haía verið víða um land, en á henni örlaði ekki. Nú beinist hugur manna að því hvernig aflaleysinu verði tekið og hvers megi vænta af sumrinu, því uppgjöf heyrir maður ekki talað um. En hinu er ekki að leyna að menn eru ekki viðbúnir aflabresti. Stilla sína Ijármálstrengi sem áður á háu nótumar og því ekki gott að leika á brostna strengi. En ef til vill er gott að fá mót- byr, og sagt er að erfiðleikar stæli vilja og kjark. Betur að svo eigi sér stað. Eftir því sem skýrslur sjávar- fræðinga herma má ekki vænta sérstakrar aflahrotu, og þá helst hvað þorsk snertir, fyrr en á árinu 1992. En þetta verður allt að koma í ljós og menn em alltaf að læra af lífinu. Og nú er líka verið að hugsa um íjölbreyttari aflategundir og margar þær sem menn létu sér ekki til hugar koma að nýta fyrr á ámm. - Arni ■ HÁSKÓLA TÓNLEIKAR verða miðvikudaginn 25. apríl kl. 12.30 í Norræna húsinu. Að þessu sinni munu Peter Tompkins og Robyn Koh leika verk fyrir óbó og sembal. Á efnisskránni eru sónata í g-moll eftir Johynn Sebastian Bach, sónata í e-moll eftir Fran- cesco Geminiani og sónata í c- moll eftir Antonio Vivaldi. Peter Tompkins er fæddur 1966 í Petts Wood, Kent í Englandi. Hann stundaði nám í óbóleik við Royal Academy of Music í London 1984—1-988. Kennarar hans voru Tess Miller, Gareth Hulse og Christine Pendrill. Að námi loknu sótti hann um starf við Sinfóníu- hljómsveit fslands og hefur starf- að þar síðastliðin tvör ár. Auk starfs síns þar hefur hann leikið með hljómsveit íslensku óperunnar og tekið þátt í tónleikum Blásarak- vintetts Reykjavíkur. Robyn Koh er fædd í Malasíu árið 1964. Hún hóf píanónám 6 ára að aldri og kom Peter Tompk- Robyn Koh, ins, óbóleikari. píanóleikari. fyrst opinberlega fram ári seinna. Hún fluttist til Englands 1976 þar sem hún stundaði nám við Chet- ham’s School of Music, sem er sérskóli fyrir börn gædd tónlistar- hæfileikum. Hún stundaði fram- haldsnám við Royal Academy of Music í London og Royal College of Music í Manchester. Hún hefur víða komið fram, vestan hafs og í Evrópu, m.a. kom hún fyrst fram sem einleikari með hljómsveit í Moskvu 1981. Robyn Koh starfar nú í London og sækir mánaðarlega tíma hjá Kenneth Gilbert í Moz- arteumskólanum í Salzburg. Hún leikur reglulega með breska óbó- leikaranum Robin Canter og í jan- úar kom hún fram í Purcell Room í London. MANEX hárvökvinn á erindi inn á öll heimili Hvað segja ánægðir notendur MANEX-hárvökvans: Lilja Bragadóttir: „Eg var orðin verulega áhyggju- full út af hárlosinu. Ég hafði reynt ýmis efni án árangurs, þar til ég byrjaði að nota hárvökvann. Hann kom í veg fyrir hárlosið og betrumbaetti hárið.“ Jóhannes S. Jóhannesson: „Ég hafði ígegnum árin reynt allt til að losna við flösuna en ekkert dugði. Ég hélt ég yrði bara að saetta mig við þetta. En nú veit ég betur. Vökvinn virki- lega virkar." Sigríður Adólfsdóttir: „Fyrir 15 árum varð ég fyrir því óhappi í Bandaríkjunum að lenda í gassprengingu og missti við það augabrúnirnar, sem uxu aldrei aftur. Ég fór að nota MANEX vökvann fyrir 4 mánuð- um og í dag er ég komin með fullkomnaraugabrúnir. Hár- greiðslumeistarinn minn, Þórunn Jóhanðesdóttir í Keflavík, segir þetta veta hreint kraftaverk." Elín Sigurbergsdóttir: „MANEX hárvökvinn hefurvirk- að með ólíkindum vel fyrir mig. Ég var því sem næst að missa allt hárið. Það datt af í flyksum og var ég komin með hárkollu. Fljótlega eftir að ég byrjaði að nota MANEX hætti hárlosiðog í dag er ég laus við hárkolluna og komin með mikið og fallegt hár. Læknirinn minn og mínir kunningjar eru hreint undrandi á þessumárangri." Arnhíldur Magnúsdóttir: „Hár mitt hefur verið ómeðfæri- legt og tekið illa permanenti. Vökvinngjörbreytti hári mínu. Nú get ég haft permanent-krull- urnar án þess að þurfa að vesen- ast í því með krullujárni o.fl." Tómas Friöjónsson: „( fjölda ára hef ég átt við vanda- mál í hársverði að stríða. Ég hafði reynt ýmis smyrsl o.fl. til að losna við þessi óþægindi án teljandi árangurs. Með einni flösku af MANEX vökvanum leysti ég öll mín hárvandamál." Heildsölubirgðir: ambrosia 'JMBOOS- OG HEILDVERSLUN Sími 91-680630. > manex hárlínan saman stentfur af prðteini (hárvökvi), sjampói, næringu og vítamíni og er fáanleg á allflestum rakara- og hárgreiöslustofum og einnig í apótekum. Háskólabíó sýnir Tarsan - Mama Mia HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga kvikmyndina Tarsan — Mama Mia. I aðalhlutverkum eru m.a. Leif Sylvester Petersen og Michael Falch. Leikstjóri er Erik Clausen. Tónlistin í myndinni er eftir Kim Larsen. Rikka er 10 ára og býr með föð- ur sínum á Vesturbrú í Kaupmanna- höfn. Móðir hennar er látin og Rikku dreymir um að fá hana aftur til sín. Charlotta, kennarinn henn- ar, segir bekknum frá skáldfáknum Pegasusi, sem getur sótt hina látnu til himna og Rikka eygir von um að endurheimta móður sína. Hún tekur þátt í happdrætti, þar sem hestur er aðalvinningurinn og hún hreppir hnossið. Þau feðginin og nágrannar þeirra lenda nú í hinu mesta basli með hestinn, þvl stór- borgir eru illa fallnar til hesta- mennsku. Árétting- í frétt Morgunblaðsins síðastliðinn sunnudag um skiptingu landaðs afla eftir kjördæmum láðist að geta þess, að það var Fiskifélag Islands, sem tók upplýsingarnar saman. Var það gert að beiðni sjávartuvegs- nefnda Alþingis fyrir milligöngu sjávarútvegsráðuneytisins. Er það hér með áréttað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.