Morgunblaðið - 04.08.1990, Side 16

Morgunblaðið - 04.08.1990, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 Skemmtíför verslunarmaiuia eftir Pétur Pétursson Þótt segja megi að íslenskir verslunarmenn hafi látið talsvert að sér kveða á liðinni öld er það þó fyrst og fremst að fenginni heimastjóm, sem þeim fjölgar svo að unnt sé að tala um innlenda stétt verslunarmanna. Þá blómg- ast í Reykjavík allmargar verslan- ir sem innlendir menn ráða, þótt þær skreyti sig margar hveijar með erlendum nöfnum, svo sem Edinborg og Liverpool. Á fyrsta áratugi aldarinnar var vinnudagur langur og „virkir dagar“ fleiri en nú. Fátt var um frístundir, en erf- iði ærið. Þó kom það fyrir að hús- bændur og hjú, kaupmenn og verslunarþjónar ákváðu að gera sér dagamun. Svo var t.d. þegar Th. Thorsteinsson, einn kunnasti kaupmaður Reykjavíkurkaupstað- ar, söðlaði hesta sína og bauð fjöl- mennu starfsliði með sér í skemmtiför í nágrenni bæjarins. Einar Bjömsson verslunarstjóri situr á skjóttum fák næstur telp- unni. Hann naut ungur tilsagnar Jóns Þórarinssonar, skólastjóra í Flens- borg. Lagði einkum stund á ensku og dönsku. Sótti seinna kvöldskóla í Lækjargötu 4. Það varð síðar Verslunarskóli. Réðst til Th. Thorst. 1903 og vann þar til árs- ins 1910 er hann hóf störf hjá Verslun Bjöms Kristjánssonar. Þar vann hann til ársins 1936. Sonur hans Sigurður vann þar einnig lengi. Einar tók öflugan þátt í starfí VR og einnig í stúk- unni „Einingunni". Bragðaði aldr- ei áfengi, en þurfti þó starfs síns vegna að afgreiða það í verslun- inni. Einar var prúður, kyrrlátur, vandvirkur og reglusamur, sómi stéttar sinnar, að sögn Helga Helgasonar verslunarsljóra og hvers manns hugljúfí. Siguijón Pétursson var kapps- fullur maður og kom víða við sögu. Frægur var hann af íþróttaafrek- um sínum, glímu, nýárssundi og skautahlaupi. Minnisstæð verður för með Siguijóni að Álafossi. Þar sýndi hann fjárvmtmganefnd Al- þingis verksmiðju sína og leysti nefndarmenn út með gjöfum. Bað greinarhöfund að hljóðrita ræður og ávörp. Er Siguijón hafði afhent Jóni Pálmasyni, forseta sameinaðs þings, værðarvoð bað hann óvin- sælasta mann þjóðarinnar að gefa sig fram. Elís Ó. Guðmundsson skömmtunarstjóri oggekk á ræðu- pall. Siguijón greip værðarvoð og kvaðst ætla að gefa honum. Ætti hann að sveipa sig voðinni og veij- ast þannig höggum og slögum frá þjóðinni meðan hann gegndi emb- ætti skömmtunarstjóra. Var gerð- ur góður rómur að máli Siguijóns. Fánadagurinn á Álafossi verður ætíð minnisstæður þeim er sótti þær samkomur. Árni Tryggvason gamanlei.kari söng Álafossbrag eftir Ásgeir Jónsson jámsmið: Þama inni var glaðværð og glaumur, gieðin Ijómaði af sérhverri brá. Ungar meyjar sem dýrlegur draumur voru að dansa þar gólfínu 1“ Siguijón stjómaði samkomum af skömngsskap og hvatti óspart til inngöngu á danspallinn. Svo veitti hann afslátt af aðgangseyri ef aðsóknin dvínaði. Kallaði þá: Næsti hálftími þijúkorter. Gott var að bryðja hjá honum steinarúsínur í „Grænu matstof- unni“ í Hveragerði. Þá bauð hann Áladropa. Th. Thorsteinsson, eigandi verslunarinnar Liverpool, ólst upp í Danmörku og gætti þess í tali. hans. Hann var lengi einn um- svifamesti athafnamaður í verslun og útgerð. Varð meðeigandi tengdaföður síns Geirs Zoéga en stundaði síðar togaraútgerð. Th. Th. eins og hann var kallaður átti fjölda gæðinga og góðhesta. Kom þáð í hlut bræðranna Siguijóns og Einars Péturssonar að sjá um þá. Aldraðir' Reykvíkingar, t.d. Guido Bemhöft og Ottó Ólafsson muna þá tíð er Th. Th. gekk bísperrtur á stéttinni framan við verslun sína og dampaði sígar, eða stóð á tröppunum. Sendi hann gjarnan til R.P. Leví sem hafði úrvalsvindla. Ottó seldi bíó„pró- grömm“ á Hótel íslandi, en þar var Nýja Bíó til húsa. Þangað kom Th. Th. og keypti „program“ og bijóstsykur „Kongen af Dan- mark“. Lá þá jafnan skildingur í lófa Ottós, afgangur af andvirði, sem Th. Th. gaf ungum sveini