Morgunblaðið - 04.09.1990, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
Móðir okkar, t SÍSÍ MATTHÍASSON frá Sóla íVestmannaeyjum,
er látin. Börnin.
t
Ástkær eiginmaður minn,
MEL STENSITH,
lést 2. september í Grand Rapids, Minnesota.
Esther Blöndal.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
HÖRÐUR BJARNASON
fyrrverandi húsameistari ríkisins,
lést sunnudaginn 2. september sl.
Katla Pálsdóttir,
Áslaug G. Harðardóttir, Jón Hákon Magnússon,
Hörður H. Bjarnason, Áróra Sigurgeirsdóttir.
t
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR H. GUÐMUNDSSON,
lést í sjúkrahhúsinu á Hvammstanga 2. september.
Jónína Sigurðardóttir, Ólafur Þ. Sæmundsson,
Sigurður H. Ólafsson, Hafdís Ólafsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
MAGNÚS ÓLAFSSON
læknir,
lést á Landspitalanum 2. september.
Annella Stefánsdóttir,
Stefán Ágúst Magnússon,
Ólafur Friðrik Magnússon.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN KRISTJÁNSSON
fyrrv. íþróttafulltrúi Reykjavíkurborgar,
andaðist á gjörgæsludeild Borgarspítalans þann 1. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristjana Jónsdóttir,
Helga Stefánsdóttir, Helgi R. Einarsson,
Jóhanna Stefánsdóttir, Örn Andrésson,
Anna Stefánsdóttir,
Stefán Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÚLÍUS ÁRNASON,
Vesturgötu 23,
Keflavík,
lést á Landakotsspítala föstudaginn 31. ágúst.
Aðalheiður Júlíusdóttir,
Sigurlaug Júliusdóttir,
tengdasynir, barnabörn og
barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNLAUGUR ÓLAFSSON
fyrrv. skrifstofustjóri,
Álfheimum 50,
andaðist að morgni 1. september.
Oddný Pétursdóttir,
Álfrún Gunnlaugsdóttir,
Ólafur Gunnlaugsson, Margrét Ingimarsaóttir,
Gylfi Gunnlaugsson, Ragnhildur Hannesdóttir
og barnabörn.
Kristján H. Jón-
asson - Minning
Fæddur 18. febrúar 1918
Dáinn 25. ágúst 1990
0, hve létt er þitt skóhljóð,
ó, hve lengi ég beið þín.
Það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín.
En ég veit eina stjðmu
eina stjömu sem skín.
Og nú loks ertu komin
þú ert komin til mín.
Hann Kristján frændi er dáinn.
Hann sem var alltaf einsog klett-
urinn í hafinu, stóð upp úr beinn
og traustur.
Mig langar til þess að þakka
honum fyrir mig og mína. Mínar
minningar um Kristján frænda ná
langt aftur í tímann. Ég er smá-
bam, Kristján ungur maður sem
alltaf hugsaði um hag okkar allra
í fjölskyldunni. Móður minni var
hann betri en nokkur annar, þegar
hún stóð uppi ekkja með fjögur ung
börn, þá kom Kristján frændi til
þess að hjálpa.
Ég verð að minnast á afa og
ömmu. Þau áttu góðan son þar sem
Kristján frændi var. Þau bjuggu
undir hans vemdarvæng seinustu
árin sín í Hveragerði. Þar bjó Krist-
ján öll sín bestu ár.
En er kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns.
Og á morgun skín maísói
það ,er maísólin hans.
Það er maísólin okkar,
okkar einingarbands
fyrir þig ber ég fána,
þessa framtíðarlands.
(H. Laxness)
Kristján frændi var tvíkvæntur.
Með Helgu Magnúsdóttur átti hann
þrjá syni, Braga, Láms og Helga.
Helga lést eftir erfíð veikindi þegar
yngsti sonur þeirra var á fyrsta
aldursári. Það var þung raun.
Seinni kona Kristjáns var Sigur-
laug Jónsdóttir, mikil dugnaðar og
sómakona og heimili þeirra rómað
fyrir rausn og glæsibrag. Tvær
dætur áttu þau, þær Soffíu og
Svövu, allt er þetta öndvegisfólk.
Það gat ekki annað orðið, að eiga
slíkan föður.
Kæra Sigurlaug, ég og mitt fólk
vottum þér og allri fjölskyldunni
dýpstu samúð. Megi minningin um
góðan dreng lifa með okkur öllum.
Bíbí
Mágur minn og kær vinur, Krist-
ján Hólm Jónasson, er látinn. Hann
fæddist á ísafirði og voru foreldrar
hans þau Hólmfríður Jóhannsdóttir
og Jónas Guðnason.
Hólmfríður var ættuð frá Dynj-
anda í Arnarfirði en Jónas frá
ísafirði þar sem hann var vélstjóri.
