Morgunblaðið - 22.06.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990
37
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Frá
Gunnari
Valgeirssyni
í Bandaríkjunum
Pat Riley hefur hefur skrifað undir
hjá NBC.
faém
FOLX
■ PAT Riley, sem hætti sem
þjálfari Los Angeles Lakers í
NBA-körfuboltanum fyrir tiu dög-
um, var ekki lengi atvinnulaus. í
gær samdi hann við
bandarísku sjón-
varpstöðina NBC til
tveggja ára og fær
fyrir það 800 þús-
und dollara (48 millj. kr.). Riley
var boðið að vera þulur, en hann
þáði það ekki. Ástæðan: „Heyrna-
tækin rugla hárgreiðsluna," sagði
Riley, meira í gríni en alvöru. Hann
verður hins vegar með sérstakan
hálftíma þátt fyrir leiki sem NBC
sýnir frá NBA. Þar á hann að kynna
liðin og spá í spilin.
■ STEFÁN Steinsen hefur skipt
úr KR yfir í Þrótt Reykjavík, sem
leikur í 3. deild. Stefán verður lög-
legur með Þrótti um miðjan júlí.
H EINAR Einarsson úr Víking
fékk að sjá gula spjaldið í fjórða
sinn á tímabilinu í leiknum gegn
Fram á mánudagskvöld. Einar
verður því að taka út leikbann gegn
ÍBV í 8. umferð 2. júlí.
■ HALLSTEINN Arnarson lék
fyrsta leik sinn fyrir FH gegn KR
á þriðjudaginn. Hallsteinn lék með
Víkingum á síðasta tímabili.
Æfingabúðir KKÍ
Torfi, Páll og Piazza kenna
Dagana 25.-29. júní stendur
Körfuknattleikssamband ís-
lands fyrir æfingabúðum í íþrótta-
húsi Seljaskólans. Kennarar verða
Torfi Magnússon, þjálfari íslenska
landsliðsins, Páll Kolbeinsson, þjálf-
ari meistaraflokks KR og Andy
Piazza, þjálfari liðs háskólans í Indi-
ana. Piazza var áður þjálfari KR
og gerði liðið að meisturum 1978.
Þátttakendum á námskeiðinu er
skipt í tvo hópa, 9-13 ára og 14-17
ára. fyrri hópurinn æfir frá kl.
10-15 og síðari hópurinn frá kl.
18-22.
Boðið er upp á fullt fæði og
svefnpokapláss en skráning fer
fram í síma 83377.
Miðnæturgolf á Akureyri
Artic-Open golfmótið hefst á
Golfvellinum á Akureyri í
kvöld kl. 20. Mótið er alþjóðlegt og
keppendur, sem eru um eitt hundr-
að talsins, koma frá fimm löndum:
Englandi, Lúxemburg, Banda-
ríkjunum og Vestur-Þýskalandi,
auk.íslands. Margir af bestu kylf-
ingum íslendinga taka þátt í mótinu
en leiknar eru 36 holur með og án
forgjafar.
A mótinu er leikið fram eftir
nóttu og stefnt er að því að allii
keppendurnir verði útá vellinum é
miðnætti annað kvöld. Mótið heldui
svo áfram á hádegi á laugardag og
lýkur með kvöldverði og verðlauna-
afhendingu á laugardagskvöld.
BIKARMEISTARAR Fram
fengu erfiða andstæðinga þeg-
ar dregið var í 16-liða úrslit í
bikarkeppninni i gær. Þeir hefja
titilvörn sína gegn Valsmönn-
um að Hlíðarenda. Sindri, eina
4. deildarliðið sem eftir er, fær
einnig erfiða andstæðinga,
KR-inga, sem sleppa að þessu
sinni hinni hefðbundnu ferð til
Sauðárkróks. Leikirnir í 16-liða
úrslitum fara fram 5. júlí, nema
leikur Vals og,,Fram sem fer
fram degi síðar.
