Morgunblaðið - 04.09.1990, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
Safnaðarkór Seltjarnar-
kirkju að heíja vetrarstarf
SAFNAÐARKÓR Seltjarnarnes-
kirkju er nú að heQa vetrarstarf
sitt. Auk þess að annast söng við
guðsþjónustu safnaðarins leggur
kórinn áherslu á ílutning annarr-
ar góðrar kirkjutónlistar.
A efnisskrá kórsins er um þessar
mundir aðventu- og jólatónlist, m.a.
kantatan • „Kommst du, Licht der
Heiden" eftir Dietrich Buxtehude,
hugsað til flutnings á kirkjudegi
safnaðarins 2. desember nk.
Enn er hægt að bæta við áhuga-
sömu söngfólki í allar raddir, en auk
kórstarfsins er boðið upp á námskeið
í undirstöðuatriðum raddbeitingar.
Safnaðarkór Seltjarnarneskirkju
er nú að heíja vetrarstarf sitt.
Allar nánari upplýsingar veitir org-
anisti Seltjarnarneskirkju, Gyða Þ.
Halldórsdóttir.
Leiðrétting
í frétt sl. sunnudag um frammi-
stöðumat fyrirtækja féll niður föð-
urnafn Hólmfríðar Pálsdóttur hjá
Eimskipafélagi Islands. Einnig lék
prentvillupúkinn lausum hala í allri
þeirri málsgrein og verður hún því
birt hér í heild:
Hólmfríður Pálsdóttir hjá Eim-
skip segir að frammistöðumat sé
mjög gott stjórnunartæki til að ná
fram. þeim markmiðum, sem fyrir-
tækið ætli sér. Frá starfsmanninum
séð sé þetta mjög gott tækifæri til
að ná fram þeirri þróun, sem hann
sjálfur vilji innan fyrirtækisins.
Hólmfríður segir að starfsfólkið sé
yfirleitt ánægt með frammistöðu-
matið ásamt því að fá tíma fyrir
sjálft sig með yfirmanni sínum.
Velvirðingar er beðist á þessum
mistökum.
ATVINNUA UGL YSINGAR
Gangavarsla -
ræsting
Nú þegar vantar gangaverði og ræstingafólk
að Garðaskóla. Vinnutími er frá kl. 13-17.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans
í síma 44466.
Skólafulltrúi Garðabæjar.
Starfsfólk óskast
í framreiðslustörf.
Upplýsingar á staðnum frá kl. 12.00-14.30.
Pósthússtræti 17.
Morgunhress
Starfsfólk óskast í að taka til pantanir.
Vinnutími frá kl. 05.00-08.00, 05.00-10.00
og 05.00-13.00.
Upplýsingar hjá verkstjóra á staðnum.
Brauð hf.,
Skeifunni 19.
\hoire(/\
JJaoa)
Starfsfólk óskast
Óskum eftir að ráða fólk í eftirtalin störf:
Ræstingar á herbergjum.
Uppvask.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
alla virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Hótel Saga
v/Hagatorg.
Verslunarstörf
íVöruhúsi KÁ
Óskum eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
1. Afgreiðsla á kassa.
Vinnutími kl. 12.30-18.00.
2. Afgreiðsla í búsáhalda- og gjafavörudeild.
Heilsdagsstarf.
3. Afgreiðsla í kjöt- og fiskborði.
Heilsdagsstarf.
4. Afgreiðsla í bónusverslun.
Vinnutími kl. 13.00-18.00.
Nánari upplýsingar um störfin veitir vöruhús-
stjóri á staðnum, ekki í síma.
Vöruhús KÁ, Selfossi.
Starfskraftur óskast
til afgreiðslustarfa sem fyrst í Múlakaffi.
Upplýsingar á skrifstofu Veitingahallarinnar,
Húsi verslunarinnar, milli kl. 10-16 virka
daga.
Atvinna
- nýtt húsnæði
Óskum að ráða fólk til starfa í regnfatadeild,
bæði í saumaskap og í vinnu á bræðsluvél-
um. Vinnuaðstaða gjörbreytt í stórglæsilegu,
nýju húsnæði í Faxafeni 12, 2. hæð, í Skeif-
unni (í sama húsi og Virka). Aðalinngangur
að vestanverðu.
Bónuskerfi sem gefur góða tekjumöguleika.
Upplýsingar hjá verkstjóra á vinnustað eða
í síma 679485.
SEXTIU OG SEX NORÐUR
Faxafen 12, sími 679485,
Skúlagata 51, sími 11520.
Starfsfólk óskast
Starfsfólk óskast við pökkun o.fl.
Upplýsingar gefur verkstjóri á staðnum.
Sælgætisgerðin Móna hf.,
Stakkahrauni 1, Hafnarfirði.
ÁLAFOSS
Rafvélavirki
Óskum eftir að ráða rafvélavirkja til starfa
hjá verksmiðju Álafoss hf. í Mosfellsbæ.
Starfssvið: Viðhald á framleiðsluvélum og
raflögnum verksmiðjunnar.
Við leitum að manni, sem hefur meistara-
réttindi og/eða sveinspróf í rafvélavirkjun
(rafvirkjun kemur einnig til greina). Viðkom-
andi þarf að geta starfað sjálfstætt að verk-
efnum og hafa áhuga og skilning á vélum.
Við bjóðum: Fjölbreytt og krefjandi ábyrgðar-
starf og ágætis starfsaðstöðu.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um, sem liggja frammi á skrifstofu okkar,
merktar: „Rafvélavirki 470“, fyrir 8. sept. nk.
] Fiagvangur h f
Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Rafvirki
með góða starfsreynslu óskar eftir atvinnu.
Upplýsingar í síma 40582 eða 40265.
Verkamenn vantar
Óskum eftir að ráða verkamenn í fóðurblönd-
unarstöð okkar.
Upplýsingar gefur verkstjóri á staðnum.
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Korngörðum 8.
óskar eftir matreiðslumanni. Vaktavinna.
Góð laun í boði.
Upplýsingar á staðnum á milli kl. 9.00 og
11.00.
RÍKISSPÍTALAR
Kópavogshæli
Starfsmenn óskast til starfa við umönnun
vistmanna. Starfið felur í sér þátttöku í þjálf-
un, útiveru og almennum heimilisstörfum
þ.m.t. þrif og ræsting. Æskilegt er að um-
sækjendur hafi starfsreynslu með þroska-
heftum.
Sjúkraliðar óskast til starfa á deild 8 sem
er hjúkrunar- og ellideild. Starfshlutfall sam-
komulagsatriði, dag- og kvöldvaktir. Æskilegt
að umsækjendur hafi lokið framhaldsnámi
fyrir sjúkraliða í elli- eða geðhjúkrun.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Sigríður Harðardóttir, hjúkrunarforstjóri, í
síma 602700.
Reykjavík, 4. september 1990.
Hrafnista, Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðingar
óskast í eftirtalin störf:
Aðstoðardeildarstjóra vantar á hjúkrunar-
deild. Stöður hjúkrunarfræðinga á kvöld-,
helgar- og næturvöktum eru einnig lausar
til umsóknar.
Sjúkraliða og eða
starfsstúlkur
vantar á morgunvaktir.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 54288.
IVIIIKIIIICKB