Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
170. tbl. 78. árg.
SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Gorbatsjov vill samkomulag um einingu Sovétríkjanna:
Forsetar Eystrasaltsríkjamia
liaiiia nýjum Sovétsáttmála
Moskvu. Reuter.
FORSETAR Eystrasaltsríkjanna hafa tilkynnt að þeir muni ekki taka þátt í gerð
nýs einingarsáttmála Sovétríkjanna. Þar með hafa þeir hafnað þeirri leið til að
halda Sovétríkjunum saman sem Míkhaíl Gorbatsjov forseti kynnti fyrr í vikunni.
Eystrasaltsráðið, samráðsvettvangur Eystrasaltslandanna sem nýlega var endurvak-
inn, hefur nú ákveðið að auka þess í stað samstarf við Sovétlýðveldið Rússland þar
sem Borís Jeltsín er í forsæti.
Eitt erfiðasta verkefni Gorbatsjovs er að
koma í veg fyrir að Sovétríkin gliðni
í sundur. Eystrasaltsríkin hafa gengið lengst
í sjálfstæðisátt en ijölmörg önnur lýðveldi
Sovétríkjanna hafa lýst yfir fullveldi, nú
síðast Hvíta-Rússland. í vikunni kynnti
Grígoríj Revenko, náinn aðstoðarmaður
Gorbatsjovs, þann möguleika að lýðveldi
Sovétríkjanna kæmu sér saman um nýjan
einingarsáttmála fyrir áramót. Hann yrði
reistur á nýjum grunni þar sem kveðið væri
á um aukið sjálfstæði lýðveldanna frá
Moskvuvaldinu. Gorbatsjov sagði þó sjálfur
að nauðsynlegt væri að varnarmál, gjaldeyr-
ismál, orkumál og samgöngur m.a. yrðu
áfram i höndum miðstjórnarvaldsins.
Þessu hefur Eystrasaltsráðið hafnað.
Vytautas Landsbergis, forseti Litháens,
Anatolijs Gorbunovs, forseti Lettlands, og
Arnold Ruutel, forseti Eistlands, eiga fundi
nú um helgina í sumardvalarstaðnum Jur-
mala í Lettlandi. Á föstudag áttu þeir við-
ræður við Borís Jeltsín, forseta Rússlands,
þar sem samþykkt var að hefja þegar í stað
viðræður um aukið samstarf á sviði efna-
hags- og stjórnmála. Gert er ráð fyrir að
gerð samninga milli Rússlands og hvers
Eystrasaltslandanna um sig ljúki á sex til
átta vikum.
í gær gaf Eystrasaltsráðið svo út yfirlýs-
ingu um tengslin við Moskvustjórnina. „Full-
trúar Eystrasaltsríkjanna þriggja tóku ekki
þátt í að semja einingarsáttmála Sovétríkj-
anna og telja sér ekki fært að gera það í
framtíðinni," sagði í yfirlýsingu þeirra. Þar
segir ennfremur að Samskipti landanna
þriggja við Sovétríkin eigi að vera á grund-
velli samninga sem gerðir voru fyrir 1940.
Þá voru löndin sjálfstæð en voru innlimuð
í Sovétríkin í kjölfar leynisamnings Stalíns
og Hitlers. Forsetarnir krefjast þess að Sov-
étstjórnin semji við öll löndin þijú í einu um
aðskilnað þeirra. Gorbatsjov hefur hingað
til hafnað þeirri hugmynd að ræða við full-
trúa Eystrasaltsríkjanna sameiginlega.
Hann hefur léð máls á viðræðum við Litháa
eina og sér og varð það til þess að aðflutn-
ingsbanni Sovétstjórnarinnar gagnvart Lit-
háen var aflétt fyrr í sumar. Ekki er vitað
hvenær þær viðræður heijast en Litháar
sögðust myndu fresta framkvæmd sjálf-
stæðisyfirlýsingar sinnar um 100 daga eftir
að viðræðurnar hæfust.
Perlan séð úrloftbelg
Morgunblaðið/RAX
Trinidad og Tobago:
Herinn berst við
uppreisnarmenn
Port of Spain. Reuter.
HERMENN á Trinidad og Tobago börðust
í gær við hóp öfgasinnaðra múslhna, sem
sagðir eru hafa tengsl við Líbýu. Uppreisn-
armennirnir höfðu ráðist inn á þing lands-
ins á föstudagskvöld. Tóku þeir forsætis-
ráðherrann A.N.R. Robinson og ríkis-
stjórnina alla höndum. Leiðtogi uppreisn-
armanna sagði að ríkisstjórnin bæri
ábyrgð á spillingu og alls kyns úrkynjun.
Að sögn fréttastofúnnar CANA hefur oft
komið til átaka milli múslímahópsins og
lögreglu undanfarin fímm ár. Trinidad og
Tobago eru tvær eyjar undan strönd
Venezúela. Um 40% íbúanna eru af afrísk-
um uppruna, 40% eru Indveijar og aðrir
af mismunandi þjóðerni. Ríkið er hluti af
breska samveldinu og hafa íbúarnir, sem
eru 1,3 milljónir talsins, einkum tekjur af
olíusölu.
Roseanne vek-
ur hneykslun
Sígarettuskortur
í Sovétríkjunum
Moskvu. Reuter.
SKORTUR er orðinn á flestu í Sovétríkjun-
um, m.a. sígarettum. Þjóðernisátökin í
Kákasuslöndunum valda því að verksmiðja
í Armeníu, er framleiddi nær öll sígar-
ettumunnstykki fyrir landið, starfar ekki
með fúllum afköstum. Helstu ástæðurnar
fyrir sígarettuskortinum eru þó hinar
hefðbundnu í sovéskum framleiðslufyrir-
tækjum; úreltar vélar og óstjórn. Gjaldeyr-
isskortur veldur því að erfítt er að bæta
úr vandanum með innflutningi. Mörgum
tóbaksverslunum í höfuðborginni Moskvu
hefur verið lokað vegna vöruskorts og
neytendur bíða langþreyttir í biðröð við
þær fáu sem eitthvað hafa á boðstólum.
I.os Angeles. Reuter.
FRAMKOMA gaman-
leikkonunnar þétt-
vöxnu Roseanne Barr
á hornaboltaleik sl.
fostudag hefúr vakið
mikla hneykslun í
Bandaríkjunum.
Roseanne var fengin
til að syngja þjóðsöng Bandaríkjanna á
leik San Diego Padres og Cincinnatti Reds
í Los Angeles. Var söngurinn rammfalskur
og bauluðu áhorfendur óspart. Roseanne
brást við með því að grípa um klof sér
líkt og hornaboltaleikarar gera gjarna til
að láta í ljós óánægju. George Bush Banda-
ríkjaforseti var einn þeirra sem gagn-
rýndu aðfarir leikkonunnar en hún svar-
aði fyrir sig á blaðamannafúndi með því
að skora á forsetann að gera betur!
10
Erum við
&Aðbúnaöur
á vinnustöðum
SKRIFSTOFAN
PESTARBÆLI?
16
INEWYORK