Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
47
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sigurvegarar í sínum flokkum, Arnar Valsteinsson á Polaris og Vilfhelm Vilhelmsson á Magic Cat.
Vélsleðar:
Arnþór Pálsson íslandsmeistari
ARNÞÓR Pálsson úr Reykjavík
tryggði sér Islandsmeistaratit-
ilinn í vélsleðaakstri með því
að vinna í sinum flokki í vél-
sleðakeppni Pólarisklúbbsins,
sem fram fór skammt frá Jós-
epsdal á laugardaginn. Arnþór
varð jafn að stigum og Arnar
Valsteinsson, en báðir hafa þeir
unnið í sínum flokki í mótum
Islandsmeistarakeppninnar.
Arnþór keppti í Qölmennari
flokkum og réð það úrslitum
um hvor hlaut titilinn.
Erfið birtuskilyrði gerðu kepp-
endum í Polaris-keppninni erfitt
fyrir, en þeir óku tvær umferðir
um eins kílómetra langa braut og
var keppnin með útsláttarfyrir-
komulagi. Keppt var í fjórum
flokkum, vélarstærð raðaði sleð-
um í flokka. Þegar að úrslitum
kom reyndust sigurvegararnir í
hveijum fiokki hafa nokkra yfir-
burði, unnu yfirleitt með 6-7 sek-
úndna mun nema í flokki Arnþórs
þar sem fyrrum íslandsmeistari,
Jón Ingi Sveinsson, veitti honum
harða keppni.
Arnþór Pálsson varð íslandsmeistari í vélsleðaakstri á Polaris
Indy 500.
í aflminnsta flokknum vann
Amar Valsteinsson á Polaris 400,
Viðar Sigþórsson á Polaris varð
annar og Guðmundur Vilhelmsson
þriðji á Polaris. í flokki 6 vann
Arnþór á Polaris 500, Jón Ingi
varð annar á Polaris 500 og
Samúel Einarson á E1 Tigre þriðji.
í flokki sjö vann Guðlaugur Hall-
dórsson á Polaris 650, annar varð
rallkappinn Rúnar Jónsson á
samskonar sleða og Ríkharður
Kristinsson á Wildcat þriðji.
Opna flokkinn vann síðan Ak-
ureyringurinn Vilhelm Vilhelms-
son á Magic Cat með skemmtileg-
um akstursstíl, Benedikt Valtýs-
son á Polaris 650 kom honum
næstur, en Halldór Jóhannesson,
einn af skipuleggjendum keppn-
innar, náði þriðja sæti á Polaris
650.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
■ FRAMBOÐSLISTI Fram-
sóknarflokksins í Neskaupstað
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
26. maí nk. var samþykktur á fé-
lagsfundi sem haldinn var í Egils-
búð 11. apríl. 1. Benedikt Sigur-
jónsson, umsjónarmaður. 2. Þórar-
inn Guðnason, verkamaður. 3.
María Kjartansdóttir, húsmóðir.
4. Sigrún Júlía Geirsdóttir,
bankastarfsmaður. 5. Guðröður
Hákonarson, bifreiðarstjóri. 6.
María Bjarnadóttir, fóstra. 7. Ing-
var Freysteinsson, sjómaður. 8.
Sigríður Wium, húsmóðir. 9.
Ragna Margrét Bergþórsdóttir,
húsmóðir. 10. Anna Björnsdóttir,
verslunarmaður. 11. Guðmundur
Skúlason, vélvirki. 12. Guðrún
Asgeirsdóttir, húsmóðir. 13. Guð-
mundur Sveinsson, afgreiðslu-
maður. 14. Halldóra Hákonar-
dóttir, húsmóðir. 15. Arni Þor-
geirsson, vélvirki. 16. Álfhildur
Sigurðardóttir, hjúkrunarfræð-
ingur. 17. Agnar Ármannsson,
vélstjóri. 18. Gísli Sighvatsson,
skólastjóri.
■ AÐALFUNDUR nemenda-
sambands Fjölbrautaskólans í
Breiðholti í hátíðarsal skólans
verður haldinn miðvikudaginn 25.
apríl og hefst kl. 20.30. Markmið
félagsins er meðal annars að vinna
að viðgangi FB á sem flestum svið-
um. Núverandi stjórn er skipuð
Guðbrandi Stíg Ágústssyni, Ingi-
ríði Óðinsdóttur, Haraldi Jóns-
syni, Sigurjóni Einarssyni og
Páli Sverri Péturssyni. Auk
venjulegra aðalfundastarfa verður
fjallað um 15 ára afmæli skólans
næstkomandi haust. Allir braut-
skráðir nemendur Fjölbrautaskól-
ans eru hvattir til að mæta á aðal-
fundinn.
