Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INIMLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JULI
Golf á Akureyri:
Grein í bandarísku
stórblaði kveikir
mikinn áhuga
Verðum að fylgja þessu eftir, segir
David Barnwell golfkennari
„ÖLL sú ókeypis auglýsing sem Arctic Open-mótið og golfvöllur-
inn á Akureyri hefiir hlotið nær út yfir öll skynsemismörk. Það
væri slæmt að nota ekki tækifærið og meðbyrinn sem þetta veitir
okkur,“ segir David Barnwell golfkennari við Golfklúbb Akur-
eyrar. Undanfarna daga hefur hann svarað fjölmörgum fyrirspurn-
um Qölmiðla í Bandaríkjunum um Arctic Open-mótið og golfíðkun
á Akureyri. Það sem kveikti þennan áhuga er forsíðugrein í dag-
blaðinu The Wa.ll Street Journal sem gefið er út í milljónum ein-
taka í Evrópu og Bandaríkjunum.
Greinin birtist í blaðinu 9. júlí
síðastliðinn undir fyrirsögn-
inni: „Arctic Open-mótið leggur
margar gildrur á leið þína. Góðu
fréttirnar eru þær að þú getur
leikið alla nóttina, hafðu með þér
vettlinga."
í greininni er fjallað ítarlega, í
nokkuð gamansömum tón, um
Arctic Open-mótið sem fram fór í
bytjun júní. Blaðamaðurinn fylgist
með nokkrum keppendum og við-
brögðum þeirra við rysjóttri veðr-
áttu, þoku og vosbúð á vellinum.
Lýsingin á golfvellinum á Jaðri er
þegar á heildina er litið jákvæð.
Höfundur greinarinnar leitast við
að draga fram spaugilegu hliðina
á því að spila við erfiðar aðstæður
á norðurhjara veraldar og viðmæ-
lendur hans segjast allir skemmta
sér hið besta.
Skömmu eftir birtingu greinar-
innar í Wall Street Journal fóru
bandarískar útvarpsstöðvar að
hringja til Golfklúbbs Akureyrar,
þar sem David Barnwell varð fyr-
ir svörum.
Hann kveðst hafa verið á beinni
línu í síðustu viku við CBS-
útvarpsstöðina sem sendir út um
gervöll Bandaríkin. Viðtalið stóð í
einar 10 míútur. Sama dag átti
hann um 15 mínútna viðtal í beinni
útsendingu við útvarpsstöð í Bost-
on. Þá hefur útvarpsstöð í Ohio-
fylki og í San Diego beðið um
upplýsingar með viðtal í huga.
David getur einnig um skrif
blaðamanns dagblaðsins Daily
Telegi'aph sem kynnti sér nýverið
aðstæður á Jaðri, en þau munu
birtast í dagblöðum og tímaritum
um alla Evrópu.
„Við getum einfaldlega ekki lát-
ið svona tækifæri renna okkur úr
greipum. Undanfarið hafa öll
stærstu golftímarit í heimi helgað
Arctic Open grein og kynningin í
Bandaríkjunum er orðin mikil,“
segir David. Hann kveðst telja að
allt skipulag mótsins næsta vor
þurfi að liggja fyrir í október.
Ekkert megi til spara að fylgja
eftir þeirri kynningu sem þegar
er fengin.
„Við höfum alla möguleika til
þess að stórauka straum ferða-
manna hingað til að spila golf.
Það munu allir njóta góðs af því,
ekki aðeins golfklúbburinn heldur
einnig ferðamannaþjónusta á Ak-
ureyri,“ segir David Barnwell.
Italskt herskip íheimsókn
ítalska herskipið San Giorgio er væntanlegt hingað
til lands laugardaginn 4. ágúst. Hingað kemur skip-
ið frá Bordeaux í Frakklandi og þann 10. ágúst
heldur það áleiðis til Quebeck í Kanada. Um 400
sjóliðar eru um borð í San Giorgio, sem mun leggj-
ast að Ægisgarði í Reykjavíkurhöfn. Almenningi
gefst kostur á að skoða skipið á meðan það hefur
viðdvöl hér.