Þrír innbyrðisleikir eru í 1.
deild. Skagamenn taka á
móti íslandsmeisturum KA og FH
mætir Stjömunni, auk viðureignar
Vals og Fram. Keflvíkingar taka
á móti IBV, Breiðablik mætir Þór,
og Víkingur fær heimaleik gegn
Tindastóli eða KS, sem eiga eftir
að leika í 3. umferð. Þá mætast
annarrar deildarliðin Selfoss og
ÍR.
í kvöld
HEIL umferð verður í 2. og 3. deild
karla á íslandsmótinu í knattspymu í
kvöld. í 2. deild leika: IR og Víðir á
iR-velli, ÍBK og Breiðablik í Keflavík,
Leiftur og UMFG í Grindavík, KS og
Tindastóll á Siglufirði og Selfoss og
Fylkir á Selfossi.
I 3. deild leika: Daivík og Þróttur
Reykjavík á Dalvík, TBA og Haukar
á Akureyri, ÍK og Þróttur Neskaupstað
í Kópavogi og Einherji og BÍ á Vopna-
fírði.
Einn leikur verður í 4. deild. UMSE
b og SM ieika á Laugalandsvelli. Allir
leikimir hefjast kl. 20.00.
■ Alþjóðasundmót Ægis hefst í
Laugardalslaug kl. 17.30 i dag og
stendur fram á sunnudag.
■ Artic-Open golfmótið hefst kl. 20
í kvöld á Golfvellinum á Akureyri.
Keppni hefst aftur á hádegi á laugar-
dag.
Knattspymufélagið Valur gengst fyr-
ir golfmóti i dag á Hólmsvelli í Leiru
kl. 14.30. Mótið er sérstaklega ætlað
félagsmönnum Vals. Gestir eru þó vel-
komnir en þeir eiga ekki möguleika á
að vinna tií verðlauna þar sem keppt
er um titiiinn Golfmaður Vals.
Sportval hefur gefið glæsilegan far-
andbikar til keppninnar. Þátttaka til-
kynnist í Valsheimili í sima 11134.
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI
KR-ingar til Homafjardar
Valur mætir Fram í 16-liða úrslitum
Framarar hafa ekki leikið á
heimavelli í bikarkeppninni síðan
í undanúrslitum 1987, er liðið sigr-
aði Þór. Síðan hafa komið fímm
útileikir. Staðan er svipuð hjá KR;
liðið hefur ekki leikið á heimavelli
síðan í fjórðungsúrslitum 1986 og
er þetta sjöundi útileikur félagsins
í röð. Þetta er reyndar í fyrsta
sinn í þrjú ár sem KR mætir ekki
Tindastól í 16-liða úrslitum.
Ásgeir Elíasson, þjálfari bikar-
meistara Fram, sagði. að sér litist
vel á leikinn gegn Vai. „Það hefði
kannski verið betra að fá lið úr
neðri deildunum en við sættum
okkur við dráttinn. Þetta er bikar-
leikur og það kemur ekkert.annað
en sigur til greina,“ sagði Ásgeir.
„Við vitum að Sigurjón [Kristjáns-
son] verður ekki með en það breyt-
ir engu, það kemur alltaf maður
í manns stað.“
Síðast er liðin áttust við, í fjórð-
ungsúrslitum 1988, sigruðu Vals-
menn 3:1 eftir framlengingu.
GOLF
Pétur Ormsiev, fyrirliði Fram, fagnar marki sínu í úrslitaleiknum gegn KE
í fyrra. Pétur og félagar mæta Valsmönnum í 16-liða úrslitum.
KORFUKNATTLEIKUR
GOLF
„Áfram stelpur“
Opið kvennamót í golfi verður
haldið á Selfossi sunnudaginn
24. júní. Mótið ber nafnið Áfram
stelpur og rétt til þátttöku hafa
allar konur 50 ára og eldri. Það
verður ræst út frá kl. 11 til 13.
| Jónsmessumót
Golfklúbbur Garðabæjar heldur Jónsmessumót
laugardaginn 23. júní kl. 20.00. Opið öllum kylfingum.
Skráning í golfskála klúbbsins frá kl. 19.30
\ -------------------------
Ntn FERSKT TfMAIHT
ÁÖLLUM SÖLUSTÖDUM
OG DREIFING: GNOÐARVOGI 64,
S: 37349