Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
26 punda lax af
Iðunni - 25 punda
úrSoginu
MIKIÐ hefur veiðst af stórlöxum fyrir austan
Pjall að undanförnu. Á fimmtudaginn veidd-
ist t.d. 26 punda hængur á maðk á Iðunni og
í síðustu viku leið ekki sá dagur að það veidd-
ust ekki 2-3 fiskar um og yfir 20 pund, flest-
ir um 20 en einnig nokkrir 22 punda, einn
25 punda og svo sá stærsti sem Birgir Sumar-
liðason veiddi. Eru þá tveir 26 punda laxar
stærstir yfír landið í sumar, en áður hafði
Bandaríkjamaður veitt 26 punda lax á Prest-
hyl í Laxá í Aðaldal. Birgir sagði í samtali
við Morgunblaðið að mikill lax væri nú við
Iðuna og ótrúlega margt af stórfíski. Komnir
væru hátt í 400 fiskar á land og ef veiðin
yrði jöfn út veiðitímann næðust líklega um
600 laxar af svæðinu sem er mjög gott.
Þá veiddist í síðustu viku tæplega 25 punda
hængur í Soginu fyrir landi Alviðrr. og var
það annar fískurinn af þeirri stærð sem þar
veiðist síðustu daga. Veiðimaður óskaði nafn-
leyndar og skal það virt, en hann sagði veið-
ina batnandi eftir doða framan af. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru nú komnir á
þriðja hundrað laxar á land. Auk þess veidd-
ist 24 punda hængur í Ölfusá fyrir landi
Laugarbakka fyrir skömmu. Af þessu má
ráða, að meira er af yfírþungávigtarlöxum í
sumar en í langan tíma.
Birgir Sumarliðason með 26 punda laxinn sem hann veiddi
á Iðunni.
VEÐURHORFUR í DAG, 4. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Um 300 km suðaustur af Horrtafirði er 988 mb
lægð sem rétt þokast austur og hæðarhryggur yfir Grænlandshafi
nétgast landið. Við suðvesturströnd Grænlands er 990 mb lægð
sem þokast austur.
SPÁ: Á morgun verður fremur hæg breytileg átt um mest allt land
og léttir vfða til noröanlands, en þykknar upp með suðaustangolu
vestantil á landinu. Víða dálitiðsúld eða rigning vestanlands er líður
á daginn. Heldur hlýnandi veður, fyrst suövestanlands.
•JO Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
» , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
r r r r Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að M tíma
hhl vcftur
Akureyri Reykjavik ð 8 alský|aö skýjað
Bergen 17 atekýjað
Helslnki 14 sknað
Kaupmannahöfn 15 rtgnhtg
Narssarssuaq 7 rignlng
Nuuk 2 rigning
Óstó 13 rigning
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 12 skúr
Algarve 28 léttskýjað
Amsterdam 21 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Ðerifn 20 tóttskýjað
Chioago 17 tóttskýjað
Feneyfar 24 hálfskýjað
Frankfurt 18 alskýjað
Qlasgow 15 hálfskýjað
Hamborg 19 skýjað
LasPalmas 27 hálfskýjað
London mmsi! skýjað
LosAngeles 17 helðskirt
Lúxemborg 19 skýjað
Madríd 28 léttakýjBð
Malaga 27 léttskýjað
MaHorca 28 léttskýjað
Montreal 12 léttskýjað
NewYork vantar
Orlando vantar
Parrs vantar
Róm 26 hálfskýjað
Vin 17 skúr
Washíngton vantar
Winnipeg 22 leiftur
Stefan G. Bjömsson fyrrv.
framkvæmdasljóri látinn
STEFÁN G. Björnsson fyrrver- -—-----
andi framkvæmdastjóri Sjóvár
lést á Hvítabandinu að morgni
sunnudagsins 2. september, 84 ára
að aldri. Hann átti við vanheilsu
að stríða síðustu æviár sín.
Stefán G. Bjömsson fæddist 17.
júní 1906 á Djúpavogi, sonur hjón-
anna Þórarins Bjöms Stefánssonar
verslunarstjóra og Margrétar Katrín-
ar Jónsdóttur. Stefán varð gagn-
fræðingur frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1922 og réðst sem skrif-
stofumaður og gjaldkeri í Vátrygg-
ingastofu A.V. Tuliníusar sama ár..
Hann var ráðinn skrifstofumaður hjá
Sjóvártryggingafélagi íslands 1925.
Hann var skrifstofustjóri og aðal-
gjaldkeri Sjóvár 1938-1957 og fram-
kvæmdastjóri 1957-1971. Hann var
jafnframt annar framkvæmdastjóri
Könnunar hf. 1968-1971. Stefán var
skipaður endurskoðandi Happdrættis
DAS frá 1973 og Vöruhappdrættis
SÍBS frá 1974 og gegndi þeim störf- -
um meðan heilsa leyfði.
