Morgunblaðið - 29.07.1990, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 29.07.1990, Qupperneq 21
,0 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 21 Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Rítstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Skrípaleikur með olíu Fyrir nokkrum dögum var skýrt frá því, að benzínið, sem við kaupum af Sovétmönn- um samkvæmt viðskiptasamn- ingum okkar við þá, komi ekki lengur frá Sovétríkjunum. Til þess að spara flutningskostnað, kaupa Sovétmenn benzín á Rott- erdammarkaði til þess að senda okkur, við borgum þeim en þeir borga viðskiptavinum sínum i Rotterdam. Þar með eru þessi olíuviðskipti orðin að einhvers konar skrípaleik, sem ástæðu- laust er að halda áfram öllu leng- ur. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði í samtali við Morg- unblaðið í fyrradag, að það væri vel athugandi að gefa olíuvið- skipti fijáls, „en meðan íslenzkir útflytjendur telja svo mikilvægt, sem raun ber vitni að jafnvægi haldist þarf að fara að með gát,“ sagði ráðherrann. Þessi sami við- skiptaráðherra hrósaði sér sér- staklega af því í grein í Alþýðu- blaðinu fyrir skömmu, að hann hefði aukið frelsi í útflutningi á frystum fiski til Bandaríkjanna, þrátt fyrir andmæli og aðvaranir útflutningssamtaka. Hvers vegna tekur hann meira mark á rökum þeirra varðandi viðskipti við Sovétríkin en Bandaríkin? Innflutningur á olíu og benzíni til íslands byggist á löngu úrelt- um sjónarmiðum. Það eru ár og dagar síðan hægt var að færa efnisleg rök fyrir því, að nauð- synlegt væri að kaupa olíu af Sovétmönnum til þess að geta selt þangað físk. En hvað sem því líður er alveg ljóst, að breyt- ingarnar, sem eru að verða í Sovétríkjunum, kalla á gjör- breytt vinnubrögð af okkar hálfu í sölu sjávarafurða til Sovét- manna. Þeir eru sjálfir að hætta beinum og óbeinum vöruskiptum og vilja taka upp eðlileg við- skipti eins og þau ganga fyrir sig í hinum vestræna heimi. Þær grundvallarbreytingar, sem eru að verða á vettvangi alþjóða stjórnmála, valda því, að okkur verður ekki sýnd í framtíðinni sú sérstaka tillitssemi í viðskipt- um, sem við kunnum að hafa notið um langt árabil vestan hafs og austan. Eru þeir menn, sem stjórna þessum viðskiptum af okkar hálfu, svo heillum horfnir, að þeir ætli að láta Sovétmenn knýja okkur til að taka upp vest- ræna viðskiptahætti í samskipt- um við þá?! Nú á að gefa olíuinnflutning frjálsan. Það á að knýja olíufé- lögin þijú til þess að heija inn- flutning á olíu og benzíni þaðan, sem þau geta hvert um sig feng- ið bezt verð. Það á að knýja þau til að taka upp fijálsa samkeppni á þessu sviði viðskipta sem öðr- um, neytendum til hagsbóta. Þá kemur í ljós, hvert þeirra nær hagstæðustum samningum. Og þá kemur í ljós, hvort nýir aðilar hafa áhuga á að hefja innflutning á olíu og benzíni. Hér hafa ríkt Austur-Evrópu- siðir í viðskiptum með olíu í nær fjóra áratugi. Það voru ákveðin rök fyrir þessum viðskiptum í upphafi, sem ekki eru lengur til staðar og hafa ekki verið í ára- tugi. Nú þegar Sovétmenn eru hættir að flytja hingað benzín og telja betra að kaupa það á Vesturlöndum og senda okkur, er tími til kominn, að við hættum að nota þá sem milliliði um þessi viðskipti. Við þurfum ekki á slíkum millilið að halda. Við get- um flutt þessar vörur inn sjálfir án milligöngu Sovétmanna. