Morgunblaðið - 29.04.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1990
17
Margrét Helga Jóhannsdóttir í hlutverki Sigrúnar Ástrósar.
inni og hefur gert sér grein fyrir
konu sinni á nýjan hátt og svo er
áhorfendum látið eftir að álykta um
hvort þau setjast bæði að á eynni
eða fara heim saman. En eftir þetta
getur varla verið að allt falli í sama
farið.
Leikritið er skemmtilega samið,
uppgjör konu við sjálfa sig tekst
bærilega og heilabrotin oft full af
íhygli og hnyttni. Persónan er jarð-
bundin og þó ævintýragjörn og
kjörkuð og oft hressandi félags-
skapur með sannindi á vörum sem
eru ekkert tiltakanlega frumleg en
standast ágætlega. Ég hefði að vísu
talið að konan hefði átt að vera
eilítið eldri en 42ja eða 43 ára.
Staðfærsla í þýðingu hefur lang-
oftast heppnast prýðilega, þó ein-
stöku hnökrar leiði huga áhorf-
andans að því að hér er ekki íslensk
kona á ferð. Þar sem staðfærsla
hefur augljóslega verið ákveðin
þyrfti hún að vera út í æsar, annað
truflar. En langoftast tekst þetta
öldungis ágætlega.
Margrét Helga Jóhannsdóttir fer
með eina hlutverk leiksins, að
mörgu leyti fjölþætt og því vanda-
samt og tekst margt vel. Hún sýnir
ráðþrot og hugarvíl Sigrúnar Ast-
rósar af einlægni og innileik, en
hefði mátt hafa meiri blæbrigði í
framsögn. Mér fannst sem vantaði
stundum meira fútt í persónuna
þegar hún var að fara með þesslags
texta. Ég var yfirleitt einkar dús
við staðsetningar, en fannst fulllöng
seta Sigrúnar Ástrósar í ræðu henn-
ar í upphafi þriðja þáttar.
Sýningin hélt áhuga og athygli
áhorfenda á frumsýningu og undir-
tektir voru mjög góðar og að mak-
leikum því margt vitlegt og snjallt
er þar dregið upp og gert vel og
þá er efnið líklegt til að skírskota
til margra.
KAUPMENN
TOIVUVÆDINGI
VERSUINARREKSTRI
Við kynnum á næstu dögum
OmROn versluncirkerfi
Nýtið ykkur áratuga reynslu okkar.
Komió og kynnió ykkur verslunarrekstur á nútímavísu.
Þátttaka
tilkynnist
í síma 623737.
SKRIFSTOFUVÉLAR GÍSLI J. JOHNSEN HF.
TILKYNNING
GEINSA, fyrirtæki sem hefur yfirumsjón með leigu
íbúða á BenalBeach, Costa del Sol, Spáni,
vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:
GEINSA hefur undir höndum einkasamning við
Ferðaskrifstofuna !ák ÚRVAL-ÚTSÝN
fyrir, íslenskan markað. Við mælumst
eindregið til þess að allar pantanir fyrir
BenalBeach fari í gegnum
Ferðaskrifstofuna JÖf ÚRVAL-ÚTSÝN.
Við óskum íslenskum ferðamönnum góðrar dvalar á
Benal Beach