Morgunblaðið - 11.08.1990, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.08.1990, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990 Framfærslukostnað- ur námsmanna mun hærri en námslánin - samkvæmt framfærslukönmm Hagstofunnar NIÐURSTpÐUR könnunar á framfærslukostnaði námsmanna, sem Hagstofa íslands hefur gert fyrir stjórn Lánasjóðs íslenskra náms- manna, benda til þess, að framfærslugrunnur námslána sé að jafn- aði mun lægri en framfærslukostnaðurinn. Samkvæmt könnuninni er framfærslukostnaður einstaklings í leiguhúsnæði 85.756 kr. á mánuði, en á þeim tíma sem könnunin var framkvæmd fékk hann 48.832 kr. i námslán. Framfærslukönnunin var fram- kvæmd á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Leitað var til 609 náms- manna hér á landi og þeir beðnir að gera grein fyrir útgjöldum sínum vegna matarkaupa, húsnæðiskostn- aðar, lyfja og læknisþjónustu, reksturs bifreiðar og annars ferða- kostnaðar, skólakostnaðar og fleiri þátta. Niðurstöður könnunarinnar hafa nú verið kynntar fyrir stjórn Lána- Kennir eróbikk í Leníngrad „Mér líst vel á þetta ferðalag og hlakka til að sjá hvað Rússar eru komnir langt í eróbikk," sagði Ágúst Hallvarðsson, eróbikk- kennari hjá líkamsræktarstöð World Class í samtali við Morgun- blaðið. Hann er á förum til Leníngrad þar sem hann leiðbein- ir sovéskum almenningi og verð- andi kennurum í íþróttinni í stöð sem World Class hyggst opna í borginni. „Þetta hófst með því að ég fór að kenna í World Class í Stokk- hólmi,“ sagði Ágúst. „Mér var boðið að ferðast um og kenna sem ég hef gert undanfarið hálft ár á Norður- löndunum, Möltu, í Þýskalandi og í Bandaríkjunum. í Leningrad mun Ágúst kenna í nýrri World Class-stöð og velja kenn- ara. Einnig mun hann ásamt banda- rískum þjálfara stefna að því að sett verði heimsmet í íþróttinni. „Við ætlum að safna saman um 20.000 manns og fá þá með okkur í eróbikk, trúlega á einhverjum leik- vangi í Leníngrad." Flugleiðir: sjóðs íslenskra námsmanna. í þeim kemur meðal annars fram, að fram- færslukostnaður einstaklings, sem býr í foreldrahúsum sé að meðal- tali 67.100 kr. á mánuði. Á þeim tíma, sem könnunin fór fram, fékk sá einstaklingur 34.182 kr. í náms- lán á mánuði. Útgjöld einstaklings í leiguhús- næði eða eigin húsnæði voru sam- kvæmt könnuninni 85.356 kr., en námslán 48.832 kr. Framfærslu- kostnaður einstaklings með 1 barn var 126.069 kr. á mánuði, en náms- lán 73.248 kr. Kostnaður náms- manna í bamlausri sambúð var 122.160 kr., en námslán 97.664 kr. Kostnaður námsmanna í sambúð með 1 barn var 144.828 kr., en námslán 109.872 kr. Kostnaður námsmanna í sambúð með fleira en 1 barn var að meðaltali 174.881 kr., en námslán 97.664 kr., að við- bættum 12.208 kr. fyrir hvert barn. Viktor B. Kjartansson, fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla íslands í stjórn Lánasjóðsins, segir að þessi könnun sé gamalt baráttumál námsmanna. Hún staðfesti það mat þeirra, að sá framfærslugrunnur, sem námslánin séu byggð á, sé í miklu ósamræmi við raunverulegan framfærslukostnað námsmanna. Til dæmis sé nú gert ráð fyrir því í grunninum, að húsnæðiskostnaður sé um 8 þúsund krónur, en könnun- in sýni, að hann sé í raun um 20 þúsund krónur að meðaltali. Viktor segir að stjórn Lánasjóðs- ins eigi eftir að taka afstöðu til niðurstaðna framfærslukönnunar- innar. Námsmenn trúi ekki öðru en að tekið verði tillit til þeirra, enda hafi könnunin verið framkvæmd af óháðum og ábyrgum