Morgunblaðið - 21.06.1990, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 21.06.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 47 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig í tilefni 80 ára áfmœlisins þann 16. júní sl. Olga Ásgeirsdóttir. I I I I I I I I I I I J I I Brak og brestir í bíó Til Velvakanda. Fyrir nokkru fór bréfritari í eitt af kvikmyndahúsum borgarinnar sem í sjálfu sér er ekki í frásögur færandi. En óskaplega er það hvim- leitt þegar virkilega á að njóta myndarinnar að úr öllum áttum heyrist brak og brestir líkt og hraunmolar séu að ryðja sér braut niður hlíð. Þar á ég við þegar fólk er að maula poppkornið upp úr bréf- pokum sem hafðir eru utan um poppið. Fyrir aftan mig sat par og var engu líkara en það væri í kapp- áti með poppkornið sitt og í hvert sinn er hendi fór ofan í bréfpokann skall hávaðinn á eyru mín. Og ein- hver kynstur af poppkorni hefur fólkið látið ofan í sig því hávaðinn hélst út alla myndina. Þrátt fyrir þessa leiðinlegu reynslu fór ég enn í kvikmyndahús og nú lá leiðin í Háskólabíó. Mér til mikillar ánægju var þar allt ann- að upp á teningnum því poppkornið þar er selt í plastpokum sem ekki skijáfar í. Mikill munur var þetta, þó fólk væri að maula sitt poppkorn þá truflaði það á engan hátt mynd- ina. Aðaltilgangur bíóferðar er að horfa á og njóta myndarinnar sem sýnd er, án þess að nokkuð trufli. Þeir kvikmyndahúseigendur sem selja poppkorn í skijáfpokum hljóta að geta breytt því til betri vegar, þannig að hægt sé að horfa á kvik- myndirnar sem þeir sýna án þess að allskyns aukahljóð berist til eyma bíógesta. Bíógestur GARÐASTAL Góð ending — margir litir = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 v- Þessir hringdu .. . Tapaði silfurhjarta Útskorið nisti, silfurhjarta, tapaðist, líklega í kringum sundlaugina í Breiðholti. Finnandi hafi samband við Evu Björk í síma 72888. Hver er höfundur? Jóna Vilhjálmsdóttir, Skaga- strönd, hringdi: „Mig langaði til að vita hver væri höfundur að Faxavísum, og læt hér fylgja með tvö erindi: Flýttu þér nú Faxi minn, finnst þér grýttur vegurinn. Sterklegur og stór ert þú, stikar langt með okkur þijú. Þú berð okkur þijú í lest, þekkir enginn betri hest. Aldrei hræðist mamma mín, meðan að bðmin njóta þín. Rauðúlpa Rauð barnaúlpa með fjólubláum, grænum og bláum stykkjum tapaðist. Líklega einhvers staðar í Vesturbænum. Finnandi vinsamlega hringi í síma 14530. Vilborg hringdi: „Ég tapaði gullarmbandi og hálsmeni 6. júní sl., einhvers staðar í kringum Verk- og raungreinahús Háskólans þar sem ég var á námskeiði. Ég hafði hengt armbandið á hálsmenið sem er með hvítum stein og. sett í veskið mitt. Það gæti verið að þetta hafi runnið upp úr veskinu þegar ég fór út úr bílnum við húsið. Þar sem þetta er mér kært bið ég finnanda vinsamlega að hringja í síma 38023.“ Vísa Lárus hringdi: „Mig langaði til að koma með vísu á móti þeirri sem birtist í Velvakanda 15. júní sl.: Ódýrt er mataður Mogginn miklast af vonleysi SIS. En brýnir nú glaðbeittur gogginn gróðarvon hjá honum rís.“ Blá mussa Einnig langar mig til að vita hveij- ir eru höfundar þessara gömlu húsganga sem ég lærði fyrir löngu: Hafið’i heyrt um ána og hetjuna hann Stjána. Snemma dags til dala drengur fór að smala. Hund einn lítinn hefur honum skófir gefur. Sauðfé saman eltir seppi hljóp og gelti." Blá afrísk mussa með útsaumi framaná tapaðist fyrir nokkru. Mussan var í gömlum handavinnupoka sem er merktur KS 1957. Finnandi hafi samband í síma 78520 milli kl. 9.30 og 16.30. Týndi armbandi Armband úr silfri týndist á Eiðistorgi fyrir um tveimur vikum. Finnandi vinsamlega hringi í síma 13216. Þú ert á grænni grein með Filman sem þú getur treyst—alltaf. Mundu aö 10 krónur af hverri Fuji filmu rennatil Landgræðsluskóga - átak 1990. Æí - nú hefur hann sofið ílla eina nóttína enn, blessaður karlínn hann Arngrímur. Hvaða vandræðí að hann skuli gera sér þetta, -karlálftín, að reyna að sofa á sömu dýnunní þriðja eða Qórða áratugínn í röð og ganga svo með þessa , ,skúffu‘ ‘ í gegnum lífið. Sérðu nokkuð af sjálfum þér í svípnum á honum Arngrímí - svona stundum - eftír órólega nótt á vondrí dýnu? Já - þá máttu gjarnan hafa í huga að besta brosmeðalið er alvöru rúmdýna - ekki bara einhver dýna - heldur ekta fjaðradýna með bestu bólsturefnum sem hægt er að fá. Og þessar dýnur færðti hjá okkttr - svo eínfalt er það Eígum víð ekkí að híttast í dag og tala um dýnur M0BLER FAX 91-673511 SIMI 91-681199 HúsgagiKthöllin REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI BILDSHÖFÐI 20 112 REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.