Morgunblaðið - 13.07.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C
157. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Róttækir umbótasinnar segja skiiið við sovéska kommúnistaflokkinn:
Búist við að klofiiingur-
inn leiði til fjöldaúrsagna
Moskvu. Reuter.
Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, gengur af flokks-
þingi sovéska kommúnista-
flokksins eftir að hafa sagt
sig úr flokknum. Akvörðun
Jeltsíns kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti í gær og
olli miklu umróti á þinginu.
Að ræðu hans lokinni boð-
uðu róttækir umbótasinnar
úrsögn úr flokknum og
stofnun nýs stiórninála-
flokks.
í FYRSTA skipti síðan árið 1903 hefúr sovéski kommúnistaflokkurinn
klofnað. Undir lok flokksþings kommúnista í Moskvu í gær tilkynnti
Borís Jeltsín, forseti Rússlands, óvænt úrsögn sína úr flokknum.
Skömmu síðar stóð upp talsmaður Lýðræðisvettvangs, samtaka rót-
tækra umbótasinna, og tilkynnti að hans menn myndu fara að dæmi
Jeltsíns og boðaði stofnun nýs sfjórnmálaflokks. Sérfræðingar í niálefn-
um Spvétríkjanna spá því að þessum atburðum fylgi fjöldaúrsagnir
úr kommúnistaflokknum og að nýr flokkur róttækra umbótasinna
kunni að ógna valdastöðu kommúnistaflokksins.
Það var almennt mat manna und-
ir lok 28. þings sovéska kommún-
istaflokksins að Gorbatsjov mætti
vel við una, honum hefði tekist að
fá stuðningsmann sinn, Vladímír
ívashko, kjörinn varaaðalritara og
greiða þar með helsta andstæðingi
sínum, Jegor Lígatsjov, sem sóttist
eftir embættinu, rothögg. En þegar
dró að lokum flokksþingsins kvaddi
Borís Jeltsín sér hljóðs og tilkynnti
úrsögn sína úr flokknum. Astæðuna
sagði hann þá að sem forseti Rússa
bæri hann skyldur sem yllu því að
Sænskur borgari
hengdur í Irak
Stokkliólmi. Reuter.
SVIAR kölluðu sendiherra sinn í
Irak heim í gær í mótmælaskyni
við aftöku á sænskum ríkisborg-
ara, Jalil Mehdi al-Neamy, í Bag-
hdað.
Neamy var hengdur í gær en
hann var dæmdur til dauða 30. apríl
sl. fyrir meintar njósnir fyrir ísra-
elsku leyniþjónustuna, Mossad.
Hann var handtekinn í ágúst í fyrra
er hann var í heimsókn í írak. Neamy
er fæddur í írak en gerðist sænskur
borgari 1985.
Sænska stjórnin hafði á bak við
tjöldin gert allt sem í hennar valdi
stóð til þess að fá lífi Neamy þyrmt,
að sögn Stens Anderssons, utanrík-
isráðherra. Hafði Ingvar Carlsson,
forsætisráðherra, m.a. sent sérstakt
bænaskjal af þessu tilefni til Sadd-
ams Husseins, forseta.
hann gæti ekki lotið skipunum frá
kommúnistaflokknum einum. Síðan
gekk Jeltsín úr salnum og var greini-
legt að yfirlýsing hans kom mjög á
viðstadda. Fulltrúar hersins hristu
höfuðið og hrópuðu: „Hneyksli."
Jeltsín sýndi engin svipbrigði þegar
hann yfirgaf þingið en Gorbatsjov
sem stýrði fundinum sagði: „Þetta
er rökrétt framvinda mála.“
Um klukkustundu síðar reis
Vladímír Shostakovskíj, leiðtogi
Lýðræðisvettvangs, úr sæti og sagði
að róttækir umbótasinnar hefðu
bundið miklar vonir við að á flokks-
þinginu yrðu teknar ákvarðanir um
lýðræðislega endurnýjun. Svo hefði
ekki orðið og vonir um aðskilnað
flokks og ríkis væru brostnar. Því
næst sagði hann: „Mér hefur verið
falið að tilkynna klofning í flokknum
og þann ásetning okkar að stofna
sjálfstæðan stjórnmálaflokk."
