Morgunblaðið - 04.08.1990, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. AGUST 1990
3
Humartrollið bætt
Morgunblaoiö/li(j
Við humarveiðar er álag á trollið oftast meira en á öðrum veiðum og því margar „kríulappirnar“, sem þarf
að taka ásamt meiri viðgerðum. Hornfirðingar eru þekktir fyrir humarveiðarnar og er sjón sem þessi því
algeng þar meðan á vertíð stendur.
„Steinn Steinarr sagði einu sinni að við lifðum á erfiðum tímum.
Núna held ég megi segja að við lifum á ótrúlegum tímum,“ sagði
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, lektor í stjórnmálafræðum við Há-
skóla íslands, í samtali við Morgunblaðið. Hann er á leið til Miinchen-
ar og Moskvu þar sem hann mun halda fyrirlestra um framtíð
Austur-Evrópu.„Eg hefði haldið að það væri eins líklegt að ég héldi
fyrirlestur í Moskvu og Drakúla greifi yrði bankasljóri Blóðbank-
ans,“ bætti Hannes Hólmsteinn við.
Ferðamenn aldrei fleiri
NÚ STEFNIR í að þetta ár verði metár hvað varðar fjölda útlend-
inga, sem ferðast hingað á vegum íslenskra ferðaskrifstofa. Hildur
Jónsdóttir hjá Samvinnuferðum-Landsýn sagði að erlendir ferðamenn
á vegum ferðaskrifstofunnar hefðu verið um 8.400 talsins í íyrra en
þeir yrðu trúlega um 10 þúsund í ár. Bryndís Ivarsdóttir hjá Úrvali-
Útsýn sagði að rúmlega 6 þúsund útlendingar hefðu komið hingað á
vegum ferðaskrifstofunnar í fyrra og þeir yrðu enn fleiri í ár.
ið en flest þeirra hefðu verið þýsk.
Þá héfði Úrval-Útsýn verið með stór-
Auður Birgisdóttir hjá Ferðaskrif-
stofu íslands sagði að erlendum
ferðamenn, sem komið hefðu á veg-
um ferðaskrifstofunnar fyrstu sjö
mánuðina í ár, væru örugglega orðn-
ir fleiri en á sama tíma í fyrra og
frönskum og ítölskum ferðamönnum
hefði fjölgað mest. „Ráðstefnuhald
hefur verið stór þáttur í okkar starf-
semi og við verðum til dæmis með
1.200 manna norræna lögfræðingar-
áðstefnu í þessum mánuði,“ sagði
Auður.
Hildur Jónsdóttir hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn sagði að rúmlega
130 þúsund ferðamenn hefðu komið
hingað í fyrra og búist væri við að
þeir yrðu töluvert fleiri í ár.
„Margra ára markaðssókn er að
skila sér. Það er fullbókað í allar
ferðir hjá okkur og við höfum orðið
að bæta við aukaferðum. Við höfum
fengið mikið af ferðamönnum frá
Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu og
Svíþjóð og verið til dæmis með jap-
anska hópa. Mesta aukningin hjá
okkur hefur verið í tiltölulega dýrum
ferðum, þar sem gist er á sumarhót-
elum og fæði er innifalið og góð
þátttaka hefur verið í reiðhjólaferð-
um um landið.“
Hildur sagði að ferðum skemmti-
ferðaskipa hingað hefði ijölgað mik-
Reykjavíkurmaraþon,“ sagði
Bryndís.
Hún sagði að nú væri nánast eng-
inn dáuður tími hjá Úrvali-Útsýn.
„Það hefur verið gífurleg aukning
hjá okkur í funda- og fyrirtækjaferð-
um, aðallega frá Svíþjóð, og við erum
með mikið af slíkum ferðum frá sept-
ember og fram í maí,“ sagði Bryndís.
Hannes sagðist myndu ræða
hugmyndir um sameiningu Evrópu
á fundi Mont Pelerin samtakanna
í Múnchen 7. september. Meðal
annarra fyrirlesara á þeim fundi
má nefna James M. Buchanan,
Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði
1986, Otto von Habsburg, rithöf-
und, Vaclav Klaus, fjármálaráð-
herra Tékkóslavakíu, og breska
hagfræðinginn Paul Johnsson.
Þremur dögum síðar, eða 10.
september, sagðist Hannes fjalla
um á fundi Atlas Economic Rese-
arch Foundation í Moskvu, hvort
til sé leið milli kapítalisma og sósíal-
isma. Hannes sagðist myndu leiða
rök að því að Austur-Evrópuþjóð-
irnar verði að velja kapítalisma,
selja ríkisfyrirtæki, koma upp
traustum gjaldmiðli og stunda
fijálsa verslun, að þjóðirnar verði
að taka stökkið að fullu en stað-
næmast ekki á miðri leið. Fundurinn
er einkum ætlaður fólki frá
Austur-Evrópu sem er að setja á
laggirnar rannsóknarstofnanir í
efnahags- og stjórnmálum. Að sögn
Hannesar munu nokkrir sovéskir
ráðamenn sitja fundinn í Moskvu
og nefndi hann sérstakelga Borís
Jeltsín, forseta Rússlands.
