Morgunblaðið - 13.07.1990, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13..JÚLÍ 1990
7
Vatnaveiðihand-
bókin endurútgefin
eyri.
félagsins
FERN verðlaun hafa verið veitt í
ritgerðasamkeppni framhalds-
skólanema, sem Norræna félagið
gekkst fyrir i vetur. Til sam-
keppninnar var efiit í samvinnu
við menntamálaráðuneytið og
skyldi efhi ritgerðanna vera;
„Hvað eiga íslendingar sameigin-
legt með öðrum Norðurlandaþjóð-
um?“
í frétt frá Norræna félaginu segir
að sérstök dómnefnd skipuð fulltrú-
um Norræna félagsins og fulltrúum
menntamálaráðuneytisins hafi metið
ritgerðirnar til verðlauna. Formaður
dómnefndarinnar er Gylfi Þ. Gísla-
son, formaður Norræna félagsins.
Vinningshafarnir fjórir eru: Helgi
Þorsteinsson, nemandi í Menntaskó-
lanum við Hamrahlíð, Sigurbjörg
Þrastardóttir, nemandi í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands, Akranesi, Sindri
Freysson, nemandi í Menntaskólan-
um í Reykjavík, og Gunnhildur
Guðnadóttir, nemandi í Menntaskó-
lanum í Reykjavík. Þau hlutu í verð-
laun flugferð með Flugleiðum hf. til
einhverrar þeirrar höfuðborgar
Norðurlanda, sem Flugleiðir fljúga
til og velja vinningshafar sjálfir
ákvörðunarstaðinn. Auk þess fær
hver þeirra 50. þúsund kr. í farar-
rétti tíminn til að reyna sig!
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Ármann Ö. Ármannsson, Valur Valsson og Magnús H. Magnússon.
Útgáfufyrirtækið Fróði hf. hefur sent frá sér Vatnaveiðihandbókina
eftir Guðmund Guðjónsson. Er þar um að ræða aðra útgáfu bókarinn-
ar, en fyrsta útgáfa kom úr í fyrra og seldist þá upp á skömmum tíma.
Vatnaveiðihandbókin hefur nú
verið aukin töluvert og endurbætt.
í bókini eru að finna upplýsingar
um flest silungsveiðivötn og silungs-
veiðiár á íslandi. Lýsing er á vötnun-
um og veiðistöðum og upplýsingar
eru um hvar er unnt að fá veiðileyfi
keypt. í bókinni er fjöldi loftljós-
mynda af viðkomandi vötnum og
einnig kort sem sýna leiðir að helstu
veiðisvæðunum.
Vatnaveiðihandbókin skiptist í
nokkra meginkafla. I fyrstu köflun-
um er fjallað um lifnaðarhætti
íslensku vatnafiskanna. Þá eru kafl-
ar um meðferð afla, umgengni á
veiðistöðum, meðferð báta og þann
búnað sem nauðsynlegt er að hafa
með sér í veiðiferðina. Síðan taka
við meginkaflar bókarinnar. Þar er
annars vegar fjallað um stærstu
veiðivötnin og veiðiárnar og eru loft-
ljósmyndir af þeim flestum og hins
vegar um minni vötnin. Aftast í
bókinni er síðan skrá yfir veiðiréttar-
hafa og hvar unnt er að fá veiði-
leyfi og einnig eru upplýsingar um
gististaði og veitingahús í nágrenni
veiðistaðanna.
V atnaveiðihandbókin hefur að
geyma hagnýtar upplýsingar sem
geta komið öllum þeim, sem áhuga
hafa á stangaveiði, að góðum notum,
ekki síst fólki sem er á ferðalögum
um landið og langar til þess að nota
hluta af sumarleyfi sínu til þess að
renna í vötn eða veiðiár.
Vatnaveiðihandbókin er 182
blaðsíður. Bókin er prehtuð í Prent-
smiðjunni Odda. (Fréttatilkynning)
íslandsbanki o g Samtök
aldraðra gera samning
ISLANDSBANKI hf. og Samtök
aldraðra undirrituðu hinn 10.
júlí sl. samning sem er í tengslum
við samning Ármannsfells hf. og
Samtaka aldraðra um byggingu
ibúða fyrir félagsmenn samtak-
anna við Sléttuveg 11-13 í
Reykjavík.
Islandsbanki tekur að sér með
samningi þessum ráðgjöf og lán-
veitingar til væntanlegra íbúðareig-
enda á vegum Samtaka aldraðra.
Bankinn mun leggja fram faglegt
mat á greiðslugetu einstakra kaup-
enda og haga lánveitingu í sam-
ræmi við þarfir. hvers og eins. Með
þessari þjónustu er bankinn að brúa
það bil sem myndast hjá mörgum
kaupendum þjónustuíbúða sem
þurfa að standa skil á greiðslum
af nýju íbúðinni áður en greiðslur
af eldri íbúðum eða lán frá Hús-
næðisstofnun hafa borist þeim.
Valur Valsson formaður banka-
stjómar íslandsbanka og Magnús
H. Magnússon formaður Samtaka
aldraðra undirrituðu samninginn
milli aðjlanna. Á sama tíma undir-
rituðu Ármann Ö. Ármannsson fyr-
ir hönd Ármannsfells hf. og Magnús
H. Magnússon fyrir hönd Samtaka
aldraðra verksamning um byggingu
52 íbúða við Sléttuveg 11-13 í
Reykjavík.
I frétt frá bankanum segir að
samningurinn sé gerður í anda
stefnu Islandsbanka um að miða
þjónustu bankans við þarfir hvers
Verðlaun
í ritgerða-
samkeppni
Norræna
og eins. Bankinn væntir góðs af
samstarfinu við Samtök aldraðra
og telur að þessi samningur geti
markað tímamót í þjónustu bankans
við viðskiptamannahópa sem þenn-
an.