sem var ötull í starfi. Geir Thorsteinsson, sonur Th. Th., var ungur og áhugasamur félagi föður síns og nafni „gamla Geirs“ afa síns. Hann var hægri hönd föður síns. Ungu stúlkurnar litu Geir hým auga. Hann kvænt- ist einni hinni fegurstu í hópi þeirra. Varð tengdasonur Hannes- ar Hafsteins, ráðherra, kvæntist Sigríði Hafstein, þau vora foreldr- ar Kristjönu Millu Thorsteinsson. Guðrún Hafliðadóttir var dóttir Hafliða Guðmundssonar, verslun- armanns og Friðrikku Knudsen. Hún var móðursystir Haraldar Á. Sigurðssonar gamanleikara. Sagt var að piltamir gerðu sér erindi í verslunina til þess að virða Guð- rúnu fyrir sér. Hún þótti einkar fríð ... Guðrún vann um áratuga- skeið í Vörahúsinu hjá frænda sínum Áma kaupmanni Ámasyni. Guðrún Árnadóttir var dóttir Árna Nikulássonar, sem einna fyrstur setti á stofn rakarastofu í Reykjavík. Guðrún var einstök í afgreiðslu að sögn þeirra er til þekktu. Er til þess tekið hve „gott lag hún hafði á kúnnum“ eins og einn viðmælandi orðaði það. Hún var annáluð fyrir lipurð. Karl- mönnum þótti gott að njóta til- sagnar hennar við fatakaup. Hún gladdi feitlagna menn með því að segja við þá vingjarnlega: „Þér erað nú svo þrekinn," þá þandist út brjóstkassmn af karlmennsku- hug og þori. íþróttaandinn gagn- tók viðskiptamanninn, sem keypti frakkann eða flíkina á stundinni og skundaði hæstánægður úr búð- inni. Sölumannshæfíleikar og meðfædd kurteisi og ljúfmennska var það veganesti sem entist Guð- rúnu alla tíð. Hún starfaði um áratuga skeið í herradeild Harald- ar Ámasonar. Guðrún Árnadóttir var amma Þórs Whiteheads próf- essors. Dórothea Siguijónsdóttir var ein fímm sýstra, dætra Siguijóns kennara Jónssonar á Brunnastöð- um á V atnsleysuströndog Sesselju ljósmóður, konu hans, Ólafsdóttur. Flestar tengdust þær systur verslun í Reykjavík með einum eða öðram hætti. Ólöf, kona Helga Hallgrímssonar er rak hljóðfæra- verslun, Anna, kona Óskars Láras- sonar, skókaupmanns og Þuríður, er rak hannyrðaverslun í Banka- stræti. Margrét Dórothea situr næst Guðrúnu Ámadóttur. Hún þótti einkar lipur og ljúf í afgreiðslu- starfi. Vann um margra ára skeið í verslun Th. Th. Hún lést 1925 en 1926 fæddist Önnu systur hennar dóttir er hlaut nöfn henn- ar, Dórothea Margrét. Er hún dóttir Óskars Lárassonar, kaup- manns. Knud Pagh, verslunarstjóri frá Kaupmannahöfn, er héri i kunn- ingjahópi kominn að hyggja að verslunarsambandi og tengslum við fyrirtækið. Árni Árnason verslunarmaður kenndur við Bakka heldur fast í tauminn á hesti sínum, er hverfur að mestu að baki reiðskjóta Paghs. Magnús Kjaran var Tómasson en tók sér ættamafnið Kjaran. Hann var kunnur íþróttamaður og ungmennafélagi af lífi og sál. Magnús glímdi, hljóp á skautum, rann á skíðum, hljóp í spretti. Bijóst hans þakið af verðlauna- peningum og bikar á hverri hillu í hýbýlum hans. Hann var bókaút- gefandi og bókasafnari. Alþingis- hátíðinni á Þingvöllum árið 1930 stjórnaði hann sem framkvæmda- stjóri af slíkum skörangsskap og myndarbrag að lengi mun í minn- um haft. Það var fjöldasamkoma, sem öllum verður minnisstæð. Tjaldborgin sem þá reis á Þingvöll- um. Manngrúinn á Lögbergi. Lög- sögumenn og goðar klæddir lit- klæðum. Að því mikla starfi vann Magnús ásamt vinum sínum og samstarfsmönnum úr Ungmenna- félögum og hópi verslunarmanna. Magnús varð seinna eigandi Liverpool og flutti þá verslunina í Mjólkurfélagshúsið Hafnarstræti 5. „Liverpool var ein fallegasta matvörubúðin í bænum. Af- greiðsla með ólíkindum, sérstakur blær, lipur og þægilegur,“ sagði Guido Bemhöft er hann minntist fyrri daga, þegar Magnús Kjaran stóð innanbúðar í kjallaranum á Vesturgötu 3. Jón Eyvindsson verslunarstjóri naut eingöngu barnaskólamennt- Pétur Pétursson. Þegar íslenskir versl- unarmenn loka búðum sínum á árlegiim frídegi og „hætta að höndla“ afþvítilefni er vert að minnast fyrri tíðar og hyggja að þeim er „settu svip á bæinn“. treyst manna best