Morgunblaðið - 21.06.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
41
Sigurjón Sæmundsson
Fæddur 24. júlí 1927
Dáinn 9. júní 1990
Nanna E. Höjgaard
Fædd 9. maí 1931
Dáin 9. júní 1990
Gunnlaug E. Höjgaard
Fædd 9. janúar 1922
Dáin 9. júní 1990
Minning:
Sigmjón Sæmundsson
Nanna E. Höjgaard
Gunnlaug E. Höjgaard
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Það er erfitt að trúa því að
Nanna, Lauga og Siguijón séu dá-
in, — horfin. Nanna og Lauga voru
miklar frænkur mínar. Er ég var
unglingur átti ég því láni.að fagna
að búa hjá Nönnu og Siguijóni í
hálft ár, þegar þau bjuggu í Þor-
lákshöfn. Þar var mér tekið eins
og einu af börnunum þeirra. Þá
bjuggu Lauga og Þórarinn í Bisk-
upstungum. Heimili þeirra var alltaf
opið og hlýtt að koma þangað, enda
urðu heimsóknirnar margar til
þeirra.
Það gladdi mig meir en orð fá
lýst að þau mundu eftir fermingar-
degi elsta barns míns, en þá bjó ég
ásamt fjölskyldu minni erlendis.
Það sýndi best þau sterku tengsl
sem voru milli okkar. Tengslin rofn-
uðu ekki hvar sem við vorum stödd
í heiminum og mun minning þeirra
alltaf lifa í huga mér.
Margs er að minnast og síðasta
skipti sem ég sá Nönnu og Siguijón
var heima hjá foreldrum mínum.
Þá sat ég ein með þeim hjónum og
við ræddum um alvöru lífsins. Að
skilnaði þökkuðum við hvert öðru
þann trúnað sem á milli okkar ríkti.
Þá datt mér ekki í hug að það væri
í síðasta skipti sem ég gaf þeim
Kveðjuorð:
Sigrún Ólafsdótt-
ir, Álftagerði
Sigrún Ólafsdóttir, eða Rúna í
Álftagerði eins og hún var ávallt
kölluð, lést þann 6. júní sl.
Ég kynntist Rúnu fýrst fyrir
tæpum 50 árum þegar ég sem barn
var send í sveit til Péturs móður-
bróður míns og Rúnu en þau voru
þá að byija búskap í Álftagerði og
nýbúin að eignast sinn fyrsta son,
en börnin urðu fleiri og það urðu
sumrin líka sem ég dvaldi hjá þeim
í sveitinni.
Árin líða og það kemur að því
að hugsa fyrir sumardvöl fyrir
mínar dætur.
Ég minnist sumranna hjá Rúnu
og Pétri í Skagafirðinum og betra
get ég ekki kosið fyrir þær, því í
Álftagerði var gott að vera og þar
hafði gleðin völd.
Pétur frændi var mjög góður
söngmaður og lék einnig á harmon-
ikku og var oft tekið lagið. Hann
lést fyrir nokkrum árum.
Börn þeirra Péturs og Rúnu urðu
sex, fimm synir og ein dóttir, en
þó heimilið væri orðið stórt hafði
Rúna alltaf pláss fyrir fleiri og nóg
var af hjartahlýju. Hrafnhildur dótt-
ir mín var hjá þeim eitt sumar en
Þórunn mfn I fimm sumur og minn-
ast þær þeirra hjóna með sama
þakklæti og ánægju og ég.
Með þessum fáu orðum vil ég
þakka Rúnu og afkomendum henn-
ar fyrir allt sem þau hafa gert fyr-
ir mig og mína.
Ólöf Klemensdóttir
t
Útför
INGIBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR,
sem lést 13. þessa mánaðar, fer fram frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 22. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna.
Ragnheiður Jóhannsdóttir, Friðrik Rergsveinsson.
koss á kinn. Þeir sem þekktu
Nönnu, Laugu og Siguijón vita hve
traust þau voru sínum.
Mig langar að þakka allar sam-
verustundirnar sem ég átti með
þeim. Þau skilja eftir sig stórt
skarð, en minningin um yndislegt
fólk mun lifa.
