Morgunblaðið - 21.06.1990, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR
21. JUNI 1990
51
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN A ITALIU
Hm a
ITALIU
Sextán liða úrslit
Bari: Laugardag 23. júní, kl. 19:00 Tékkóslóvakia : Kosta Ríka
2. sæti í A-riðli 2. sæti í C-riðli
Mílanó: Sunnudag 24. júní, kl. 19:00 V-Þýskaland :
1. sæti í D-riðli 3. sæti í B/E/F-riðli
Napólí: Laugardag 23. júní, kl. 15:00 Kamerún
1. sæti 1 B-riðli 3. sæti í A/C/DTriðli
Bologna: Þriðjudag 26. júní, kl. 19:00
1. sæti í F-riðli 2. sæti í E-riðli
Tórinó: Sunnudag 24. júni, kl. 15:00 Brasilía : ;
1. sæti i C-riðli 3. sæti f A/B/F-riðli
Veróna: Þriðjudag 26. júní, kl. 15:00 : Júgóslavía
1. sæti í E-riðli 2. sæti í D-riðli
Genúa: Mánudag 25. júni, kl. 15:00 Rúmenía
2. sæti í F-riðli 2. sæti í B-riðli
Róm: Mánudag 25. júní, kl. 19:00 Ítalía
1. sæti í A-riðli 3. sæti 1 C/D/E-riðli
A-RIÐILL
Fj. leikja u J T Mörk Stig
ÍTALÍA 3 3 0 0 4: O 6
TÉKKÓSL. 3 2 0 1 6: 3 4
AUSTURRÍKI 3 1 O 2 2: 3 2
BANDARÍKIN 3 0 0 3 2: 8 0
B-RIÐILL
Fj. leikja u J T Mörk Stig
KAMERÚN 3 2 0 1 3: 5 4
RÚMENÍA 3 1 1 1 4: 3 3
ARGENTÍNA 3 1 1 1 3: 2 3
SOVÉTRÍKIN 3 1 0 2 4: 4 2
C-RIÐILL
BRASILÍA—SKOTLAND...........1:0
Muller(82.)
Áhorfendur: 62.000.
KOSTA RÍKA—SVÍÞJÓÐ..........2:1
Roger Flores (75.) Hernan Medford (87.)
— Johnny EkstrÖm (32.).
Ahorfendun 30.223.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
BRASILÍA 3 3 0 0 4: 1 6
KOSTARÍKA 3 2 0 1 3: 2 4
SKOTLAND 3 1 0 2 2: 3 2
SVÍÞJÓÐ 3 0 0 3 3: 6 0
D-RIÐILL
Fj. leikja U J T Mörk Stig
V-ÞÝSKAL. 3 2 1 0 10: 3 5
JÚGÓSLAVÍA 3 2 O 1 6: 5 4
KÓLUMBÍA 3 1 1 1 3: 2 3
SAM'ARAB. 3 0 0 3 2: 11 0
E-RIÐILL
ÍDAG KL.15LEIKA: BELGÍA—SPÁNN
SUÐUR-KÓREA—URUGUAY
Fj. leikja U J T Mörk Stig
BELGÍA 2 2 0 0 5: 1 4
SPÁNN 2 1 1 0 3: 1 3
URUGUAY 2 0 1 1 1: 3 1
S-KÓREA 2 0 0 2 1: 5 0
F-RIÐILL IDAGKL.19LEIKA:
ENGLAND—EGYPTALAND
HOLLAND—IRLAND
Fj. leikja U J T Mörk Stig
EGYPTALAND 2 0 2 0 1: 1 2
ENGLAND 2 0 2 0 1: 1 2
HOLLAND 2 0 2 0 1: 1 2
ÍRLAND 2 0 2 0 1: 1 2
Ævintýrín gerast enn
Kosta Ríka í 16-liða úrslit og Svíar úr leik
Reuter
Rogas
eftir að
Flores fagnar ógurlega, ásamt félaga sínum Ronald Gonzales (4),
hafa gert jöfnunarmarkið gegn Svíum.
