Morgunblaðið - 04.08.1990, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
9
LOKAÐI
.. vegna fjölda áskorana starfsfólks, en þau lofa
frábæru Kolaporti næsta laugardag (11. ágúst).
Sjáumst!
KOLAPORTH)
M^RKa-DXíOR'f
... undir seðlabunkanum.
Tvöfaldur
raki
ACO FUKTLOTION gefur
húð þinni tvö náttúruleg
rakabindiefni.
Finndu sjálf hve ACO Fukt-
lotion smýgur hratt inn í húð-
ina án þess að klægi eða svíði
undan og hve húðin verður
mjúk.
ACO FUKTLOTION ilmar
einnig þægilega.
Heldurðu að þú finnir betri
húðmjólk?
Hún er notaleg fyrir allan
líkamann.
ACO A<
í' lotiort®' lotii
i—fc.'.a
ACO Fuktlotion!
Með og án ilmefna.
Fæst aðeins í apótekinu.
RIRTAK hf. sími 91-3 20 70
Mistök og leiðrétting
Staksteinar staldra við forystugreinar Tímans og Þjóðviljans í gær
um bráðabirgðalög á BHMR — sem og orð formanns Alþýðuflokks-
ins, þess efnis, að samningar fjármálaráðherra við BHMR séu
mistök, sem bráðabirgðalögin leiðrétti.
Almannahag
ógnað
I forystugrein Tímans
í gaer segir:
,T>ví hefur verið hreyft
í umræðum að undan-
förnu sem stundum áður,
að íhlutun rikisvaldsins í
launamál bijóti gegn
meginreglunni um fijáls-
an samningsrétt. Slíkt er
þó ekki nema hálfur
sannleikur. Meginreglan
um fijálsan samningsrétt
er jafngóð fyrir því, þótt
viðurkennt sé að einstök
atvik og sérstakt ástand
geti réttlætt íhlutun í
samninga. Slík íhlutun
verður að sjálfsögðu að
helgast af rökstuddri
nauðsyn, sem ríkisstjórn
metur svo, að viðlagðri
pólitískri ábyrgð, þ.e. því
sem hún á undir kjósend-
um. I forystugrein
Tímans í gær var þessi
réttur nefndur neyðar-
réttur. Slíkan rétt hefúr
ríkisstjóm samkvæmt
eðlilegri túlkun á
íslenzku stjómskipulagi.
Væri sá réttur ekki fyrir
hendi væri hvorki þing-
ræði né virkt fram-
kvæmdavald, heldur eins
konar anarkismi, ríkis-
valdslaust þjóðskipulag.
íslenzkt þjóðskipulag er
ekki stjórnleysi, heldur
lýðræðisleg þingstjóm.
Undir slíku stjómskipu-
lagi er rikisstjóm síður
en svo dæmd til afskipta-
og aðgerðarleysis, ef
henni þykir almannhag
ógnað...“
„Ríkisstjómin
braut umferð-
arreglumar“
Í forystugrein Þjóðvilj-
ans í gær segir:
„Það var ekki ná-
kvæmlega liugsað hjá
Jóni Baldvini Hannibals-
syni í kvöldfréttum Sjón-
varps í gærkvöldi, þegar
hann sagði að atburða-
rásin sem endaði með
setningu bráðabirgða-
laga á kjarasamninga
BHMR væri umferðar-
slys. Sjúkrabíll ríkis-
stjómarinnar ók einfald-
lega yfir á rauðu og
bjargaði sjúklingi sínum.
Líðan hans er vitanlega
eftir atvikum slæm.