Ráðstefiia um stöðu þroskahefta
KÓPAVOGSHÆLI og Styrktar-
félag vangeflnna standa að ráð-
stefnu um stöðu þroskahefta í
nútið og framtíð
Ráðgtefnan verður haldin í Borg-
artúni 6, fimmtudaginn 26. apríl
nk. kl. 9.00-16.45. Skráning og
greiðsla þátttökugjalds verður frá
8.30-8.50. Ráðstefnugjald er 2.000
kr. Innifalið er kaffi og meðlæti.
Ráðstefnan er öllum opin. Þátttöku
þarf að tilkynna fyrir 24. apríl í
síma Kópavogshælis eða Styrktar-
félags vangefinna. Fyrirlesarar
verða: Gréta Aðalsteinsdóttir, for-
maður stjórnarnefndar um málefni
fatlaðra, Stefán Hreiðarsson, yfir-
læknir, Tryggvi Sigurðsson, sál-
fræðingur, Karólína Gunnarsdóttir,
þroskaþjálfí, Gunnar Þormar, tann-
læknir, Erna Einarsdóttir, þroska-
þjálfi, Margrét Margeirsdóttir,
deildarstjóri, Pétur J. Jónasson,
framkvæmdastjóri, Ásta B. Þor-
steinsdóttir, formaður Þroskahjálp-
ar, Hrefna Haraldsdóttir, forstöðu-
maður, Hulda Harðardóttir, yfir-
þroskaþjálfi, Sigríður Ólafsdóttir,
félagsráðgjafi, Guðmundur Ragn-
arsson, viðskiptafræðingur, Guðrún
Þórsdóttir, námsráðgjafi, Rannveig
Þórólfsdóttir, hjúki-unarforstjóri,
Lára BjÖrnsdóttir, félagsráðgjafi,
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, forstöðu-
maður, Sævar Berg Guðbergsson,
félagsráðgjafi, Ásta B. Þorsteins-
dóttir, Davíð Á. Gunnarsson, Gréta
Bachmann, Ingimar Sigurðsson,
Margrét Margeirsdóttir og Sævar
Berg Guðbergsson. Fundarstjórar
verða Guðmundur Tómas Magnús-
son, læknir, og Magnús Kristinsson,
formaður SV.
Athugasemd vegna
Reykjavíkurbréfs .
Morgunblaðinu hefúr borist
eftirfarandi frá (jármálaráðu-
neytinu:
I Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs-
ins, sunnudaginn 22. apríi sl., birt-
ist línurit um afkomu ríkissjóðs
1980-1989, sem er ákaflega vill-
andi. Svo virðist samkvæmt línurit-
inu, að tekjuhalli ríkissjóðs hafi
aukist verulega á síðasta ári og í
raun orðið sá mesti á þessum ára-
tug. í texta bréfsins kemur hins
vegar fram að hallinn hafi verið
7.200 milljónir króna 1988, en hann
varð 6.055 milljónir króna 1989.
Það fæst því ekki staðist að hallinn
hafj aukist verulega í fyrra.
Ástæða þessa misræmis liggur í
því að í línuritinu sem fylgir
Reykjavíkurbréfinu er verið að bera
saman alls ósambærilega hluti, þ.e.
annars vegar afkomu ríkissjóðs á
rekstrargrunni 1980-89 og hins
vegar afkomuna á greiðslugrunni
1989. 'l'il dæmis um hve ósambæri-
legar niðurstöður fást út úr þessum
tveim aðferðum til að mæla afkomu
ríkissjóðs, má nefna að á árinu
1988 var hallinn á greiðslugrunni
7.201 m.kr., en á rekstrargrunni
varð hallinn aðeins 2.128 m.kr.
Greiðslugrunnur mælir innheimta
skatta og greidd gjöld, en rekstrar-
grunnur mælir álagða skatta og
áfallin gjöld. Afkoma á rekstrar-
grunni er ávallt mun betri en á
greiðslugrunni, .einkum vegna þess
að álagðir skattar eru mun hærri
en innheimtir á hveiju ári. Það er
því villandi, og alls ekki sæmandi
Morgunblaðinu, að blanda saman
rekstrar- og greiðslugrunni þegar
þróun afkomu ríkissjóðs í gegnum
tíðina er skoðuð.
