Morgunblaðið - 11.08.1990, Side 28

Morgunblaðið - 11.08.1990, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990 C fclk í fréttum Norð- maður- inn Svein Djume. Leitar skýringa á vinnusemi Islendinga að orð virðist fara af íslendingum erlendis að þeir séu með eindæm- um vinnusamir. Hér á landi er staddur Norðmaður, Svein Djume að nafni, sem er að kynna sér hvort eitthvað sé hæft í þessu. Djume er trún- aðarmaður starfsfólks í stærsta innlánsbanka Noregs, ABC bank. Bank- inn mun sameinast fimm öðrum norskum bönkum á næstunni. Var ákveð- ið að gera endurbætur á vinnuháttum í bankanum af þessu tilefni. Ákveð- ið var að leita fanga erlendis, að sögn Djume, og kom mönnum þá ísland í hug því þar væru menn svo vinnusamir. Djume sagðist hafa nokkrar tilgátur um hvemig á því stæði að Islendingar væru svona jákvæðir í garð vinnunnar og myndi hann reyna að sannreyna þær. Til greina kæmi að Islendingar hlytu vinnusemina í vöggugjöf og eins væri möguleiki að einhverjir þættir í uppeldi yllu þessu. Svo fannst Djume ekki ólíklegt að Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, hefði með einhveijum hætti þessi jákvæðu áhrif á landa sína. Djume dvelst hér á landi í viku og mun hann skila skýrslu um niður- stöður sínar þegar heim er komið. Hér ræðir hann við starfsmenn Félagsv- ísindadeildar Háskólans, stéttarfélög, forstöðumenn Vinnuskóla Reykjavík- ur og ýmsa aðila í atvinnulífinu. Morgunblaðið/RAX AFKÖST TILRAUN Kvikmynd um eigin vandamál Samskipti, sambúð og tvö hjóna- bönd þeirra Melanie Griffith og Don Johnsons hafa jafnan verið stormasöm, enda skapstórir lista- menn á ferðinni og á árum áður kom neysla fíkniefna við sögu. í seinni tíð er Melanie búin að afvatna og aflyfja sig og Don heldur í við sig eins og hann frekast getur. Gengur allt betur en nokkru sinni fyrr þrátt fyrir stöku hliðarspor Dons í kvenna- málum enda eftirsóttur og trúlega erfitt að standast allar freistingar. En þau gefa sig hvergi og benda á, að til marks um betri tíma og blóm í haga þá séu þau nú að vinna að sinni fyrstu kvikmynd saman, en hjón og sambýlisfólk hefur áður gert slíkt með góðum árangri. Má nefna Förm Fawcett og Ryan O’Neil og þau Goldie Hawn og Kurt Russel til marks um það. Slík samvinna hefur tengt hjón og sambýlisfólk enn sterk- ari böndum er sagt, og þau Don og Melanie ætla að freista hins sama. Kvikmynd þeirra heitir „Labor of Love“ og þykir lýsa betur en nokkur orð gangi mála í samskiptum þeirra í gegn um tíðina. Það er kannski kaldhæðnislegt, að myndin ergam- anmynd þar sem gert er grín að eigi ósvipuðum uppákomum og hafa hvað eftir annað nær riðið hjónabandi þeirra að fullu. ŒS5S ROD STEWART ENN YFIRGEFINN Rokkaranum Rod Stewart helst illa á sambýliskonum. Nú er þriðja sambýliskona hans, fyrirsæt- an snotra Kelly Emberg, farin frá honum eftir sjö ára sambúð. Hún hafði þriggja ára dóttur þeirra, Toby, með sér. Ástæðan fyrir þess- um hremmingum Rods í einkalífinu er að hann stenst ekki freistingarn- ar þegar hann er á hljómleikaferð- um. Kelly hefur ekki alltaf getað fylgt Rod vegna eigin starfa og þá flykkjast ungar og fagrar snótir að Rod með þeim afleiðingum að hann gleymir stað og stund. Fyrsta sambúð Rods var með kynbombunni Britt Ekland sem rúði hann inn að skinninu. Þar næst kom langur sambúðartími með Alönu Hamilton, eða Alönu Stewart eins og hún hefur ætíð kallað sig þrátt fyrir skilnað þeirra. Með Alönu átti Rod tvö börn sem alist hafa upp hjá móður sinni. Um síðir tók hann síðan saman við Kelly Emberg sem kom m.a. með honum hingað til lands um árið er rokkgoðið krýndi fegurðardrottningu íslands fyrir fullu húsi. ÁKVÖRÐUNARSTAÐUR STAÐSGTNING TÍMASGTNING UPPÁKOMUR HOLLYWOOD RGYKJAVÍK (JÖRÐIN) 23:04:37 LAUGARDAG HLJÓMSVGITIN AUDIO-2 /Á |fTuG 7 . - HOLLY 1 .. .. 1 | Íií Mjniiu KONGAFOLK Hertogaíj ölskyldan flytur HHertogahjónin af York í Bretlandi hafa í ýmsu að snúast. Auk tímafrekra skyldustarfa þurfa þau að sinna börnunum, Beatrice og Eugenie, og hafa eflaust hönd í bagga með framkvæmdum Laugavegi 45 • Sími 626120 Líttu við á L.A. Café Sjón er sögu ríkari Frábær skemmti- staður Kokkar: Eiríkur Friðriksson °9 Geiri Sæm STAÐUR MEÐ STÍL við framtíðarheimili fjölskyld- unnar í Berkshire. Búist er við að fjölskyldan flytji þangað í haust en fram- kvæmdum við bíósal og billj- ardherbergi er enn ekki lokið. Þá á eftir að ganga frá hest- húsi, sundlaugogtennisvelli. Hins vegar er búið að ljúka bamaálmunni og mála her- bergi systranna, Beatrice og Eugenie. Beatrice fær bleikt og ljósgult herbergi en Eug- enie blátt og ljósgult. Hertogahjónin, Andrés og Sara, með börnin tvö, Eug- enie, sem fæddist 23. mars, og Beatrice.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.