Morgunblaðið - 04.08.1990, Side 18

Morgunblaðið - 04.08.1990, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 4,5% LAUNAHÆKKUN BHMR TEKIN TIL BAKA MEÐ BRAÐABIRGÐALOGUM Viðbrögð BHMR við bráðabirgðalögunum: Telja lögin brjóta gegn stjóm- arskránni og munu leita til dómstóla Á ÞRIÐJA hundrað manns sótti félagsfund sem BHMR boðaði til í gær að birtum bráðabirgðalög- um til að afnema 4,5% launahækkun til félaga í BHMR. Fram kom á fundinum að forsvarsmenn BHMR telja bráðabirgðalögin bijóta gegn þremur greinum stjórnarskrárinnar og að sögn Páls Hall- dórssonar formanns BHMR, telja samtökin sér skylt að bera stjórnskipulegt lögmæti bráðabirgða- laganna undir dómstóla. Páll fullyrðir að þegar hafí nokkrir félagsmenn BHMR sagt störfum sínum lausum í kjölfar setningar bráðabirgðarlag- anna. Fram kom í máli Birgis Björns Siguijónsson- ar hagfræðings BHMR á fundinum að alþjóða- vinnumálstofnunin hafí sent BHMR fyrirspurn um samskipti félagsins við ríkisvaldið undanfarið og hafa forsvarsmenn BHMR til skoðunar hvort leita beri álits vinnumálastofnunarinnar á vinnubrögð- um ríkisstjórnarinnar í málinu. Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur BHMR og Páll Halldórs- son, formaður BHMR, fylgjast með félagsmönnum kynna sér bráða- birgðalögin á fundi samtakanna í gær. PÁLL HALLDÓRSSON FORMAÐUR BHMR: Grípum til þeirra aðgerða sem ríkisvald- inu koma verst Aðildarfélög BHMR íhuga nú til hvaða aðgerða samtökin muni grípa í framhaldi af setningu bráða- birgðalaganna og að sögn Páls Hall- dórssonar kemur til greina að hvetja til fjöldauppsagna. „Við munum grípa til þeirra aðgerða sem við teljum að komi ríkisvaldinu verst,“ sagði hann í samtali við Morgun- blaðið. Eitt aðildarfélaga BHMR, Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur þegar boðað til félagsfundar klukkan 10 á þriðjudagsmorgun og er fyrirhugað að hann standi allan þriðjudaginn. „Við ætlumst ekki til að þið verðið í vinnunni á þriðju- dag, sagði Auður Antonsdóttir, for- maður FÍN við félagsmenn sína á fundinum í gær. „Þessi lagasetning er hluti af miklu stærra máli sem varðar'miklu meira en BHMR og launafólk. Þetta varðar í raun og veru réttarríkið í landinu,“ sagði Páll Halldórsson formaður BHMR í samtali við Morgunblaðið. „Við teljum að líta megi þannig á að stjómarskrá landsins hafi verið brotin í að minnsta kosti þremur greinum og auðvitað verður að kanna það fyrir réttum dómstólum. í fyrsta lagi teljum við að með því að setja lög á dóm, sem gengið hefur í æðsta dómstigi sem um það fjallar, Fé- lagsdómi, hafi framkvæmdavaldið gripið fram fyrir hendurnar á dóms- valdinu og þannig brotið gegn 2. grein stjómarskrárinnar um þrígre- iningu ríkisvaldsins. í öðra lagi telj- um við að heimild til útgáfu bráða- birgðalaga, skv. 28. grein stjómar- skrárinnar, hafi ekki verið fyrir hendi vegna þess að það sem þarna er um fjallað hafí ekki verið óþekkt eða nýtt ástand. Bæði samningur- inn og febrúarsamningarnir voru þekktir meðan þing sat og þetta mál kom til umræðu í þinginu án þess að það sæi ástæðu til þess að taka á því. Loks teljum við að eign- arréttarákvæði 67. greinar stjóm- arskrárinnar hafi verið brotin. Það var búið að dæma okkur ákveðna hækkun en hún tekin til baka með bráðabirgðalögum, það er eigna- upptaka. Á þessi stjórnarskráratriði verður að reyna, við teljum það skyldu okkar að leggja málið fyrir dómstólana og þá komast þessir menn kannski í söguna sem fýrstu ráðherramir sem dregnir verða fyr- ir Landsdóm." Páll sagði einnig að í gerningi ríkisstjórnarinnar fælist almenn aðför að samningsrétti og samn- ingsöryggi í landinu. í ræðu sinni á félagsfundinum sagði hann: „Við stöndum frammi fyrir þeirri stað- reynd að ef við gerum samnig sem viðsemjandanum þykir á einhvern hátt erfitt að standa við þá hikar