Rikisstjórmn braut
umferðarreglumar, en
það hefur verið gert áð-
ur. Allir stjómmálafiokk-
ar sem setið hafa í ríkis-
stjómum á íslandi hafa
átt aðild að lagasetningu
í sambandi við vinnudeil-
ur. Að þessu sinni mátti
greina sírenuvælið þegar
í febrúar og það var búið
að vara alla vegfarendur
rækilega við.“
„Neyðar-
réttur“
Síðar segir Þjóðviljinn:
„Það er ekki gott, að
sú kynslóð sem vex úr
grasi skuli alast upp við
þann skilning, að stjóm-
völd gripi inn í atburða-
rásina með umdeildum
hætti, með bráðabirgða-
lögum, til að leysa vanda
sem þau hafa komið sér
að hluta sjálf í. Slíkt dey f-
ir tilfinningmia fyrir lög-
um og rétti og almennu
siðferði.
Neyðarréttur er til. Og
vel má rökstyðja það, að
bráðabirgðalagasetning-
in núna sé hluti af því
að vemda lýðræðið fyrir
óeðlilegum þrýstingi
þröngs hóps sem kemst
í sterka stöðu. Hins vegar
kalla þessi úrslit mála á
ítarlega umræðu, ekki
sízt innan Alþýðubanda-
lagsins, um verkalýðs-
hreyfingu, vinnumarkað,
réttarríkið og beitingu
neyðarréttar.“
Mistökríkis-
stjómar
Þriðja sfjómarmál-
gagnið, Alþýðublaðið,
fjallar- ekki um bráða-
birgðalögin í forystu-
grein í gær. Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins, sagði
hins vegar í viðtali við
Morgunblaðið:
„Ég viðurkenni, að
það verður að líta á
BHMR-samninginn sem
mistök, en með þessum
aðgerðum hefur ríkis-
stjómin viðurkennt þau
mistök og bætt fyrir
þau...“
Halldór Ásgrimsson,
varaformaður Fram-
sóknarflokksins, hafði
áður komist svipað að
orði. Með aðild að útgáfú
bráðabirgðalaga viður-
kennir Alþýðubandalag-
ið þessi mistök, sem þjóð-
arsáttin steytti á. Sem og
sá árangur sem hún hafði
skilað með hjöðnun verð-
bólgu og meiri stöðug-
leika í efnahagsbúskapn-
um. Þess vegna leggja
málgögn stjómarflokk-
anna, jafnvel Þjóðvijjinn,
höfúðáherzlu á neyðar-
rétt ríkisvaldsins til að
veija almannahag. Gegn
hvetju? Afleiðingum á
eigin mistökum ríkis-
stjórnarinuíu': „tíma-
mótasamningi" Qármála-
ráðherrans við BHMR!
Það er síðan saga út
af fyrir sig og félags-
fræðilegt rannsóknar-
efni, að vinstri stjómir
em öðrum rikisstjóraum
gjarnari á að grípa inn í
fcjarasamninga með
stj ómvaldsaðgerðuum,
s.s. löggjöf. Alþýðu-
bandalagið sviðsetur að
vísu oftar en ekki, þegar
slikum valdsgerðum er
beitt, einhvers konar lát-
bragðsleik í þeim sýning-
arglugga flokksins sem
snýr að launþegahreyf-
ingunni. Sú sviðsetning
gæti heitið tvískinnung-
ur. Lætur síðan við sýnd-
armennskuna og bráða-
birgðalögin sitja. Ráð-
herrasósialisminn lætur
ekki að sér hæða!
LÚXEMBORG
FLUG OG BÍLL
í eina viku
frá kr. 24.270-
KÖLN
195 km
BRÚSSEL
222 km
PARÍS
339 km
FRANKFURT
231 km
PRAG
730 km
GENF
489 km
NICE
980 km
VISA
L
* Miðað er vlð bíl I A-flokkl, 2 fullorðna
og 2 bðrn yngrl en 12 ira.
Við fíjúgum þér til Lúx.
Þar tekur þú við stjórninni.
FLUGLEIÐIR
pegar ferðalögin liggja í loftinu
Söluskrlfstofur Fluglelða: Lækjargötu 2, Hótel Eaju og Krlnglunnl.
Upplýalngar og farpantanlr i aíma 690 300.
Allar ninarl upplýalngar færðu i sðluakrlfatofum Fluglelða,
hji umboðsmönnum og ferðaskrlfstofum.
J