aðila. Nýta sér forkaupsrétt á tveimur Boeing-vélum FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að nýta sér forkaupsrétt á tveimur Boeing-vélum sem fyrirtækið hefur pantað. Vélarnar sem um er rætt eru Boeing 737-400 og Boeing 757-200. Þær verða til- búnar til afgreiðslu um mánaða- mótin mars og apríl 1991. Að sögn Einars Sigurðssonat, blaðafulltrúa Flugleiða, eru vél- arnar tvær hluti af samningi sem félagið gerði um kaup á sjö vélum en aðeins á eftir að afgreiða þess- ar tvær. Hann sagðist búast við að önnur færi í notkun hjá fyrir- tækinu næsta vor en hin yrði leigð út þangaði til þörf yrði fyrir hana. Vélamar koma frá Boeing-verk- smiðjunum í Seattle. Hlaupið til styrktar Krabbameinsfélaginu Rúlla vörubílsdekki 21 kílómetra JAMES Martin og vinnufélagar hans hjá Sólningu hafa ákveðið að efna til áheitahlaups í tengsl- um við Reykjavíkurmaraþonið 19. ágúst. Hlaupið fer fram með þeim hætti að James rúllar á undan sér stóru vörubílsdekki hálfa mara- þonleið (21 km) og gefst fólki kostur á að heita ákveðinni upp- hæð á hvem kílómetra sem hann hleypur. Hægt er að koma áheit- um á framfæri með því að hringja á útsölustaði Sólningar eða skrá sig á söfnunarlista sem þar liggja frammi. Einnig er hægt að koma áheitum á framfæri við Krabba- meinsfélag íslands á skrifstofu- tíma. Þá verða tveir söfnunar- kassar við rásmarkið þann nítjánda. Að lokum má geta þess að fram að hlaupinu verður hægt að fylgj- ast með hádegisæfingum James. Hann hleypur frá Sólningu, niður Smiðjuveg að götuljósunum, upp Reykjanesbraut, framhjá Staldr- inu og Glym, upp Nýbýlaveg og aftur niður Smiðjuveginn. Ágóði af áheitahlaupinu rennur til rannsóknarstarfsemi Krabba- meinsfélags íslands. Yjr j * • a Morgunblaðið/Sverrir Kennta pijonana í húsi Rauða Kross íslands við Tjarnargötu var í gær haldinn hrísgijónadagur. Þar komu til barna, sem verið hafa á námskeiði á vegum Rauða kross- ins, jafnaldrar þeirra af víetnömskum uppruna sem veittu þeim tilsögn í því hvernig á að bera sig að við að borða með pijónum. Samband íslenskra sveitarfélaga: Kjöri framkvæmdasljóra frestað vegna ágreinings STJÓRN Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði á stjórnarfundi á föstudaginn um umsóknir um starf framkvæmdastjóra sambands- ins. Vegna ágreinings stjórnarmanna var ákvörðun frestað en búist er við að á stjórnarfundi þann 30. ágúst næstkomandi verði gengið frá ráðningu í stöðuna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins stend- ur valið einkum milli þeirra Húnboga Þorsteinssonar, skrifstofu- stjóra í félagsmálaráðuneytinu og Lárusar Jónssonar, framkvæmda- stjóra og fyrrverandi alþingismanns. Umsóknarfrestur um starf fram- Karlsson fyrrum oddviti á Hellu og kvæmdastjóra rann út þann 26. varafulltrúinn, Jón Þorgilsson fyrr- júlí síðastliðinn og barst 21 um- sókn. Stefnt var að því að ákvörðun um ráðningu lægi fyrir eftir stjórn- arfundinn á föstudaginn, en að sögn Sigurgeirs Sigurðssonar, formanns sambandsins, var endanlegri af- greiðslu málsins frestað til fundar, sem fram á að fara þann 30. ágúst. í stjóm Sambands íslenskra sveitarfélaga sitja 9 menn. Þeir eru nú Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arfulltrúi og Jón G. Tómasson borg- arritari fyrir hönd Reykjavíkur, af Vesturlandi Ingibjörg Pálmadóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi, af Vest- fjörðum Eiríkur Finnur Greipsson, oddviti á Flateyri, úr Norðurlands- kjördæmi vestra