Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JULl 11 mæli um verkefni sem er lagt fýrir þá. Þeir kunni ekki að leita í heim- ildum og viti ekki hvað við sé átt þegar þeim er sagt að breyta sögn úr nútíð í þátíð. „Það er vandamál hjá kennurum að þurfa einlægt að vera að útskýra þessi grundvallar- atriði,“ sagði Guðni. En hvernig stendur á þessu. Áslaug Brynjólfs- dóttir, segist vera á því að það sé ekki lögð nægilega mikil áhersla á að kenna kennurum að kenna að lesa. „Lesturinn er undirstaðan, grunnurinn sem allt byggir á. Sé hann ekki fyrir hendi fer auðvitað annað eftir því,“ sagði hún. Guðni segir að könnun Arthurs Mortens, kennara sýni að 10% nemenda eigi í lestrarerfiðleikum og þeim fjölgi jafnt og þétt. Átt er við að nemend- ur nái ekki hraða en fyrst og fremst skortir þá skilning á inni- haldi textans. „Við trúðum að við værum að kenna bömum að lesa. En það hefur einhver misbrestur orðið á því. Það er ekki lesið nægi- Skilgreining á læsi: að geta lesið texta, skilið hann og sagt frá lega í skólunum. Það er ekki lesið nóg fyrir börnin heima. Þau fá ekki þá örvun sem getur skipt sköpum," sagði Guðni. Lestrarörðugleikar bama em ekki alltaf hyskni eða afskiptaleysi heimilis eða skóla. Þeir geta stafað af líkamlegum ástæðum þegar ákveðnar skynbrautir sem þurfa að vera í lagi svo að lestur náist hafa ekki þroskast. Þetta tengist hreyfi- og jafnvægisskyni og samhæfíng handa og augna er ekki í því hlut- falli sem þarf. Þetta getur einnig verið meðfætt án þess að einstakl- ingurinn sé treggreindur eða seinn. „Þetta er hárfínn mekanismi og má ekki mikið út af að bera til að af hljótist ýmsir örðugleikar," sagði Áslaug. Þeim sem ég leitaði til við saman- tekt þessarar greinar bar ásamt um að samstarf heimila og skóla þyrfti að vera langtum meira. Allir héldu að vilji væri fyrir hendi, en kannski væri misbrestur á að samráð væri haft. Áslaug sagði að foreldrar yrðu að fá að vita ef eitthvað væri að. Það þyrfti að gera námsáætlun og setja foreldrana inn í málið. „ Það verður aldrei nógsamlega lögð áhersla á gildi samvinnu kennara og heimila." Áslaug sagði einnig að sér fyndist að áður hefði líka verið meiri rækt lögð við börnin. Nú væru allir úti að vinna og hefðu takmarkaðan tíma. „Skólinn hefur ekki lagað sig að breyttu þjóðfé- lagi,“ sagði hún. „Skóladagurinn hefur ekki lengst og er enn of sund- urslitinn." Guðni Olgeirsson sagði að próf í sinni fyrri mynd hefðu einfaldlega verið aflögð 1977. Á grunnskóla- stigi væri heimanám lítið sem ekk- ert en nokkuð á valdi kennara og skóla. Á honum var að skilja að um það mætti deila en margir virð- ast kvíðnir ef svo fer fram sem horfir og börn eru Iátin göslast upp grunnskólakerfið án þess að hafa undirstöðukunnáttu og skilning. En í framhaldi af því vakna aðr- ar hugsanir. Ef heimalærdómur er lítill sem enginn, hvað varð þá um þann hluta námsins sem fólst í þeirri vinnu áður en þessu nýja skipan kom til sögunnar. Af hverju má ekki setja börnum fyrir nú um stundir nema í refsingarskyni? Af hverju komast börn milli bekkja án þess að hafa náð því námsefni sem var á skólaárinu? Er það rétt stefna að hafa hvergi neinar bremsur, engin próf? Áslaug Brynjólfsdóttir sagði að- spurð að henni fyndist sú stefna að hafa ekki próf nema samkvæmt ákvörðun stjórnenda hvers skóla fyrir sig, ekki hafa skilað því sem líkast til var stefnt að þegar fyrir- komulaginu var breytt. Hún sagði að verkefni sem væru lögð fyrir nemendur sýna getu þeirra og væru þau því hálfgildings próf. Hún sagð- ist einnig hafa sínar efasemdir um að bekkjablöndun væri rétt. Hugs- unin hefði sjálfsagt verið góð og gild en það hefði komið í ljós að þessi mikli jöfnuður — þ.e. að hafa saman í bekk einkum frá 7-9 ára, börn á ýmsum þroska- og getustig- um — hefði orðið til að draga kapp og dug úr góðum nemendum