Morgunblaðið - 21.06.1990, Síða 1
64 SIÐUR B
138. tbl. 78. árg.___________________________________FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stokkhólmi. Frá Claes von llofsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
í SKÝRSLU sænskrar þingnefndar sem birt var í gær er lagt til að
öryggislögreglunni verði heimilt að brjótast inn í híbýli þeirra sem
grunaðir eru um hryðjuverk eða annars konar starfsemi er ógnar ör-
yggi ríkisins til að koma þar fyrir hljóðnemum. Fulltrúar borgaraflokk-
anna lýstu sig andvíga tillögum nefndarinnar.
í Svíþjóð hefur ákaft verið deilt
um réttmæti þess að hlera samtöl
manna en við rannsókn morðsins á
Olof Palme, þáverandi forsætisráð-
herra landsins, kom í ljós að þeirri
aðferð hafði verið beitt án þess að
tilskilinna heimilda hefði verið aflað.
Lars Erik Lövdén, talsmaður full-
trúa Jafnaðarmannaflokksins í
nefndinni, sagði að tryggja þyrfti
rétt sænsku öryggislögreglunnar,
Sápo, til að grípa til viðeigandi að-
gerða til að hefta starfsemi hættu-
legra glæpamanna. Jafnframt þyrfti
að færa starfshætti öryggissveitanna
til samræmis við það sem tíðkaðist
erlendis. i
í tillögum nefndarinnar er ekki
gert ráð fyrir að öryggislögreglan
geti komið fyrir hlerunarbúnaði eins
og henni þykir henta. Leita þarf til
ákæruvaldsins sem síðar vísar beiðn-
inni til dómara. Leyfi til hlerana
verða aðeins veitt í tvær vikur í senn
og óski öryggislögreglan eftir því að
það verði framlengt þarf aftur að
leita til ákæruvaldsins. Nefndin legg-
ur einnig til að Sapo verði heimilað
að taka fjarstýrðar myndavélar í
þjónustu sína. Lögreglumönnum er
nú heimilt að mynda án launungar
afbrotamenn og aðra þá sem liggja
undir grun og eru rök nefndarinnar
þau að með þessu skapist oft óþarfa
hætta fyrir lögregluna.
„Ég hygg að sem félagi í stjórn-
málaráðinu hafi ég vanmetið þá
hættu sem af perestrojku gæti stafað
— skipulögðu og vaxandi starfi
andsósíalískra afla með það að mark-
miði að veikja og að síðustu tortíma
kommúnistaflokknum og Sovétríkj-
unum innan frá,“ sagði Lígatsjov á
undirbúningsfundi rússneskra
kommúnista vegna fyrirhugaðs þings
sovéska kommúnistaflokksins í byij-
un næsta mánaðar. Hann átaldi
Gorbatsjov fyrir of mikla eftirgjöf í
málefnum Eystrasaltsríkjanna og
sjálfstæðissinna í öðrum lýðveldum
Sovétríkjanna.
Er Gorbatsjov ávarpaði fundar-
menn varaði hann við órökstuddri
gagnrýni fulltrúa er haft gæti glund-
roða í för með sér. „Persóna mín er
ekki aðalatriðið í þessu samhengi.
Svo gæti farið að á morgun eða eft-
ir 10—12 daga verði nýr flokksleið-
togi tekinn við völdum."
Samþykkt Úzbekanna, þriðju fjöl-
Stefha að hraðametí yGr Atlantshafíð
Great Britain, stærsta svifnökkvafeija heims, sigldi úr höfninni í New
York í gær og vonast skipveijar til að komast yfír Atlantshafið til suð-
vesturstrandar Englands á nýju hraðameti. Þeir ætla að sigla yfir hafið
á þremur dögum og sex klukkustundum og slá þar með met farþega-
skipsins United States, sem fór þessa leið á þremur dögum, tíu klukku-
stundum og 40 mínútum árið 1952. Ef allt gengur að óskum nær svif-
nökkvinn 37 hnúta meðalhraða. Feijan getur flutt 450 farþega og 84
bifreiðar.
Jarðskjálfti
við Kaspíahaf
London. Reuter.
GEYSIHARÐUR jarðskjálfti
varð við Kaspíahaf í Mið-Asíu í
gærkvöldi en ekki höfðu borist
fréttir af manntjóni þegar blaðið
fór í prentun. Skjálftinn mældist
7,7 stig á Richter-kvarða.
Upptökin voru á botni Kaspía-
hafs, um 320 km norðaustur af
Teheran, höfuðborg Írans og 250
km suður af Bakú í Sovét-Azerbajd-
zhan. íbúar Teheran þustu felmtri
slegnir út á göturnar að sögn
írönsku fréttastofunnar IRNA.
Skjálftinn varði í 13 sekúndur.
