Morgunblaðið - 04.08.1990, Page 35
35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
felk í
fréttum
Unnið að gróðursetningu.
SOKN
Vel heppnuð sumarferð
Lagt var af stað í árlega sumar-
ferð starfsmannafélagsins
Sóknar á Vestfirði 11. júní. Þann
dag var haldið til Stykkishólms
þar sem ferðafólkið gisti meðal
annars hjá Verkalýðsfélagi Stykk-
ishólms.
Morguninn eftir var haldið með
nýju feijunni að Bijánslæk.
Ferðafólkið var almennt mjög
ánægt með feijuna. Frá Bijáns-
læk var haldið að Látrabjargi með
viðkomu í byggðasafninu að
Hnjóti á leiðinni til baka. Kvöld-
verður var snæddur á Patreks-
firði. Þaðan var farið í Selárdal
en seint um nótt var komið í nátt-
stað að Núpi í Dýrafirði.
Næsta dag var hópurinn drifinn
í að taka þátt í landgræðsluátak-
inu og var plantað tæplega 2.000
tijáplöntum í reit við hliðina á
Skrúð á Núpi. Þarna rís Sóknar-
skógur.
Frá Núpi var svo haldið til ísa-
ijarðar og Bolungarvíkur og ýms-
ir staðir skoðaðir. Vegna þoku var
ekki farið á Bolaíjall, sumum létti,
þvi vegurinn var afar blautur.
Gist va,r í Menntaskólanum á
ísafirði.
Snemma næsta dag var ferð-
inni haldið áfram í góðu veðri um
Vestfirði og áð í Djúpmannabúð
þar sem ein Sóknarkona stendur
fyrir rekstrinum og tók hún vel á
móti hópnum. Þaðan var svo hald-
ið með ýmsum smáhléum að
lokagististað að Laugarhóli í
Bjarnarfirði þar sem heimakonur
tóku á móti hópnum með mat og
gistingu.
Á sunnudagsmorguninn var svo
haldið heim á leið með viðkomu
í Staðarkirkju í Steingrímsfirði, á
Hólmavík og stuttri íjöruferð.
Ferðalangarnir komu til Reykjvík-
ur um klukkan 18.30 ferðalúnir
en ánægðir. Veður var gott alla
dagana og hafði það sitt að segja.
Morgunblaðið/PPJ
Jack Nicklaus gefur hér eiginhandaráritun á golfhanska handa aðdá-
enda, Guðmundi Ingimarssyni flugvirkja, sem var staddur á
Reykjavíkurflugvelli þegar kappinn var í þann mund að stíga um
borð í flugvél sína.
HEIMSFRÆGÐ
Nicklaus áritar golfhanska
Hinn kunni bandaríski golfieik-
ari Jack Nicklaus dvaldi sem
kunnugt er hérlendis fyrir
skömmu ásamt Ijölskyldu sinni við
laxveiðarí Norðurá í Borgarfirði.
lack Nicklaus, eða „gullni björn-
inn“ eins og hann hefur oft verið
nefndur af íþróttafréttamönnum,
hefur lengi verið fremsti snillingui'
í sinni grein og dáður af golfá-
hugamönnum hér á landi sem er-
lendis fyrir leikni sína.
Við brottför Nicklaus frá
Reykjavík biðu tveir áhugasamir
íslenskir golfiðkendur og aðdáend-
ur kappans. Vildu þeir fá að beija
hann eigin augum og helst fá eig-
inhandaráritun til að setja í
albúmið innan um myndir og minj-
ar frá golfmótum. Annar þeirra,
Guðmundur Ingimarsson flug-
virki, hafði með sér forláta golf-
hanska sem hann vonaðist til að
fá Jack Nicklaus til að árita.
Þegar Nicklaus birtist tók hann
vel á móti þessum aðdáendum.
Varð hann að óskum þeirra og
voru það því tveir glaðir golf-
áhugamenn sem horfðu á flugvél
Jack Nicklaus heija sig til flugs
frá Reykjavíkurfluvelli.
SÚLARGLUGGAFILMUR
Svarta Gila bílafilman
loksins komin aftur.
ÍS3R0T
KAPLAHRAUNI 5, SÍMI 653090
SKEMMTIFERÐ
Flogið yfir Sólheima
Flugtak bauð 39 vistmönnum á Sólheimum í Grímsnesi í flug á miðviku-
daginn í tilefni 60 ára afmælis heimilisins. Myndin er tekin þegar
flog ið er yfir Sólheima. Göngugarpurinn Reynir Pétur ásamt kærustunni
sinni, Hanný.
COSPER
Það er slúðrað með að þau séu leynilega trúlofuð.
Opið alla verzlunarmannahelgina
Meirihóttar veisla fyrir alla fjölskylduna
VEITINGAHALLARVEISLAN
FRÁ KR. 690,- ÞRÍRÉTTUÐ,
GÓMSÆT OG GIRNILEG
Kjarabötaveisja Veitingahallarinnar heldur áfram með enn
fjölbreyttari og girnijegri matseóli alia föstudaga, laugardaga og
sunnudaga. Fjölskyldan fær úrvalsmat á frábæru verói.
HSKRÉTTiR Fiskgratín hússins ...kr. 790
Djúpstaikt ýsuflök m/hrisgr jónum oo karrý ...kr. 690
Pönnusteíktur skötuseiur m/íjómadionsósu ...kr. 980
Smjörsteikt silungsflök . m/iœkium og oláðlauk ,...kr. 860
Pörmusteikt heilngtiski m/hvítviítssösu .. ki. 940
Fjölbreyttn barnarettir á 1 i'ægu verði. S
KJÖIKEíllS
Kálfasmtzel
m/fjómasvepposósu kr. 1.190
Gnsahryggsasneiðat
m/eplum'og smeionasósu........kr. 1.390
KVÖLÖVERMSRÉTTUR
Glóðorsteikt íombolæri m/bökuðum
kartófiuin og bemaisespsu kr. 1.190
Kaffihlaðborðið á sunnudögum er girnilegra og fjölbreyttara en
nokkru sinni fyrr með hnallþórum og brauðtertum.
Kaffihlaðborð sem seint gleymist.
VeitinijQhallQrveisia fyrir oíla
fjöiskyídursa er Ijúf og
ódýr tilbœyting.
Húsi verslunarinnar - símar: 33272-30400