Morgunblaðið - 22.06.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990
25
ATVIN N tf A UGL YSINGAR
Sumarstarf
Stórt fyrirtæki vill ráða starfsmenn til starfa
við þrif og fleira í vélasal. Aðeins júlí og ágúst-
mánuð.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „M - 9239“ fyrir kl. 17 í dag.
„Au pair“
Stúlka um tvítugt óskast strax á gott heimili
í nágrenni New York til að gæta tveggja
stúlkna, 4 og 6 ára. Þarf að hafa bílpróf.
Upplýsingar gefa Ólína í síma 92-68398 og
Heiða í síma 96-62461.
Umboðsmaður
óskast til að sjá um dreifingu blaðsins á
Ólafsvík.
Upplýsingar í síma 691201.
Kennarar
Kennara vantar að grunnaskólanum í
Þykkvabæ. Ódýrt húsnæði.
Upplýsingar veita skólastjóri, Una Sölvadótt-
ir í síma 98-75656 og Særún Sæmundsdótt-
ir í síma 98-75640.
Skólastjóri.
Matreiðslumaður
Matreiðslunemi eða maður vanur matreiðslu
óskast til starfa strax út á land framyfir versl-
unarmannahelgi.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „M - 9431“ fyrir 26. júní.
Frá fræðslustjóra
Norðurlandsumdæmis eystra
Lausar stöður við
grunnskóla
Umsóknarfrestur til 13. júlí.
Kennarastaða við starfsdeild, Löngumýri 15.
Kennarastöður við Bröttuhlíðarskóla.
Umsóknir um ofantaldar áður auglýstar stöð-
ur framlengist til 1. júlí.
Grunnskólar Akureyrar: Almennar kennara-
stöður, sérkennsla, vélritun, smíðar,
myndmennt, tónmennt.
Húsabakkaskóli: Almenn kennarastaða.
Grunnskóli Svalbarðsstrandar: Almenn
kennsla, handmennt, heimilisfræði.
Hafralækjarskóli: Almenn kennarastaða,
líffræði, handmennt.
Grunnskólinn Þórshöfn: Almenn kennsla,
raungreinar, tölvur.
Grunnskóli Svalbarðshrepps: Staða skóla-
stjóra, almenn kennsla.
Grunnskólinn Raufarhöfn: Almenn kennsla,
íþróttir, tónmennt.
Barnaskóli Ólafsfjarðar: Almenn kennsla,
tónmennt, hannyrðir, myndmennt.
Grenivíkurskóli: Almenn kennsla, enska,
handmennt, íþróttir.
Barnaskóli Húsavíkur: Almenn kennsla.
Kennsluráðgjafi
Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis
eystra vill ráða sérkepnara í kennslufræði-
lega ráðgjöf.
Um er að ræða tvær hálfar stöður, önnur á
Fræðsluskrifstofunni á Akureyri en hin á
Húsavík. Varðandi starfið á Húsavík er æski-
legt að viðkomandi kenndi jafnframt hálft
starf við grunnskóla Húsavíkur.
Upplýsingar gefur fræðslustjóri í síma
96-24655.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Fræðsluskrifstofu Norð-
urlands eystra, Furuvöllum 13, 600 Akureyri
fyrir 15. júlí 1990.
SY.-EÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐl'RLASDI EVSTRA
Stórholti 1
600 AKUREVRI
ráðgjafar og greiningadeild
Félagsráðgjafi
Á ráðgjafar- og greiningadeild Svæðisstjórn-
ar er laus til umsóknar staða félagsráðgjafa.
Um er að ræða fjölbreytt starf og samvinnu
við ýmsar fagstéttir og starfshópa er vinna
að málefnum fatlaðra í umdæminu.
Forstöðumaður
leikfangasafns
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns
leikfangasafns Svæðisstjórnar. Safnið er
hluti af ráðgjafar- og greiningadeild og er
staða forstöðumanns fullt starf. Nauðsynlegt
er að umsækjandi hafi menntun á uppeldis-
sviði og reynslu af að starfa með 0-6 ára
börnum.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk.
Skriflegar umsóknir sendist skrifstofu Svæð-
isstjórnar, Stórholti 1, Akureyri.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gyða
Haraldsdóttir, forstöðumaður ráðgjafar- og
greiningadeildar, í síma 96-26960.
Hönnun
Útgáfufyrirtæki óskar að ráða mann/konu til
hönnunarstarfa. Æskilegt er að viðkomandi
hafi reynslu í auglýsingagerð og umbroti og
gæti hafið störf strax.
Umsóknir, er tilgreini reynslu og fyrri störf,
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 30. júní
merktar: „Hönnun - 6296“.
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps er
laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist oddvita Vopnafjarðar-
hrepps, Lónabraut 41, sími 97-31108.
Oddviti Vopnafjarðarhrepps.
Heimilisþjónusta
Óskum eftir að ráða starfskraft í heimilisþjón-
ustu. Um er að ræða hálft starf eftir hádegi
á sama heimili.
Upplýsingar veitir Þóra Einarsdóttir, bæjar-
skrifstofunni Seltjarnarnesi, í síma 612100.
Kennarar
Af sérstökum ástæðum vantar einn almenn-
an kennara við Barnaskóla Húsavíkur.
Útvegum húsnæði, barnagæslu o.fl.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Valdimars-
son, skólastjóri, í vinnusíma 96-41660 og í
heimasíma 96-41974.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra.
Skólanefnd Húsavíkur.
ÓSKAST KEYPT
LÚGTÖK
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Rækjukvóti
óskast til kaups. Óskum einnig að ráða fisk-
matsmann til starfa.
Upplýsingar gefa Gunnar eða Agnar í síma
94-4300 á daginn og á kvöldin í síma 94-4030
(Gunnar) og 94-4344 (Agnar).
Báturtil sölu
Hraðbáturinn Vík, sem er 7.80 m langur
plastbátur, byggður í Kristiansand í Noregi
1978, er til sölu. í bátnum eru tvær 110
hestafla Volvo-Penta dieselvélar með Duo
Prop hældrifum.
Upplýsingar gefur Þorkell Guðbrandsson í
síma 95-35200.
Lögtök
Eftir kröfu Tollstjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin
fara fram án frekari fyrirvara á kostnað gjald-
enda, en á ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum
liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar fyr-
ir eftirtöldum gjöldum:
Virðisaukaskatti fyrir janúar og febrúar 1990;
söluskatti fyrir janúar, febrúar og mars 1990
svo og söluskattshækkunum álögðum 21.
febrúar 1990 til 20. júní 1990; vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, ásamt aðflutnings-
gjöldum.
Borgaraflokksfélagar
Munið flokksráðstefnuna og sumarferðina á
morgun laugardaginn 23. júní. Ferðinni er
heitið í Varmalandsskóla í Borgarfirði og
hefst ráðstefnan kl. 11.00 með málefnahópa-
vinnu. Samhliða ráðstefnunni er skemmti-
dagskrá fyrir yngstu kynslóðina. Fríar rútur
verða frá aðalskrifstofum flokksins, Síðumúla
33, kl. 08.30.
Dúna og Sigríður María munu grilla góm-
sætt lambakjöt og sjá til þess að enginn
fari heim með tóman maga.
Mætum í sumarskapi með yngstu fjölskyldu-
meðlimina.
r
Reykjavík, 20. júní 1990.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Borgaraflokkurinn,
Síðumúla 33,
sími 91-685211.