Norræna húsið:
Fyrirlestur um Carlsberg-
verksmiðjumar og sjóðinn
UM ÞESSAR mundir er staddur hér á landi dr. Kristof Glamann,
forstjóri Carlsbergsjóðsins og stjórnarformaður Carlsbergverksmiðj-
anna. Hann er hingað kominn í boði forseta Islands, forsætisráð-
herra, Háskóla íslands og Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf.
og mun m.a. kynna sér rannsóknir þær á Mývatni og Þingvalla-
vatni, sem unnið hefur verið að sl. 20 ár undir stjórn dr. Péturs
M. Jónassonar, prófessors við Kaupmannahafharháskóla. Glamann
fiytur fyrirlestur um Carlsbergverksmiðjunar og Carlsbergsjóðinn í
Norræna húsinu á sunnudag kl. 16.
Carlsberg-sjóðurinn á og rekur
Carlsbergverksmiðjurnar og er
ágóða af rekstri þeirra varið til að
styrkja ýmiss konar vísindastarf-
semi og listir. Oft hefur verið veitt-
ur styrkur til íslenskra vísindaverk-
Sex menn berjast um
fslandsmeistaratítilmn
segir Úlfar Jónsson íslandsmeistari í golfi
„ÉG HELD að baráttan um ís-
landsmeistaratitilinn í ár verði
á milli sex manna, mín, Sigur-
jóns Arnarsonar, Ragnars Ól-
afssonar, Sigurðar Sigurðsson-
ar, Tryggva Traustasonar og
Sveins Sigurbergssonar,“ sagði
Úlfar Jónsson, Islandsmeistari
í golfi, í samtali við Morgun-
blaðið. Keppni í meistaraflokki
á íslandsmótinu í golfi hefst á
Akureyri næstkomandi mið-
Úlfar Jónsson íslandsmeistari í golfi.
Morgunblaðið/KGA
vikudag. Úlfar varð í öðru sæti
á Norðurlandamótinu i golfí,
sem haldið var í Ósló um síðast-
liðna helgi.
*
Ulfar Jónsson varð Islands-
meistari 1986, ’87 og ’89 en
árið 1988 varð Sigurður Sigurðs-
son íslandsmeistari. Úlfar er í
golfklúbbnum Keili og hefur verið
með einkatíma í golfi hjá klúbb-
num í sumar.
Úlfar sagði að íslandsmeistara-
mótið á Akureyri legðist ágætlega
í sig, þar sem hann væri búinn
að æfa mjög vel að undanförnu.
Úlfar hefur verið að læra mark-
aðsfræði við University of Louis-
iana í Bandaríkjunum undanfarin
þijú ár og keppt með golfliði
skólans öll árin. Hann sagði að
þetta lið væri eitt af tíu bestu
háskólaliðunum í Bandaríkjunum
og hörð barátta væri um að kom-
ast í liðið. „Eftir að hafa verið
erlendis síðastliðin þtjú ár er mun
auðveldara fyrir mig að spila er-
lendis en hér, þar sem aðstæður
hér eru allt aðrar en eriendis,"
sagði Úlfar.
Hann sagði að vonandi yrði
gott veður á íslandsmótinu á
Akureyri, þannig að hægt yrði að
leika gott golf á mótinu. „Það
hefur oft verið slæmt veður á ís-
landsmótunum en þá hefur golfið
viljað gleymast og þetta hefur
verið barátta um að sleppa lifandi
út úrþessu,“ sagði Úifar Jónsson.
efna, nú síðast til útgáfu dansk-
í slenskrar orðabókar sem mun
koma út á árinu 1992, en fyrsti
styrkur sem veittur var úr sjóðnum
var veittur Birni M. Ólsen, þáver-
andi menntaskólakennara, til orða-
söfnunar í orðabók. Árið 1910 fékk
Sigfús Blöndal styrk til að vinna
að dansk-íslenskri orðabók sinni.