Afkoma ríkissjóðs batnaði á
síðasta ári, eins og meðfylgjandi
línurit sýnir. Hallinn varð um 2%
af landsframleiðslu, en á góðærisár-
unum 1985-1987 varð hallinn l,9%f"—
1,3% og 1,3%. í ljósi þess að árið
1989 var annað ár samdráttar,
verður það að teljast nokkur árang-
ur að minnka hallann frá árinu
áður, og að hallinn varð þrátt fyrir
allt svipaður og á góðærisárinu
1985.
Aths. ritstj.
Tölur í línuriti eða súluriti sem
fjármálaráðuneytið gagnrýnir fékk
Morgunblaðið hjá Þjóðhagsstofnun,
blaðið birti það fyrst 15. mars
síðastliðinn og síðan aftur nú á
sunnudag. í athugasemd með því
stendur: „Tekjuafgangur ríkissjóða __
sem hlutfall af landsframleiðslu. :
Miðað er við rekstrargrunn árin
1980-1988, en áætlun fyrir árið
1989 er byggð á greiðslugrunni."
Afkorna ríkissjóðs 1980-1989
% Tekjuafgangur á greiöslugrunni í hlutfalli af landsframleiöslu
1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
20. - 22. apríl 1990
Tveir menn voru handteknir
eftir innbrot í íbúð, einn fyrir
að stela reiðhjóli í Mjölnisholti
og maður var handtekinn við
að reyna að bijótast inn í bíla-
sölu í Skeifunni. Lögreglan varð
60 sinnum að hafa afskipti af
ölvuðu fólki, sem ekki kunni
fótum sínum forráð. 21 gisti
fangageymslurnar á laugardag-
snótt, 18 á sunnudagsnótt og 8
á mánudagsnótt. 2 þeirra gistu
fangageymslurnar vegna þess
að þeir áttu hvergi annars stað-
ar höfði sínu að halla. Aðrir
voru þar vegna ölvunaróláta,
slagsmála, líkamsmeiðinga, inn-
brota, þjófnaða eða annarrar
annarlegrar háttsemi. Tilkynnt
var um 24 árekstra og 4 umferð-
arslys. Okumaður slasaðist í
árekstri tveggja bifreiða á gat-
namótum Elliðavogar og Skeið-
arvogs á föstudagsmorgun.
Þann morgun slasaðist ökumað-
ur eftir að bifreið hans lenti á
ljósastaur við Miklubraut gegnt
Hvassaleiti. Um miðjan dag á
föstudag meiddist ökumaður
eftir árekstur tveggja bifreiða á
Gullinbrú og á laugardagsnótt-
ina lenti gangandi vegfarandi
fyrir bifreið á Skúlagötu við
Casablanca.
23 ökumenn voru kærðir fyr-
ir of hraðan akstur og 19 fyrir
akstur gegn rauðu Ijósi. Fjar-
lægja varð 17 ökutæki með
kranabifreið og eigendur 11
annarra voru sektaðir fyrir ólög-
lega stöðu bifreiða sinna. 14
ökumenn, sem stöðvaðir voru
um helgina, eru grunaðir um
ölvun við akstur. Einn ökumaður
enn, sem grunaður er um ölvun
við akstur, hafði lent í óhappi.
Þá voru tveir þeirra ökumanna,
sem stöðvaðir voru, réttinda-
lausir við aksturinn.
17 einstaklingum var veitt
aðstoð við að komast inn í læst-
ar bifreiðir og íbúðir. Auk þess
var 12 öðrum veitt ýmiss konar
önnur aðstoð.
Tilkynnt var um 5 skemmdar-
verk. Skemmdir voru unnar á
bifreiðum, á pylsuvagni og á
gossjálfsala. 5 líkamsmeiðingar
voru tilkynntar til lögreglunnar
um helgina. í tveimur tilvikum
hlutu 4 ungir menn meiðsli eftir
slagsmál, maður var fluttur á
slysadeild eftir slagsmál á
skemmtistað, stúlka varð fyrir
árás í miðborginni síðla á laug-
ardagsnótt og maður var hand-
tekinn eftir að hafa veitt öðrum
áverka á Lækjartorgi á sunnu-
dagsmorgun.
Tilkynnt var um 6 slys. Kona
datt á Lækjartorgi á föstudag,
tveir menn duttu á skemmtistöð-
um á laugardagsnótt og tveir
menn slösuðust á æfingu á
gervigrasvellinum í Laugardal á
laugardag og á sunnudag. Þrisv-
ar sinnum var tilkynnt um
lausan eld.