Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ
ATVIN Nlf AUGL YSINGAR
Fóstrur -
þroskaþjálfar
Leikskólann Víðivelli við Miðvang vantar
starfskraft nú þegar eða eftir nánara sam-
komulagi:
Fóstrur á deild barna 6 mánaða - 2ja ára
Fóstrur á deild barna 2-4ra ára.
Fóstur á deild barna 4ra-6 ára.
Deildarþroskaþjálfa á sérdeild fyrir fötluð
börn.
Þroskaþjálfa - fóstrur eða fólk með sambæri-
lega uppeldismenntun í stuðning og blöndun
á almennum deildum.
Einnig starfsfólk með áhuga/þekkingu á
íþróttum og tónlist.
Við bjóðum upp á þroskandi og skemmtilegt
starf og góðan starfsanda.
Nánari upplýsingar gefa Svava Guðmunds-
dóttir, forstöðumaður, sími 52004 og Kristín
Indriðadóttir, deildarþroskaþjálfi, sími
54835.
Félagsmálastjórinn íHafnarfirði.
Sjúkraþjálfari óskast
Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnu-
stað, þar sem áhersla er lögð á virka með-
ferð, áttu samleið með okkur.
Hlutastarf kemur til greina.
Hafið samband við undirritaðan.
Hilmir Á gústsson,
Álftamýri 9,
sími 689009.
Hjúkrunarforstjóri
Hjúkrunarforstjóri óskast að Heilsugæslu-
stöðinni á Dalvík. Til Dalvíkurlæknishéraðs
heyra Hrísey, Svarfaðardalshreppur og Ár-
skógsströnd. íbúar eru 2.400 (1.430 á
Dalvík). Æskilegt er að umsækjandi hafi
sérnám í stjórnun eða heilsuvernd.
Upplýsingar veita Lína Gunnarsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, í síma 96-61500 eða 96-61365,
og Guðríður Ólafsdóttir, formaður stjórnar,
í síma 96-61415.
Stjórn Heilsugæslustöðvarinnar.
Fóstrur eða starfsmenn með starfsreynslu
óskast á lítið og notalegt dagheimili sem stað-
sett er við Kleppsveginn. Um er að ræða 100%
starf og 50% starf. Stöðurnar eru lausar frá
1. september eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 688816.
Fóstrur óskast
í 50 og 100% stöður við leikskólann Kirkju-
ból. Góð vinnuaðstaða og góður starfsandi.
Upplýsingar gefur forstöðukona í síma
656322 eða 656436.
Félagsmálaráð Garðabæjar.
LANDSPITALINN
Aðstoðardeildarstjóri-
hjúkrunarfræðingar
Staða aðstoðardeildarstjóra á deild 14-G
er laus til umsóknar. Um er að ræða 22ja
rúma lyflækningadeild. Aðalsjúkdómaflokk-
arnir eru gigtar- og nýrnasjúkdómar.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Einnig eru tvær stöður hjúkrunarfræðinga
lausar á deildinni. Aðeins er unnið þrjðju
hverja helgi vegna 12 klst. helgarvakta.
Upplýsingar gefur Anna Lilja Gunnarsdóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601290
og 601000.
Umsóknir sendist til skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra.
Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis (súperkandítat) við
taugalækningadeild er laus til umsóknar.
Staðan veitist til eins árs frá 1. september
1990. Upplýsingar gefur próf. Gunnar Guð-
mundsson, yfirlæknir, í síma 601660.
Umsóknir sendist til yfirlæknis.
Reykjavík, 29.júlí 1990.
Eins manns
auglýsingastofa
með góð sambönd
Fjölhæfur og reynslumikill auglýsingagerðar-
maður óskar eftir að ráða sig í vinnu hjá fyrir-
tæki, sem rekur, eða ætlar að setja á stofn,
eigin „auglýsingastofu“. Gott tækifæri fyrir
fyrirtæki, sem vill lækka auglýsjngaútgjöld sín
og fá meira og markvissara auglýsingastarf.