Stefán sat í fjölda stjóma og
nefnda um ævina. Hann var fyrsti
stjórnarformaður Sambands
íslenskra tryggingafélaga, var um
tíma stjórnarformaður Sambands
brunatryggenda og sat í stjóm ís-
lenskrar endurtryggingar, Verzlun-
arráðs Islands og Björgunarfélagsins
hf. svo eitthvað sé nefnt. Hann sat
í stjórn Verslunarmannafélags
Stefán G. Björnsson.
Reykjavíkur 1937-1944.
Stefán var einn stofnenda og síðar
forseti Rótaryklúbbsins Reykjavík-
Austurbær. Hann starfaði einnig
mikið að íþrótta og æskulýðsmálum,
var um tíma formaður Skíðafélags
Reykjavíkur og í stjóm Glímufélags-
ins Ármanns. Stefán var sæmdur
gullmerki ÍSÍ 1956 og heiðursorðu
ISÍ 1966. Hann var einnig sæmdur
gullstjömu ÍBR og var heiðursfélagi
fjölda félaga og samtaka.
Eftirlifandi eiginkona Stefán G.
Bjömssonar er Sigríður Jónsdóttir
og eignuðust þau þijá syni.
Stefan Krisijánsson
íþróttafulltrúi látinn
STEFAN Kristjánsson, íþrótta-
kennari og fyrrum íþróttafulltrúi
Reykjavíkurborgar, er látinn 66
ára að aldri.
Stefán fæddist á Húsavík þann
30. júní 1924, sonur hjónanna Kristj-
áns Péturssonar og Jóhönnu Numa-
dóttur. Hann lauk prófi frá Héraðs-
skólanum að Laugum 1941 og íþrót-
takennaraprófi 1942. Einnig lauk
hann prófí frá Kungl. Gymnastiska
Centralinstitutet í Stokkhólmi. Hann
kenndi íþróttir við Laugamesskóla,
gagnfræðaskóla borgarinnar og við
Kennaraskólann en varð íþróttafull-
trúi Reykjavíkur 1965. Hann lét af
því starfí 1985 og sinnti. eftir það
ýmsum verkefnum fyrir borgina, svo
sem undirbúningi afmælishátíða
borgarinnar.
Stefán Kristjánsson starfaði við
þjálfun ýmissa íþróttagreina hjá
Glímufélaginu Ármanni og var þjálf-
ari landsliðs íslendinga í fijálsum
íþróttum 1955-1957. Hann sat í
stjóm FRÍ 1957-1959 og í stjóm
Stefán Krisljánsson.
Skíðasambands íslands 1964-1970.
Hann var formaður Skíðasambands-
ins 1964-1970.
Eftirlifandi eiginkona Stefáns
Kristjánssonar er Kristjana Jónsdóttir.
Magnús Olafsson
fyrrv. yfírlæknir látinn
MAGNÚS Ólafsson læknir lést í
Landspítalanum sunnudaginn 2.
september sl., 63 ára að aldri.
Magnús fæddist í Vestmannaeyj-
um 1. nóvember 1926 og voru for-
eldrar hans Ólafur Magnússon
stud.med. og ritstjóri þar og kona
hans, Ágústa Hansína Petersen.
Magnús varð stúdent frá MR 1946
og lauk embættisprófí í læknisfræði
frá Háskóla íslands 1953. Hann var
aðstoðarborgarlæknir f Reykjavík
1953-1954. Hann stundaði fram-
haldsnám í lyflækningum í Banda-
ríkjunum 1954-1958 og síðar einnig
í hjartasjúkdómum í Bretlandi. Hann
var læknir við Borgarspítalann
1958-1961 og yfirlæknir á Hrafnistu
1961-1974. Þá var hann skólalæknir
í Reykjavík og trúnaðarlæknir m.a.
Ríkisútvarpsins. Hann starfaði ein-
göngu að hjartasjúkdómum síðari
árin.
Magnús sat í stjórn Læknafélags
Reykjavíkur 1960-1968 og Hjarta-
sjúkdómafélags íslenskra lækna
1971-1973. Hann var formaður
samninganefndar sérfræðinga
1961-1965. í ritstjórn Læknablaðs-
ins sat hann 1962-1968. Þá var hann
formaður stjórnar húsfélags Domus
Medica, en þar var lækningastofa
hans. Auk stafa sinna í þágu lækna
sinnti Magnús mörgum félagsmála-
störfum. Hann var fulltrúi Vöku í
stjóm stúdentaráðs Háskóla íslands
á námsárunum. Hann var formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur og
síðar ritstjóri tímarits þess, Veiði-
mannsins, frá 1980.
Eftirlifandi eiginkona Magijúsar
er Anna G. Stefánsdóttir og eiga þau
tvo uppkomna syni. Magnús lætur
auk jioss eftir sig eina dóttur.