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði í samtalinu við Morgunblaðið í fyrradag: „Raun- ar eru harla lítil höft lögð á olíu- félögin hér, þeim er frjálst að kaupa þar sem verð er hagstæð- ast.“ Olíufélögin eiga að taka ráðherrann á orðinu. Hvert þeirra verður fyrst til? BORGARALEGUM öflum hefur vaxið fiskur um hrygg eftir hrun komúnismans. Austur-Evrópuþjóð- irnar hafa í fijálsum kosningum sótt til þeirra og það sýnir að fjöldinn get- ur haft rétt fyrir sér; eða hitt á óskastundina. Þau setja eintakling- inn í öndvegi, boða eign handa öll- um í stað fátæktar marxismans, hafna ríkisafskiptum og vilja fé- lagslegt markaðskerfi, einsog þeir flokkar boðuðu sem mest fylgi fengu í kosningunum í Ungveija- landi, Tékkóslóvakíu og Austur- Þýskalandi. Annars hefur pólitíska litrófið upplitazt í umrótinu þar eystra. Þannig sagði tékkneskur háskólakennari þegar hann var spurður hvort breytingarnar þar í landi hefðu í för með sér kapítalismi yrði tekinn upp: „Nei, það held ég ekki, það verður einhvers konar sósíalismi, en spurningin er kannski hvað sósíalismi er. Það eina sem eftir stendur er að réttlæti ríki fyr- ir alla. En það er kannski það sem kapítalistar segja líka? Ætlunin er að hafa fijálsan markað, sinna lög- málum framboðs og eftirspurnar, leyfa einkarekstur en halda þó fé- lagslegri þjónustu. Atvinnuupp- bygging þarf að haldast í hendur við umhverfisvemd og það mun kosta talsvert." Einsog bent var á í forystugrein í Morgunblaðinu um þetta ieyti eru þessi ummæli háskólakennarans í Prag eftirtektarverð fyrir þá sök að meginlínumar í óskaþjóðfélaginu byggjast á sömu gmndvallarsjónar- miðum og stefna Sjálfstæðisflokks- ins: „Sá flokkur,“ segir í forystu- greininni, „hefur annars vegar lagt áherzlu á einkarekstur og fijálsa markaðsstarfsemi en hins vegar félagslega þjónustu og hefur fylgt þeirri stefnu eftir með miklum myndarbrag, t.d. í Reykj avíkurborg. “ Þorsteinn Pálsson segir í Morgunblaðs- grein hugmyndakerfi sósíalsimans hafi end- anlega fallið með Berlínarmúmum. Urt) þetta má deila, einkum þegar haft er í huga hvernig rúmenskir fantar komu ár sinni fyrir borð eftir byltingu og þá ekki síður eftir kosningasigur búlgaskra kommúnista, sem mark- ar raunar söguleg tímamót. Það er löng leið fyrir höndum úr helli Ilíeskjús þarsem nályktin er einsog í bæli tröllanna hjá Tolkíen. Austur-Þjóðveijar hafa í kosn- ingum sýnt þeir vilja laga efnahag landsins að markaðsbúskap. Sama þróun virðist hvarvetna allsráðandi í nýfijálsum ríkjum Austur-Evrópu, því kommúnistar daðra jafnvel við ungfrú Fijálshyggju. Eitt er víst, það sem Garrý Kasp- arov, heimsmeistari í skák, hefur sagt í samtali við Berlingatíðindi, Einvígi kommúnismans og vest- ræns lýðræðis er lokið. Sigur lýð- ræðisins er ótvíræður. Komúnism- inn er dauður, bæði í pólitískum, siðferðilegum og hugmyndafræði- legum skilningi. Og heimsmeistarinn bætti því við sovétkerfið ætti stutt eftir, en það muni taka Gorbatsjov með sér í fallinu, enda sé hann ekki lýðræðis- sinni í vestrænum skilningi heldur kommúnisti og tímabundinn um- bótasinni í dauðadæmdu miðstýr- ingarkerfi marxismans. Kasparov trúir því ekki til sé nein sú smur- olía á ryðgaða vélasamstæðu heims- kommúnismans sem dugi til hún gangi nokkurn veginn áfallalaust. í REYKJAVÍKUR- • bréfi Morgunblaðsins hefur fyrir allnokkru verið