hann ekki við að beita lagasetninga- valdinu til að sleppa undan samn- ingnum. Það er sem sé ekki um að ræða eiginlega samninga heldur er búinn til gerningur sem gengur út á það að eftir honum skuli farið svo lengi sem það kemur ekki við hags- muni viðsemjandans. Það skiptir okkur miklu máli hvaða lærdóm við getum dregið af þessu máli um vinnuveitanda okkar og viðsemj- anda. Vinnuveitanda sem gerir samning sem hann kallar sjálfur tímamótagjörning en treður síðan á þegar hann á að fara að skipta einhveiju máli. Það verður hvert eitt okkar að taka til athugunar hvort þetta sé vinnuveitandi sem hægt sé að ráða sig í vinnu hjá.“ Páll Halldórsson fór hörðum orð- um um þátt VSÍ og ASÍ í aðdrag- anda bráðabirgðalaganna. „Vinnu- veitendur hafa allt frá því í vetur verið að tala um að þjóða ASI sömu hækkanir og við fengjum í trausti þess að þurfa aldrei að standa við það. Þeir vissu að þeir þyrftu aldrei að standa við þau tilboð sem þeir voru að gera. Síðasta tilboðið var heldur ekki fyrst og fremst sent ASÍ heldur var það sent inn á fund í ríkisstjóminni til að þeir gætu byijað að fjalla um þessi bráða- birgðalög sín. Það var klárt mál að allur formáli þessara laga var búinn til upp úr leikriti svokallaðra aðila vinnumarkaðarins en það virðist orðin sameiginleg stefna þeirra að ekkert ógurlegra geti gerst hér á landi en það að kaupgjald hækki. Það hefði einhvem tíma þótt mikil tíðinda ef ASÍ dygði það eitt að gera kröfu um kauphækkun og þá væri hún komin á silfurfati. Því miður er því ekki svo farið, hér er einfaldlega um ómerkilegan skolla- leik að ræða.“ ÁSMUNDUR STEF- ÁNSSON, FORSETIAL- ÞÝÐUSAMBANDS ÍS- LANDS: Harma að til lagasetningar skuli hafa komið „Ég vil byija á að segja að ég harma það að til lagasetningar skuli hafa komið og það er rétt að taka fram að við höfum á engu stigi þessa máls beðið um laga- setningu. Við töldum miklu skipta að komast hjá henni,“ sagði Ásmundur Stefánsson, for- seti Alþýðusambands Islands, aðspurður um setningu bráða- birgðalaga á launahækkun BHMR. „Við ræddum við BHMR í janúar um að þeir tækju sinn samning til endurskoðunar og við ræddum við fulltrúa BHMR tvisvar í síðustu viku. Það hefur komið skýrt fram í þeim samtölum að BHMR hefur ekki verið reiðubúið að víkja frá þeirri kröfu sinni að hækka meira en láglaunafólkið innan Alþýðu- sambandsins og því fór sem fór. Það er óhjákvæmilegt að minna á að ríkisstjórnin bjó til þetta vanda- mál með samningi sínum við BHMR og þeim ákvæðum um víxlhækkan- ir sem í honum fólust og þess vegna hlaut það að vera á ábyrgð ríkis- stjórnarinnar að taka á vandamál- inUj“ sagði hann ennfremur. Ásmundur sagði að lagasetningin skerti í engu efni samninga ASI við vinnuveitendur frá því í febrú- ar, þó þeir kæmu í veg fyrir 4t5% hækkun til ASÍ-félaga sem hefði orðið ef ekki hefði verið gripið inn í varðandi hækkunina til BHMR. „Forsendurnar til að framfylgja þjóðarsáttinni eru enn til staðar og það er auðvitað það verkefni sem allir verða að sameinast um. Ef samstaðan helst þá er hægt að ná markmiðum þjóðarsáttarinnar. Mér sýnist það hafa komið mjög skýrt fram hjá fólki undanfarna daga hversu mikla áherslu það leggur á að það gerist. Fólk hefur fundið skýrt hve miklu máli skiptir að dregið hefur úr verðbólgunni og vextirnir lækkað,“ sagði Asmundur Stefánsson. ÁLYKTUN FRÁ KVENNALISTANUM Vinnubrögðin bera vott um siðblindu ÞINGFLOKKUR Kvennalistans hefur sent frá sér ályktun vegna bráðabirgðalaga ríkisstjórnar- innar, þar sem setning þeirra er harðlega gagnrýnd. Segir meðal annars, að vinnubrögð ríkis- stjórnarinnar séu forkastanleg og beri vott um siðblindu. I ályktun þingflokksins segir, að í bráðabirgðalögunum felist í raun afnám réttar alls launafólks til að semja um laun sín, því ríkisstjómin hafí sýnt að hún sé tilbúin