Þórður Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga, úr Norðurlandskjördæmi eystra Freyr Ófeigsson, fyrmm bæjarfulltrúi á Akureyri, af Austurlandi Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri á Seyðis- fírði og úr Reykjaneskjöröæmi, Sig- urgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjamarnesi. Þannig háttar til, að bæði aðal- fulltrúi Sunnlendinga í stjóm Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, Ölvir Morgunblaðið/Einar Falur James Martin á æfingu. um svéitarstjóri á Hellu, hafa látið af störfum í sveitarstjórn, þannig að samkvæmt lögum sambandsins hafa þeir ekki lengur umboð til setu í stjóminni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins styðja fjórir af þeim átta stjórnarmönnum, sem hafa atkvæð- isrétt, Láras Jónsson, fram- kvæmdastjóra Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda og fyrrver- andi alþingismann, og fjórir Hún- boga Þorsteinsson, skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu. Nýtur Lárus stuðnings sjálfstæðismanna, en Húnbogi framsóknarmanna, al- þýðuflokks- og alþýðubandalags- Engin loforð um veiði innan landhelginnar - segir sjávarútvegsráðherra um loðnukaup Færeyinga af EB „ÞAÐ liggja engin loforð frá islenzkum stjórnvöldum fyrir um það, að þeir, sem kaupi loðnu- kvóta af þriðja aðila svo sem EB, fái leyfi til að veiða hann innan landhelgi okkar. Því geta Færey- ingar ekki gengið út frá því sem vísu, að þeir geti veitt þau 40.000 tonn, sem þeir keyptu af banda- iaginu, á Islandsmiðum," segir Halldór Asgrímsson. Grænlendingar ráða yfir 66.000 tonnum af þeim loðnukvóta, sem þegar hefur verið úthlutað úr sam- eiginlegum löðnustofni íslands, Grænlands og Noregs. Samkvæmt samkomulagi landanna, er hveiju þéirra um sig heimilt að taka sinn hlut innan lögsögu hinna. Græn- lendingar hafa nú selt allan kvóta sinn, 13.000 tonn beint til Færey- inga, 6.500 tonn til Noregs og 6.500 tonn til Bolungarvíkur og er enginn vafí talinn leika á því, að þennan afla verður viðkomandi aðilum heimilt að taka á íslandsmiðum. Loks seldu Grænlendingar EB 40.000 tonn, sem aftur framseldi Færeyingum það magn. íslenzkir útgerðarmenn telja líklegt að Fær- eyingar ætli sér að taka þennan afla innan lögsögu okkar og hafa farið fram á það við sjávarútvegs- ráðuneytið að komið verði í veg fyrir þau áform. Halldór segir, að þetta mál verði tekið upp á fundi sjávarútvegsráð- herra Norðurlandanna á Borgund- arhólmi í næstu viku. Að loknum viðræðum við fulltrúa Grænlend- inga og Færeyinga þar, megi búast við einhverri niðurstöðu í málinu. Skákmótið í Gausdal: Hannes Hlífar með stór- meistaraáfanga í augsýn HANNES Hlifar Stefánsson hef- ur hlotið sex vinninga af sjö mögulegum og er einn í öðru sæti alþjóðlega skákmótsins í Gausdal í Noregi þegar tvær umferðir eru eftir. Hannesi næg- ir einn vinningur úr umferðunum tveimur til að tryggja sér áfanga að stórmeistaratitli. í sjöundu umferð, sem tefld var í gær, vann Hannes Sovétmanninn Jurtasjev. í dag tefiir hann við efsta mann mótsins, gríska stórmeistar- ann Kotronias, og hefur Hannes líklega svart. Grikkinn sigraði landa sinn Kourkounanakis í gær og hef- ur hlotið 6 /í vinning. Kourkounan- akis er svo í þriðja sæti með 5 'k vinning en nokkur fjöldi skákmanna hefur hlotið 5 vinninga. Hinn ís- lendingurinn, sem teflir í Gausdal, Arnþór Einarsson, hefur hlotið fjóra vinninga eftir sjö umferðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.