Áhugasamir sendi inn svarbréf merkt:
„Gagnkvæmur trúnaður - 9251“ til auglýs-
ingadeildar Mbl. fyrir 10. ágúst 1990.
SœvarKarl Olason
Bankastræti 9 — Sími 13470
vill ráða í eftirtalin störf:
1. Verslunarstjóra, sem sér um daglegan
rekstur, áætlanagerð, starfsmannahald
og sölustörf.
Verslunar- eða viðskiptafræðimenntun
eða mjög góð reynsla er nauðsynleg.
Aldur 25 til 30 ára.
2. Verslunarmann til að selja karlmanna-
fatnað. Frjálsmannleg og alúðleg fram-
koma, ásamt þjónustulund og ánægju af
að umgangast fólk daglega er nauðsyn-
leg, ásamt stúdentsprófi eða góðri al-
mennri menntun. Aldur 20 til 30 ára.
3. Verslunarmann til að selja kvenfatnað.
Áhugi á tísku, vönduðum fatnaði og góðri
þjónustu nauðsynlegur. Hálfsdags- eða
heilsdagsvinna. Aldur 25 til 40 ára.
4. Verslunarmenn í kven- og karlmanna-
fatnaði. Um hlutastörf er að ræða seinni-
part viku, föstudaga og laugardaga.
Störf sem vel gætu hentað skólafólki.
Ekki verða ráðnir reykingamenn.
Þeir, sem áhuga hafa á þessum störfum,
sendi umsóknir til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 1. ágúst merktar: „X-400“.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál og verður öllum svarað.
Sævar Karl Ólason hefur verið leiðandi í innflutningi á vönduöunn
gæðafatnaði frá ftalíu og Þýskalandi undanfarin 15 ár.
Fyrirtæki eins Jil Sander, Giorgir Armani, Etienne Aigner og Hugo
Boss selja framleiðslu sína eingöngu til glæsiverslana um allan heim.
Allir okkar starfsmenn fá þjálfun hjá færustu mönnum á sínu sviöi
til að gera þjónustu okkar sem allra besta.
Húsgögn
Húsgagna- og innanhússarkitekt með versl-
unarpróf óskar eftir atvinnu. Starfsreynsla:
1. Skipulagning vinnustaða í stofnunum og
einkageranum, á heimilum og í sumarbú-
stöðum. 2. Sérteikningn á húsgögnum og
flóknum vinnustöðum. 3. Sölumennska á
húsgögnum og innréttingum.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar á auglýs-
ingadeild Mbl. merktar: „A-13361" sem
fyrst.
Afgreiðslustörf
Viljum ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa í
ávaxta^ og grænmetisdeild í verslun
HAGKAUPS, Skeifunni 15.
Um getur verið að ræða bæði heilsdags- og
hlutastörf. Eingöngu er um að ræða fram-
tíðarstörf, ekki sumarafleysingar.
Nánari upplýsingar um störfin veitir verslun-
arstjóri á staðnum (ekki í síma).
HAGKAUP
SUÐUREYRARHREPPUR
Kennarar
Kennara vantar til starfa við Grunnskóla
Suðureyrar. Ódýr húsaleiga og flutnings-
styrkur.
Upplýsingar gefa skólastjóri í sfma 94-6119
og formaður skólanefndar í síma 94-6250.
Ljósmyndari
Ljósmyndasstofa á Reykjavíkursvæðinu vill
ráða Ijósmyndara í hlutastarf (eftir hádegi).
Starfið er laust í ágúst. Laun samningsatriði.
Umsóknir sendist skrifstofu okkar fyrir 6.
ágúst nk.
CrlIÐNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐNI NGARMÓN USTA
TjARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Dönskukennarar
Dönskukennara vantar að Garðaskóla næsta
vetur í hálft til heilt starf.
Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra eða
yfirkennara. Heimasímar 657694 og 74056.
Skólafulltrúi Garðabæjar.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast frá 1. september
eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
96-41499.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf.