Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ
Millisvæðamótið í Manila:
Jóhann fór of seint í ffang
Skák
Margeir Pétursson
ÚRSLITIN á inillisvæðamótinu í
skák í Manila urðu ekki sérlega
óvænt, sigrinum deildu tveir
stigahæstu keppendurnir, nýj-
ustu sovézku stjörnurnar, Boris
Gelfand og Vassily Ivanchuk.
Það er nokkuð ljóst að næstu
árin munu þeir verða írainarlega
í baráttunni um heimsmejstara-
titilinn. Árangri okkar Islend-
inga í mótinu háðu rnjög hinar
framandlegu aðstæður á Filipps-
eyjum, sem okkur tókst aldrei
fyllilega að aðlagast.
Raunar má segja að stærstu mis-
tök okkar hafi verið gerð hér heima,
við ætluðum okkur ekki nægan tíma
til aðlögunar og sá tími styttist enn
er flugi okkar frá London til Hong
Kong seinkaði um heilan dag. Við
vorum því með síðustu keppendum
sem mættu til leiks, en ef vel hefði
átt að vera hefðum við þurft að
mæta fyrstir. í upphafi fengum við
báðir að gjalda fyrir þetta, Jóhann
þó sýnu verr, því hann lagðist einn-
ig í flensu og lá við að hann yrði
að hætta keppni. Mér tókst að rétta
úr kútnum og komast upp í miðjan
hóp keppenda, en tapaði í sjöundu
umferð fyrir Anand, sem þá var að
heija för sína á toppinn. Eftir að
hafa gert jafntefli saman í áttundu
umferð vorum við báðir með aðeins
þrjá og hálfan vinning.
Þá var komið að mér að fá kveisu
og ég tapaði tveimur ömurlegum
skákum í röð, en hresstist nokkuð
í lok mótsins og komst upp fyrir
ýmsa kunna skákmenn sem urðu
enn verr úti. Það gerðust hins veg-
ar undur og stórmerki með Jóhann,
hann komst í sinn rétta ham og
vann hverja skákina á fætur ann-
arri. Á meðal fórnarlamba hahs var
Norðmaðurinn Agdestein, sem Jó-
hann vann í annað skiptið í röð.
Fyrir síðustu umferð átti hann jafn-
vel fræðilegan möguleika á að kom-
ast áfram, en þegar upp var staðið
kom í ljós að sigur yfir Georgiev
hefði aðeins dugað honum til að
verða fyrsti varamaður í áskorenda-
einvígjunum. Það er hins vegar ljóst
að hefði Jóhann farið heldur fyrr í
gang hefði hann nokkuð örugglega
orðið í hópi ellefu efstu.
Aðbúnaður keppenda var góður
og þótt teflt væri í körfuboltahöll
að viðstöddum fjölda áhorfenda
vöndust aðstæðurnar þokkalega.
Við Campomanes og skipuleggjend-
ur mótsins er því ekki að sakast.
Filippseyingar eru afskaplega gest-
risnir og alúðlegir þrátt fyrir þá
miklu erfiðleika sem þeir búa við
og ógleymanleg reynsla að sækja
þá heim.
Úrslit mótsins:
1.-2. Gelfand og Ivanchuk (báðir
Sovétríkjunum) 9 v. af 13 möguleg-
um.
3.-4. Anand (Indlandi) og Short
(Englandi) 8'A v.
5.-11. Sax (Ungveijalandi), Korc-
hnoi (Sviss), Húbner (V- Þýzkal-
andi), Nikolic (Júgóslavíu), Judasin,
Dolmatov og Dreev (Sovétríkjun-
um) 8 v.
12.-20. M. Gurevich (Sovétr.),
Damljanovic (Júgóslavíu), Georgiev
(Búlgaríu), Ljubojevic (Júgóslavíu),
Ehlvest og Khalifman (Sovétr.),
Seirawan (Bandaríkjunum), Shirov
(Sovétr.) og Jóhann Hjartarson 7 'U
v.
21.-28. DeFirmian (Bandar.), Rec-
hlis (ísrael), Stohl (Tékkósl.), Ad-
ams (Englandi), Dzindzindhashvili
(Bandar.), Ftacnik (Tékkósl.) og
Gulko (Bandar.) 7 v.
29.-39. Lautier (Frakklandi), Lputj-
an (Sovétr.), Illescas (Spáni),
Ivanovic (Júgóslavíu), Torre
(Filippseyjum), Agdestein (Noregi),
Indverjinn Anand kom mest á
óvart í Manila.
