Morgunblaðið - 04.09.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 04.09.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990 Aðalfundur Stéttarsambands bænda: Oæskilegt að loðdýra- rækt leggist af í landinu Á AÐALFUNDI Stettarsam- bands bænda, sem lauk síðastlið- inn föstudag, urðu miklar um- ræður um stöðu loðdýraræktar- innar. Harmar fundurinn hvern- ig tekist hefur til með þessa til- raun til nýrrar atvinnusköpunar á landsbyggðinni, en þrátt fyrir mikla og ófyrirsjáanlega erfið- leika í búgreininni telur fundur- inn þó ekki rétt að hún leggist af. í samþykkt fundarins er bent á að fyrirsjáanlegt að þær ráð- stafanir, sem gerðar hafa verið og í gangi eru til bjargar bú- greininni, dugi ekki til að tryggja rekstur hennar nema út þetta framleiðsluár. í ályktun fundarins er bent á að með fyrirsjáanlegri fækkun loð- dýrabænda á komandi hausti sé nær útilokað fyrir þá fáu bændur sem eftir verða að halda áfram rekstri fóðurstöðvanna. Því virðist nauðsynlegt að Byggðastofnun og ríkissjóður tryggi á einhvern hátt þann rekstur á meðan erfiðleikar ganga yfir í búgreininni, þannig að fóðurkostnaður verði ekki hærri en sem nemi 60-70% af meðaltals- skinnaverði í landinu. Þá viil fund- urinn að ríkisábyrgð vegna breyt- inga á lausaskuldum loðdýrabænda, sem unnið hefur verið að á þessu ári, verði hækkuð til samræmis við lánskjaravísitölu frá gildistöku laga þar að lútandi þar til skuldbreyting- in fer fram. Meðal annars sem aðalfundurinn leggur til að gert verði til aðstoðar loðdýraræktinni, er að ákveðið verði fyrir lok september að greiða jöfn- unargjald á loðdýrafóður á næsta ári með sama hætti og gert hefur verið á þessu ári, og verði gjaldið ekki lægra en 8 kr. á hvert kíló fóðurs. Þá verði fyrirgreiðslu þeirri, sem Framleiðnisjóður landbúnaðar- ins hefur haft með höndum í sumar varðandi afurðalán loðdýrabænda, haldið áfram á framleiðslu ársins 1991, en jafnframt verði leitað leiða til að tryggja að loðdýrabændur eigi kost á svo hagkvæmum afurða- lánum sem mögulegt er. Einnig verði unnið að því að rýmka frekar heimild í lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins til þess að afskrifa stofnlán og verðbætur af lánum til loðdýrahúsa að því marki sem fé hennar leyfir, og gjaldtaka af rekstri loðdýrabúa, svo sem að- stöðugjöld og fasteignagjöld verði felld niður eða endurgreidd meðan erfíðleikatímabil loðdýraræktarinn- ar gengur yfír, en verði síðan endur- skoðuð og færð til samræmis við gildandi reglur í samkeppnislönd- um. Mörkuð verði byggða og búsetustefna Aðalfundur Stéttarsambandsins krefst aðgerða vegna fýrirsjáan- legrar byggðaröskunar ef sam- dráttur verður í sauðíjárframleiðslu til samræmis við þarfir innanlands- markaðar, en slíkur samdráttur er talinn nema á annað þúsund árs- verkum í landbúnaði og þjónustu- greinum honum tengdum. Gerir fundurinn þá kröfu til stjórnvalda að áður en til þess kemur verði mörkuð ákveðin byggða- og búsetu- stefna, sem meðal annars taki mið af landnýtingarsjónarmiðum, en meðan unnið sé að langtímamark- miðum varðandi byggðaþróun sé brýnt að fullnýta þau tækifæri sem gefist til atvinnusköpunar. í því sambandi telur fundurinn meðal annars að efla eigi markaðsfærslu og vöruþróun í ferðaþjónustu, fjöiga fjarvinnslustofum í dreifbýli, nýta silungsveiði í vötnum ásamt bieikju- eldi, koma á námskeiðum fyrir skólabörn, og stuðla að svæðis- bundnum átaksverkefnum í at- vinnusköpun. Kraftar þeirra sem stuðlað geti að uppbyggingu at- NYJASTA ENSKA ORÐABOKIN 1.116 blaðsíður - handhæg og notadrjúg. Kynningarverð til áramóta kr. 1.600. ORÐABOKAUTGAFAN Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, í ræðustól á aðalfundi Stéttarsambandsins. vinnutækifæra verði sameinaðir í þessu skini, og komi leiðbeininga- og rannsóknastarfsemi í landbúnaði inn í þá mynd. Jarðakaupasjóður verði stórefldur Á aðalfundinum var samþykkt að fela stjórn Stéttarsambandsins að hlutast til um það við ríkisstjórn og Alþingi að Jarðakaupasjóður verði stórefldur og hlutverki hans aukið, þannig að hann verði einnig lána- og styrktarsjóður fyrir sveit- arfélög til að gera þeim kleift að festa kaup á þeim jörðum, sem sveitarfélögum er boðinn forkaups- réttur á, og nauðsynlegt þykir að tryggja að eignarhald á þeim innan viðkomandi sveitarfélags. Kindakjöt selt nýtt Markaðsmál kindakjöts voru talsvert rædd á aðalfundi Stéttar- sambandsins, og leggur fundurinn áherslu á að unnið verði markvisst að þeim málum. í því sambandi telur fundurinn að skipuleggja verði slátrun, vinnslu og dreifingu með skilvirkari hætti en nú er gert, og bendir sérstaklega á nauðsyn þess að örva sölu á ferskum sauðfjára- furðum í sláturtíð. Virðisaukaskattur af heimteknum afurðum Nokkrar umræður urðu á aðal- fundinum um tillögu varðandi virð- isaukaskatt, sem bændum er gert að greiða af heimteknum og heima- notuðum afurðum, en fram kom sú skoðun að sú ráðstöfun geti hvatt mjögtil heimaslátrunar. Telurfund- urinn óviðunandi að bændur þurfi að greiða fullan virðisaukaskatt af þessum afurðum, en njóti engra niðurgreiðslna á þeim eins og hinn almenni neytandi gerir, og vill að unnið verði að leiðréttingu á þessu misrétti. Vsk. beint til kartöflubænda Tillaga um að skora á stjórn Stéttarsambandsins að vinna að því að endurgreiðsla á virðisaukaskatti á kartöflur verði greidd beint til bænda en ekki á heildsölustigi var # GÍTARSKÓUNN Hólmaseli 4-6 (Tónskóli Eddu Borg), sími 73452 ^ SÍMANÚMER ^ 73452 Innritun og upplýsingar alla daga í síma 73452 frá kl. 13.30-19.00. • 12 vikna námskeið • Stúdíóupptaka í lok námskeiðs • Byrjendur, rokk, popp, blús, jass, funk, þjóðlagagítarleikur, heavy metal. • Undirbúningsnám fyrir FIH-skólann • Bandaríski gítarleikarinn Cris Ambler Stebbi Siggi Gummi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.