Talið er að Lýðræðisvettvangi til-
heyri um 100 fulltrúar af 4.700 á
flokksþinginu.-ílins vegar segja rót-
tækir umbótasinnar að þeir hafi
meirihluta flokksmanna á bak við
sig og taka Sovétsérfræðingar undir
það. Að mati eins þeirra, Míkhaíls
Voslenskíjs, er klofningur flokksins
mikið áfall fyrir Gorbatsjov sem
reynt hefur með öllum ráðum að
halda honum saman. Voslenskíj
sagði í símaviðtali við Morgunblaðið
í gær að undanfarið hefðu bæði
verkamenn og menntamenn snúið
baki við flokknum og sú spurning
vaknaði hvað eftir stæði.
Sjá „Engin vandamál voru
leyst“ á bls. 18.
Hmikfránn ind-
íáni fagnar
Á annað þúsund
lögreglumanna umkringdu í
gær sveit mohawk- indíána,
sem greip til vopna í
fyrradag við bæinn Oka
skammt frá Montreal í
Quebec í Kanada til þess að
mótmæla byggingu
golfvallar á fornum
indíánaslóðum. Þegar
lögreglumenn hugðust reka
indíánana á brott í
fyrrakvöld hófu þeir skothríð
með þeim afleiðingum að
einn lögreglumannanna féll.
Hörfaði þá lögreglan og var
myndin tekin er indíánar
fögnuðu því.
Reuter
Honecker lagði á ráðin um
sprengjutilræði í diskóteki
vestur-þýsku leyniþjónustunnar,
að arabi sem grunaður væri um
aðild að tilræðinu, væri nú í haldi
í Austur-Berlín.
Mótmæla endur-
vinnslu kjarn-
orkuúrgangs
Knupmnnnahöfn. Frá Nils Jergen Bruun.
frcttaritara Morgunblaðsins.
Náttúruverndarsamtökin
Greenpeace afhentu Enrique
Baron Crespo, forseta þings
Evrópubandalagsins, í gær
250.000 undirskriftir fólks sem
er andvígt endurvinnslu kjarn-
orkuúrgangs. Undirskriftunum
var safiiað í Evrópubandaiags-
löndunum tólf.
Að sögn grænfriðunga hefur
endurvinnsla kjarnorkuúrgangs i
Bretlandi og Frakklandi leitt til
geislamengunar í Norðursjó og
Norðaustur-Atlantshafi. Samtökin
staðhæfa að athuganir þeirra hafi
leitt í ljós fyrir nokkrum árum að
80% þeirrar geislavirkni sem
mældist í fiski sem landað var í
Danmörku liafi stafað frá bresku
endundnnslustöðinni í Sellafield.
Bonn. Reuter.
ERICH Honecker, þáverandi
leiðtogi Austur-Þýskalands,
lagði til að líbýsk liryðjuverka-
sveit yrði látin ein um sprengju-
tilræði í La Belle-diskótekinu í
Vestur-Berlín í apríl 1986 er
hin illræmda öryggislögregla
landsins, Stasi, skýrði honum
frá áformum um tilræðið, að
sögn vestur-þýska blaðsins Die
Welt.
Að sögn Die Welt sýna skjöl
Stasi, að Honecker hafi ekki gert
neina tilraun til þess að láta stöðva
tilræðið í La Belle-diskótekinu.
Öryggislögreglan hafi gefið
honum skýrslu 24. mars 1986 um
að í líbýska sendiráðinu í Austur-
Berlín væri líbýsk hryðjuverka-
sveit að undirbúa sprengjutilræðið.
Þar hafi komið fram að Stasi
hefði haft fulla vitneskju um hvað
til stóð. Hafi Honecker svarað með
því að gefa Stasi fyrirmæli um að
láta Líbýumennina eina um verkn-
aðinn.
í sprengingunni, sem átti sér
stað 4. apríl, biðu bandarískur
hermaður og tyrknesk kona bana.
Bandarískir hermenn með að-
setur í Berlín voru tíðir gestir á
diskótekinu.
Fljótlega eftir tilræðið fengu
bandarísk yfii'völd vísbendingar
um aðild Líbýumanna og fyrirskip-
aði Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, loftárás á Líbýu í hefndar-
skyni.
Haft var eftir heimildum innan