Morgunblaðið - 22.06.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.06.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990 17 Andrea Jóhannesdóttir AFKOMENDUR Erlendar Gunn- arssonar og Andreu Jóhannes- dóttur á Sturlureykjum í Reyk- holtsdal í Borgarfirði halda ætt- armót í Logalandi næstkomandi laugardag. Erlendur er þekktast- ur fyrir brautryðjendastörf við beislun hvera. Hann virkjaði hver við bæ sinn árið 1908 og tókst að hagnýta jarðhitann m.a. til að hita upp bæinn árið 1911. Var hann fyrsti Islendingurinn til að gera það og ekki er heldur vitað til að það hafi verið gert í öðrum löndum fyrir þann tíma. Erlendur var af borgfirskum ætt- um. Hann fæddist 1853 en lést af slysförum vorið 1919, 67 ára að aldri. Andrea er af Akranesi, fædd 1855 og látin 1911. Þau giftu sig 1884 og reistu bú á Sturlureykjum tveimur árum seinna.' Tíu börn þeirra, fimm synir og fimm dætur, komust til aldurs. Afkomendur þeirra eru nú á þriðja hundrað tals- ins. í Borgfirskum æviskrám segir m.a. um Erlend: „Annálaður dugn- aðarmaður, verkhygginn, verklag- inn í hveiju starfi svo af bar, enda smiður á tré og málma, þó af sjálfs- Erlendur Gunnarsson námi.“ Hann byggði upp á Sturlu- reykjum og eignaðist jörðina. í ritgerð Guðmundar Hannesson- ar prófessors í Iðnsögu íslands seg- ir að íslendingar hafi sótt til út- landa flestar nýjungar og framfarir í húsagerð. Nokkrar undantekning- ar séu þó á þessu og er aðferð Erlendar á Sturlureykjum við að hagnýta jarðhita til upphitunar húsa nefnd sérstaklega og sagt að þar hafi íslendingar verið á undan öllum öðrum. Kristleifur Þorsteinsson á Stóra- Kroppi segir í riti sínu Úr byggðum Borgaríjarðar að Erlendur hafi ver- ið fyrsti maðurinn „sem sýndi það í verki að takast mátti að færa sér í nyt þann yl og þá orku, sem hver- inn var búinn að hampa þar framan við bæinn öld eftir öld. Engum hug- kvæmdist fyrr að glíma við þá óternju." Hverinn var spölkorn neðan við bæinn og þau vandkvæði voru á að hann lá 6 metrum neðar en bærinn svo hveravatn gat ekki runnið til bæjarins. í ritgerð Guð- mundar Hannessonar segir að Er- lendur hafi eftir vandlega umhugs- un haft trú á að hægt væri að veita sjóðheitri vatnsgufunni heim á bæ. Mætustu menn sem Erlendur leitaði til töldu útilokað að það væri hægt. En Erlendur steypti yfir gjósandi suðuauga hversins og lagði pípu heim til bæjar. Með því að prófa sig smám saman áfram og endur- bæta kerfið náði hann að láta hreina gufu streyma eftir pípunum heim á bæinn og nota við suðu á mat og upphitun. Enga fyrirmynd hafði hann til að lesa síg eftir og varð því að bjargast við sitt eigið hyggju- vit við þetta verk. Var það því að vonum, að það tæki bæði tíma og fyrirhöfn að komu þessu í fram- kvæmd. Kristleifur segir frá því að eftir 1920 hafi fleiri hverir í Reykholts- dal og nágrenni verið virkjaðir með aðferð Erlendar. Hagnýting jarðhit- ast jókst síðan hröðum skrefum, til dæmis má nefna að okkur hluti Reykjavíkur var hitaður upp með hverahita 1930 og 1939 var byijað á mikilli hitaveitu fyrir allan bæinn. Síðustu árin hafa verið unnin stór- virki á þessu sviði, hitaveitur ann- arra stórra sveitarfélaga, Kröflu- virkjun, Hitaveita Suðurnesja og Nesjavallavirkjun. Brautryðjandi alls þessa var Erlendur á Sturlu- reykjum. Fjórir prest- ar vígðir til þjónustu HERRA Ólafur Skúlason biskup vígir Qóra guðfræðikandidata til prestsþjónustu í Dómkirkjunni sunnudaginn 24. júní nk. Guðfræðikandídatarnir eru Guðný Hallgrímsdóttir, sem vígist til þjónustu við fatlaða og er það nýr þjónustuþáttur hjá kirkjunni. Hjörtur Hjartarson vígist til Ása- prestakalls í Skaftafellsprófasts- dæmi. Sigríður Guðmarsdóttir vígist til Staðarprestakalls í Súg- andáfirði. Sigurður Kristinn Sig- urðsson vígist til Setbergspresta- kalls i Snæfells- og Dalaprófasts- dæ_mi. í vígslumessunni predikar bisk- upinn. Séra Jakob Ágúst Hjálmars- son dómkirkjuprestur þjónar fyrir altari. Dómkórinn og kór Víðistaða- kirkju syngja undir stjórn Marteins Hunger organista. Vígsluvottar verða séra Ingiberg J. Hannesson, prófastur á Hvoli, séra Karl Matthíasson á Ísafirði, séra Sighvatur Emilsson, fyrrum prestur á Ásum, og séra Sigurður H. Guðmundsson í Hafnarfirði. Auk þeirra annast Arnþór Helgason, formaður Öryrkjabandalagsins, ritningarlestur. Dómkórinn heldur Jónsmessutónleika í Dómkirkjunni á laugardags- kvöld. Ættarmót brautryðjanda í hagnýtingu hverahitans Jónsmessutónleik ar Dómkórsins DÓMKÓRINN í Reykjavík heldur Jónsmessutónleika í Dómkirkj- unni laugardaginn 23. júní kl. 22.00. Á efnisskrá eru bæði kirkjuleg og veraldleg kórlög, m.a. „Faðir vor“ eftir Jónas Tómasson, „Gjör dyrnar breiðar" eftir J. Brahms, þjóðlög út- sett af Mendelssohn og madrígalar. Stjórnandi Dómkórsins er Mar- teinn H. Friðriksson. Aðgangur er ókeypis. MM 30. júní m.m. Kvennahlaupið. Haldið í Garðabæ, laugardaginn 30. júní kl. 14:00 Hlaupið er fyrir aiiar konur, stúlkur, ömmur og mömmur. Markmiðið er að konur á öilum aidri sýni samstöðu í hollri íþróttaiðkun og útiveru. Þú getur hlaupið, skokkað eða gengið vegalengdina. Enginn sigurvegari. Allir þátttakendur fá boli til að hlaupa í og verðlaunapeninga. Upphitun á undan hlaupinu. Teygjur, skemmtiatriði og hressing við íþróttamiðstöðina í Garðabæ að hlaupi loknu. Útivera, samstaða og skemmtun á ógleymanlegum degi. Hægt er að velja um þátttöku í tveimur vegalengdum: 2 km. og 5 km. Þátttökugjald er kr. 250. Tilkynningar um þátttöku berist til íþróttasambands íslands í síma: 91-83377. Einnig er hægt að skrá sig í íþróttamiðstöð Í.S.Í. Laugardal. / / A Iþróttahátíð verður einnig: 27.880 ... FRIR BÍLALFIúUBÍLL í HEILA VIKU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.