„ÞETTA er sögulegur sigur.
Leikmenn mínir vissu nákvæm-
lega hvað þeir þurftu að gera
og ég er mjög ánægður," sagði
Milutínovic, þjálfari Kosta Ríka,
eftir mjög óvæntan sigur á
Svíum í C-riðli, 2:1. Liðið
tryggði sér þarmeð 2. sæti í
riðlinum og sæti í 16-liða úrslit-
um þar sem það mætirTékk-
um.
Hernan Medford, sem kom inná
sem varamaður, átti stærstan
þátt í sigrinum, auk markvarðarins,
Luis Gabelo Conejo, sem varði mjög
vel. Hann sá þó ekki við Johnny
Ekström sem kom Svíum yfir á 32.
mínútu, eftir að Conejo hafði varið
aukaspyrnu.
Þá var komið að Medford lagði
upp jöfnunarmarkið, sendi fyrir á
Roger Medford sem skoraði með
skalla. Þremur mínútum fyrir leiks-
lok gerði Medford svo sigurmarkið,
komst einn í gegn og skoraði af
öryggi. Fögnuður leikmanna var
gífurlegur enda liðið komið í 16-liða
úrslit í fyrstu tilraun.
„Það hafði mikið að segja þegar
Medford kom inná og ég get ekki
verið annað en ánægður. Við sýncf-
um það í síðari hálfleik að við erum
ekki aðeins líkamlega sterkari,
heldur einnig andlega," sagði Milut-
inovic.
Olle Nordin, þjálfari Svía, sagði
að með slfkum leik gæti lið Kosta
ríka náð enn lengra. „Við héldum
að við ættum möguleika á sigri og
við lékum vel í fyrri hálfleik. Við
byrjuðum vel í síðari hálfleik en
gáfumst upp eftir að hafa klúðrað
nokkrum dauðafærum,“ segði
Nordin.
Vonbrigði Skota
g inn leiðinlegasti leikur keppn-
innar leit dagsins ljós í gær,
þegar Brasilía og Skotland mætt-
ust. Steindautt jafntefli blasti við,
en Múller, sem kom inná sem vara-
maður tryggði Brasilíu 1:0 sigur
skömmu fyrir leikslok.
Þjálfarar beggja liða sögðu að
sigur Brasilíu hefði verið sanngjarn.
„Betra iiðið sigraði," sagði Rox-
burgh, þjálfari Skota, „en úr því
sem komið var voru það mikil von-
brigði að tapa. Við þurftum eitt
stig, en okkur mistókst. Við fengum
tækifæri, en nýttum þau ekki. Ég
hef mikla samúð með stuðnings-
mönnum okkar, sem lögðu sitt af
mörkum.“ Skotar eiga samt enn
fræðilega möguleika á að komast
áfram, „en þeir eru ekki í okkar
höndum,“ sagði Roxburgh.
. Lazaroni, þjálfari Brasilíu, hrós-
aði Skotum og sagði þá erfiða viður-
eignar, en sigurinn hefði verið sann-
gjarn. „Við sóttum í okkur veðrið
eftir því sem á leið og við höfum
bætt okkur með hveijum leik.“
Aðspurður um Argentínumenn
sem líklega mótherja í næstu um-*
ferð sagði Lazaroni að of snemmt
væri að spá í spilin. „Við b?ðum
rólegir þar til greint verðu rópin-
berlega frá hveijir mætast í 16 liða
úrslitum."
Skotinn Murdo McLeod fékk
boltann í höfuðið eftir aukaspyrnu,
fékk heilahristing og fór skömmu
síðar af velli. „Hann lék í um það
bil 10 mínútur og man ekkert,“
sagði Roxburgh.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Þórsstúlkur í stuði gegn KA
Valurvann lánlaust lið KR að Hlíðarenda
Hanna Katrfn
Friöriksen
skrifar
ÞÓR burstaði KA 5:1 þegar
Akureyrarliðin áttust við í gær-
kvöidi. Þá unnu íslandsmeist-
arar Vals stóran sigur á KR,
4:1 og ÍA gerði góða ferð í
Kópavoginn, sigraði Breiðablik
2:1.