Marin (Rúmeníu), Tal (Sovétr.),
Miles (Bandar.), Sunye Neto (Bras-
ilíu) og A. Sokolov (Sovétr.) 6 'A v.
40.-47. Popovic og Cabrilo (Júgó-
slavíu), Spraggett (Kanada), Zap-
ata (Kólumbíu), Ye (Kína), Lobron
(V-Þýzkalandi), Rachels (Bandar.)
og Margeir Pétursson 6 v.
48.-53. Portisch (Ungverjalandi),
Rogers (Ástralíu), Vaganjan (Sov-
étr.), Kamsky (Bandar.), Lin (Kína)
og Smyslov (Sovétr.) 5'A
54.-57. Chandler (Englandi), Mas-
carinas (Filippseyjum), Arencibia
(Kúbu), Van Riemsdijk (Brasilíu) 5
v.
58.-59. E1 Taher (Túnis) og Juares
(Kólumbíu) 4 v.
60.-62. Piasetski (Kanada), Hmadi
(Túnis) og Afifi (Egyptalandi) 3 'A
v.
Tveir hættu keppni eftir sjö um-
ferðir vegna veikinda, Sovétmaður-
inn Salov sem þá hafði hlotið 3 'A
v. og Indveijinn Thipsay með 1 v.
Skáklistin er upprunnin í Indl-
andi. Indveijar eru næstfjölmenn-
asta þjóð í heimi og að sögn mjög
greindir að upplagi. Það þarf því
ekki að koma neinum á óvart að
vegur þeirra í skákinni fari vaxandi
og hinn tvítugi Anand er geysilega
mikið efni. Ilann varð heimsmeist-
ari unglinga á Filippseyjum árið
1987 og bjó reyndar um tíma á
eyjunum. Það má því segja að hann
hafi verið á heimavelli í Manila.
Hann er frægur fyrir að tefla mjög
hratt og yfirleitt nægir honum að
nota klukkutíma á alla skákina. í
eftirfarandi skák úr næstsíðustu
umferð gaf hann andstæðingi
sínum engan frið eftir linkulega
taflmennsku hans í byijuninni.
Hvítl: Anand, Indlandi.
Svart: M. Gurevich. Sovétr.
Frönsk vörn
I. e4 - e6 2. d4 - d5 3. e5 - c5
4. c3 - Rc6 5. Rf3 - Bd7 6. Be2
— Rge7 7. Ra3 — cxd4 8. cxd4 —
Rf5 9. Rc2 - Rb4
Þetta bendir til þess að svartur
sé mjög sáttur við jafntefli í skák-
inni. Nú fara í hönd uppskipti á
drottningum og tveimur léttum
mönnum. Gallinn er sá að svartur
skiptir upp á röngum biskupi, í
frönsku vörninni er það hvítreita-
biskupinn sem hann þarf að losna
við. Nú fær hvítur fijálsa stöðu.
10. Rxb4 - Bxb4+ 11. Bd2 -
Da5 12. a3 - Bxd2+ 13. Dxd2 -
Dxd2+ 14. Kxd2 - K 15. Hacl
- Re7 16. b4 - Kd8 17. Bd3 -
Hc8 18. Hxc8h— Rxc8 19. g4 —
h6 20. Rh4 - Re7 21. f4 - a6?
Nú ætlar svartur að leysa vanda-
mál hvítreitabiskupsins, en það er
of tímafrekt og frumkvæði hvíts á
kóngsvæng fær byr undir báða
vængi. Anand nýtir sér það mjög
glæsilega, endataflið er mjög lipur-
lega teflt af hans hálfu, hver þru-
man rekur aðra. Hér var rétti
tíminn til að leika 21. — fxe5 22.
dxe5 — g5 23. fxg5 — hxg5 24.
Rf3 — Hg8, þótt möguleikar hvíts
séu eitthvað betri. Svartur má hins
vegar ekki leyfa sér að leika 22. —
Hf8 23. f5! - exf5 24. gxf5 - "
Bxf5 25. Bxf5 - Rxf5 26. Hfl -
g6 27. Rxg6 — Hg8 28. Rf4, sem
er mjög óþægilegt fyrir hann.
22. HD - Bb5 23. 15! - h5
Svartur hefur líklega treyst á að
þessi leikur myndi bjarga málum á
kóngsvængnum, en nú kemur mjög
öflug flétta:
24. Rg6! — Rxg6 25. exl6! — gxf6
26. fxg6 - Ke7 27. g5! - f5 28.
Bxb5 - axb5 29. Hcl! - Kd6 30.
