Morgunblaðið - 11.08.1990, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.08.1990, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGCST 1990 Á frælista GÍ hefur jafnan verið nokkurt úrval af chrysanthem- um. Á síðasta lista var t.d. chrys. cultorum, þ.e. rósakragi, sem er á meðfylgjandi mynd. BISKUPSBRA Chrysanthemum coccineum/cultorum Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir • Þáttur nr. 177 Biskupsbráin er ágætt garðblóm af körfublómaætt, en af þeirri ætt eru margar ljómandi fallegar garð- plöntur. Hún er fjölært harðgert skrautblóm, laufið fjaðurskipt, létt og fínlegt. Hún ber blóm sín um hásumar á ógreindum stöngli með einu blómi á enda hvers stönguls. Sum afbrigði eru með einfalda körfu og gulan hvirfíl, önnur eru ofkrýnd. Litir eru hvítir, bleikir eða rauðir. Þetta er falleg planta, létt og glöð og blómsæl, um það bil 60-70 sm há og þarf að binda hana upp þegar hún er í blóma. Góð til afskurðar. Biskupsbrá er auðvelt að koma til af fræi, sem spírar á því sem næst 20 dögum en einnig má fjölga henni með skiptingu að vori til. Jurtin þarf vel framræstan jarðveg og fellur vel að fá dálítið kalk. Hún vill ekki þunga leirkennda mold og einkum á það illa við hana að vera á þeim stað þar sem jarðvegurinn verður vatnsósa á vetrum. Gott er að láta hana í svolítið upphækkað beð, það hindrar of mikla vetrar- bleytu við rætumar. Á blómgun- artímanum þarf hún aftur á móti að hafa nóg vatn og vökvun til þess að njóta sín. Best líður henni á sólríkum stað í garðinum, hún þrífst sem sagt best ef hún er sólar- megin í lífinu. Upprunalega er biskupsbrá komin frá Kákasus. Þar og í Arm- eníu og Norður-Persíu (Iran) vex hún villt í háíjöllum. Gegnum margra ára ræktun og úrval hafa komið fram þau stórblóma afbrigði sem nú eru vinsæl og ræktuð í görðum víðs vegar um heim. Bisk- upsbráin blómstrar ágætlega hér á landi, bæði einföldu og ofkrýndu afbrigðin, en þau síðarnefndu eru tæplega eins dugleg og hin og eru ívið lágvaxnari. Litirnir eru hreinir og fagrir og hún er auðræktuð. -Gott er að gefa henni áburð á haustin. Biskupsbráin hefur enn fleira til síns ágætis en skrautið og skemmtilegheitin. Löngu áður en jurtin varð alþekkt garðblóm var hún í heimkynnum sínum ómetan- leg nytjajurt. Blómin voru þurrkuð, mulin og notuð í duft til útrýming- ar á skordýrum. í blómunum er sem sé efni sem banvænt er fjölda skordýrategunda. Þetta efni heitir pyrethrum og er eitt elsta og ör- uggasta skordýraeitur sem fæst úr jurtum. Um þessa hlið jurtarinn- ar mætti segja athyglisverða sögu sem er of Iöng til þess að birta á þessum vettvangi. Fræðiheiti Bisk- upsbrárinnar var til skamms tímapyrethrum roseum en nú orðið er hún jafnan nefnd chrysanthem- um coccineum. Og hvað sem um þessa nytsemi jurtarinnar má segja gleður hún augað með fegurð sinni þegar marglit körfublóm brosa við sól á sumardögum. Ýmis nafngreind afbrigði eru í ræktun, t.d. Eileen Robinson, Scharlet Glow, Mrs. Bateman Brown o.m.fl. Annars eru blandaðir litir af fræi oftast á boð- stólum. Biskupsbráin marglaunar þá alúð sem lögð er við ræktun hennar. Signrlaug Árnadóttir, Hraun- koti r m fr ▼ i tlt r a nrmtn 111 v uiyuu StflÍÍ ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðs- þjónusta kl. 11 árdegis. Organ- leikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmund- ur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigur- björnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matt- híasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Ferming og altarisganga. Fermd verður Arna Sif Jónsdóttir, Holta- gerði 84, Kópavogi. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn Hunger Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. Ferðalag eldri borgara í Dómkirkjusókn verður farin miðvikudag 15. ágúst kl. 13.00 frá Dómkirkjunni. Sóknar- nefnd. VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14. Sérstök bátsferð verður fyrir kirkjugesti frá Sundahöfn kl. 13.30. Sr. Hjalti Guðmundsson. ELLIHEIMILIÐ Grund: Guös- þjónusta kl. 10. