Morgunblaðið - 04.09.1990, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 04.09.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990 17 Birgir Björn Sigurjónsson Með bráðabirgðalögun- um nú er farin ný leið. Lögin eru að ytra byrði almenn en í reynd sér- lög á félagsmenn BHMR. Lögin beinast ekki gegn stéttarfélagi í kjaradeilu heldur gegn gildandi kjara- samningi.“ manna og félaga er ákvæðið þýð- ingarlítið. Auðvitað hlýtur 73. grein- in að veija lögmæta gerninga félaga fyrir félagsmenn. Frelsið að fá að vera í stéttarfélagi er léttvægt ef ríkið getur gert samninga þess að engu. Þess vegna hlýtur að felast í þessu stjórnarskrárákvæði fyrirheit um vörn á almennum félagaréttind- um. Almenn samningalög byggja á svonefndri jafnræðisreglu milli aðila. Þannig getur komið til þess að samn- ingi megi rifta ef annar aðila notar sér t.d. vankunnáttu eða öngvit hins. Varla getur ríkisstjórnin réttlætt bráðabirgðalögin með því að halda fram að hún hafi ekki haft burði til að skilja samning sinn við BHMR- félögin jafnvel þó satt væri. Hitt er ekki síður ljóst að með jafnræðisregl- unni er örugglega átt við að annar af tveimur samningsaðilum geti ekki þegar honum hentar rift samningi. Tilvísun ríkisstjórnarinnar í óskir þriðja aðila (t.d. ASÍ) um riftun samningsins gera málstaðinn engu betri. Þar sem Alþingi hefur með lögum nr. 94/1986 veitt stéttarfélög- um opinberra starfsmanna samn- ingsrétt fær það ekki staðist að ríkið geti numið eigin samning úr gildi þegar því hentar. Þessi bráðabirgða- lög eru tákn um grófa misbeitingu valds sem ekki á heima í réttarríkinu. Lög á samninga BHMR eru sérstök Þegar bráðabirgðalög hafa verið sett í sambandi við kjaramál hafa þau undantekningalítið annað tveggja beinst gegn öliu launafólki á sama hátt eða gegn launamönnum í einu stéttarfélagi í kjaradeilu sem þá hefur verið sett undir gerðardóm. Með bráðabirgðalögunum nú er farin ný leið. Lögin eru að ytra byrði almenn en í reynd sérlög á félags- menn BHMR. Lögin beinast ekki gegn stéttarfélagi í kjaradeilu heldur gegn gildandi kjarasamningi. Það er einnig sérstakt að framkvæmdavald- ið er annar aðiii að samningnum sem það beitir lagasetningarvaldi gegn. Með lögunum er félagsmönnum BHMR í fleiru en einu tilliti gerður lakari kostur en almennt hefur verið samið um af öðrum. Þannig er BHMR boðið uppá „launanefnd" en BHMR getur ekki sagt upp samningi í kjölfar endurskoðunar eins og önn- ur stéttarfélög geta. Þá eru með bráðabirgðalögunum numin úr gildi samningsákvæði um leiðréttingu á kjörum félagsmanna BHMR — ekki aðeins á tímabili „þjóðarsáttar" held- ur endanlega. Leiðrétting kjara var forsenda þess að verkfalii samflotsfé- laga BHMR lauk 18. maí 1989. Með þessari lagasetningu hefur ríkis- stjómin rofið friðinn við starfsmenn sína. Réttarríkið Bráðabirgðalögin bera fyrst og fremst vott siðblindu höfundanna, ríkisstjórnarinnar, sem kann ekki grundvallarreglur þessa samfélags. Teiur ríkisstjórnin sig e.t.v. geta sett bráðabirgðalög sem breyta kjörum á öllum útgefnum ríkisskuldabréfum frá útgáfudegi til þessa dags þannig að raunvextir lækki um 4,5%? Rakar- inn minn skynjaði ástandið þannig: „Eg á nokkur ríkisskuldabréf heima. Er nokkuð að marka undirskrift þessara manna lengur?“ Ef ríkisstjórnin gengur fram fyrir skjöldu þeirra sem ekki standa við samninga sína þá munu margir telja sér leyfilegt að gera slíkt hið sama. Réttarríkið byggir á því að menn standi við samninga sína og lög þess eru leikreglur og dómstólar til að fylgja þeim eftir. BHMR mun leiða ráðherra ríkisstjórnarinnar fyrir alla þá dómstóla sem með þarf. Þegar til kosninga kemur munu kjósendur ekki ljá þeim umboð á ný. Það er öruggasta vörnin gegn andstæðing- um lýðræðisins. Höfundur er hagfræðingur og framkvæmdastjóri BHMR. Vinningstölur laugardaginn 1. sept. 1990 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 2.072.219 2. íS'S# 4 90.041 3. 4af 5 129 4.816 4. 3af 5 3.609 401 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.500.856 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Reykjavík : Brautarholt 4, Ölduselsskóli, Drafnarfell 4, Ársel, Fjörgyn Mosfellsbær: Hlégarður Símar: 20345 og 74444 Hafnarfjörður: Gúttó milli klukkan 13-19 daglega Hveragerði Sími: 91-74444 Grindavík Sími: 68680 Selfoss milli klukkan Keflavík milli klukkan 13-19 daglega Garður Sandgerði 20-22 daglega HEIÐARS ASTVALDSSONAR B m JAR ANSINN Við erum að byrja innritanir í danskennslu okkar í vetur þar sem allir dansar eru í boði s.s. Barnadansar. Allir samkvæmisdansar. Gömludansarnir. Nýjustu diskódansarnir. Freestyle dansar ofl. ofl. INNRITANIR - KENNSLUSTAÐIR: Kennsla hefst föstudaginn 14. september Dansskóli Raðgreiðslur VISA Keppmshopur i samkvæmisdönsum barna í Reykjavík 5 tíma námskeið í nýjasta^ diskódansinum Hip Hop Kennari Ad Van Otstal frá\ JNY**' Hollandi (allir aldurshópar) 0-"''''" 5 tíma námskeið í Soca Það allra nýjasta. Soca dansinn hefur fengið frá- bærar viðtökur víða erlendis. Kennari Ad Van Otstal. (allir aldurshópar). Rokkskólihá Kennt verður í Brautarholti 4 á föstudögum. Gestakennari: Harald Liese frá Þýskalandi. Hann er í heimsmeistarahópi í Mynstrudansi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.