Morgunblaðið - 21.06.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JUNI 1990
21
Vestmannaeyjar;
Nýtt safiiaðarheimili vígt
+
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Aðkoman að nýja safhaðarheimilinu er mjög snyrtileg. Innan-
gengt er úr kirkjunni í safiiaðarheimilið.
Vestmannaeyjum.
NÝTT safnaðarheimili við
Landakirkju í Vestmannaeyj-
um var vígt sl. sunnudag. At-
höfiiin hóft með hátíðarmessu
í Landakirkju en að henni lok-
inni fór fram vígsla safnaðar-
heimiiisins.
Við hátíðarmessuna þjónaði
Kjartan Örn Sigurbjörnsson,
sóknarprestur, fyrir altari. Herra
Ólafur Skúlason, biskup, prédik-
aði og fyrrverandi sóknarprestar
í Eyjum, séra Jóhann Hlíðar, séra
Kjartan Örn Sigurbjömsson og
séra Bragi Skúlason, lásu ritning-
argreinar og guðspjali. Kór
Landakirkju flutti kórverk og
leiddi safnaðarsöng undir stjóm
Guðmundar H. Guðjónssonar.
Að messu lokinni var gengið
til safnaðarheimilisins. Fyrst var
borinn kertastjaki og biblía frá
altari kirkju í safnaðarheimilið.
Athöfnin í safnaðarheimilinu
hófst með ávarpi formanns sókn-
amefndar, Jóhanns Friðfinnsson-
ar. Kór Landakirkju og stúlknakór
fluttu verk eftir J. Haydn og
Hándel undir stjórn Guðmundar
H. Guðjónssonar, við undirleik
Helgu Bryndísar Magnúsdóttur.
Herra Ólafur Skúlason, biskup,
blessaði safnaðarheimilið og sókn-
arnefndarmenn lásu ritningar-
greinar.
Margar gjafir voru afhentar við
vígsluna. Kvenfélag Landakirkju
gaf allt innbú í heimilið, að verð-
mæti 3,5 milljónir króna. Félagar
í kór Landakirkju gáfu flygil,
stjórn Kjalarnesprófastsdæmis
gaf 100 þúsund, og margar fleiri
gjafir voru færðar bæði af ein-
staklingum og félagasamtökum.
Kvenfélag Landakirkju bauð
síðan ötlum viðstöddum að þiggja
kaffi og meðlæti.
Bygging safnaðarheimilisins
hófst 1. maí 1988, er Þórður
Gíslason, fyrrum meðhjálpari, tók
fyrstu skóflustunguna. Jarðvegs-
vinna hófst strax og um haustið
var undirritaður verksamningur
við Hamar hf. um byggingu heim-
ilisins. Smíði hússins gekk vel og
sáu margir verktakar um hina
ýmsu þætti byggingarinnar. Páll
Zophóníasson hannaði húsið og
hafði eftirlit með framkvæmdum.
Safnaðarheimilið er allt hið
glæsilegasta. Það er 350 fermetr-
ar að stærð og í því er stór salur.
Þar er að auki skrifstofa sóknar-
prests, eldhús, biðstofa og ýmis
önnur aðstaða. Heimilið er tengt
Landakirkju þannig að innan-
gengt er úr fordyri kirkjunnar í
heimilið.
Grímur
Ólafur Skúlason biskup, sr. Kjartan Örn Sigur-
björnsson, sr. Bragi Skúlason og sr. Jóhann
Hlíðar.
Jóhann Friðfinnsson, formaður sóknarnefndar,
og Ólafur Skúlason.
fiayonn*
Srbitsrum
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka:
200 þúsund króna verðlaun
veitt fyrir bestu bamabókina
VERÐLAUNASJÓÐUR
íslenskra barnabóka eftiir nú í
sjötta sinn til samkeppni um
handrit að bókum fyrir börn og
unglinga. Islensku barnabóka-
verðlauniri 1991 nema 200 þús-
und krónum, en auk þess fær
sigurvegarinn í samkeppni
sjóðsins greidd höfundarlaun
fyrir verkið samkvæmt samn-
ingi Rithöfundasambands Is-
lands og Félags íslenskra bó-
kaútgefenda.
Frestur til að skila handritum í
verðlaunasamkeppnina er til 30.
nóvember 1990, en verðlaunabók-
in mun koma út vorið 1990 á veg-
um Vöku-Helgafells í tengslum við
afhendingu verðlaunanna. Þess
má geta að ákveðinn hundraðs-
hluti af útsöluverði hverrar bókar
rennur til sjóðsins.
Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka var stofnaður árið
1985. Meginmarkmið sjóðsins er
að stuðla að auknu framboði á
vönduðu íslensku lesefni fyrir
æsku landsins. í þessu skyni efnir
sjóðurinn árlega til sagnakeppni
og hyggst þannig örva fólk til að
skrifa bækur fyrir börn og ungl-
inga. Höfundur besta handrits að
mati dómnefndar hlýtur svo ís-
lensku barnabókaverðlaunin
hverju sinni.
Að verðlaunasjóði íslenskra
barnabóka standa bókaforlagið
Vaka-Helgafell, fjölskylda Ar-
manns Kr. Einarssonar rithöfund-
ar, Barnabókaráðið (íslandsdeild
IBBY-samtakanna) og Barnavina-
félagið Sumargjöf. Formaður
stjórnar Verðlaunasjóðs íslenskra
barnabóka er Ólafur Ragnarsson
bókaútgefandi.
Þess má geta að í öll skiptin
sem Islensku barnabókaverðlaunin
hafa verið veitt hafa verð-
launabækurnar jafnframt verið
fyrstu bækur höfunda.
Væntanlegum þátttakendum í
samkeppninni um íslensku barna-
bókaverðlaunin 1991 skal bent á
að ekki eru sett nein takmörk
varðandi lengd sagnanna og ein-
ungis við það miðað að efnið hæfi
börnum og unglingum.
Sögurnar skulu merktar dul-
nefni en rétt nafn höfundar fylgi
í lokuðu umslagi. Óskað er eftir
að handrit séu send í ábyrgðar-
pósti og utanáskriftin er: Verð-
launasjóður íslenskra barnabóka,
Vaka-Helgafell, Síðumúla 6, 108
Reykjavík. Með rétt höfundarnöfn
innsendra handrita verður farið
sem trúnaðarmál.
(Fréttatilkynning)
Veldu þér
áfangastað
Eurocard er tekið
á yfir 8 milljón
stöðum í heiminum.
Frelsl—til aðvelja
HVÍTA HUSIÐ / SÍA