að því vikið hvað lýðræði Svisslendinga er vel virkt, nú þegar konur hafa almennt hlotið kosningarétt og sitja við sama borð og karlar, þótt benda megi á fáránlegar undantekningar sem vekja athygli fjölmiðla einsog aðrar dellur. Sá sem gengur með regnhlíf í sólskini vekur athygli, en hinir sem nota þær einungis í rigningu eiga það á hættu „að komast ekki í blöð- in“. Mér skilst einhveijir skrítnir karlar í smákjördæmum í Sviss séu enn að bauka við að meina konum að kjósa til að komast í heimspress- una. Betra að vera frægur að endemum, en ekki; það virðist nú kjörorð margra. Svo var mynd af þessum asnalegu steingervingum í Morgunblaðinu nýlega, ef ég man rétt. En semsagt þeir komust í blöð- in! Svisslendingar leggja deilumál fyrir kjósendur ef áskoranir um þjóðaratkvæðisgreiðslu njóta fylgis nógu margra. í Sviss hefur borgara- stéttin eflt sérstætt pijállaust og áhrifamikið lýðræði án tildurs og yfírborðslegrar arfleifðar frá kóngafólki fyrri tíðar, án niðurdrep- andi forsjárhyggju og án vinstri- mennsku sem drepur helzt allar framkvæmdir í dróma einsog við höfum orðið vitni að víða um lönd — og ekki sízt hér heima; svoað ekki sé nú talað um sóun og spill- ingu og aðra fylgikvilla Iýðræðis. Sviss er samfélag þegnanna. Þar skiptir þegnrétturinn miklu máli og þar er eignarrétturinn virtur án fyrirvara; þar hefði engum dottið í hug fiskveiðistjórnun með brask- kvóta einsog hér eða atvinnueinok- un tryggði einhver eignarréttindi, svo siðlaust sem það er, Þar eru fjármunir ekkert feimnismál og þar heyrir velmegun og þróuð tækni og iðnaður og önnur framleiðsla til menningar. Landbúnaður er t.a.m. ekki til vandræða, heldur marg- frægur af ágæti sínu og afurðum. M. (meira næsta sunnudag.) HELGI spjall IVIKUNNI VAR HARALDUR Hannesson, formaður Starfs- mannafélags Reykjavíkur, bor- inn til grafar. Með honum er genginn sérstæður forystumað- ur launþega, sem ávann sér með manndómi og heiðarleika traust langt út fyrir þann hóg fólks, er kaus hann til trúnaðarstarfa. í grein sem Har- aldur skrifaði í tilefni af borgarstjórnar- kosningunum og birtist hér í blaðinu á kjördag, 26. maí síðastliðinn, sagði meðal annars: „Við borgarstarfsmenn horfum lengra en til næsta dags og þrátt fyrir hin lágu laun okkar, eins og fleiri, tókum við þátt í þeim þjóðarsáttum, sem gerðar hafa ver- ið í tvennum síðustu kjarasamningum. Hafi einhveijir haldið að síðasta þjóðar- sátt í febrúar sl. hafí verið gerð til þess að festa láglaunastefnuna í sessi með sjóðamyndunum til þessa eða hins, þá er það misskilningur, sem fljótlega verður leiðréttur, jafnvel þó allt sé nú ríkisrekið nema heimilin í landinu. Af þessum ástæðum höfum við ekki gert raunverulegan kjarasamning við Reykjavíkurborg sl. tvö ár. Á sl. vetri voru kjaramál okkar þó ýtar- lega rædd við borgarstjóra og síðar í Starfskjaranefnd. Niðurstaðan af þessum fundum varð sú, að raunhæfur samanburð- ur yrði gerður á starfsheitum hjá Reykjavíkurborg og öðrum opinberum aðil- um, og þeim launum, sem greidd eru fyrir þessi störf. Þessari endurskoðun á að vera lokið 1. apríl nk. og er vinna þegar hafin af hlutlausum aðilum. Borgarstjóri er þekktur fyrir að standa við orð sín og geta borgarstarfsmenn sann- arlega staðfest það.