Morgunblaðið - 04.09.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
13
t-
og hér munu heyrnarlausir njóta
góðs af, t.d. í gegnum almennar
tölvur og önnur fjarskipti. Nú þegar
er sá möguleiki fyrir hendi að
heyrnarlausir hringi víða um heim
í sérhannaðan síma tengdum tölvu-
skjá og tali saman innbyrðis með
aðstoð lyklaborðsins. Ennfremur
geta þeir víða hringt í sérstaka
miðstöð og beðið um, að hringt sé
áfram í einhvem sérstakan heyr-
andi og sér þá miðstöðin um að
koma boðum til viðkomandi og
túlka samtalið. Viðkomandi túlkur
er þá bundinn þagnarskyldu.
Hér er mikið verkefni við að að-
stoða heyrnarlausa við að verða sér
úti um þessi tæki og koma upp
miðstöð einsog annars staðar með
túlkunarþjónustu og mætti það
heyra undir Samskiptamiðstöð.
Það þarf ekki mikið hugmynda-
flug til að sjá hvflík framför þetta
er, því að hér er rofin mjög illkynj-
uð einangrun, sem gert hefur líf
hins heyrnarlausa að martröð á
köflum og hann að annars flokks
borgara.
Nú myndi Alexander Graham
Bell vafalítið brosa út undir eyru,
ef hann vissi af þróuninni, því að
það var einmitt vegna viðleitni hans
við að auka tjáskiptamöguleika
hinna heyrnarlausu, sem gerði það
að verkum, að hann fann upp tal-
símann fyrir hina heyrandi!
Mætti því ætla að þeir eigi hinum
heyrnarlausu skuld að gjalda!
Þá vil ég einnig benda á að mögu-
legt er að gera kennslumyndbönd
um táknmál, og einnig varalestur
og hér eru möguleikarnir óþijót-
andi. Með því að hægja á mynd-
bandi koma varahreyfingar t.d. bet-
ur fram og þetta opnar m.a. stór-
kostlega möguleika til þess að læra
að skilja varamál á eigin máli og
jafnvel erlendum tungum. En hér
þarf sérþjálfun að koma til vegna
blæbrigðamismunar varahreyfinga.
Á þennan hátt er lengi hægt að
halda áfram, en mikilvægast er að
alhæfa ekkert, en koma á fót Sam-
skiptamiðstöð heymarlausra, sem
byggist á víðtækri og skipulagðri
samhjálp og aðstoð við heymar-
lausa og heyrnarskerta, hvort sem
þeir byggja tjáskipti sitt á tákn-
máli eða talmáli (varalestri).
Hins vegar vilja ábyggilega fleiri
heymarlausir en ég halda sér um
alla framtíð við „ástkæra ylhýra
málið“ sem sitt móðurmál.
Höfundur er myndlistarmaður.
Norræn ráðstefna Kennarabraut • Macintosh
um vinnuvernd
Ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi.
Sérsniöin námskeið fyrir kennara!
NORRÆN ráðstefna var haldin
dagana 28.-30. ágiist um stöðu
og horfur vinnuverndarmála á
tímum markaðssamruna og
annarra breytinga á Evrópu-
bandalaginu.
Óháð samtök og samstarfs-
nefndir, sem starfa að vinnuvemd
á Norðurlöndum, gengust fyrir
ráðstefnunni en auk fulltrúá þeirra
sátu hana fulltrúar opinberra
Vinnuverndarstofnana og aðila
vinnumarkaðarins. Undirbúning
hér á landi annaðist Vinnueftirlit
ríkisins.
Á ráðstefnunni kom fram að
Danir hafa lagt veralega vinnu í
að móta kröfur sínar um hvaða
reglur eigi að gilda um vinnuvemd
innan Evrópubandalagsins og að
fylgja þeim eftir. Samkvæmt gr.
100 A í Rómarsáttmálanum á
bandalagið að tryggja að gerðar
séu háar heilbrigðis-, öryggis- og
umhverfísverndarkröfur til fram-
leiðsluvöra vegna innri markaðar-
ins. í gr. 118 A eru hins vegar
ákvæði um vinnuvernd og vinnu-
staði. Þegar hafa verið samþykkt-
ar viðamiklar reglur með kröfum
sem framleiðendur véla og tækni-
búnaðar verða að uppfylla og
snerta heilsu og öryggi notend-
anna. Kröfur gerðar tl vinnustaða
varða varnir gegn efna-, hávaða-
og geislunaráhrifum og í þeim er
margt um fyrirbyggjandi aðgerðir.
Á ráðstefnunni kom glöggt
fram að fulltrúar atvinnurekenda-
samtaka og verkalýðsfélaga hafa
að sumu leyti ólíkar skoðanir á
því hve vel sé staðið að vinnu-
verndai-málum innan Evrópu-
bandalagsins og hvernig eigi að
vinna að framgangi þeirra þar og
yfirleitt. Bent var á að í sumum
tilvikum giltu mun strangari kröf-
ur á Norðurlöndum en vænta
mætti að gerðar yrðu innan Evr-
ópubandalagsins, s.s. bann við
notkun asbests, kröfur um varúð-
arráðstafanir vegna notkunar
lífrænna leysiefna og merkingar
varasamra efna.
Einhugur var meðal þeirra sem
ræddu þessi mál um það að efla
norrænt vinnuverndarsamstarf,
m.a. til þess að hafa áhrif á stefnu-
mótun innan EB og víðar á alþjóð-
legum vettvangi.
(Frá Vinnueftirliti ríkisins)
%
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu
rfo3
Upp lýsingasími
um breytingar
útíbúanetsins!
Nú í haust eiga sér staö breytingar á útibúaneti íslandsbanka.
Hafir þú einhverjar spurningar í tengslum viö breytingarnar, geturöu
hringt ísérstakan UPPLÝSINGASIMA:
91-678 678
Síminn er opinn frá kl. 9.15-16.00 alla virka daga.
ISLANDSBANKI
-í takt við nýja tíma!
eru þegar ný afkvæmi líta dagsins ljós
Við fógnum tveimur nýjum afkvæmum þykkmjólkurkýrinnar góðu.
Þykkmjólk með súkkulaði og appelsínum og
trefjaríkri þykkmjólk með möndlum^ hnetum, ananas, appelsínum,
rúsínum og marsípani.
Þykkmjólk er mildsýrö, hnausþykk,
bragðljúf, holl og næringarrík meö
BIOgarde®gerlum sem öllum gera gott.
Kærkomnar nýjungar - ekki síst fynr smáfólkið.
*
D