að beita lagasetningu til að þvinga fram vilja sinn. Gagnrýndur er þáttur forystu- manna ASI og BSRB og sagt, að þeir hafi tekið undir þann áróður, að laun almennings séu meginvald- ur verðbólgu og að þeir berjist nú jafnvel harðar gegn öðru launafólki en atvinnurekendum. Sagt er að þetta séu alvarleg tíðindi fyrir almenning í landinu og spurt, á hvaða leið það samfélag sé, þar sem stjórnvöld, atvinnurek- endur og stærstu samtök launþega sameinist um að svipta hluta 'launa- fólks samningsrétti. Að lokum segir í ályktun Kvenna- listans: „Vinnubrögð ríkisstjómar- innar eru forkastanleg og bera vott um siðblindu. Ríkisstjórn, sem setur lög á eigin gerðir, er ekki hæf til að stjórna landinu og á að segja af sér.“ ÖGMUNDUR JÓNAS- SON, FORMAÐUR BSRB Leysa á kjara- deilur með sam- komulagi ÖGMUNDUR Jónasson, for- maður Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja seg- ir að deila BHMR og ríkisins hafí verið komin í hnút vegna víxlverkunará- kvæða í kjara- samningum og þann hnút hafí þurft að leysa. Hins vegar væri afstaða BSRB sú, að deilur vegna kjarasamn- inga ætti að leysa með samkomu- Iagi. I fréttatilkynningu frá BSRB segir, að bandalagið hafi lagt áherslu á, að í einu og öllu yrði staðið við kjarasamninga þess og að ekki væri ásættanlegt fyrir fé- lagsmenn BSRB að félagsmenn annarra samtaka fengju sjálfkrafa allar hækkanir sem BSRB semdi um, en sætu síðan einir að hækkun- um sér til handa. Þá segir, að ljóst sé að kæmu víxlhækkunarákvæði kjarasamn- inga til framkvæmda, brystu verð- lagsforsendur samninganna og þar með sú kaupmáttartrygging, sem kjarasamningur BSRB byggði á. Af þeim sökum hefði BSRB lagt áherslu á að víxlverkunarhnúturinn yrði leystur með samkomulagi. Ögmundur Jónasson segist harma, að slíkt samkomulag hafí ekki tekist og BSRB lýsti ábyrgð á hendur þeim, sem það hefðu átt að gera. Grundvallarafstaða BSRB væri sú, að leysa ætti deilur vegna kjarasamninga með samkomulagi og allir ættu að axla ábyrgðina, sem því fylgdi. GUÐMUNDUR ÁGÚSTSSON, BORG- ARAFLOKKI: Hefðum viljað ganga lengra GUÐMUNDUR Ágústsson, for- maður þing- flokks Borgara- flokksins, segir að Borgara- flokksmenn sætti sig við niður- stöðu ríkisstjórn- arinnar varðandi bráðabirgðalögin, en hefðu talið æskilegra, að gengið yrði lengra til að tryggja þjóðarsáttina, og komið hefði verið í veg fyrir hækkanir til þeirra hópa, sem enn ættu eftir að semja. „Hugmyndir okkar Borgara- flokksmanna voru á þá leið, að fyrst verið var að setja bráðabirgðalög á annað borð, væri eðlilegt að þau næðu til allra hópa og þjóðarsáttin yrði tryggð þannig. Það hefði skap- að meiri festu. Við hefðum viljað ganga lengra en gert var, en sætt- um okkur þó við niðurstöðu ríkis- stjórnarinnar," segir Guðmundur Ágústsson. Guðmundur segist hafa talið það sýndarmennsku, að þeir hópar héldu samningsrétti, sem enn ættu eftir að gera samninga. „Það er ljóst, að við núverandi aðstæður er samningsréttur þeirra mjög tak- markaður og þess vegna töldum við að betra væri að stíga skrefið til fulls,“ segir hann. JÓHANNA SIGURÐAR- DÓTTIR FÉLAGS- MÁLARÁÐHERRA Réttlætanlegt sem neyðarúr- ræði Það er algjört neyðarúrræði að selja lög á kjara- samninga. En þetta var eina leiðin til að verja þjóðarsáttina eft- ir að fyrir lá ákvörðun vinnu- veitenda um að 4,5% launahækkun BHMR yrði látin ganga yfír allan launamark- aðinn,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra. „Þegar ákvörðun vinnuveitenda lá fyrif var Ijóst að verðbólga og verðlag myndi fara úr böndunum, greiðslubyrði lána ijúka upp og að þessi kauphækkun yrði umsvifa- laust tekin af fólki og það standa verr eftir. Vegna alls þessa tel ég að setning bráðabirgðalaga hafi verið réttlætanleg sem neyðarúr- ræði,“ sagði Jóhanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.