Elsku Þórarinn, Silli, Ási, Reyn-
ir, Örn, Úlli, Guðni, Alda, Óli, Jök-
ull, Grettir, hugheilar samúðar-
kveðjur og megi góður guð styrkja
ykkur og fjölskyldur ykkar í ykkar
miklu sorg.
Elín Þorbergsdóttir
Gunnlaug E.
Hejgaavd
Gunnlaug Einarsdóttir Hojgaard
kom til starfa hjá okkur í haust er
leið. Lágvaxin og hljóðlát stóð hún
við eldhúsbekkinn og tilreiddi okk-
ur. Allt fas hennar lýsti hógværð,
jafnvel feimni.
Það er mikil vinna fyrir tvær
manneskjur að matreiða handa fólki
á fjölmennum vinnustað, sé nokkuð
í lagt. Þá þarf og að gæta þess,
að kostnaður verði ekki úr hófi.
Má óhætt fullyrða að hvort tveggja
hafi tekizt með ágætum, enda njót-
endur ósparir á lofið.
En Gunnlaug kemur ekki aftur
í haust.
Það þarf lengri tíma en einn vet-
ur til að kynnast slíkri manneskju
hið innra. Hún verður einungis
metin af verkum sínum. Þeim sinnti
Gunnlaug af slíkri alúð og trú-
mennsku, að öllum hlaut að þykja
vænt um manneskjuna sjálfa.
Við sendum eiginmanni hennar,
börnum og öðrum aðstandendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Starfsfólk Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HELGASQN HF
STEINSNIIÐJA
SKEMMUVEGI48. SlMI 76677
t
Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
EGGERT MAGNÚSSON,
Túngötu 46,
Tálknafirði,
andaðist þriðjudaginn 19. júní í Borgarspítalanum.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengadafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÞÓRARINSSON
fyrrverandi verkstjóri,
Stýrimannastíg 13,
andaðist í Landakotsspítala að morgni 20. júní.
Lovísa Jóhannsdóttir,
Þórarinn Guðmundsson, Anna Kjartansdóttir,
Jóhann Guðmundsson,
Anna Guðmundsdóttir Balle, Viggó Balle
og barnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
JÓNS H. KRISTJÁNSSONAR
fyrrv. skólastjóra,
Vogagerði 2,
Vogum,
fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 22. júní kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna
er bent á Hjartavernd.
Hrefna Sigfúsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HALLDÓRLAXDAL
forstjóri,
til heimilis íLöngubrekku 12,
Kópavogi,
sem lést hinn 16. júní síðastliðinn,
verður jarðsuoginn frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 26. júní kl. 13.30.
Sigríður Axelsdóttir Laxdal,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför föður okkar, sonar, bróður og mágs,
GUÐJÓNS S. SIGURJÓNSSONAR,
Boston, Massachusetts,
sem lést á Jamaica 3. júní, verður gerð frá Dómkirkjunni
föstudaginn 22. júní kl. 13.30.
Eyþór K. Guðjónsson,
Leger Walcott Guðjónsdóttir, Ragnheiður Steina Guðjónsd.,
Guðrún I. Jónsdóttir, Sigurjón H. Sigurjónsson,
Jóna Sigurjónsdóttir, Þórður Adólfsson,
Sigurjón G. Sigurjónsson, Anna E. Ásgeirsdóttir,
Viðar Sigurjónsson, Ólöf Jónsdóttir,
Gunnhildur Sigurjónsdóttir, Ólafur Mogensen.
t
Ástkær eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma, *
HELGA TÓMASDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík, -
áður til heimilis á Digranesvegi 62, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 22. júní
kl. 13.30.
Árni Kr. Hansson,
Björg Árnadóttir,
Ingibjörg Árnadóttir,
Ragnheiður Árnadóttir,
tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
INGIMUNDAR GUÐMUNDSSONAR,
Langholtsvegi 96.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Skjóls
og deildar 11A, Landspítalanum, fyrir einstaka hlýju og umönnun.
Ástri'ður Guðmundsdóttir,
Guðrún Ingimundardóttir,
Guðni Ingimundarson, Kristín Sigmundsdóttir,
Guðmundur Ingimundarson, Jóhanna M. Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.