Álandseyjar:
Áhug’i á
sérsamn-
ingi við EB
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
YFIRVÖLD á Álandseyjum,
sem lúta Finnum en hafa sína
eigin heimastjórn, hafa áhuga
á að tengjast Evrópubanda-
laginu (EB) með sama hætti
og bresku Ermarsundseyjarn-
ar.
Þótt Bretland sé eitt af aðild-
arríkjum EB eru Ermarsundsey-
jarnar ekki í bandalaginu. Þær
tengjast því hins vegar með sér-
stökum samningi, sem leyfir
þeim að fara að eigin lögum í
vinnumarkaðsmálum og hvað
varðar kaup og sölu fasteigna.
Guernsey og Jersey búa auk
þess að eigin skattalögum og á
því atriði hafa Álendingar mest-
an áhuga. Vilja Álendingar laða
stórfyrirtæki til eyjanna með
hagstæðum skattareglum.
Bush frest-
ar viðræð-
um við PLO
Huntsville. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
hefúr ákveðið að fresta fyrirhug-
uðum viðræðum Bandaríkja-
manna og Frelsisamtaka Pal-
estínu, PLO, vegna þess að Yasser
Arafat, leiðtogi samtakanna, hefúr
neitað að fordæma strandhögg
palestínski’a skæruliða í Israel
nýlega.
Bush sagði á blaðamannafundi í
gær að nauðsynlegt væri að Pal-
estínumenn ættu aðild að samning-
um um frið fyrir botni Miðjarðarhafs
en hann setti hins vegar skilyrði fyr-
ir tvíhliða viðræðum Bandaríkja-
mgnna og PLO. Hann kvaðst leggja
mesta áherslu á að PLO fordæmdi
árás palestínskra skæruliða á bað-
strönd skammt frá Tel Aviv 30. maí.
Israelsstjórn fagnaði þessari
ákvörðun Bandaríkjaforseta en for-
ystumenn PLO sögðu hana ögrun
við samtökin.
Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi ræðir við fúlltrúa á fundi rússneskra kommúnista sem haldinn er
til undirbúnings þingi sovéska kommúnistaflokksins 2. júlí nk. Gorbatsjov hefur verið harðlega gagnrýnd-
ur á fundinum og m.a. hefúr hann verið sakaður um að stuðla að persónudýrkun á sjálfúm sér.
Jegor Lígatsjov harðorður á fundi rússneskra kommúnista í Moskvu:
Gíorbatsjov hefur ekki bol-
niagn til að leiða flokkinn
Þingið í Uzbekístan lýsir yfir fiillveldi lýðveldisins
Moskvu. Reuter, dpa, Daily Telegraph.
JEGOR Lígatsjov, sem lengi
hefur verið í fararbroddi sovéskra
harðlínuafla, sakaði í gær Míkhaíl
S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga um
óbilgirni og einræðistilburði; tekn-
ar væru ákvarðanir um mikilvæg
mál án þess að þau kæmu til um-
ræðu í stjórnmálaráðinu eða mið-
Þingnefiid í Svíþjóð:
Lögreglan megi
stunda hleranir
stjórn flokksins. Lígatsjov ncfndi
sem dæmi breytingar í átt til
markaðskerfis, viðbrögð við um-
byltingunni í Austur-Evrópuríkj-
unum og stefnuna í máleftium
Þýskalands. Hann taldi Gorbatsj-
ov ekki hafa bolmagn til að veita
jafnt ríkinu sem kommúnista-
flokknum skelegga forystu
samtímis, að sögn TASS-frétta-
stofúnuar, og áleit ferðalög Sovét-
leiðtogans torvelda honum flokks-
störfin. Nýkjörið þing sovéska
Mið-Asiulýðveldisins Úzbekistans
lýsti á fyrsta fundi sínum í gær
yfir fúllveldi landsins innan Sov-
étríkjanna og segir í yfirlýsing-
unni að stangist sovésk lög á við
lög Úzbekístans skuli innlend
gilda.
mennustu þjóðar Sovétríkjanna, er
enn eitt áfallið fyrir Gorbatsjov sem
sætir æ harðari gagnrýni fyrir stefnu
sína. Áður hafa Rússland og nokkur
önnur lýðveldi samþykkt svipaðar
yfirlýsingar; Litháar gengu lengst
með því að lýsa yfir fullu sjálfstæði
11. mars sl. Þing Georgíu ákvað í
gær að stefna að beinum efnahags-
og stjórnmálalegum tengslum við
Eystrasaltslöndin, þ. á m. Litháen.
Samþykkt var með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða fulltrúanna
2.744 að endurreisa Kommúnista-
flokk Rússlands sem látinn var renna
saman við sovéska móðurflokkinn
árið 1925. Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, segir að hann muni e.t.v. segja
sig úr flokknum þar sem hann hefði
verið kjörinn til að gæta hagsmuna
allra, jafnt kommúnista sem annarra.
Sjá ennfremur: „Flokkurinn
Ijötur fyrir leiðtoga ... “ á bls.
22.