Morgunblaðið - 04.08.1990, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
ATVINNU
Kennarar
Kennara vantar að Vopnafjarðarskóla næsta
skólaár.
Kennslugreinar: Tungumál og sérkennsla.
Flutningsstyrkur og húsnæðisfríðindi í boði.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 97-31218
og formaður skólanefndar í síma 97-31458.
Skólanefnd.
Frá Gagnfræðaskólanum
á Sauðárkróki
Kennarar - kennarar
Kennara vantar í almenna bekkjarkennslu,
íslenskukennslu í 8.-10. bekk og íþrótta-
kennslu.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 95-36622
og yfirkennari í síma 95-35745.
Laus störf
Eftirfarandi fyrirtæki leita að starfsmönnum
til framtíðarstarfa. Gengið verður frá ráðn-
ingu sem fyrst. Byrjunartími september nk.
Einkaritari (302)
Stórt útflutnings- og framleiðslufyrirtæki í
Reykjavík. Góð tungumálakunnátta
(enska/þýska). Starfsreynsla skilyrði. Mikil
erlend samskipti. Starf, sem krefst mikils og
gefur góð laun.
Einkaritari (400)
Opinbert fyrirtæki í Reykjavík. Fjölbreytt
starf, sem krefst skipulagshæfileika og góðr-
ar starfsreynslu.
Ritari (305)
Þekkt þjónustufyrirtæki í þágu fyrirtækja,
sem starfa við útflutning. Starfið er í mark-
aðsdeiid. Tungumálakunnátta (enska/Norð-
urlandamál). Kostur væri að viðkomandi
hefði búið erlendis. Sjálftætt starf.
Ritari (144)
Lögfræðistofa í Reykjavík. Almenn og sér-
hæfð störf. Góð laun að loknum reynslu-
tíma. Starfsreynsla af sambærilegu starfi
æskileg.
Ritari (220)
Innflutningsfyrirtæki óskar að ráða ritara til
að annast frágang innflutningspappíra. Stúd-
entspróf.
Gjaldkeri (414)
Þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða
gjaldkera til að annast greiðslu reikninga,
frágang skuldabréfa o.fl. Stúdentspróf
(Verslunarskóli íslands) æskilegt.
Ut á land
Járniðnaðarmenn (422) óskast ti! starfa úti
á landi. í boði eru fjölbreytt störf við viðhald
og viðgerðir í verksmiðju. Leitað er eftir
mönnum með sveinspróf í greinum járniðn-
aðar. Húsnæði og mötuneyti á staðnum.
Störfin eru laus strax.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, merktar númeri viðkomandi starfs.
Hagva ngurhf C—^
Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Starfskraftur óskast
til starfa við uppvask í eldhúsi. Vaktavinna.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 12-15 virka
daga.
Múlakaffi,
Hallarmúla.
Fóstrur
Seltjarnarnesbær óskar að ráða:
1. Forstöðumann í afleysingastarf á leik-
skóla í 10 mánuði frá 13. ágúst nk.
2. Fóstrur.
3. Starfsmenn á leikskóla.
Upplýsingar veitir félagsmálastjóri Seltjarn-
arness í síma 612100.
Kennarar athugið
Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru lausar
nokkrar stöður. Kennslugreinar meðal ann-
ars enska, danska og raungreinar.
Ódýrt húsnæði til staðar ásamt leikskóla-
plássi fyrir börn 2ja-5 ára.
Fámennar bekkjardeildir og gott kennsluhús-
næði. Flutningsstyrkur greiddur.
Upplýsingar gefa formaður skólanefndar,
Kjartan Reynisson, í vinnusíma 97-51240 eða
heimasíma 97-51248 og skólastjóri í vinnu-
síma 97-51224 eða heimasíma 97-51159.
Skólanefnd.
Aðstoð á
tannlæknastofu
Framtíðarstarf
Við leitum að röskum, glaðlyndum og stund-
vísum starfskrafti. Þarf að hafa hæfileika til
að starfa sjálfstætt og hafa gaman af mann-
legum samskiptum. Starfsreynsla er ekki
skilyrði.
Skrifleg umsókn sendist auglýsingadeild
Mbl. fyrir 9. ágúst merkt: „Strax - 1900“.
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
Hátúni 12 - Sími 29133 - Pósthálf 5147 - 105 Reykjavík - tstand
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á vinnu- og dval-
arheimili Sjálfsbjargar frá og með 1. septem-
ber 1990. Unnið verður 3ju hverja helgi og
engar næturvaktir.
Upplýsingar gefur Guðrún Erla Gunnarsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 29133.
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar.
Inn- og útflutnings-
fyrirtæki
í miðborginni óskar eftir að ráða í eftirtalin
störf.
1) . Umsjón með innheimtu reikninga, mót-
töku viðskiptavina, símavörslu, ásamt
öðrum skrifstofustörfum.
2) Umsjón með rekstrardeild. í starfinu felst
m.a. tölvuvinnsla, erlend samskipti og
dagleg verkstjórn.
Krafist er stúdentsprófs, verslunarskólaprófs
eða sambærilegrar menntunar. Góð ensku-
kunnátta er skilyrði. Yngri en 25 ára kemur
ekki til greina.
Umsóknum skal skilað til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 10. ágúst nk., merktar: „I - 9256“.
Tónlistarkennari
Tónskóli Búðarhrepps auglýsir eftir kennara.
Upplýsingar veitir sveitarstjóri í símum
97-51220 og 97-51221 eða Benedikt Sverris-
son í símum 97-51290 og 985-22645.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Hvammstanga óskar eftir hjúkr-
unarfræðingi til starfa sem fyrst eða eftir
nánara samkomulagi. Gott húsnæði í boði.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma
95-12329.
Atvinna óskast
36 ára, reglusamur fjölskyldumaður óskar
eftir vel launuðu framtíðarstarfi. Er stúdent
að mennt. Auk þess með meirapróf, öku-
kennararéttindi og 12 ára starf í lögreglunni
að baki.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 11.
ágúst, merkt: „Traustur - 9445“.
Næturvarsla
HAGKAUP vill ráða næturvörð í verslun fyrir-
tækisins, Skeifunni 15. Starfið felst einkum
í eftirliti með versluninni utan opnunartíma
hennar og ræstingu.
Upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri
á staðnum (ekki í síma).
Umsóknir þurfa að berast starfsmannahaldi
HAGKAUPS, Skeifunni 15, fyrir 14. ágúst.
Sakavottorð þarf að fylgja umsókn.
HAGKAUP
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Við námsbraut í hjúkrunarfræði í læknadeild
Háskóla íslands er laus til umsóknar staða
lektors (37%) í hjúkrunarfræði, aðalkennslu-
grein geðhjúkrun. Gert er ráð fyrir að staðan
verði veitt til tveggja ára frá 1. október nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegri skýrslu um náms-
feril, vísindastörf, og kennslu- og hjúkrunar-
störf umsækjenda, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhójj, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, fyrir 1. september nk.
Menntamálaráðuneytið,
2. ágúst 1990.
Háskólinn á Akureyri
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður
við Háskólann á Akureyri:
Staða lektors í hjúkrunarfræði við heilbrigðis-
deild.
Staða lektors í lífefna- og örverufræði við
sjávarútvegsdeild.
Staða lektors í iðnrekstrarfræði við rekstrar-
deild.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf sín, ritsmíð-
ar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og
störf.
Upplýsingar um starfið gefa forstöðumenn
viðkomandi deilda í síma 96-27855.
Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á
Akureyri fyrir 10. september nk.
Háskólinn á Akureyri.