Morgunblaðið - 04.09.1990, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 04.09.1990, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990 7 Heimsmeistaramót í brids: Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Við undirritun samningsins, frá vinstri: Krislján Björnsson, formað- ur Orðtaks hf., Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Steingrímur Steinþórsson, framkvæmdastjóri Orðtaks hf. og Björn Friðfinnsson, ráðuneytissljóri viðskiptaráðuneytisins. Hlutafélagaskrá tölvu- skráð á Hvammstanga íslenskt par í 10. sæti af tæplega 600 keppendiim HJÖRDÍS Eyþórsdóttir og Valur Sigurðsson enduðu í 10. sæti í para- keppni heimsmeistaramótsins í brids, sem nú fer fram í Genf í Sviss. Alls tóku 574 pör þátt í parakeppninni. Sigurvegarar urðu Juanita Chambers og Peter Weichsel frá Bandaríkjunum en Eva- Liss Göthe og Lars Andersson frá Svíþjóð urðu í 2. sæti. Hvammstanga. Á HVAMMSTANGA var undir- ritaður þann 1. september samn- ingur milli viðskiptaráðuneytis- ins og Orðtaks hf. um tölvuskrán- ingu á hlutafélagaskrá. Við það tækifæri lýsti viðskiptaráðherra yfir ánægju sinni með stofnun Qarvinnslustofu á Hvammstanga og gaf vonir um frekari samn- inga. Það voru viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, og framkvæmdastjóri Orðtaks hf., Steingrímur Steinþórs- son, sem undirrituðu samninginn, en þetta verk er stærsta verk sem Orðtak hf. hefur tekið að sér. Verk- ið skal vinnast á tímabilinu ágúst til desember 1990. Ráðherra sagði m.a. að oft hefði verið talað um að færa verkþætti sem þennan út á landsbyggðina, Kristján Ó. Skagíjörð: 12 marins sagt upp við endur- skipulagningu NÝTT skipulag á fyrirtækinu Kristján Ó. Skagfjörð tók gildi um mánaðamótin. Hefur fyrirtækinu verið skipt niður í fimm deildir og starfsmönnum fækkað um tólf. Að sögn Aðalsteins Helgasonar, framkvæmdastjóra, var ákveðið að taka saman stefnu fyrirtækisins og . síðan gera skipulag sem tæki mið af þeirri stefnu. Væri helsta mark- mið breytinganna að efla sölu- og markaðsstarf og hefði fyrirtækinu verið skipt í fimm deildir: Tölvudeild, veiðarfæradeild, fjárhagsdeild, þjón- ustu- og lagerdeild og matvöru- og byggingardeild. Við þessa endur- skipulagningu hefði starfsmönnum fækkað í öllum deildum fyrirtækisins þó mest í tölvudeild. „Það að stars- fmönnum fækkar mest í tölvudeild er vegna þess að ákveðið var að hætta að framleiða hugbúnað og í staðinn leita samstarfs við hugbún- aðarhús úti í bæ um þau mál,“ sagði Aðalsteinn. en hér hefðu komið framkvæmdir í stað orða. _ Karl Um 3.000 bridsspilarar keppa um sjö heimsmeistaratitla í brids á mótinu í Genf, og taka íslendingar þátt í keppni um fjóra þeirra. Sex pör keppa í opinni tvímennings- keppni og tvö pör í kvennaflokki og tvær sveitir keppa í útsláttar- keppni sveita. Tvö pör tóku svo þátt í parakeppninni sem lauk á sunnudag. Fyrir mótið var haldið þing Al- þjóðabridssambandsins þar sem Denis Howard frá Ástralíu var end- urkjörinn forseti. Gengu þá fulltrú- ar Evrópu úr þingsalnum, en þeir höfðu barist mjög gegn kjöri How- aíds og vildu að Jose Damiani, for- seti Evrópubridssambandsins yrði kjörin forseti í staðinn. Damiani, sem heimsótti ísland sl. vetur, lýsti því yfir eftir fundinn að klofningur heimssambandsins væri yfirvofandi innan sex mánaða ef ekki tækist að jafna ágreininginn. Howard hef- ur setið undir miklu ámæli Evrópu- manna fyrir að ákveða að flytja Heimsmeistaramótið árið 1992 frá Sevilla á Spáni. Flugfax: Farmgjöld frá Amsterdam lækka um 10% FLUGFAX hf. hefur lækkað farm- gjöld í leiguflugi frá Amsterdam um 10%. Að sögn Bjarkar Eiríks- dóttur, skrifstofustjóra fiugfé- lagsins, er lækkunin vegna auk- inna flutninga og hagstæðari samninga við þjónustuaðila í Evr- ópu. Leiguvélar frá Pan Am-flugfélag- inu fljúga einu sinni í viku á leiðinni Amsterdam-Reykjavík á vegum Flugfax. Björk sagði að lækkunin kæmi ekki við breytingum á áætlun- arflugi til Amsterdam, en Flugleiðir fljúga nú þangað í stað Arnarflugs um tveggja mánaða skeið. Björk sagði að þessi 10% lækkun kæmi einnig á farmgjöld á flutninga- leiðum frá Amsterdam til Parísar, Brussel og Frankfurt. Má bjóða þér örlitla Sebamed fæst í apótekinu, Tillagan er algjórlega raunhœf því hvort sem þú veistþaó eða ekki, þá er húðþín núþegarþakin þunnu náttúrulegu sýrulagi, sem Sebamed verndar og viðheldur. Sýrulagið, eins ogþaó er oft kallað, heldur húðinni mjúkri ogheilbrigðri. Þetta lager einnigfyrsta vórngegn bakteríum, sveþþum, vírusum og eyðileggingaráhrifum frá loftslagi. Sýrulagið hefurþH-gildió 5.5, sem er einmittþaó sama og þH-gildiMmtÚ húðhreinsivaranna. Venjulegsápahefuraftur á móti pH-gildi 10-11 (erbasísk) og eyðileggurþví náttúrulegar varnir húóarinnar. Lágt pH-gildi Sebamed gerirþær að frábœrum húðhreinsivörum fyrirþá, sem ekkiþola venjulega sápu, þvo sér oft, hafa óhreina húð eóa þá, sem vilja vernda húóina og heilbrigði hennar. Sebamed hreinsar á mildan hátt og er án sápu og skaólegs basa. Sebamed erþróað ísamvinnu vió húðsjúkdómalœkna og veldurekki ofnæmi. Sebamed húðhreinsivórurnar eru til ífóstu ogfljótandi formi. Sebamed fljótandi léttsápan erþykk ogfreyðir hæfilega. Ilmurinn ö/Sebamed erbæði mildur ogþægilegur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.