Morgunblaðið - 04.09.1990, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ VB)SKIPn/AlVlNNUlÍF ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
EKKI PRÍLA!
NOTAÐU BELDRAY
Beldray fæst í byggingavöruverslunum og kaupfélögum um land allt.
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON & CO HF. SIMI 24020
Álstigarnir og tröppurnar frá
Beldray eru viðurkennd bresk
gæðavara - öryggisprófuð og
samþykkt af þarlendum yfir-
völdum.
Beldray er rétta svarið við vinnuna,
I sumarbústaðnum og á heimilinu.
Verðið er ótrúlega hagstætt -
gerðu hiklaust samanburð.
64,5cm 87,Ocm 109,5cm I32,0cm 154,5cm 177,Ocm
Minni, hljóðlátari og aflmeiri tölvur frá Victor
í baráttunni um borðplássið 1
er Victor óumdeilanlegur sigurvegari f
Þegar Ásgerður ritari Grímkells forstjóra fékk það vandasama verk að velja sér tölvu til að
vinna á þurfti hún að gera upp við sig nokkur atriði. Ætlaði
húrt að slaka á kröfunum og tjalda til einnar nætur, kaupa einhverja
útsölutölvu að austan, eða átti hún að fara öruggari leið.
Þar sem Ásgerður er bæði kröfuhörð og hagsýn manneskja sem
sættir sig ekki við neinar málamiðlanir valdi hún Victor ,,M". Því að
eins og hún sjálf segír: ,,Þegar dæmið er gert upp er það
þjónustan, rekstraröryggið og endursöluverðið sem skiptir máli.“
„Ekki spilla heldur atriði eins og stækkanlegt innra minni
(á móðurborðið) í 8MB*, möguleiki á lausum, ^ ^
hörðum disk (Add pak) og fjöldinn allur af mjög
stórum smáatriðum.
Sölumenn veita þér fúslega allar nánari upplýsingar í
verslun okkar að Grensásvegi 10 eða í síma 68-69-33.
'286 & 386
• VICTOR JW“ LlNAN «
M
• Tölvur framtíðarinnar •
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
VICTilft
Leiðrétting
Vegna mistaka við vinnslu við-
skiptablaðs síðastliðinn fimmtudag
birtust teikningar af fyrirkomulagi
í kjarna- og þjónustuútbúum ís-
landsbanka sem voru með öllu
óskiljanlegar sökum smæðar.
Teikningarnar eru því hér birtar
að nýju og er beðist velvirðingar á
þessum mistökum. Til nánari út-
skýringar má nefna að í kjarna-
útibúum verður aðstaða til að veita
„stórum viðskiptavinum víðtækari
þjónustu en áður. Þar verður unnt
að fá ýmsa sérhæfða þjónustu sem
t.d. stærri fyrirtæki óska- eftir auk
hefðbundinnar þjónustu við ein-
staklinga. Kjarnaútibúi tengjast
síðan ákveðin þjónustuútibú og
verður í kjarnaútibúinu einnig unn-
in sameiginleg bakvinnsla útibúsins
og þeirra_ þjónustuútibúa sem því
tengjast. í þjónustuútibúinu verður
lögð höfuðáhersla á framlínuþjón-
ustu við einstaklinga, samtök þeirra
og smærri fyrirtæki.
FIAT — Á myndinni eru nokkrir af eigendum ítalska verslunarfé-
lagsins, f.v. Sævar Pétursson, Birgir Þórisson, Jón Sigurðsson, Guð-
mundur Örn Jóhannsson, Jón Ragnarsson og Björn Jóhannesson.
Verslun
ítalska verslunarfélagið
tekur við Fíatumboðinu
ÍTALSKA verslunarfélagið hf. hefur tekið við rekstri Fíat umboðsins
hér á landi. Fyrirtækið er til húsa í Skeifunni 17 þar sem opnaður
hefur verið sýningarsalur fyrir nýja bíla og varahlutaverslun. Semoco
hf. Sveinn Egilsson mun annast viðgerðarþjónustu við Fíat bíla og
Bílaryðvörn annast ryðvörn. Þá munu Bílasalan Blik og Bílahöllin ann-
ast sölu Fíat bíla sem teknir verða upp í nýja.
Markmið fyrirtækisins er að veita
persónulega þjónustu og byggja upp
traust á Fíat bílum og umboðsaðila
þess, að því er segir í frétt frá ít-
alska verslunarfélaginu. Stefnt er að
því að halda yfirbyggingu og fjár-
bindingu í lágmarki þannig að fyrir-
tækið þurfi ekki stóra hlutdeild af
markaðnum til að lifa af. Fjórir
starfsmenn verða hjá ítalska verslun-
arfélaginu en bókhald og standsetn-
ing bifreiða er aðkeypt. Eigið fé er
29 milljónir króna í upphafi. Lögð
verður áhersla á smábílinn Fíat Uno,
Fíat Tipo sem er af millistærð og
Fiat Tempra en hann er í flokki bíla
af stærri gerðinni.
Hluthafar ítalska verslunarfélags-
ins eru Bílahöllin hf., Bílaréttingar
Sævars hf., Semoco hf. Sveinn Egils-
son bifreiðaverkstæði, Jón Sigurðs-
son, Birgir Þórisson, Siguijón Sig-
hvatsson og Guðmundur Örn Jó-
hannsson en hann er jafnframt fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Vaskhugi
Forritió sem sér um sölureikninga, viöskipta-
menn, lager, vsk, innheimtu o.s.frv., svo aö
þú getir einbeitt þér að arðbærari starf-
semi! Röskur og nákvæmur meðhjálpari á
skrifstofuna.
Hringdu og fáðu sendar nánari upplýsingar.
islensk tæki,
Garóartorg 5, sími 656510.