og þeir slakari græddu ekki heldur á því. Meðalnemendur væru líklega þeir sem færu best út úr blöndun- inni. Áslaug og Guðni tóku bæði fram að þýðingarmest af öllu væri að örva börnin á yngri árum. „Ef Fyrirstaðan er engin í grunn- skólanum — það er f ræðilegur möguleiki að nemandi sé 10 ár í skóla án þess að taka próf. menn lesa ekki stirðna þeir í því eins og öðru. Þá verður erfiðara að hafa sig í að ráðast í að lesa bók og ef börn minnka lestur dreg- ur úr getu þeirra til að tjá sig og áður en við er litið eru þessir ein- staklingar komnir í hættulegan vítahring.“ Guðni segir að honum finnist það miður að fyrir tiltölulega fáum árum var það allt að því ljóður á ráði barns ef það var orðið læst við upphaf skólagöngu. „Það er í raun og vera niðurlægjandi að taka á móti læsum bömum og ætla að fara að kenna þeim A eða 0. Kenn- arar eigi að taka á móti hverju barni sem einsaklingi og sinna því eftir þroska þess og getu. Mér finnst það afleitt hvað skólaárið er stutt. Fyrir yngri krakkana skiptir þetta langa hlé oft sköpum, þau eru í þann veginn að ná valdi á lestrin- um. Ef ekki kemur til örvun og hvatning heimilisins yfír sumarið ryðgar kunnáttan og sjálfstraustið bíður hnekki." Þegar hér var komið sögu í upp- lýsingasöfnun minni, skýrslulestri og fleiru fannst mér eftirfarandi blasa við: Börn þurfa ekki að læra heima, þau komast fyrirstöðu- laust milli bekkja, tæknilega séð geta börn verið tíu ár í skóla án þess að þau taki nokkurn tíma próf. Og mér blöskraði ef rétt væri. Ég talaði því við einn reyndan kennara og nokkra foreldra grunn- skólanemenda til að heyra álit þeirra. Þá varð ég þess raunar vís- ari að þetta stóðst ekki. Rétt er að engin fyrirstaða er milli bekkja í grunnskólanum. Enginn fellur nú orðið þrátt fyrir vondan náms- árangur. En heimanám, skyndipróf, miðsvetrarpróf og vorpróf með ein- kunnagjöf er enn við lýði. En því aðeins að til komi frumkvæði skóla- stjóra og kennara í skólunum. Þóra K. Jónsdóttir, kennari í Hagaskóla í 25 ár sagði að ýmsum skólamönn- um þættu þau í Hagaskóla gamal- Lestri má lílya við íþróttir. Öll getum við sparkað bolta en leiknin kemur með mikilli þjálfun. krakkar með meðal greind og eðli- legan þroska fá örvun frá heimili, skóla og umhverfí á aldrinum 9-12 ára þarf mjög lítið til að þau dembi sér í að lesa af feiknakappi allar mögulegar bækur, oft góðar bæk- ur,“ sagði Guðni. Hann sagði að stundum væri versnandi árangur rakinn til þess að börnin væru á kafi í íþróttum eða hefðu svo mörg áhugamál. En það væri fjarri ein- hlítt. Sannleikurinn væri sá að kraftmiklir krakkar sem hefðu mörg áhugamál væru oft öðrum færari á bóklega sviðinu. Áslaug Brynjólfsdóttir var í samtali okkar sammála þessu, enda væri öll hreyf- ing og líkamsæfing holl og ýtti undir þann líkamlega þroska sem hjálpaði bömum til að takast á við annan lærdóm. „Við skulum horfast í augu við það að stöðugur áróður og örvun er nauðsynlegur þáttur,“ sagði Guðni. „Sjónvarps- og myndbanda- neysla hefur haft mjög mikil áhrif. Krakkarnir sækja í einfaldari af- þreyingu en áður. Samt segjast þau fá meira út úr því að lesa góða bók. En eitt leiðir af öðru og ef dags og afturúrstefnuleg af því þar væri haldið í að setja nemendum fyrir, hafa próf og gefa einkunnir. „Stíllinn er að fletja allt út, “ sagði hún. „Skólamálastefnan er einhver moðgrautur og við finnum afger- andi mun á námsgetu barna sem Er sett fyrir heima eða ekki? koma í 7. bekk nú eða fyrir nokkr- um árum. Það er ekki undanþekning að þau séu illa læs, skilji ekki al- geng orð, geti ekki komið hugsun- um sínum á framfæri. Það liggur við að mér þyki sem börn með les- blindu eða aðrar sérþarfir séu að sumu leyti betur sett, þau fá sér- kennslu þó á henni séu kvótar. Börn sem ekki eru dæmdir sér-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.