Morgunblaðið - 04.09.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
19
merkilega vel úr garði gerðar og
njóta þeir þess enn í dag. Menn
reyni að ímynda sér hvernig ástand-
ið væri, ef einungis hefði verið
þrykkt einhæf nafnaskrá!
Má minna á það, að lítið segir
frá löngum kafla í íslenzkri mynd-
list vegna þessarar vanrækslu, á
meðan aðrir, sem sáu um, að gerð-
ir þeirra gleymdust ekki, eru menn
dagsins í dag.
Má telja að ýmislegt væri öðru-
vísi og heilbrigðara í íslenzkri
myndlist, ef þessi hlið hefði verið
ræktuð í sama mæli og gert er
hvarvetna erlendis. Þá væri ekki
mögulegt að skálda í eyðurnar í
þeim mæli og gert er.
Mikill ljóður er þó á framkvæmd
sýningarinnar, hve stutt hún stend-
ur yfir eða einungis í tvær vikur,
en einn mánuður er hið minnsta,
sem slík framkvæmd þarf til um-
leikis og kynningar.
Ánægjulegt er að sjá gömlu verk
Septembermanna í Áustursal, en
ég man ljóslega eftir mörgum þeirra
frá sýningunum í gamla daga, en
um leið sakna ég annarra, sem urðu
mér minnisstæð.
Grímuformið var lengi mjög
áberandi og var hingað komið frá
París eftir ýmsum krókaleiðum en
þó aðallega frá Kaupmannahöfn og
áhrifum frá dönskum myndlistar-
mönnum. Annars átti það upphaf
sitt í París á fyrstu áratugum aldar-
innar og hér var Henri Matisse
mikili áhrifavaldur, en það var
hann, sem benti Picasso og öðrum
á fegurð frumstæðrar listar þá ný-
kominn úr ferðalagi í Afríku. Varð
það til þess að Picasso og fleiri
eyddu mörgum stundum á Mann-
fræðisafninu í Paris (Museum de
l’Homme), en þar er eitt stórkost-
legasta samsafn frumstæðrar listar,
sem til er á einum stað í heiminum.
Árangur þessa nývakta áhuga
geymir svo listasagan.
Hér á landi var þetta iðkað sem
hrein rannsókn á myndrænum lög-
málum, en án beinna tengsla við
upprunann vegna fjarlægðanna. Sá
er kemur í þetta safn og reikar á
milli glerskápa, er geyma hvers
konar grímur og gjaldrafígúrúr frá
hinum ýmsu héruðum Afríku og
Asíu, svo og list Indíána og Esk-
iinóa, hlýtur að skynja betur hvað
lá að baki þessum áhuga.
Hér var nefnilega um að ræða
svo ríka skynræna formkennd, að
menn hljóta að falla í stafi, sem á
annað borð eru móttækilegir fyrir
formræna fegurð og myndrænt
samræmi.
Uppruninn er jafnan það, sem
meginmáli skiptir í allri myndlist,
og það sérstaka endui’varp áhrifa
frá næsta umhverfi og hugsunar-
hætti, sem fram kemur í myndverk-
unum.
Þess vegna hljóta þau verk að
lifa lengst, sem afhjúpa tilfinningu
gerandans fyrir umhverfi sínu og
lífinu allt um kring og gildir þá einu
hvort um sé að ræða lit- og form-
ræn blæbrigði, ströng uppbygging
forma eða frammúrskarandi mynd-
ræn eftirgerð hlutveruleikans.
Það er nefnilega að mínu mati
ekkert til sem nefnist alþjóðamál
myndlistarinnar án persónulegrar
lifunar og framsetningar.
Sýningin September - Septem
verður manni með mína yfirsýn
ósjálfrátt tilefni til hugleiðinga eins
og hér hafa verið settar fram, sjálf-
ir sýnendurnir staðfesta fyrri styrk
og hafa sjaldan verið betri, en enda-
laust mætti deila um val verka, en
það hefur að mínu viti tekist vel í
stórum dráttum. Eg hef árlega
skrifað um Septem og leita ekki í
endurtekningar hér. Arjnars vegar
væri meira en fróðlegt að sjá hvað
ungir hafa um þessa sýningu að
segja, sem hafa þróunina í meiri
fjarlægð og því kasta ég boltanum
til félaga míns hér við blaðið og
grípi hann boltann ef vill...
BALLET KLASSISKUR BALLET
Kennsla hefst 17. september.
Námskeið fyrir byrjendur (yngst 4ra ára) og
framhaldsnemendur.
Innritun í síma 72154 frá kl. 11-19.
Afhending skírteina laugardaginn
15. september frá kl. 12-16.
Kennslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DANCING RUSSIAN METHOD.
Félag íslenskra listdansara
6RLLET5KÓLI5IGRÍÐRR RRmRRR
SKÚLACÖTU 32-34 OOO
VERÐSPRENGING!
■ ■ ■ Isuzu Gemini. LT þriggja dyra hlaðbakur kostar
aðeins 766 þúsund og LT 1]ögurra óyraJQ^ þúsund krónur.
Isuzu Gemini er kallaður STÓRISMÁBÍLUNN, vegna hins ótrúlega rýmis
sem í honum er. í Gemini sameinast frábœr stjórnsvörun, sparneytni,
viðbraðgssnerpa og þœgindi.
Vélin er 1300cc. 12 hö.;hann er framhjóladrifinn, 5 gíra, með aftstýrí,
afihemium, PCV-lœsingavara á hemium og upphitaðri afturrúðu.
ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN!
Árleg a koma fulltrúar framleiðenda hingað til lands og skoða bílana,
eigendum að kostnaðarlausu.
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ!
Við bjóðum nú þriggja ára ábyrgð á þessum frábœru bílum.
Greiðslukjör eru við allra hœfi.
Óll verð eru staðgreiðsluverð. Bílamir eru ryðvarðir, skráðir, tilbúnir á gðtuna
með útvarpi og segulbandi.
mm _ m, SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA
MUðsútfftg
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 OG 674300
Komdu með Ijölskylduna
og reynstuaktu þessum
frábœrabil!
L e i t u m o g v i ð m u n u m f i n n a !
0HITACHI