“ Hér er drengilega að orði kveðið af for- ystumanni í verkalýðsfélagi um viðsemj- anda þann dag, sem hann leitaði endurnýj- aðs umboðs í almennum kosningum. Því miður geta ekki allir viðsemjendur opinberra aðila borið þeim þann vitnis- burð, að þeir séu þekktir fyrir að standa við orð sín. Við höfum verið rækilega minnt á það undanfarna daga í umræðum um niðurstöðu Félagsdóms og kjarasamning ríkisins og félaga í Bandalagi háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna (BHMR). Þar hefur komið í ljós, að vegna þess hve illa ríkisstjómin stóð að málum, hefur þjóðar- sáttinn frá því í febrúar, sem Haraldur Hannesson nefnir í grein sinni, rofnað. Orð Haralds endurspegla þá ábyrgð sem þeir hafa sýnt, er hafa tekið sér á herðar að mæla með þessari þjóðarsátt og fá hana samþykkta við mismikla hrifningu, svo að ekki sé meira sagt, meðal félaga sinna og umbjóðenda. Vegna „mistaka“ hjá ríkisstjóminni, svo að notað sé sama orð og Halldór Ásgrímsson, starfandi for- sætisráðherra, um framgöngu ríkisvalds- ins í samningum við BHMR, kann þessi barátta fyrir þjóðarsáttinni að vera orðin að engu. Ríkisstjómin er veiki hlekkur sáttarinnar, þar em menn hins vegar treg- ir til að láta orð standa eða horfast í augu við eigin gerðir og axla ábyrgð í samræmi við það. ^^mmmmmmm þegar samið RíkUstiórn- hafði verið milli að" j\iKi»»Ljuin j|a vjnnumarkaðar- in bregst ins 2. febrúar síðastliðinn hófst mikil almenn barátta fyrir því að ná megin- markmiði þess samnings, það er að ná verðbólgunni niður. Hvorki samningsaðilar né ríkisstjómin hafa getað kvartað undan því, að stjómarandstaðan hafi snúist gegn þessum samningum og reynt að gera þá tortiyggilega. Strax hinn 3. febrúar birtist hér í Morgunblaðinu grein eftir Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins, sem hófst með þessum orðum: „Þeir kjarasamningar sem forystumenn atvinnurekenda og launþega hafa nú und- irritað em ein markverðasta tilraun til þess að draga úr verðbólgu sem hér hefur verið gerð. Þeir sýna einnig að aðilar vinnumarkaðarins hafa tekið fram fyrir hendurnar á ríkisstjórninni í þeim tilgangi að reyna að koma í veg fyrir verstu afleið- ingar stjórnarstefnunnar. Með nýjum kjarasamningum hefur verið lagður efnahagslegur grundvöllur að því að verðbólga verði litlu meiri en 6% á þessu ári. Það er mun minni verðbólga en gert var ráð fyrir í efnahagsstefnu ríkisstjórn- arinnar eins og hún kom fram í fjárlögum og þjóðhagsáætlun. Aðilum vinnumarkað- arins er því að takast að breyta forsendum stjórnarstefnunnar í veigamiklum atriðum. Það er fagnaðarefni en lýsir um leið hversu varhugavert það er að núverandi ríkis- stjórn sitji til langframa.“ Þannig skrifaði leiðtogi stjórnarandstöð- unnar í þann mund sem hinir sögulegu samningar voru gerðir í febrúar. Síðan hefur enginn aðili á opinberum vettvangi ráðist á þá samninga eða leitast við að gera þá tortryggilega. Er það jafn ótrúlegt og að samningar skyldu hafa náðst um einskonar rothögg á verðbólguna. Ríkis- stjórninni hefur þannig gefist einstakt tækifæri til að vinna að alhliða stefnumót- un í efnahagsmálum og ryðja úr vegi öllum hindrunum fyrir því að umsamið markmið febrúarsamninganna næðist. Líkja má ýmsum þessara hindrana við blindsker. Við' þekkjum það úr efnahags- sögu þjóðarinnar, að breytingar eru örar og almennt er viðurkennt að oft sé erfitt að bregðast við þeim með skömmum fyrir- vara. A þeim mánuðum sem liðnir eru síðan þjóðarsáttin