til farsællar úrlausnar. Byijaði sem sendisve- inn í Merkisteini, réðst síðar til Valgarðs Breiðfjörðs, en gekk í þjónustu Th. Th. árið 1898. Jón bjó á Stýrimannsstíg 9. Þar stund- aði hann smíðar og garðyrkju. Vann ötullega að málefnum Fríkirkjusafnaðarins og Verslun- armannafélags Reykjavíkur. Árið 1930 gekk hann í félag við son sinn ísleif Jónsson og ráku þeir saman Byggingavöraverslun ísleifs Jónssonar í Aðalstræti. Jón var vinsæll maður og vel látinn. Hveragerði; Sýnir vatnslita- myndir í Eden SIGRÍÐUR Rósinkransdóttir sýnir vatnslitamyndir í Eden í Hvera- gerði, dagana 8.-19. ágúst. Sigríður er fædd að Snæfjöllum, Snæfjallaströnd. Þetta er þriðja einkasýning Sigríðar en auk þess hefur hún tekið þátt í nokkrum sam- sýningum í Keflavík, Sandgerði og Danmörku. Sigríður hefur stundað nám í Baðstofunni í Keflavík frá ’74. aðalkennari hefur verið Árið 1909. unar en var þó trúað fyrir margs- • Hennar konar vandasömum störfum og Eiríkur Smith. Henrik C.J. Biering kaupmaður var kominn af einni elstu og þekkt- ustu kaupmannsætt Reykjavíkur. Bierings-ættin bundin Knudsens- ætt og Hölters-ætt traustum bönd- um. Bíó-Petersen og Bernburg í kallfæri um ættartengsl. Rótgrón- ir Reykvíkingar. Eftir áratuga- starf í þjónustu annarra stofnaði Biering verslun sína á Laugavegi og rak hana um langt skeið uns sonur hans tók við starfsrækslu allt fram á síðasta ár. Henrik Biering unni gróðri og garðyrkju. Vegfarendur sem áttu leið um Sóleyjargötu muna hann löngum að starfí í garði sem var bæjarprýði. Bæjarbúar ættu að gefa því gaum að þeir eiga dansk- ættuðum verslunarmönnum marg- an fagran gróðurreit að þakka. Blómjurtir og garðagróður var þeim lífsnauðsyn, jafnframt dag- legu brauði. Einar Pétursson, bróðir Sigur- jóns á Álafossi komst á spjöld sög- unnar aðeins fáum áram eftir að mynd þessi var tekin. Jón Helga- son biskup segir frá því í Árbókum Reykjavíkur er uppi varð fótur og fít í Reykjavík hinn 12. júní 1913. Foringi danska varðskipsins Is- lands Falk lét taka heimatilbúið flagg, blátt með hvítum krossi, af semmtibáti, er var á sveimi í grandaleysi kring um varðskipið. Leit á það sem lítilsvirðingu við danska fánann. Efnt var til úti- fundar fyrir framan Stjórnarráðs- húsið. Þessi atburður varð til þess að konungsúrskurður var birtur um íslenskan sérfána. Unnur Pét- ursdóttir, kona Einars, sagði frá því að Rothe sjóliðsforingi, sá sem fánann tók af Einari, hafi alllöngu síðar komið til þeirra hjóna þar sem þau stigu dans í samkvæmi í Reykjavík, ávarpað Einar og sagt: „Það er okkur að þakka báð- um, að íslendingar fengu sinn eig- in fána.“ Einar varð verslunarfélagi Ólafs Gíslasonar stórkaupmanns í fyrir- tækinu Ólafur Gíslason & Co. Reinhold Andersen, klæðskera- meistari, var sænskur maður. Kom hingað til lands fyrir tilstuðlan Löves klæðskera, en réðst síðar til starfa hjá Th. Th. í Liverpool. Seinna setti Reinhold Anderson á stofn eigið fyrirtæki. Margur aldr- aður Reykvíkingur man enn stúd- entshúfumar sem hann saumaði af list og prýði er hann rak eigið verkstæði. Óli Coghill var sonur Johns Coghill sauðakaupmannsins breska þess sem kom með gullið og greiddi bændum út í hönd, svo þeir gætu menntað syni sína, sem frægt var. En gamli Coghill vildi líka eiga vingott við stúlkurnar í sveitinni og því var það að honum var kenndur fjöldi bama. Vareink- um talið að norðanlands, í grennd við Hrútafjörð, (vel til fundið) væri fjöldi rauðhærðra barna sem minntu ískyggilega á Coghill. Ganga af þessu ýmsar sögur er Coghill varðist viðurkenningu á faðemi og kvað sig alsaklausan, en varð þó að játa „ef Guðríður væri helv .... hún Gudda,“ eins og haft var eftir honum. Óli Coghill, sonur Johns og Sigríðar Einarsdóttur frá Mjóafirði var starfsmaður Th. Th. og fór með í þessa skemmtiför. Höfundur er fyrrvernndi þulur Ríkisútvnrpsis. Sigríður Rósinkransdótt.ir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.