Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ ATVIHNUAUGtYS/NGAR Næturvörður Óskum eftir að ráða næturvörð til framtíðar- starfa. Tungumálakunnátta nauðsynleg. Krafist er reglusemi, stundvísi og snyrti- mennsku. Umsækjendur þurfa að vera eldri en 30 ára. Nánari upplýsingar gefur Sigurður Skúli frá kl. 14-16 næstu daga. Upplýsingar ekki veittar í síma. Forstöðumaður lögfræðideildar Hér með er auglýst til umsóknar starf for- stöðumanns lögfræðideildar íslandsbanka. Hlutverk deildarinnar er m.a. að vera stjórn- endum bankans til ráðuneytis varðandi lög- fræðileg málefni og hafa umsjón með inn- heimtu vanskila við bankann. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst 1990. Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Hauks- son, framkvæmdastjóri, Kringlunni 7, Reykjavík. Umsóknir sendist Guðmundi Firíkssyni, starfsmannahaldi íslandsbanka, Ármúla 7, Reykjavík. Reykjavík, 26.júlí 1990. íslandsbanki hf., bankastjórn. Fjármálastjórnun Bandalag ísl. skáta óskar að ráða starfmann á skrifstofu bandalagsins í Reykjavík. Megin- verkefni eru umsýsla með fjármál bandalags- ins, bókhald og tekjuaflanir. Vænst er að starfsmaður gefi hafið störf sem fyrst. Laun eftir samkomulagi. Nánari upp- lýsingar um starfið verða veittar í skrifstofu Bandalags ísl. skáta. Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra BÍS, Helga Eiríkssyni, pósthólf 831, fyrir 8. ágúst nk. Fullum trúnaði heitið. Bandalag ísl. skáta. Aðstoðarmann við prentstörf Aðstoðarmann vantar til prentstarfa. Vinnu- tími eftir samkomulagi. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. ágúst nk. merktar: „P - 4143“. Myndmenntakennari óskast að Vopnafjarðarskóla næsta skólaár. Flutningsstyrkur og húsnæðisfríðindi í boði fyrir réttindakennara. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 97-31218. Skólanefnd. Tollstjórinn í Reykjavík auglýsir Starfsfólk vantar á skrifstofu tollstjóra fyrir 15. ágúst nk. Um er að ræða tölvuskráningu og önnur skrifstofustörf. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 1990. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu tollstjórans í Reykjavík, Tryggvagötu 19, sími 600300. Tollstjórinn í Reykjavík, 15.júlí 1990. DAGVIST BARNA Fóstrur, þroska- þjálfar eða annað uppeldismenntað starfsfólk! Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs- fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum. Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir hádegi. Upplýsingarveita umsjónafóstrurá skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277: VESTURBÆR Valhöll, Suðurgötu 39. Grandaborg við Boðagranda m Fóstrur eða starfsfólk með aðra uppeldismenntun óskast til starfa á eftirtöldum leikskólum og skóladagheimilum hjá Kópavogsbæ: 1. Leikskólanum Marbakka, sími 641112. 2. Leikskólanum Grænatúni, sími 46580. 3. Leikskólanum Fögrubrekku, sími 42560. 4. Skóladagheimilinu Ástúni, sími 641566. 5. Leikskólanum Efstahjalla, sími 46150. Hafið samband við forstöðumenn sem fyrst og kynnið ykkur starfsemina og launakjör. Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar í síma 45700. Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu- blöðum, sem liggja frammi á félagsmála- stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Félagsmálastofnun Kópavogs. Safnaðarstarfsfólk Fella- og Hólakirkja auglýsir eftir fólki: 1. Til að annast barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. Skilyrði eru reynsla af æsku- lýðsstarfi og þekking á undirstöðuatriðum kristinnar trúar. Einnig er uppeldismennt- un æskileg. 2. Til að annast öldrunarstarf kirkjunnar. Skilyrði eru reynsla af öldrunarstarfi og þekking á undirstöðuatriðum kristinnar trúar. Einnig er menntun á félags- eða heilbrigðissviðum æskileg. Um er að ræða tvö hálf störf eða eitt heilt starf. Umsóknir sendist í Fella- og Hólakirkju, Hóla- bergi 88, Reykjavík. Sóknarnefndir Fella- og Hólabrekkusókna. Bankastörf í Kópavogi Búnaðarbankinn í Kópavogi óskar eftir fólki til gjaldkerastarfa. Umsóknareyðublöð hjá starfsmannastjóra, Austurstræti 5 og í Búnaðarbankanum Kópa- vogi, Hamraborg 9. BÚN/VÐARBANKINN TRAUSTUR BANKI Sérkennarar Sérkennara vantar til starfa við eftirtalda skóla á Norðurlandi eystra: ★ Grunnskólana á Akureyri. ★ Strafsdeild í Löngumýri á Akureyri. (framhaldsskólastig). ★ Grunnskólann á Húsavík. Þá vantar sérkennara í 1/2 starf kennsluráð- gjafa við Fræðsluskrifstofuna og skal hann hafa aðsetur á Húsavík. Upplýsingar fást á Fræðsluskrifstofunni í síma 96-24655 eða hjá skólastjóra viðkom- andi skóla. Fræðslustjóri. Hafnfirðingar Heimilisþjónusta Okkur vantar starfsfólk nú þegar til sumar- afleysinga. Heimilisþjónustan felst í aðstoð við aldraða og sjúka í heimahúsum. Vinnutími eftir sam- komulagi 4-10 tímar á viku. Vinsamlegast hafið samband við forstöðu- mann fyrir hádegi í síma 53444. Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar. Framtíðarstarf Eldverk hf. óskar að ráða laghentan starfs- mann við slökkvitækjaþjónustu fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt, ábyrgðarmikið og jafnvel skemmtilegt starf. Viðkomandi þarf að vera 25-30 ára, með bílpróf, geta unnið sjálfstætt og geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir með helstu upplýsingum sendist Eldverki hf., Ármúla 36, 108 Reykjavík. Upplýsingar ekki veittar í síma. Eldverkhf., Ármúla 36. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Aðstoðarmaður Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara óskast í 50-70% starf. Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í síma 604391.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.