tókst í febrúar hafa ytri skil- yrði batnað jafnt og þétt. Afkoma fyrir- tækja í sjávarútvegi hefur tekið stakka- skiptum. Hvarvetna er verð á fiski gott og er keppst um þann litla afla, sem dreg- inn er á land við Norður-Atlantshaf. Við samningsgerðina í febrúar átti engum að vera það ljósara en ríkisvaldinu, að hættu- legasti kletturinn á leið þjóðarskútunnar út úr verðbólgufaldinum var samningurinn sem ríkið gerði við BHMR í maí 1989. Höfðu aðilar vinnumarkaðarins oft varað við ákvæðum þessa samnings og kallað hann tímasprengju vegna fyrirheita um launahækkanir 1. júll 1990. Ríkisstjórnin treysti sér ekki til að að- hafast neitt í málinu. Ráðherrarnir þorðu ekki einu sinni að ræða það opinberlega fyrir sveitarstjórnakosningarnar 26. maí, þótt embættismenn hefðu bent þeim á hættuna og fjallað væri um málið á bak við tjöldin. Það var ekki fyrr en 12. júní sl. sem ríkisstjórnin tilkynnti BHMR að hún ætlaði ekki að virða eigin kjarasamn- ing. Þá var Halldór Ásgrímsson starfandi forsætisráðherra vegna utanferðar Steingríms Hermannssonar. Þegar Steingrímur kom heim stofnaði hann til ágreinings við Halldór vegna samskipt- anna við BHMR. Sú pólitíska leikflétta framsóknarmanna breytti engu um fram- vindu mála. Það þýðir ekki fyrir þá frekar en aðra að deila við dómara Félagsdóms, sem gerðu ekki annað en túlka samning er fjármálaráðherra undirritaði í maí 1989 og gerðir voru með vilja og vitund allrar ríkisstjórnarinnar. Heimatilbúinn vandi stjórnarinnar stefnir þjóðarsáttinni þannig í voða. SJALDAN HEFUR íslenskri ríkisstjórn gefist annað eins verðir tækifæri til þess að ná tökum á stjórn efnahagsmála og þeirri sem nú situr. Al- menningur hefur verið reiðubúinn til þess að taka á sig miklar byrðar í von um að nú tækist að bijótast út úr vítahringi verð- bólgunnar. Öll skilyrði hafa verið til þess. Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra gengur lengst á þeirri braut stjórn- málamanna um þessar mundir að skella skuldinni á aðra. Hann notar fjölmiðla miskunnarlaust í þessu skyni. Hann kallar fréttamenn saman til að flytja yfir þeim áróðursræður um afrek sín og til þess að svara einstaklingum, sem telja sig eiga undir högg að sækja vegna embættis- færslu ráðherrans. Vilji fréttamenn ljós- vakamiðla ekki fá á sig orð fyrir að verða Ekki trausts REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 28. júlí einskonar blaðafulltrúar ráðherrans þurfa þeir að gæta sín. Ávirðingar fjármálaráðherra eru marg- ar á þeim tæpu tveimur árum, sem hann hefur gegnt embætti. Sérstaklega má minnast digurbarkalegra yfirlýsinga hans haustið 1988 um að á árinu 1989 yrði afgangur af rekstri ríkissjóðs. Sjaldan hafa ráðherrar flutt jafn marklausan boð- skap. Um þessar mundir stendur fjármála- ráðherra frammi fyrir því að vera sakaður um að hafa brugðist í þremur málum. í fyrsta lagi hafi hann gengið á bak orða sinna um lækkun á jöfnunargjaldi á iðnað- arvörur, sem rennur í ríkissjóð. í öðru lagi sakar fráfarandi formaður Arnarflugs hf. ráðherrann um valdníðslu. I þriðja lagi blasir við, að fjármálaráðherra hefur hald- ið einstaklega illa samskiptum við BHMR. Engir hafa kveðið fastar að orði í seinni tíð um hætturnar af því að samningur ríkisins við BHMR næði fram að ganga en ráðherrar. Fjármálaráðherra átti að hafa um það forystu innan ríkisstjórnar- innar