Morgunblaðið - 04.09.1990, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
31
Náttúruverndarráð;
Veiðar á fuglum
VEIÐITÍMI á gæs og skarfí hófst 20. ágúst og frá og með 1. septem-
ber verður leyfilegt að veiða endur, máfa, svartfugla og aðra sjávar-
fugla, eins og t.d. ritu. Rjúpnaveiðitíminn hefst hins vegar ekki fyrr
en 15. október og stendur til 22. desember.
Veiðar á flestum fuglategundum
eru heimilar fram í miðjan mars eða
út marsmánuð, nema veiðar á svart-
fugli sem leyfðar eru til 19. maí.
Um friðun og veiðitíma fugla eru
upplýsingar í lögum nr. 33/1966,
um fuglaveiðar og fuglafriðun.
Einnig má leita upplýsinga um
veiðitíma mismunandi fuglateg-
unda hjá lögreglu. Náttúrufræði-
stofnun íslands, náttúrugripasöfn-
Kristinn H. Árnason
um og Nátturuverndarráði.
Náttúruverndarráð hvetur veiði-
menn til að kynna sér friðunar- og
veiðitíma hverrar tegundar og að
menn glöggvi sig á greiningu fugla,
þ.e. á útliti, háttalagi og lit þeirra,
áður en haldið er til veiða. Þetta
er mjög mikilvægt til að menn viti
hvaða fugl þeir eru með í sigtinu
og hvort hann er friðaður eða ekki.
Þá er ekki síður mikilvægt að
þekkja íslenska fugla frá farfuglum,
en þeir koma aðeins við á íslandi á
leið sinni til og frá varpstöðvum í
öðrum löndum. Þannig kemur bles-
gæs við á íslandi vor og haust, á
leið sinni milli Grænlands og írlands
og Bretlandseyja. íslendingar
skjóta sennilega um 10% af stofnin-
um þegar hann fer hér um, eða um
2-3 þúsund fugla. Blesgæsin er hins
vegar friðuð í þessum löndum og
heildarstofninn er aðeins um 28.000
fuglar. Það er því siðferðileg skylda
hvers veiðimanns að veiða ekki bles-
gæs eða aðrar tegundir farfugla
sem eru ekki íslenskar og friðaðar
eru í heimalöndum sínum.
Reynsla undanfarinna ára hefur
sýnt okkur að alltaf er nokkuð um
það að lög um fuglaveiðar og fugla-
friðun séu brotin og búast má við
að eitthvað verði um slíkt á þessu
veiðitímabili. Náttúruverndarráð
telur því skyldu sína að benda veiði-
mönnum á nokkur atriði um veiði-
aðferðir sem óheimilar eru sam-
kvæmt fuglaveiðilögum, en vitað
er að beitt hefur verið hér á landi.
Má þar fyrst nefna að óheimilt er
að nota flugvélar, bifreiðar eða
önnur vélknúin farartæki á landi
til fuglaveiða eða til að elta uppi
eða reka fugla. Farartæki má þó
nota til að flytja veiðimenn, veiði-
hunda og veiðitæki að og frá veiði-
stað. Ýmis tæki eru óheimil og má
þar nefna blys og annan ljósabúnað.
Einnig er full ástæða til að minna
á að veiðar eru bannaðar á mörgum
friðlýstuni svæðum. Þar má helst
nefna Þjóðgarðana þrjá, Skaftafell,
Jökulsárgljúfur og Þingvelli, og
friðlönd eins og Þjórsárver, Herdís-
arvík, Herðubreiðarfriðland, Mikla-
vatn, Kringilsárrana, Varmárósa og
Gróttu. Veiðimenn eru vinsamieg-
ast beðnir að virða veiðibann á þess-
um stöðum.
Því miður gilda fáar hefðir um
veiðar hér á landi'eins og í Evrópu,
sérstaklega þar sem sportveiði er
frekar ung iðja hér á landi. Sport-
veiðar eru hins vegar mjög fornar
í flestum menningarlöndum og
stundaðar eftir vissum reglum. Það
ætti að vera hveijum veiðimanni
metnaðarmál að stunda sínar veiðar
þannig að sómi sé að, fyrir hann
og aðra veiðimenn. Nattúruvernd-
arráð hvetur því alla veiðimenn til
að virða lög um fuglaveiðar og
fuglafriðun, virða lög um náttúru-
vernd og sýna bráðinni þá virðingu
að nota lögmætar veiðiaðferðir,
gefa henni grið í náttstað og við
vatnsból og virða friðunartíma
hverrar tegundar.
(Fréttatilkynning)
PageMaker • Macintosh
©
<%>
Nauðsynlegt námskeið fyrir alla sem vinna að útgáfu!
12 klst námskeið fyrir byrjendur og lengra komna!
*<?
%
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu
s?
35. leikvika - 1. september 1990
Röðin: XX1 -X11-112-121
767.388,-
1. vinningur kr. 481.218,-
2. vinningur kr. 143.085.-
3. vinningur kr. 143.085.-
12 réttir: 0
11 réttir: 7 raðirkomuframogfærhver 20.440,-
10 réttir: 82 raðir komu fram og fær hver 1.744,-
Gítartónleikar í
Laugameskirkju
GÍTARLEIKARINN Kristinn H.
Árnason heldur tónleika í Laug-
arneskirkju nk. miðvikudags-
kvöld, 5. september. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.30.
Kristinn fæddist í Reykjavík árið
1963. Hann nam gítarleik hjá Gunn-
ari H. Jónssyni og Jósep Fung í
Tónskóla Sigursveins D. Kristinsson-
ar og lauk þaðan burtfararprófi
1983. Næsta ár var hann í námi hjá
Gordon Crosskey í Bretlandi, en
síðan í Manhattan School of Music
og lauk þaðan BM-prófi 1987. Á
síðasta vetri var hann á Spáni í námi
hjá José Tomas. Hann hefur tekið
þátt í námskeiðum hjá Andrés Sego-
via og Manuel Barrueco. Kristinn
hefur haldið tónleika hér á landi, í
Bandaríkjunum og á Ítalíu. Á efnis-
skrá tónleikanna eru verk eftir Scarl-
atti, Aguado, Martin, Granados og
Barrios.
Bragðgóðurhrísgrjónaréttur
með nautakjötskrafti og ör-
litlu hvítlauksbragði. Saman-
við er bætt ferskum grænum
baunum og gulrótum. Sérlega
góð uppfylling.
Fyrir 4 - suðutími 8 mín.
Heildsölubirgðir:
KARI. K. KARLSSON\CO.
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32
MIÐAVERÐ kr. 3500,-
LAUGARDAGSRISAROKK
í Reiðhöllinni 8. september
cobiTesNAlse
Tryggið ykkur miða á laugardagstónleikana
í tíma á meðan miðar eru til
Forsala aðgöngumiða
Reykjavík: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33; Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96; Steinar, Austurstræti, Álfabakka 14,
Glæsibæ, Laugavegi 24, Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi; Myndbandaleigur Steina; Plötubúðin Laugavegi 20. HafnarfjörAur: Steinar,
Strandgötu 37. Akranes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga. ísafjörður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skag-
firðinga. Akureyri: KEA. Neskaupstaöur: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavik: Hljómval.
Munið: Flugleiðir velta 35% afslátt af verði f lugferða
gegn framvisun aðgöngumiða að risarokktönleikunum.
Pantanasími fyrir iandsbyggðina er 66 75 56.
Ath. Forsölu é landsbyggðinni lýkur fimmtudaginn 6. sept.
H0*