Morgunblaðið - 22.06.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.06.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FOSTUDAGUR 22. JUNI 1990 „Liðiðsann- aði getu sína“ - sagði Luis Suarez, þjálfari Spánverja, eftir sigurinn á Belgum „EG er mjög ánægður vegna þess að liðið sannaði getu sína. Það getur jafnvel gert enn bet- ,p>ur en í þessum leik,“ sagði Luis Suarez, þjálfari Spánverja, eftir2:1 sigurá Belgum íVer- óna ígær. Hann hældi Michel, sem átti þátt íbáðum mörkun- um, fyrir frammistöðu sína í leiknum. Með sigrinum tryggðu Spánverjar sér efsta sætið í E-riðli og mæta því Jú- góslövum í 16-liða úrslitum á þriðjudag. Beigar mæta Eng- lendingum. Þjálfari Belga, Guy Thys, var nokkuð ánægður með lið sitt þrátt fyrir tapið. „Við vorum sterk- ari í síðari hálfleik þó svo að við Markahæstir 4 — Michel (Spáni). 3 — Rudi Völler (V-Þýskalandi).Lothar Matthaus (V-Þýkalandi). 2 — Marius Lacatus (Rúmeníu), Tomas Skuhravy (Tékkóslóvakíu), Careca (Brasilíu, Davor Jozic. (Júgóslavíu), Roger Milla (Kamerún), Michal Bilek (Tékkólóvakíu), Jurgen Klinsmann (V-Þýskalandi), Gavril Balint (Rúm- eníu), Darko Pancev (Júgóslaviu), Salvatore Schillaci (Ítalíu), Muller (Brasilíu). værum með nokkra nýja leikmenn í liðinu. Við tókum áhættu í síðari hálfleik og vorum nálægt því að jafna nokkrum sinnum. Eg held að við þurfum ekki að hræðast and- stæðinga okkar í næsta leik,“ sagði Thys. Spánveijar voru betri framan af leiknum og áttu nokkur marktæki- færi áður en þeir fengu vítaspyrnu á 27. mínútu, sem Michel skoraði úr í vinstra hom marksins. Michel Preud’homme, markvörður, skutl- aði sér í rétt horn og var ekki langt frá því að veija. Þetta var fjórða mark Michels í keppninni og er hann nú markahæstur. Belgar sóttu stíft eftir markið og náðu að jafna þremur mínútum síðar. Patrick Vervoort skoraði þá glæsilegt mark með vinstri fæti beint úr aukaspyrnu af 25 metra færi. Alberto Gorriz kom Spán- veijum í 2:1 með fallegu skalla- marki níu mínútum síðar eftir aukaspyrnu frá Michel og þannig var staðan í hálfleik. Belgar fengu vítaspyrnu á 60. mínútu er Cenaro Andinua braut á Jan Ceulemans innan vítateigs. Enzo Scifo tók spyrnuna, en skot hann fór í þverslána. Thys sagði um Scifo eftir leikinn. „Hann lék frábærlega í þessum leik.“ Reuter Andoni Zubizaretar, markvörður Spánveija, stóð sig vel í leiknum. Hér nær hann að handsama knöttinn áður en Jan Caulemans og Philipe Alber ná til hans. Roberto Fernandez lyftir höndum og reynir að aðstoða samheija sinn í markinu. Diego Maradona um leikinn gegn Brasilíu: Vonast eftir kraftaverki M aradona, fyrirliði Argentínumanna er ekki bjartsýnn á sigur gegn Brasilíumönnum í 16 liða úrslitum á sunnudaginn. „Þáð þarf krafta- verk til þess að koma okkur áfram í keppninni vegna þess að Brasilíumenn eru nánast á heima- velli,“ sagði Maradona, en leikurinn fer fram í Tórinó þar sem Brasilíumenn léku í riðlakeppn- inni. „Brasilíska liðið er sterkara á pappírnum en við ætlum að leggja okkur alla fram,“ sagði Mara- dona sem hefur ekki æft frá leiknum við Rúmena vegna meiðsla á ökkla sem hann hlaut þá. Sigurmarkið kom á elleftu stundu Daniel Fonseca skoraði eina mark Uruguay á síðustu mínútu Ó. Johnson & Kaaberhf SIMI: 91 -24000 MARK á elieftu stundu tryggði Uruguay sæti í 16 liða úrslitum. Daniel Fonseca skoraði sigur- markið í tilþrifalitlum leik við Suður—Kóreu þegar komið var tvær mínútur framyfir venju- legan leiktíma. Uruguay komst þarmeð áfram, en þeim ár- angri hafa þeir ekki náð undan- farin20ár. ' onseca kom inná sem varamað- ur fyrir Ruben Sosa í síðari hálfleik. Hann nýtti