KR byijaði leikinn gegn Val af
krafti, en hafði ekki erindi sem
erfiði þrátt fyrir upplögð tækifæri.
Þær röndóttu fengu vítaspyrnu
snemma í leiknum
þegar boltinn fór í
hönd Ameyjar
Magnúsdóttur í
vítateig Vals. Guð-
björg Ragnarsdóttir markvörður
Vals varði skot Jónu Kristjánsdótt-
ur og gaf þarmeð tóninn, en hún
átti eftir að reynast KR-stúlkum
erfið. Þegar á leið komst Valur
betur inn í leikinn og liðið nýtti
færin ólíkt betur en KR, skoraði tvö
mörk fyrir leikhlé. Fyrra markið
gerði Erla Sigurbjartsdóttir utan
af kanti með „bananaskoti" yfir
Klöru Bjartmarz í marki KR. Guð-
rún Sæmundsdóttir bætti öðru
marki við úr víti eftir að Klara
hafði brotið á Bryndísi Valsdóttur
sem var komið ein í gegnum vörn
KR.
KR-stúlkur óðu í færum í upp-
hafi síðari hálfleiks, en var sem
fyrr fyrirmunað að koma boltanum
frarahjá Guðbjörgu í marki Vals.
Það var því nókkuð gegri' jgangi
leiksins þegar Ragnheiður Víkings-
dóttir einlék laglega gegnum KR-
vörnina og framhjá Klöru Bjart-
marz í markinu, 3:0. Um miðjan
hálfleikinn kom loksins mark hjá
KR þegar Jóna Kristjánsdóttír skor-
aði með þrumuskoti beint úr auka-
spyrnu. Þetta dugði þó skammt því
Bryndís bætti fjórða marki Vals við
rétt fyrir leikslok.
Gott hjá Skagastúlkum
ÍA vann mikilvægan sigur á
Breiðabliki í Kópavogi í gærkvöldi.
Ásta María Reynisdóttir kom hei-
maliðinu yfir snemma i leiknum
með marki úr vítaspyrnu. Skaga-
stúlkur létu ekki þar við sitja og
stuttu síðar jafnaði Jónína
Víglundsdóttir með góðu skoti utan
teigs. Gestirnir gerðu reyndar gott
betur því fimm mínútum eftir jöfn-
unarmarkið kom annað mark ÍA.
Magnea Guðlaugsdóttir skoraði þá
fallegt mark beint úr aukaspyrnu
og reyndist það sigurmark leiksins.
Það sem eftir var hálfleiksins var
Breiðablik meira með boltann og
náði oft upp fallegu spili en herslu-
muninn vantaði upp við markið,
enda varðist Skagaliðið mjög vel.
Síðari hálfleikur var markalaus.
Burst hjá Þór
Þórsliðið lék á als oddi gegn ná-
grönnum sínum úr KA. Fyrri hálf-
leikur var nánast einstefna að marki
KA. Þórliðíð'rtáði'góðum tökum á
Morgunblaðið/KGA
Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði Vals, sést hér einbeitt á svip í baráttu
við Ónnu Steinsen í KR. Ragnheiður lék mjög vel gegn KR í gærkvöldi, gerði
eitt mark og lagði upp annað í 4:1 sigri Vals.
miðjunni, nýtti sér vel slakan varn-
arleik KA og gerði þrjú mörk fyrir
hlé.
KA hóf síðari hálfleik vel og
pressaði stíft að marki Þórs. Allt
kom fyrir ekki og um miðjan hálf-
leikinn réttu Þórsstúlkur aftur úr
kútnum og bættu tveimur mörkum
við. Eftir það var allur kraftur úr
KA-liðinu, en Linda Hersteinsdóttir
náði þó að klóra í bakkann rétt
fyrir leikslok.
Soffía Frimannsdóttir og Ellen
Óskarsdóttir skoruðu tvö mörk hvi
fyrir Þór og Lára Eymundsdóttir
eitt.