Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 15

Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 15 Aden í suðri. Þegar Ottóman-veldið hrundi eftir fyrri heimsstytjöldina tók Yahya imam yfir stjórnina. Hon- um lenti fljótlega saman við Breta og síðar Sauda og gerði hann þá samkomulag við Breta um að viður- kenna landamærin frá 1905 og hafa þau verið í gildi fram á þennan dag. Á næstu árum var ólík framvinda í Jemenlöndunum. Undir harðræðis- og afturhaldsstjórn imamsins var norðurhlutinn lokaður umheimi og engu líkara en allt félli þar í Þyrni- rósarsvefn. Imaminn óttaðist mjög að utanaðkomandi áhrif myndu kippa stoðum undan völdum hans og leiða þjóðina á villigötur í öllum skilningi. Aftur á móti blómstraði suðrið og þar urðu miklar framfarir. Á árunum frá 1921 til 1955 hækkuðu meðal- tekjur íbúa í Aden og nágrenni um meira en 600 prósent. BP-olíufélagið byggði á þessum árum olíuhreinsun- arstöð sem kostaði gríðarlegar upp- hæðir sem varð atvinnulífi lyftistöng. Á þessum árum virtist allt ganga Suður-Jemen í haginn meðan staðn- að miðaldamyrkur grúfði yfir norður- hlutanum. En andófsöfl voru í báðum ríkjun- um. í norðrinu fór andstaðan við imaminn vaxandi og hvað eftir annað var reynt að ráða hann af dögum. Hann var drepinn 1948 en sonarsyni hans tókst að ná völdum og hélt þeim til 26. september 1962 er hóp- ur ungra herforingja gerði byltingu flóaríkin snerust gegn Aden-stjórn- inni. Almennt hefur Suður-Jemen dregist aftur úr þó að það búi að einhveiju leyti að uppgangstímanum frá 1920-1947. Á síðasta ári fór stjórnin í Aden að reyna að losa um þau tengsl sem hafa verið við stjórn- ir kommúnistaríkja. Það gekk brö- suglega, einkum vegna hagsmuna- ágreinings fremur en hugmynda- fræðilegs, að sögn þein-a sem til þekkja. Nú virðist sem rétt stund sé runnin upp og í mánaðarritinu The Middle East er fullyrt að söguleg nauðsyn sé fyrir sameiningunni. I grein blaðsins segir að héðan af verði ekki aftur snúið og bjartsýni og fögnuður sé hjá íbúum beggja landanna. Þekktur jemenskur rithöf- undur sagði í grein sem birtist í þar- lendu dagblaði, að „með þessu er ekki aðeins verið að ryðja brautina til að unnt verði að byggja upp sterkt og þróað Jemen, heldur er þetta eina rétta leiðin til öryggis og stöðugleika. Sameining Jemens mun verða til gleggri skilnings í araba- heimi og verða þeim leiðarljós sem leita í einlægni eftir friði og ein- drægni. Fólk treystir því að ekki verði aftur snúið. Styrkjum og eflum þá von í raun og sannleika með hjálp guðs okkar.“ Það hefur ekki farið mikið fyrir Jemen á alþjóðavettvangi en það gæti farið að breytast nú. Jemen var á sínum tíma vagga siðmenningar Arabíuskagans og blómstraði um Morgvnblaðið/JK Börn í Marib, þar var forð- um daga kon- ungdæmi drottningar- innar afSaba. Morgunblaðið/JK Jemenar eru glaðlyndir og forvitnir. og tók öll völd. í suðrinu brutust út mikil átök og verkfallsaðgerðir 1947 gegn Bretum, ekki síst vegna stefnu þeirra og athafna í Palestínu. Næstu 20 ár voru stöðugar erjur þar og vinstri öflum óx fiskur um hrygg. Þann 2.nóvember 1967 fóru Bretar frá Aden og nokkrum vikum síðar var Alþýðulýðveldinu Jemen komið á fót og varð fljótt ljóst að það hneigðist að marxískri hugmynda- fræði, gerðist mjög handgengið Sovétmönnum og fylgiríkjum þeirra. Eftir því sem árin hafa liðið hefur Suður-Jemen einangrast meira og meira, árabaríkin hafa forðast sam- skipti við það og fyrirlitið guðleysi valdhafa.' Stjórnin studdi um árabil skæruliða í Dhofar við landamæri Ómans sem vildu steypa Quaboos soldáni og varð það til þess að öll aldir. Sterk þjóðarvitund er aðal Jem- ena nú, þeir eru taldir listfengir með 'afbrigðum og eru stoltir af arfleifð •sinni. Mörgum útlendingum þykja þeir fálátir og sumir kalla þá drambs- ama. Það stóð þeim nokkuð fyrir þrifum að fáir tala erlend tungumál. Þeir eru dálítið viðkvæmir fyrir því að litið sé niður á þá og hlédrægni og ónógt sjálfsöryggi gæti birst sem hroki. Þeir eru einlægir í viðmóti, forvitnir, gestrisnir og velviljaðir. Ahkmed jemenski, kunningi minn, nefndi fyrstur, þeirra sem ég hitti, við mig þann draum allra Jemena að ríkin sameinuðust. Og þar sem ég hef því miður ekki farið til Jemen síðan mætti taka undir orð Akhm- eds. Inshallah fer ég aftur. Til sam- einaðs Jemens. Júlíhefti „The Middle Easl“ o.fl. JR*¥0tuitöfifeÍfe AÐALSÍMI 6M1 00 /ÝBEINT INNVAL: AUGLÝSINGADEILD 06911 11 ^ BLAÐAAFGREIÐSLA \ 69 11 22 PRENTMYNDAGERÐ 1,69 11 33 V ^ jl *-***». y

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.