Morgunblaðið - 11.08.1990, Side 33

Morgunblaðið - 11.08.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990 33 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Fer ekki nema hluti fjár- hæðarinnar 1 þágu aldraðra? Til Velvakanda. Álagningarseðlarnir eru komnir í hendur landsmanna og minn í mínar hendur. Það var mér mikið undrunarefni þegar stóð á seðlinum að mér bæri að greiða 3.160 kr. í Framkvæmdasjóð aldraðra. Ég vissi ekki af þessum skatti en las um hann í grein Geirs H. Haarde Slysa- skattur orðinn að veruleika, sem birtist í Morgunblaðinu 8. ágúst. Þar segir að inn komi 340 milljónir króna en ekki nema hluti af því fari í Framkvæmdasjóð aldraðra og af- gangurinn í aðra starfsemi ríkis- sjóðs. Hvað er að gerast? Borgum við nú ekki nógu hátt hlutfall af tekjum til ríkissjóðs þó þetta bætist ekki við? Það sem gert er fyrir gamla fólk- ið er allt góðra gjalda vert - og mætti oft á tíðum vera meira. En ef það er rétt að ekki nema hluti þessara 340 milljóna fari í þágu þeirra krefst ég skýringa. Aldrei sá ég eða heyrði í fjölmiðlum um þetta gjald í Framkvæmdasjóð aldr- aðra fyrr en álagningarseðillinn var kominn í mínar hendur. Er ekki rétt að leyfa skattgreiðendum að fylgjast með því sem er að gerast og hvað gert er við þessar fjárhæð- ir sem teknar eru af þeim í þessu formi sem Geir hefur nefnt „slysa- skatt". Fullnægjandi skýringar hljóta að vera til í þessu máli. Skattgreiðandi Vilja menn álver eða ekki? Til Velvakanda. Akureyringar kvarta yfir slæmu ástandi í atvinnumálum og segja að ef ekkert komi til sem gæti breytt því þá stefni allt í voða í bæjarfélaginu. Og í þessu sambandi hafa margir nefnt álver staðsett í Eyjafirði sem hugsanlega gæti bjargað þessu bága atvinnuástandi. En svo skrifa á fjórða tug framá- manna búsettir í nágrenni Eyjar- fjarðar undir skjal þess efnis að álver við Eyjafjörð myndi stofna byggða- og atvinnuástandi á svæð- inu í hættu. Væri ekki ráð að ákveða hvað er best fyrir atvinnuástandið á þessum slóðum? Vilja menn álver eða vilja menn ekki álver? Helga Sigurðardóttir Illa drukknir unglingar eyðileggja fallegt umhverfi Til Velvakanda. Mér blöskrar sú umgengni sem viðhöfð var í Vaglaskógi um versl- unarmannahelgina og nú þarf líklegast að loka aðaltjaldsvæðum skógarins það sem eftir er sumars vegna þessa. Á svæðinu voru víst unglingar allt niður í 13 ára. Hvaða foreldrar eru það sem hleypa svo ungum börnum í slíka útilegu þar sem fyrir- fram er vitað að áfengi verður haft um hönd? Hvar er ábyrgð foreldr- anna? Ég styð þá hugmynd heilshugar að loka skóginum um verslunar- mannahelgar hér eftir, því það er ótækt að illa drukknir unglingar með enga virðingu fyrir umhverfi sínu fái að spilla og eyðileggja fal- legt útivistarsvæði. Það eru ófagrar lýsingarnar sem komið hafa fram í fjölmiðlum um skemmdir þær sem unnar voru þarna. Og svo bitnar þetta á fólki sem einungis vill njóta fegurðar og útivistar þegar þarf að loka svæðinu það sem eftir lifir sumars. Magnús Jónsson Þessir hringdu . . Góðir þættir á Stöð 2 Björn Ingi hringdi: „Stöð 2 sýnir á sunnudags- kvöldum þætti sem heita „Capital News“ eða í fréttum er þetta helst. Ég vil þakka fyrir þessa þætti sem mér finnast vera mjög góðir." Fullsnemmt að minna á jólin Guðjón hringdi: „Er nú ekki fullsnemmt að minna á jólin um mitt sumar. í útvarpinu um daginn var verið að leika jólalög með Elvis Presley og nú eru komnar jólahannyrða- vörur í útstillingaglugga verslun- ar í miðbænum. Eigum við ekki að leyfa sumrinu að líða áður en jólafárið byrjar?" Hjól í óskilum Nýtt karlmannshjól, svart og blátt, er í óskilum. Upplýsingar í síma 14530. Týndlæða Grábröndótt ómerkt læða, 5-6 mánaða, hvarf frá Álfheimum 56, fimmtudaginn 2. ágúst. Þeir sem hafa orðið læðunnar varir eru beðnir að hringja í Hafdísi í síma 681147 eða 672255. Kötturtýndur Grábröndóttur fressköttur með hvítar loppur og bringu hvarf frá heimili sínu í Kópavoginum. Kött- urinn er eyrnamerktur ROH114. Þeir sem vita um hann eru beðnir að hringja í síma 40867. Tapaði myndavél Canon-myndavél tapaðist á Leggjabrjótsleið, austan til, um síðustu helgi. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 657935. Munir í óskilum Á skiptiborði Tryggingastofn- unar ríkisins eru í óskilum litlir nýir bláköflóttir barnaskór og gleraugu (hálf) í vönduðu grá- brúnu hulstri. Eigendur geta hringt í Tryggingastofnun í síma 604400. Myndavél tapaðist Pentax-myndavél tapaðist á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Finnandi hringi í síma 652761. BMX-hjól hvarf BMX turbo-hjól, svart án lukt- ar, hvarf frá Byggðarenda aðfara- nótt sunnudags. Þeir sem vita um hjólið eru beðnir að skila því til Braga Bergþórssonar eða hringja í síma 33979. Geta farið í bað 365 daga ársins Karl hringdi: „Fyrir stuttu var spurt í Vel- vakanda um baðaðstöðu fyrir þá sem hefðu ekki bað heima fyrir. Sundlaugin á Hótel Loftleiðum er opin til kl. 21.30 alla virka daga og opin fyrir almenning alla 365 daga ársins. Fólk ætti því ekki að vera í vandræðum með að kom- ast í bað.“ Kettlingur hvarf Grár lítill kettlingur hvarf frá Unnarsbraut 4 á Seltjarnarnesi. Þeir sem vita um kettlinginn eru beðnir að hringja í síma 611205 á kvöldin. Tapaði dökkbláum kvenjakka Dökkblár kvenjakki tapaðist í júní/júlí í Reykjavík. Jakkinn er úr ull og poliester, nr. 10 með gylltum hnöppum frá Glenwick- fyrirtækinu. Finnandi er beðinn að hringja í Margréti í síma 79552. Fundarlaunum er heitið. Kringlan heldur upp á þriggja ára afmælið NÚ ERU liðin þrjú ár frá því að rekstur hófst í Kringlunni og þar með voru innleiddir nýir verslun- arhættir á Islandi. Af þessu til- efni verður afinælisstemnming í Kringlunni eftir hádegi mánu- daginn 13. ágúst. 1 Kringlunni geta viðskipavinir gert á sama stað öll hélstu inn- kaup; farið á veitingastaði, fengið ýmsa þjónustu, eins og póstþjón- ustu, bankaþjónustu, fatahreinsun, leigu á tækjum, ferðaþjónustu, verðbréfaþjónustu og heilbrigðis- þjónustu. Til að koma til móts við óskir viðskiptavina er afgreiðslutími í Kringlunni annar en áður hefur tíðkast hér á landi. Verslanirnar eru opnar mánudaga til föstudaga frá kl. 10.00-19.00 og til kl. 16.00 á laugardögum, nema í júlí og ágúst eru verslanir opnar til kl. 14.00 á laugardögum. Matvöruverslun Hagkaups er opin til kl. 19.30 á föstudögum. Veitingastaðirnir eru ennfremur opnir á kvöldin og á Mýrdalsjökull: Skíðalyfta opin í ágúst SKÍÐALYFTA Ungmennafélags- ins Drangs í Vík í Mýrdal verður opin í ágúst en lyftan er um 12 kílómetra frá þjóðveginum, að sögn Ástu Stefánsdóttur, sem sæti á í stjórn skíðalyftunnar. Ásta Stefánsdóttir sagði að um tveggja klukkustunda akstur væri frá Reykjavík að skíðalyftunni og vegurinn frá Vík í Mýrdal að lyft- unni væri fær öllum fjórhjóladrifn- um bílum. Skíðaiyftan, sem er um 350 metra löng toglyfta, er opin frá klukkan 11 til 18 um helgar. Full- orðnir þurfa að greiða 500 krónur til að komast í lyftuna en börn 300 krónur. Skíðalyftan var sett upp í fyrrasumar og var þá opin um helg- ar í júlí og ágúst. sunnudögum, skyndibitastaðirnir til kl. 20.00 og Hard Rock Café til kl. 23.30. Á afmælisdaginn, sem er 13. ágúst nk., koma eftir hádegi í heim- sókii í Kringluna félagar frá Cirkus Espania, Rokklingarnir skemmta og Kátir krakkar sýna dans. Það verður leikið við börnin, þau máluð og sett verða upp leiktæki, bæði innandyra og fyrir utan húsið. Boð- ið verður upp á Coca Cola og dreift verður Kringlublöðum, fánum o.fl. __ í tilefni dagsins verða sumar versl- anir og veitingastaðir með sérstök afinælistilboð. díV TRÉVERK í allt húsið óskum viöskiptavina eldshúsinnréttinpar, fataskápa, baðinnréttingar og sólbekki. Leitió tilboóa. Eigum baóinnréttíngar á lager. Sjáum um uppsetningu efþarf. Innanhússarkitekt til aðstoðar á staðnum. VV innréttingar, Dugguvogi 23, sími 35609, gæðanna vegna. Opið í dag frá kl. 10-16. Blaðberar óskast Sími691253 AUSTURBÆR Skipholt 1 Ubiti* í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI SÖSybo«.9si

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.