að við þessari hættu yrði brugðist í tæka tíð. Hann brást þeirri skyldu sinni og segir eftir á, að framkvæmd samnings- ins setji „vítisvél óðaverðbólgunnar" af stað. Þegar BHMR og ríkið sömdu í maí 1989 hreykti fjármálaráðherra sér af þess- um sama samningi og raunar ríkisstjómin öll. Þá eins og þegar forsætisráðherra greip fram fyrir hendurnar á starfandi forsætisráðherra, Halldóri Ásgrímssyni, naut Steingrímur Hermannsson þess að ræða beint við fulltrúa BHMR, er höfðu fengið nóg af Ólafi Ragnari, og hafði Steingrímur síðan bein afskipti af lausn kjaradeilunnar með ráðherranefnd. Er samningsgerðinni lýst nákvæmlega í for- sendum Félagsdóms, sem var birtur hér í blaðinu á þriðjudag. Ríkisstjórnin er nú að átta sig á því til hvaða ráða hún eigi að grípa, eftir að hún klúðraði þjóðarsáttinni á þennan eftir- minnilega hátt. Hið skynsamlegasta sem hún gerði væri einfaldlega að boða til kosninga. Þá hlýtur að hvarfla að einhveij- um sem situr I stjórninni, aS staða hennar kynni að styrkjast, ef Ólafur Ragnar Grímsson hyrfi úr henni. Ólafur Ragnar hefur hvað eftir annað viljað leggja erlendan mælikvarða á at- hafnir og viðbrögð íslenskra ráðherra, einkum enskan, en þar stundaði hann há- skólanám í stjórnmálafræðum. Honum ætti að vera það betur ljóst en þeim, sem verr eru að sér í breskri stjórnmálasögu, að varla þætti ráðherra sætt, eftir að hafa lent í svipuðum raunum og hann hefur gert vegna samninganna við BHMR, svo að aðeins eitt nærtækt dæmi sé tekið. Verklítil ríkisstjórn EITT HELSTA einkenni þessarar ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar er, hve hún hefur lítið frumkvæði sjálf. Engu er líkara en það þurfi að rétta allt upp í hend- urnar á henni. Skýrasta dæmið um þetta er þjóðarsátt aðila vinnumarkaðarins í febrúar. Annað dæmi er undirbúningur að nýju álveri. Það mál var komið á rek- spöl, áður en ríkisstjórnin var mynduð. Samstöðuleysi stjórnarflokkanna veldur jafnvel meiri óvissu um framvindu málsins nú en afstaða hinna erlendu viðsemjenda. Til marks um það nægir að nefna, hvern- ig ákvörðuninni um heimild fyrir Lands- virkjun til að hefja nauðsynlegar undirbún- ingsframkvæmdir hefur verið kastað á milli ráðherra og þingflokka ríkisstjórnar- innar. Aðgerðaleysi rikisstjórnarinnar vegna BHMR-samningsins hefur þegar leitt til mikilla vandræða. Ráðherrarnir forðuðust að ræða þetta vandamál sitt á meðan þeir gátu enn unnið að skynsamlegri lausn þess. Þannig er mörgum öðrum málum háttað. Þau leysast hins vegar ekki á far sælan hátt nema unnið sé að þeim. Það er ákaflega hættulegt til langframa að búa við jafn verklitla ríkisstjórn og þessa. Við slíkar aðstæður verður stöðnun. Frá Skálholtshátíð síðastliðinn sunnudag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ein af ástæðunum fyrir stöðnuninni hjá ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar er, að ráðherrarnir vinna ekki nægilega vel með þingflokkum sínum. Það er hvað eft- ir annað að koma í Ijós, að bullandi ágrein- ingur er milli ráðherra annars vegar og þingmanna í þeirra eigin flokkum hins vegar. Að þessu leyti hafa ráðherrarnir einnig tekið upp þann hátt að bregðast frekar við áreitni þingmanna í stað þess að ganga fram fyrir þá með ákveðnar til- lögur og segjast standa með þeim og falla. Þegar þingmenn fara að búa sig undir þingstörf nú í haust