Morgunblaðið - 04.08.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 04.08.1990, Síða 1
48 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 175. tbl. 78. árg. LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 Prentsmiðja Mprgunblaðsins Alþýskum kosningum verði flýtt Austur-Berlín. Reuter. LOTHAR de Maiziere, forsætis-. ráðherra Austur-Þýskalands, til- kynnti í gær þá ósk sína að sam- eining þýsku ríkjanna og sameig- inlegar kosningar yrðu í október, tveimur mánuðum fyrr en fyrir- hugað hafði verið. Þetta yrði gert til að koma í veg fyrir al- gjört efnahagslegt hrun í Austur-Þýskalandi. Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, lýsti í gær yfir stuðningi við tillögu de Maizieres. Austur-þýskir jafnaðarmenn, sem mynda samsteypustjórn með kristilegum demókrötum í Austur- Þýskalandi, sögðu að ekki hefði verið haft samráð við þá og Sovét- menn bentu á að hugmyndin um að flýta kosningnum truflaði sam- einingaráætlanir því sameining gæti ekki orðið fyrr en eftir að ráð- stefna um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) hefði verið haldin í nóvember. Fyrirhugað er að þar verði ákveðið endanlega hvernig ijórveldin, Sovétríkin, Bretland, Frakkland og Bandaríkin, skili af sér fullveldi V-Þýskalands. De Maiziere sagði að kosningarn- ar ættu að fara fram 14. október, sama dag og kosningar til að endur- vekja fimm austur-þýsk sambands- ríki verða haldnar. Jafnaðarmenn eru mótfallnir því að flýta sameip- ingu en það myndi hins vegar koma sér vel fyrir kristilega demókrata, sem leiða ríkisstjórnina í Bonn, vegna þess að því lengur sem sam- einingin dregst því verri verður efnahagur Austur-Þjóðvetja og kostnaður vestur-þýskra skatt- greiðenda við sameininguna kemur betur í ljós. Við þessu hefur Oskar Lafontaine, formaður flokks jafnað- armanna í Vestur-Þýskalandi og helsti keppinautur Kohls um kansl- araembættið, ítrekað varað. Gro Harlem Brundtland: Engin áform um embætti aðalritara SÞ Ósló. Frá Hclge Sörensen, fréttaritara Morgunblaðsins. GRO Harlem Brundtland, leið- togi Verkamannaflokksins og fyrrum forsætisráðherra Nor- egs, segir í samtali við Arbeider- bladet ekkert hæft í háværum orðrómi um að hún sækist eftir að verða næsti aðalritari Samein- uðu þjóðanna. Embætti aðalritara Sameinuðu þjóðanna losnar eftir eitt og hálft ár. Eru vangaveltur þegar hafnar um eftirmann Perez de Cuellars. Þykir mörgum að Gro Harlem Brundtland komi til álita í embætt- ið og spilli ekki fyrir henni, að hún sé kona og hafi auk þess.látið að sér kveða í umhverfismálum á al- þjóðavettvangi. Baker og Shevardnadze fordæma írak í sögulegri yfírlýsingu: • • • æ? ■rv-ir-. f a •'•*'*** v- ■ -• “ •' •••■ . "■v'k'V " >-■ >«**<** •• t W íí. /17 1 1 * ■ i, m V. ,V SHw 1 Undir Langjökli Morgunblaðið/Einar Falur Irakar segjast ætla að kalla herlið sitt heim frá Kúvæt Útiloka þó að kúvæska furstaflölskyldan komist aftur til valda Washington. New York. Moskvu. Nikósíu. Reuter. STJÓRNVÖLD í írak tilkynntu í gærkvöldi að íraski herinn yrði kallaður heim á morgun, sunnudag, „nema eitthvað ger- ist sem ógni öryggi Kúvæt og íraks“. Talsmaður íraskra stjórnvalda útilokaði hins végar að furstafjölskyldan kæmist aftur til valda í Kúvæt. Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna sendu í gær frá sér sameiginlega yfírlýs- ingu þar sem innrás íraka í Kúvæt er fordæmd og öll ríki heims hvött til þess að stöðva vopnaflutninga til íraks. Enn- fremur er skorað á íraka að draga herlið sitt þegar í stað burt úr Kúvæt. Boðað hefur verið til leiðtogafundar nokk- urra arabaríkja í Jedda í Saudi-Arabíu á morgun. Saddam Hussein, forseti íraks, ætlar að sitja fundinn en aðstoðarmað- ur furstans af Kúvæt segir útilokað að furstinn hitti Hussein fyrr en íraski herinn sé farinn heim. Sameiginleg áskorun sú sem James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Edúard She- vardnadze, sovéskur starfsbróðir hans, samþykktu í gær í Moskvu er einstæð í samskiptum ríkjanna. Risaveldin tóku þar höndum saman og skoruðu á heimsbyggðina að stöðva vopnasölu til íraks. Það kom fram í máli Shevardnadze að Irak- ar hefðu fullvissað Sovétmenn um að þeir myndu kalla herlið sitt heim frá Kúvæt innan skamms. George Bush Bandaríkjaforseti, sem fordæmt hefur innrásina í Kúvæt, sagði í gær að það væri óþolandi ef írakar réðust inn í fleiri lönd. Bush átti í gær langt samtal símleiðis við Fahd konúng Saudi- Arabíu. Að því loknu sagðist forset- inn vilja veita Saudi-Aröbum „alla hugsanlega aðstoð“ sem þeir færu fram á. Bæði BretarogBandaríkja- menn hafa tilkynnt að sendur verði liðsauki til flota þeirra á Persaflóa. Mohamet al-Mashat, sendiherra íraks í Bandaríkjunum, sagði það fjarstæðu í gær að ríki sitt ætlaði að ráðast á Saudi-Arabíu í fram- haldi af innrásinni í Kúvæt. Hann mótmælti einnig fréttum um lið- safnað íraka við landamæri Saudi- Reuter Kona frá Kúvæt, búsett í Lon- don, heidur grátandi á mynd af forsætisráðherra landsins, Slieikh Saad al-Abdullah al Sabah. Talið er að hann sé enn í Kúvæt og haldi uppi andófi gegn hernámsliðinu. Arabíu. Gei-vihnattamyndir banda- ríska varnarmálaráðuneytisins sýna að íraskir hermenn eru í 8-15 km fjarlægð frá landamærunum. Rætt hefur verið um að vestræn ríki fari fram á það við Tyrki og Saudi-Araba að þeir stöðvi flutning íraskrar olíu um lönd sín. Eins eru miklar bollaleggingar innan Sam- einuðu þjóðanna um víðtækar efna- hagsþvinganir í garð Iraka ef þeir draga lið sitt ekki frá Kúvæt. 14 ríki af 21 í Arababandalaginu hafa samþykkt ályktun þar sem skorað er á Iraka að kalla lið sitt heim. Innrásin hafði þau áhrif að olía hækkaði mikið í verði og hefur hún ekki verið dýrari í fjögur ár. í gær seldist fatið af norðursjávarolíu á tæpa 26 dali í New York. Síðdegis í gær bárust þær frétt- ir frá Kúvæt að einhverjir úr fursta- íjölskyldunni stæðu fyrir andófi gegn innrásarhernum. Að sögn mannréttindasamtakanna Am- nesty International notar Hussein Íraksforseti tækifærið nú þegar hann hefur herlið í Kúvæt til að jafna um pólitíska andstæðinga sína sem þangað hafa flúið. Ekkert hefur enn heyrst um hverjir sitja í leppstjórn íraka í Kúvæt. Ennfrem- ur hafa menn velt fyrir sér afdrifum 14 Bandaríkjamanna sem ekkert hefur spurst til eftir innrásina en þeir unnu hjá olíufyrirtæki í Kúvæt- borg. Sjá fréttir á bis. 21.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.