Steindór Steindórsson, fyrrver-
andi skólameistari, hefur kynnt sér
ýtarlega samskipti íslendinga og
Carlsberg í áranna rás og skrifað
um þau ritgerð, sem enn er ekki
komin út. Að sögn Steindórs voru
árlegar og rausnarlegar styrkveit-
ingar til Islandsrannsókna veittar
úr Carlsbergsjóðnum frá 1883 og
fram til 1918. Allar náttúrufræði-
rannsóknir á íslandi á þessum árum
voru styrktar af Carlsberg, þar á
meðal rannsóknir náttúrufræðinga
á borð við Þorvald Thoroddsen,
Helga Jónsson, Helga Péturs og
Guðmund Bárðarson. Jarðfræðikort
Thoroddsens var gefið út af Carls-
berg árið 1900. Danir, sem rann-
sökuðu og skrifuðu um ísland,
fengu einnig styrki úr sjóðnum.
Carlsbergsjóðurinn gaf út ritsafn
um íslenska grasafræði, The Bot-
any of Iceland, í fimm bindum, og
skrifuðu meðal annarra Þorvaldur
Thoroddsen, Helgi Jónsson og
Steindórsson í það. Þetta ritsafn
er undirstöðurit um íslenzka grasa-
fræði.
Undanfarin ár hefur sjóðurinn
styrkt útgáfu um íslenzka dýra-
fræði, The Zoology of Iceland. Pét-
ur Jónasson hefup einnig fengið
styrki til rannsókna á Mývatni og
Þingvallavatni.
Carlsbergsjóður veitti áratugum
saman styrki til Finns Jónssonar
prófessors og útgáfu hans á ritum
á borð við Den norsk-islandske
skjaldedigtning, bókmenntasögu
hans á dönsku og útgáfu á Lexikon
poeticum. Jón Helgason prófessor
naut einnig velvildar sjóðsins, og
að sögn Steindórs Steindórssonar
styrkti sjóðurinn ýmsar rannsóknir
á íslenskri málfræði, sögu og forn-
leifum, meðal annars rannsóknir
Daniels Bruun. „Framlag Carls-
bergsjóðsins til íslenskra náttúru-
vísinda og mál- og sagnfræðivísinda
er algerlega ómetanlegt,“ sagði
Steindór.
Kristof Glaman var prófessor í
hagsögu við Kaupmannahafnarhá-
skóla. Hann hefur skrifað margar
bækur um atvinnulíf og iðnað í
Danmörku, m.a. tvær bækur um
Carlsberg-samsteypuna.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 16,
sunnudaginn 29. júlí. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Fjármála- og umhverfísmálaráðuneyti:
Jón Gunnar Ottósson
ráðinn til sérverkeína
JÓN Gunnar Ottósson, fyrrum forstöðumaður að Mógilsá, hefiir
verið ráðinn til að vinna sérstök verkefhi fyrir fjármálaráðuneytið
og umhverfismálaráðuneytið. Hefur Jón Gunnar störf 1. ágúst.
Að sögn Marðar Árnasonar,
upplýsingafulltrúa ljármála-
ráðunejdisins, mun Jón Gunnar,
ásamt starfsmönnum ráðuney-
tanna, fyrst og fremst hafa það
að verkefni að athuga þá þætti
umhverfismála sem snerta starfs-
svið fjármálaráðuneytisins. Nefndi
hann sem dæmi hugsaniegar
framtíðarbreytingar á útgjalda-
kerfi ríkisins og skattlagningu,
umhverfisskatta, áhrif umhverfis-
verndarsjónarmiða á fjárlaga-
stefnu og athugun á þeim hug-
myndum og breytingum sem ættu
sér nú stað erlendis á þessu sviði
með tilliti til íslenskra aðstæðna.
Er von á reglulegum áfangaskýrsl-
um frá þeim sem þetta verkefni
vinna.
Þar sem um aðkeypt verkefni
er að ræða verður Jón Gunnar
ekki á launaskrá hjá ráðuneytun-
um og þarf því ekki stöðuheimild
fyrir þessari ráðningu.