Kristján ólst upp á ísafirði ásamt
allstómm systkinahópi en þau voru
Einar, Ámi, Guðríður, Rannveig og
Jóhanna sem látin er fyrir nokkram
árum. Hann gekk sina skólagöngu
á ísafírði eins og aðrir unglingar
en fór síðan fljótlega að vinna fulla
vinnu við ýmisleg störf eins og al-
gengt var í þá daga til að leggja
sitt af mörkum til heimilis foreldra
sinna. Síðar réðst hann til kaupfé-
lags ísfírðinga þar sem hann vann
í nokkur ár.
Ungur að árum gekk hann í
hjónaband og var eiginkona hans
Helga Magnúsdóttir og hófu þau
búskap á Isafirði.
Fljótlega kom í ljós dugnaður
hans og atorkusemi þegar hann
rúmlega tvítugur byggði ágætan
sumarbústað í Tungudal þar sem
þau hjónin og drengimir þeirra áttu
margar góðar stundir á sumrin en
fljótt brá skugga á líf þeirra, þegar
Helga missti heilsuna í blóma lífsins
og náði aldrei fullri heilsu aftur,
og fljótlega þurfti hún að leggjast
inn á sjúkrahús þar sem hún dvaldi
oft og lengi. Má nærri geta hvílík
raun þetta hefir verið ungum hjón-
um. Þar sem Helga þurfti að vera
langdvölum fyrir sunnan kom
Kristján til Reykjavíkur og vann
þar við verslunarstörf uns hann
flutti til Hveragerðis þar sem hann
byggði sér einbýlishús. Helga and-
aðist eftir 15 ára sambúð og var
þá yngsti drengurinn þeirra ný-
fæddur en hann hlaut nafnið Helgi,
eldri drengirnir vom þeir Láms og
Bragi.
Eftir þetta áttu þeir athvarf hjá
sínum nánustu, Bragi sá elsti hjá
Guðrúnu móðursystur sinni og
manni hennar Ragnari Guðjóns-
syni, Lárus hjá afa sínum og ömmu,
Hólmfríði og Jónasi, en þau fluttu
til Hveragerðis í stríðslok og Helgi
sá yngsti hjá föður sínum og seinni
konu hans Sigurlaugu Jónsdóttur
sem gekk honum í móðurstað.
Helgi er nú byggingameistari og
starfar í Svíþjóð, giftur Guðrúnu
Ágústu Viggósdóttur, Láras, verk-
stjóri, giftur Sonju Andrésdóttur
og Bragi, tölvufræðingur, giftur
Ingu Guðmundsdóttur.
Kristján hóf verslunarrekstur í
Hveragerði ásamt fleiram og stund-
aði um langt árabil umfangsmikla
verslun og munu fáir hafa verið þar
um slóðir sem ekki þekktu Kristján
í „Reykjafossi" en svo hét verslun-
in. Hann gat sér gott orð sem kaup-
maður enda þekktur fyrir heiðarleik
og dugnað samfara einstakri prúð-
mennsku og hjálpsemi sem margir
hafa notið, og vil ég sérstaklega
minnast þess hve mikla umhyggju
hann bar fyrir öldraðum foreldrum
sínum eins og reyndar öllu sínu
skylduliði og tengdafólki.
Seinni kona Kristjáns sem nú lif-
ir mann sinn, er sem fyrr segir Sig-
urlaug Jónsdóttir húsmæðrakenn-
ari mikilhæf kona og dugnaðarfork-
ur. Þau eignuðust 2 dætur en þær
eru: Soffía, kennari, gift Trausta
Harðarsyni, arkitekt, og Svava,
uppeldisfræðingur, gift Grétari
Guðjónssyni rekstrarhagfræðingi.
Kristján og Sigurlaug eignuðust
fagurt heimili í Hveragerði og hefir
það verið þekkt fyrir sérstaka gest-
risni og höfðingsskap.
Kæra Sigurlaug, við hjónin send-
um þér og ástvinum ykkar Kristjáns
öllum innilegustu samúðarkveðjur
með þakklæti fyrir alla ykkar góð-
vild og vináttu á liðnum áram.
Magnús Guðmundsson
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HELGASQN HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI48, SIMI76677
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
STEFÁN G. BJÖRNSSON
fyrrverandi framkvaemdastjóri,
andaðist að morgni sunnudagsins 2. september.
Sigríður Jónsdóttir,
Ólafur W. Stefánsson,
Björn S. Stefánsson,
Jón Ragnar Stefánsson.
Bróðir okkar, t
ÞÓRARINN PÁLSSON
frá Skeggjastöðum i Fellum,
er látinn. '
Aðaldís Pálsdóttir,
Hulda Pálsdóttir,
Björn Pálsson,
Jón Pálsson.
t
Bálför
EYÞÓRS GUÐJÓNSSONAR
frá Skúmstöðum á Eyrarbakka,
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hörður Jónsson.
t
Útför
ÞÓRARINS PÁLSSONAR,
Skeggjastöðum,
verður gerð frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 8. september
kl. 14.00. Jarðsett verður á Skeggjastöðum.
Systkini hins látna.