verður þeim efst í huga, að þetta er kosningaþing og þeir eiga eftir að ganga fram fyrir kjósendur sína í atkvæðaleit. Þess er að vænta að vandi hinnar verklitlu ríkisstjórnar vaxi frekar en minnki eftir því sem nær dregur kosningum, þess vegna er best að þær verði sem fyrst. Á Skálholts- hátíð SÉRA JÓNAS Gíslason, vígslu- biskup í Skálholts- stifti, flutti erindi á Skálholtshátíð síðasta sunnudag. Þar sagði hann á skemmtilegan hátt frá þeim Gizuri Einars- syni og Oddi Gottskálkssyni, ungum mönn- um í Skálholti, í tilefni af því, að í áru eru liðin 450 ár frá því að lokið var prentun þýðingar Odds á Nýja testamentinu auk þess sem liðin eru 175 ár frá stofnun Hins íslenska biblíufélags. Erindi sínu lauk vígsubiskup með heitstrenginu um að áfram skyldi unnið að endurreisn í Skál- holt.L Hann sagði: „Á 175 ára afmæli Hins íslenska biblíu- félags minnumst við frumheijanna, sem hófu starf félagsins, og heiðrum minningu þeirra, um leið og við þökkum Guði líf þeirra og starf. Sérstök ástæða er til þess að nefna Ebenezer Henderson, þann mæta mann, er átti frumkvæði að stofnun Hins íslenska biblíufélags. Nú er að okkur komið að halda merki Biblíufélagsins hátt á loft og halda áfram starfi frumheijanna. Starfinu að þýðingu Heilagrar ritningar lýkur aldrei. Texti hennar verður jafnan að fylgja eðlilegum breytingum tungunnar á hveijum tíma og vera á auðskildu máli fyrir hinn almenna biblíulesanda. Nú er hafin ný þýðing Gamla testament- isins og stefnt að útgáfu hennar á 1000 ára afmæli kristnitökunnar á íslandi. Not- um næsta áratug til þess að vinna að efl- ingu Hins íslenska biblíufélags, svo að það verði betur hæft til þess að sinna háleitu hlutverki sínu. Við erum stödd hér á helgum stað. Hér hefur mikil saga gjörst, sem við aldrei megum gleyma. En lausn á vanda samtímans felst þó aldrei í því einu að horfa um öxl. Við þurfum einnig að horfa fram á veginn. Sögu Skálholts er langt frá lokið. Það á enn mikilvægu — og nú vaxandi hlut- verki — að gegna fyrir þjóð og kirkju. Það var þeim mönnum ljóst, er fyrir hartnær hálfri öld hófust handa um endur- reisn Skálholts. Giftusamlegt starf þeirra hefur borið ríkulegri og skjótari ávöxt, en flestir þorðu að vona. Við þökkum þeim ötult starf í þágu Skálholts. Mun á engan hallað, þótt aðeins eitt nafn sé nefnt í því sambandi — nafn dr. Sigurbjörns biskups Einarssonar. Nú bjarmar fyrir þáttaskilum í sögu Skálholts. Biskupsstóll er endurreistur á ný, þótt í smáu sé í fyrstu. Fyrsta skrefið er þó alltént stigið. Enn er komið að okkur að halda áfram endurreisnarstarfinu. Megi fordæmi þeirra manna, sem hér hefur verið minnst sérstaklega, verða okk- ur lýsandi fordæmi í framtíðinni. Guð gefi, að viðbrögð okkar við óleyst- um verkefnum dagsins hér í Skálholti verði hin sömu og ungu mannanna forðum, — að við segjum sem þeir: Vér vinnum vei'k- ið! — Ekki í eigin krafti, — heldur í þeim krafti, sem Guð gefur.“ „Yið samnings- gerðina í febrúar átti engum að vera það ljósara en ríkisvaldinu, að hættulegasti kletturinn á leið þjóðarskútunnar út úr verðbólgu- faldinum var samningurinn sem ríkið gerði við BHMRímaí 1989. Höfðuaðil- ar vinnumarkað- arins oft varað við ákvæðum þessa samnings og kall- að hann tíma- sprengju vegna fyrirheita um launahækkanir 1. júlí 1990.“ t

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.