Morgunblaðið - 22.06.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990
19
Markus Meckel utanríkisráð-
herra.
Rainer Eppelmann varnarmála-
ráðherra.
manna í Vestur-Evrópu og Banda-
ríkjunum.
„Þessir menn eru fulltrúar
flokks, sem beið ósigur í kosning-
unum, ráðherrar í bráðabirgða-
stjórn, sem á að greiða fyrir sam-
einingu þýsku ríkjanna," sagði
fyrrum embættismaður og nú einn
af ráðgjöfum George Bush Banda-
ríkjaforseta. „Þeir virðast hins veg-
ar vera farnir að reka erindi
harðlínumanna í Moskvu og setja
fram kröfur, sem varða öryggis-
hagsmuni Vestur-Þýskalands og
j afnvel Atlantshafsbandalagsins.“
Tilefni þessara orða var sú yfir-
lýsing Meckels á ráðstefnu í Stokk-
hólmi, að „við gerðum ekki bylt-
ingu í Austur-Þýskalándi til að
ganga í NATO“. Eppelmann hefur
einnig gert sitt til að sþilla fyrir
samkomulagi austurs og vesturs
um framtíð Þýskalands. í síðustu
viku sagði hann til dæmis, að
„skynsamlegast“ væri að fresta
sameiningu þýsku ríkjanna til
1992 svo tími gæfíst til að leggja
bæði hernaðarbandalögin niður.
„Er maðurinn á mála hjá ein-
hverjum ónefndum, sovéskum
hershöfðingjum?" spurði breskur
embættismaður þegar hann heyrði
ummæli Eppelmanns. „Er hann að
reyna með öllum ráðum að hanga
sem lengst í embætti? Er með
nokkru móti hægt að segja, að
hann sé að gæta hagsmuna
Austur-Þýskalands?“
í Bonn tala menn gjarna í góð-
látlegum tón um „skringilegheitin"
hjá austur-þýsku ráðamönnunum
og skýra þau þannig, að um sé að
ræða vaxtarverki hjá fólki, sem er
í fyrsta sinn að upplifa pólitískt
frelsi. Undir íjögur augu hneyksl-
ast þó vestur-þýskir embættis-
menn á ferðagleði austur-þýsku
ráðamannanna og löngun þeirra
til að láta á sér bera utanlands.
„Þeir eru liins vegar að eyða
peningunum okkar þegar þeir gefa
út stórkarlalegar yfirlýsingar um
að Austur-Þýskaland muni greiða
gyðingum stríðsskaðabætur eða
heita að standa við alla samninga
kommúnistastjórnarinnar fyrrver-
andi,“ sagði vestur-þýskur emb-
ættismaður.
Bandaríkin:
Heyrir ríkidæmi Donalds
Trumps brátt sögxmni til?
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
RIKIDÆMI hins unga bandaríska „miHjarðamærings“ Donalds
Trumps, sem varð 44 ára í síðustu viku, riðar nú til falls. Á föstu-
daginn gat hann ekki staðið við 42 milljóna dollara afborgun af
skuldabréfalánum og þessi vanskil bætast við fyrri vanskil af hans
hálfu, sem bankastjórar sex helstu banka Bandaríkjanna hafa ver-
ið að ræða á stöðugum fundum með Trump og sérfræðingum
hans undanfarnar vikur. Úrslit mála verða að liggja fyrir 26. þ.m.
í síðasta lagi — annars hrynur allt veldið.
Líklegast er talið að bankarnir honum frest á greiðslum afborg-
auki lán sín til Trumps og veiti ana til að forða gjaldþroti hans.
Bróðir Ceausescus í 15 ára fangelsi
Nicolae Andruta Ceausescu, bróðir rúmenska einræðisherrans Nicolae
Ceausescu, var í gær dæmdur í 15 ára fangelsi eftir að herdómstóll hafði
fundið hann sekan um tilraun til morðs og að hafa hvatt til þjóðar-
morðs. Nicolae Andruta, sem er 66 ára og líkist mjög bróður sínum líkt
og myndin sýnir, er fyrsta ættmenni einræðisherrans sem dregið er til
ábyrgðar fyrir illvirki valdaklíkunnar í Rúmeníu frá því hermenn tóku
Ceausescu-hjónin af lífi í desembermánuði. Hann var herforingi í her
Rúmeníu og yfírmaður þjálfunarbúða öryggislögreglunnar, Securitate. „Ég
er bróðir svikarans en ég framdi ekki illvirki þau sem ég er skaður um,“
sagði Nicolae Andruta fyrir réttinum. Dauðarefsing var afnumin í Rúm-
eníu skömmu eftir að Ceausescu og eiginkona hans, Elena, voru tekin af
lífi en þijú börn þeirra bíða dóms.
Erfíðastir við slíka lausn mála eru
erlendir lánardrottnar, sem vilja
fá gjaldfallnar kröfur greiddar re-
fjalaust.
Þetta er talin besta lausn mál-
anna og ef hún á að nást mun
fylgja það ófrávíkjanlega skilyrði,
að nýr aðalframkvæmdastjóri taki
við yfirstjórn eigna Trumps og
hafi það aðalmarkmið að selja þær
á sem hæstu verði. Meðal eign-
anna eru margar af glæsilegustu
byggingum New York-borgar, s.s.
Trump-Tower og Hotel Plaza auk
flugfélags og nokkurra spilavíta.
Margir telja vonlítið eða von-
laust að það takist að fá sam-
þykki allra skuldareigenda til að
þetta megi takast. Trump muni
innan skamms neyðast til að óska
eftir greiðslustöðvun og endanlegt
gjaldþrot hans sé óumflýjanlegt.
Ymsar eignir hans eru komnar í
sölu, t.d. skonnorta hans, einka-
þota og einkaþyrla.
Reuter
AXIS
Fataskápar
ódýrir I
| íslenskir
Axis Húsgögn hf.,
Smiðjuvegi 9,
sími 43500.
BYGGT & BUIÐ
KRINGLUNNI
SÍMINN ER
689400
FOSTUDAGUR TIL FMR
FERÐAPOTTASETT
I DAG
A KOSTNAÐARVERÐI
í KRINGLUNNI