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. FELLA- og Hólakirkja: Guðs- þjónusta kl. 20.30. Prestur Guð- mundur Karl Ágústsson. Organ- isti Ragnar Ingi Aðalsteinsson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Ferming. Fermdur verður Hjalti Sigurjón Andrason, Hjallabrekku 14, Kópavogi. Sr. Tómas Sveins- son. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Þorbergur Krist- jánsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjón- usta kl. 11. PrédikunJóna Hrönn Bolladóttir stud. theol. Altaris- þjónusta sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Kaffi eftir stundina. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: í dag, laugardag: Messa í Hátúni 10b, 9. hæð kl. 11. Minni á guðsþjón- ustuna í Áskirkju sunnudag. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Fermd verður Barbara Ösp Óm- arsdóttir, Njálsgötu 67, Reykjavík. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Miðvikudag: Guðspjall dagsins: Lúkas 16: Hinn rangláti ráðsmaður. Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Stig Petrone frá Livets ord í Uppsölum prédikar. Sr. GuðmundurÖrn Ragnarsson. SAFNKIRKJAN, Árbæ: Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lág- messa kl. 8.30, stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág- messa kl. 14. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18 nema á laugar- dögum þá kl. 14. Á laugardögum kl. 20 er ensk messa. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há- messa kl. 11. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18, nema á fimmtu- dögum þá kl. 19.30. KFUM & KFUK: Kristniboðssam- koma í kristniboðssalnum, Háa- leitisbraut 58, kl. 20.30. Ræðu- maður Jónas Þórisson fram- kvæmdastjóri Hjálparstofunar kirkjunnar. HVITASUNNUKIRKJAN Fúa- delfía: Safnaðarsamkoma kl. 11. Ræðumaður Indriði Kristjánsson. Barnagæsla. Almenn samkoma kl. 20. Barnagæsla. HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgun- arsamkoma kl. 11. Útisamkoma á Lækjartorgi. Hjálpræðissam- koma kl. 20.30. Óskar Óskarsson ásamt 23 manna æskulýðskór frá Noregi sér um samkomuna. Hópurinn verður í Keflavíkur- kirkju sunnudagskvöld kl. 20.30. GARÐAKIRKJA: Messa kl. 11. Fermd verður Kristín Ósk Arn- órsdóttir, Ölduslóð 9, Hafnar- firði. Organisti Kjartan Sigurjóns- son. Söngur: Svala Nielsen. Sr. Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Hámessa kl. 10. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Guðs- Hver er rettur hinna heilbrig’ðu? eftir Marjöttu Isberg Hér um daginn var ég að hlusta á fréttaskýringaþátt í ríkisútvarp- inu, en hann fjallaði um s.k. Sæ- brautarmál, þ.e. hvort áfram megi starfrækja vistheimili einhverfra unglinga í Kjarvalshúsinu á Sel- tjarnarnesi. Þegar leið á þáttinn undraðist ég æ meir. Hlutdrægni umsjónarmanns^ þáttarins duldist nefnilega ekki. í allri umfjöllun var gert lítið úr þeim atburðum sem átt höfðu sér stað við Sæbraut og sem íbúar götunnar höfðu kvartað yfir. Athyglisvert var, að aldrei var haft beint viðtal við fólk sem er á móti staðsetningu heimilisins, en oftlega talað við fólk sem er með henni eða telur enga vankanta á því að hafa slíkt heimili í íbúða- hverfi. Niðurlag þáttarins voru orð fulltrúa viðkomandi ráðuneytis, og voru þau eitthvað á þessa leið: „Ég vona, að farsæl lausn fínnist á þessu máli og að heimilið megi starfa áfram við Sæbraut.“ Eftir að hafa hlustað á þennan þátt fylltist ég meðaumkun með íbúum Sæbrautar, þó að ég þekki engan þeirra né viti deili á þeim. En af skrifum þeirra hafði ég þó skilið, að návist við þessa einhverfu unglinga hafði tekið töluvert á taugar þeirra, þó höfðu þeir hingað til eygt einhveija von um breyt- ingu. Nú var hins vegar sýnt, að mál þeirra var tapað, þar sem bæði ráðuneytið og öflugasti fjölmiðill landsins höfðu farið að berja á þeim, auk þess vaska liðs hugsjóna- manna, sem styður forstöðumann Sæbrautarheimilisins í baráttu hennar fyrir velferð vistmanna þess. Nú vill svo til, að ég kynnti mér lítillega mál einhverfra barna og þjónusta kl. 11. Kaffi á könnunni í safnaðarheimilinu að lokinni messu. Sr. Einar Eyjólfsson. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Fermd verða: Omar Þór Ögmundsson, Rakel Björk Ögmundsdóttir og Róbert Svan- ur Ögmundsson, Hörðuvöllum 4, Hafnarfirði. Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson. KAPELLAN, St. Jósefsspítala: Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. YTRI-Njarðvíkurkirkja: Guðs- þjónusta kl. 9.30. Kór Keflavíkur- kirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Ath. breyttan messu- tíma. Sr. Ólafur Oddur Jónsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa. Altarisganga kl. 11. Kór Keflavík- urkirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Sóknarprestur. KAÞÓLSKA kapellan, Hafnarg. 71, Keflavík: Messa kl. 16 sunnu- daga. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Bragi Friðriksson pró- fastur setur Jónu Kristínu Þor- valdsdóttur inn í embætti sókn- arprests. Messukaffi að lokinni athöfn. Sóknarnefndin. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Organleikari Einar Sigurðsson. Sóknarprestur. BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjal- arnesi: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunnar Kristjánsson. REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Gunnar Kristjánsson. AKRANESKIRKJA: Fermingar- guðsþjónusta kl. 11. Fermd verð- ur Rakel Sif Kristjánsdóttir, Garðabraut 22. Organisti Jón Ól. Sigurðsson. Mánudag kl. 18.30 fyrirbænaguðsþjónusta. Beðið fyrir sjúkum. Sr. Björn Jónsson. BORGARNESPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 11. í Álftatungukirkju er guðs- þjónusta kl. 16. Sóknarprestur. Marjatta ísberg „Eftir að hafa hlustað á þennan þátt fylltist ég meðaumkun með íbúum Sæbrautar.“ unglinga í vetur, þar sem ég hugð- ist sækja um sumarvinnu á þessu margumrædda heimili. Til að vera betur í stakk búin talaði ég m.a. við nokkra einstaklinga sem hafa starfað á slíkum heimilum, bæði hér heima og erlendis. Einn við- mælenda minna sagði orðrétt: „Starfsmenn eru barðir bæði and- lega og líkamlega." Ekki hefi ég ástæðu til að rengja orð þessa ágæta manns, sem hefur um árabil unnið af ósérplægni að málefnum einhverfra, og vinnur enn — af hugsjónaástæðum. Einkennilegt þó, að enginn þeirra, sem hafa óskað íbúum Sæbrautar til hamingju með heimilið, hefur haft hálft orð um slíkt. Þvert á móti: Atburðum Sæ- brautar er lýst sem lítilfjörlegum atvikum og vistmenn sagðir vera harla meinlausir, nema ef vera skyldi sjálfum sér. Jafnframt er, beint eða óbeint, látið í það skína, að hin raunverulega ástæða kæru- bréfa sé ótti íbúa Sæbrautar við verðfall eigna þeirra. Það getur vel verið, að íbúar Sæbrautar hafí áhyggjur af verð- falli eigna sinna og við skulum ekki gera lítið úr því. En þær áhyggjur draga ekki úr mikilvægi þess, að einnig íbúar Sæbrautar fái að njóta þess forna réttar, sem jafnvel hin elstu norrænu lög tryggja mönnum: Heimilis- og helgidagafriðar. Sem sálfræðingur ætti forstöðumaður Sæbrautarheimilisins einnig að vita, að jafnvel einn einstakur, ógnvekj- andi atburður getur valdið geð- heilsu manna lang-, ef ekki ævar- andi tjóni. Sérstaklega eru börn viðkvæm, og atburðir sem þau skilja ekki, skapa í þeim öryggisleysi. Engar skýringar fullorðinna eða sérfræðinga nægja til að leysa þau úr viðjum þess. Ég ber mikla virðingu fyrir þes- um hópi hugsjónamanna, sem berj- ast fyrir rétti fatlaðra og vinnur illa launað eða ólaunað starf í þágu þeirra. En þeir mega ekki blindast svo af hugsjónum sínum, að þeir sjái engin önnur sjónarmið nema sín eigin. Við höfum engan rétt til að traðka á hinum heilbrigðu um leið og við beijum, fyrir velferð hinna sjúku. Því spyr ég: Hver er réttur hinna heilbrigðu í þessu máli? Tekur eng- inn málstað þeirra? Höfundur er ffl. mag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.