sér tækifærið og mark hans gerði hann að þjóð- hetju í Uruguay. Sigur Uruguay var naumur og allt virtist stefna í markalaust jafntefli þegar Fonseca skallaði yfir Choi In-Young í marki Suður-Kóreu undir lokin. Suður- Kóreumenn áttu undir högg að sækja síðustu átján mínúturnar, en þeir léku þá einum færri þar sem varnarmaðurinn Yoon Deuk-yeo var rekinn af velli fyrir að teíja leikinn. Oscar Tabarez, þjálfari Uniguay var ánægður með sigurinn. „Þetta var ekki sérstaklega góður leikur, en okkur tókst ætlunarverkið. Ég hugsa að pressan sem var á leik- mönnum hafi haft áhrif á leik þeirra." „Við reyndum eins og við gátum í þessum leik, eins og við höfum reyndar gert í allri keppn- inni,“ sagði þjálfari Suður-Kóreu Lee Hoe-taik eftir leikinn. Hann bætti því við að lið hans ætti enn langt í land með að ná sama gæða- flokki og lið frá Evrópu og Suður- Ameríku. E-RIÐILL Spánn — Belgia....................2:1 Michel (27. vsp.), Alberto Gorriz (39.) - Patrick Vervoort (30.). Uruguay — Suður-Kórea.............1:0 Daniel Fonseca (90.). Fj. leikja U J T Mörk Stig SPÁNN 3 2 1 0 5: 2 5 BELGÍA 3 2 0 1 6: 3 4 URUGUAY 3 1 1 1 2: 3 3 S-KÓREA 3 0 0 3 1: 6 0 F-RIÐILL 1:0 Vlark Wright (58.). Holland — írland .1:1 Ruud Gullit (10/ — Niall Quinn (71.). Fj. leikja U J T Mörk Stig ENGLAND 3 1 2 0 2: 1 4 HOLLAND 3 0 3 0 2: 2 3 ÍRLAND 3 0 3 0 2: 2 3 EGYPTALAND 3 0 2 1 1: 2 2 ÆSKUHLAUPIÐ Haldið á Miklatúni, sunnudaginn 1. júlíkl. 14:00 Aldur Vegalengd Tímasetning 7 ára ÍOOO m. 14:00 8 ára ÍOOO m. 14:20 9 ára ÍOOO m. 14:40 ÍO ára ÍOOO m. 15:00 11 ára ÍOOO m. 15:20 12 ára 1500 m. 15:50 13 ára 1500 m. 16:20 14- ára 1500 m. 17:10 Æskuhlaupið er fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 7-14 ára. Hlaupið er kynskipt og eru stúlkur ræstar á undan í hverjum aldursflokki. Allir fá litprentuð verðlaunaskjöl á nafn fyrir þátttöku Skráningá: SkrifsíofuíSÍ sími: 91-83377 Skrifstofu FRÍ sfmi: 9 -685525 Philipssérum lýsinguna % Frá Brynju Tómer á Italíu Opinber stuðningsaðili HM 1990 H HVER leikmaður ítalska landsliðsins fær um 350 þúsund íslenskar krónur fyrir að hafa kom- ist í 16-liða úrlsit HM. Walter Zenga fyrirliði fór þess á leit við Matt- arese, forseta ítalska knattspyrnu- sambandsins, eftir sigurinn gegn Tékkum á þriðju- daginn að leikmennirnir fengju einnig þráðlausa bílasíma sem er nýjung hjá ítölsku póst- og síma- málaþjónustunni. Mattarese tók vel í bónina og bætti við í gríni að ef Italir ynnu HM myndi hann gefa öllum leikmönnunum svefn- herbergishúsgögn og eldhúsinnrétt- ingar. I ÍTALSKIR fjölmiðlar eru þegar famir að fjalla um HM ’94 í Banda- rikjunum en tónninn er fremur kaldhæðinn. í íþróttablaðinu Tutto- sport er viðtal við Werner Fricker forseta bandaríska knattspyrnu- sambandsins þar sem segir: „Við munum halda HM í fyrsta gæða- flokki," segir Fricker og sperrir bijóstkassann. Þá er í blaðinu sagt frá því að þegar borgarstjóri Dallas var spurður álits á Maradona hafi hann svarað: „Ég þekki engan Maradona." H MARADONA hefur ekki geta æft með argentínska liðinu eftir leikinn gegn Rúmenum. Hann á við meiðsli að stríða í ökkla. En læknir liðsins, Raul Madero, sagði að Maradona væri á batavegi og yrði líklega með í 16-liða úrslitun- um. Hins vegar eru minni líkur á því að Oscar Ruggeri geti leikið með þar sem hann á við meiðsli að stríða. H MARADONA hefur að mestu haldið- sig á heimili sínu í Napólí og hlustað á tónlist og spilað við dætur sínar. H JUAN Carlos Spánvarkonung- ur og Soffia drottning voru meðal áhorfenda í Veróna í gær er Spánn lék við Belgíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.