Ke3 - Hg8?
Síðasta von svarts var fólgin í
30. — e5, þótt hvítur ætti að vinna
eftir 31. Hc5 - f4+ 32. Kf3 - Ha8
33. gl - Hxa3+ 34. Kg2 - Ha2+
35. Kh3 — Ha8 36. Hxb5 og hvítur
fær frípeð á b-línunni
31. Kf4 - b6 32. Hc3 - Hxg6
33. Hh3 - Kg8 34. Hxh5 - Hc8 *
35. g6 - Hc4 36. Hg5 - Hxd4+
37. Ke3—He4+ 38. Kf2 og svartur
gafst upp.
Þessi ósigur hafði mjög slæm
áhrif á Gurevich sem tapaði mjög
illa í síðustu umferðinni fyrir Short
og verður að bíta í það súra epli
að vera fyrsti varamaður í áskor-
endakeppninni.
GRATT GAMAIM
EINS og áður hefur verið vikið hér að var það til skamms tíma
eitt helsta dundur austur-þýskra borgara að segja gamansögur
afhinum ástkæra leiðtoga Erich Honecker. Sú iðja hefur nú að
mestu lagst niður. Það kemur þó ekki að sök. Eftir því sem blaða-
menn og rannsóknarnefndir austur- og vestur-þýskra stjórnvalda
kafa dýpra ofan í hvernig ástandið var í raun undir forystu Honec-
kers kemur svo margt furðulegt í ljós að það jafiiast á við bestu
gamansögur.
Frá Síeingrími Sigurgeirssyni í
TRIEI
annig hefur verið upplýst að
í öllum útibúum hinnar ill-
ræmdu leynilögreglu (Stasi) —
sem voru æði mörg — voru menn
ávallt til reiðu ef svo myndi vilja
til að hinn ástkæri leiðtogi liti inn
í skyndiheimsókn. Voru í hveiju
umdæmi til staðar lúxuslímósínur
inní bílskúr til að Honecker gæti
ferðast um á þægilegan hátt.
Leiðtoginn virðist hins vegar ekki
hafa verið mikið á ferðinni því að
flestar þessar límósínur stóðu
ónotaðar árum saman.
Willi Stoph, fyrrum forsætis-
ráðherra Austur-Þýskalands, var
stoltur eigandi dýpsta einka-
brunns landsins. Á hálfsmánaðar
fresti lét hann fara fram rann-
sóknir á vatninu í brunninum (sem
var við glæsivillu forsætisráðher-
rans). Var Stoph mjög í mun að
vatn það sem hann lagði sér til
munns væri hreint og tært og án
nokkurra aðskotaefna sem gætu
stefnt heilsu hans í voða. Þannig
var brunnurinn dýpkaður í hvert
skipti sem í vatninu fannst t.d.
nítrat eða leifar af skordýraeitri.
Reikningurinn var sendur til
Stasi-ráðuneytisins.
Eftir því sem á leið reyndist
það austur-þýskum stjórnvöldum
æ erfiðara verkefni að fá þegna
sína til að hylla leiðtoga landsins
er þeir komu fram opinberlega.
Það var þó fljótlega fundin lausn
á því vandamáli. Kona ein hefur
nú viðurkennt að hafa verið á
launum við það að fagna Erich
Honecker í hvert skipti sem hann
kom fram. Hafði hún bifreið til
ráðstöfunar (og bílstjóra) sem ók
henni á milli fundarstaða. Þegar
Honecker hafði lokið máli sínu á
einum fundi þurfti konan að flýta
sér á næsta stað til þess að vera
þar til reiðu (ávallt í gervi „vérka-
konu“) þegar leiðtoginn kæmi.
Eitt eftirsóttasta verkefni
starfsmanna Stasi var að hafa
umsjón með þeim matvælum sem
seld voru í hverfum æðri manna
Austur-Þýskalands. Forystusveit
landsins vildi ekkert slor og voru
í þeirra verslunum því nánast ein-
vörðungu vestræn matvæli á boð-
stólum. Forystusveitin var hins
vegar einnig vör um sig og þurftu
því starfsmenn Stasi ávallt að
„rannsaka" hluta af matvæla-
sendingunum sem yfirmenn
Kommúnistaflokksins áttu að
nærast á. Hefur nú komið í ljós
að einungis lítill hluti þeirra mat-
væla, sem fara áttu til rannsókn-
anna, var í raun rannsakaður.
Stærsti hlutinn endaði á matar-
borðum fjölskyldna Stasi-manna.
w w il i
Metsölublað á hverjum degi!