Að Bjarmalandsförinni lokinni
býst Hannes við að koma til Svíþjóð-
ar en þar er að koma út bók eftir
hann um íslensk stjórnmál og efna-
hagsmál.
Enn reynt að
fljúga með
svanina í dag
REYNT verður að fara með svan-
ina þrjá, sem senda á til Fær-
eyja, þangað í dag. Þoka í Fær-
eyjum hamlaði flugi þangað á
þriðjudag og miðvikudag og þeg-
ar loks var flogið til Færeyja á
fimmtudag reyndist ekki vera
pláss fyrir þá í vélinni.
Stefnt er að því að fljúga með
svanina í dag, en þegar til Færeyja
er komið verða þeir sendir beint til
Mikladals á Kalsey. Þar verða þeir
í sóttkví um tíma áður en þeir geta
hitt svanadísirnar sem voru upphaf-
lega ástæðan fyrir ferð þeirra.
ar ráðstefnur hér, sem Þjóðveijar
og Norðurlandabúar hefðu aðallega
sótt.
Bryndís ívarsdóttir hjá Úrvali-
Útsýn sagði að á þeirra vegum hefði
ferðamönnum frá Frakklandi og
Vestur-Þýskalandi fjölgað mest og
ástæðan væri hugsanlega sú að
gengisþróunin hefði verið þeim hag-
stæð að undanförnu. „Það er gríðar-
leg aukning í tjaldferðum og sérferð-
um, þar sem allt er innifalið. Hins
vegar virðist vera minna um að
menn ferðist hér á eigin vegum en
áður. Það hefur áhrif á ferðamanna-
vertíðina hér að vetur í Evrópu hafa
verið mildir undanfarin ár og þar
eru búnir að vera miklir hitar í sum-
ar.“
Bryndís sagði að þá hefði mikið
verið fjallað um ísland síðastliðið ár,
til dæmis vegna hvalveiða okkar.
„Hins vegar fáum við nú færri
Bandaríkjamenn en áður og ferða-
skrifstofur í Bandaríkjunum segja
að nánast allir bandarískir ferða-
menn fari nú til Austur-Evrópu. Við
höfum aftur á móti fengið fyrsta
hópinn frá Austuí-Evrópu, sem var
um 30 manna hópur frá Ungveijal-
andi, og hingað koma Rússar í
Búðardalur:
*
Urvinnsla eykst
hjá Afurðastöðinni
Búðardal.
RÚMLEGA tíu milljóna króna hagnaður varð af rekstri Afurðastöðvar-
innar í Búðardal hf. á síðasta ári en það var fyrsta heila rekstrarár
félagsins. Heildarvelta var 170 milljónir kr.
Afurðastöðin hf. var stofnuð í
september 1988 til þess að reka slát-
ur- og kjötfrystihús, kjötvinnslu og
verslun með kjötafurðir bænda í
Dalasýslu. Félagið keypti fasteignir
af Kaupfélagi Hvammsfjarðar en
þegar félagið var stofnað var ljóst
að kaupfélagið myndi ekki slátra
sauðfé haustið 1988. Vaxandi þáttur
í starfsemi fyrirtækisins er úrvinnsla
sláturafurða, það er sögun og úrbein-
ing fyrir Afurðasölu Sambandsins.
Er það ánægjuleg þróun að úrvinnsl-
an fari í vaxandi mæli fram heima
í héraði.
Afurðastöðin í Búðardal hf. er al-
menningshlutafélag. Hlutafé er tæp
21 milljón kr. og eru hluthafar á
annað hundrað, einstaklingar, félög
og fyrirtæki. Stærstu hluthafarnir
eru Félag sláturleyfishafa, sveitarfé-
lög í Dalasýslu og þrotabú Kaupfé-
lags Hvammsijarðar.
I stjórn Afurðastöðvarinnar eru
Svavar Jensson, Sveinn Gestsson,
Halldór Þórðarson, Baldur Friðfinns-
son og Úlfar Reynisson. Fram-
kvæmdastjóri er Ólafur Sveinsson.
Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði níu
manns en í sláturtíð á haustin um
hundrað.
Kristjana
[0¥£tmWfifetí>
AÐALSIMI
INNVAL:
AUGLÝSINGADEILD
69 11 11
BLAÐAAFGREIÐSLA
69 1122
PRENTMYNDAGERÐ
Hannes Hólmsteinn
heldur fyrirlestur
í Sovétrflgunum